Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 73

Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS llf KtfTHIM"! Mffl'É'lí RIVA hægindastóll m/skammeli kr. 37.800,- Svart og brúnt leður. Hver blekkir hvern? Til Velvakanda. Skv. nokkuð löngu tilkominni samanburðarskoðanakönnun munu Islendingar telja sig vera hamingju- sama: könnunin mældi nánast heimsmet í hamingju. Hafi ein- hveijum fundist það undarlegt og e.t.v. frekar túlkanlegt sem heims- met í sjálfsblekkingu, þá komu samt nýlega fram í öðrum saman- burði mögulegar skýringar: Hagur íslendinga er einsog hann gerist bestur meðal þeirra bestu, og hér ríkir skattaparadís. Samt halda ein- hveijir enn áfram að undrast, ekki síst mörlandar úr „alþýðunni", t.d. úr starfsstéttum í mennta- og heil- brigðiskerfinu, sem frétta ekki svo sjaldan um alltað tvöfalt hærri laun starfssystkina sinna í öðrum lönd- um og ‘almennt sé ljóst, að ekki dugi ein fyrirvinna til að sjá fjöl- skyldu fyrir nauðþui-ftum einsog þó var hægt á umtöluðum árum áður, sem svo oft eru kennd við kreppu, svo fremi sem menn gátu fengið vinnu. Enda fylgir böggull skammrifi: Þrír snyrtilegur menn lýsa því yfir með hátíðlegum svip, að um leið og hagur sé jafn hér og annars staðar, þurfi reyndar mörlandinn að hafa svolítið meira fyrir þessu og vinna fleiri vinnustundir. Þannig náist jafn kaupmáttur. Skv. slíkum rökum fræðinga á sviði félags- og hagfræði hljóta, þegar öllu er á botninn hvolft, allir alltaf að hafa það jafngott. Tannlæknirinn, sem tekur gjarnan 20.000 kr. fyrir að grandskoða munnsöfnuð í nokkrar tnínútur, hefur í raun bara svipuð kjör og gangastúlkan með sínar 300 kr. á tímann: Hún þarf bara að vinna svolítið lengur. Þetta tak- markast þá raunar eingöngu af því hve margar stundir eru í sólar- hringnum. Hver er að reyna að blekkja hvern? En þetta með skattana? Einsog 1-2% skattstig skipti höfuðmáli þegar kannski munar um helming á launum. Þegar hefur verið bent á lífeyrissjóðagjöld, sem bætast við skattheimtu hérlendis en teljast með skatti víðasthvar annars stað- ar, svo og á lágar bótagreiðslur tryggingakerfisins, þar sem t.d. lífeyrisréttindi skerðast því meira eftir því sem nauðungargreiðslur í lífeyrissjóðina hafa verið hærri og keypt skárri afkomuréttindi. Var þó ekki tilkomið náðarhögg þess kerfis, sem heilbrigðisráðherra vill nú reiða með því að leggja fram frumvarp til laga, þar sem um- ræddar nauðungargreiðslur í lífeyr- issjóði veita smámsaman þá umbun eina að missa alveg af ellilífeyri tryggingakerfisins. M.ö.o. er Is- lendingum með reglubundinni, langvarandi eignaupptöku gert að kosta sig dýrum dómum til fátæk- ara lífs í ellinni! En hvað sem slíkum þokukennd- um upplýsirigum líður um skatta- mál virðist eitt standa upp. úr í umræddri skýrslu: Þjóðartekjur hér virðast enn vera meðal þeirra hæstu í heimi, þótt ísland sé um leið að verða láglaunasvæði. Hvar liggur þessi auður þá? Marga renni í grun, að víða séu til aurar undir koddum, þótt launastéttir séu varla hálfdrættingar á við sambærilegar stéttir erlendis. Þeir spretta fram á andlit þjóðarinnar, hvort heldur þegar ný stöðutákn koma fram á sjónarsviðið einsog vélsleðar eða farsímar (þá setjum við yfirleitt heimsmet) eða hlutabréf fyrir hundruð milljóna. Eða liggur hann í allskyns sjóðum bjargráða og verðjöfnunar og annarrar milli- færslu þar sem silfrið gjálfrar um óarðbærar og ribbaldalegar fjár- festingar? Og þá má spyrja: Eru öll þau sjóðaframlög tíunduð til OECD sem skattar? Um það verður líka að fá svar til að fá endanlega að vita af hvaða völdum við erum svona hamingjusöm og skattalág, þótt ljóst megi vera, að fræknasta heimsmetið okkar hlýtur áreiðan- Iega að vera það, hvað við veljum okkur laka stjómendur. 6777-5483 FAX 91-673511 SÍMI91-681199 BÍLDSHÖFÐI20 112 REYKJAVÍK ANGELO hægindastóll m/skammeli kr. 58.130,- Svart leöur á svartri grind. SCARLET hægindastóll m/skammeli kr. 30.800,- Fáanlegur í mörgum leöurlitum. STJÖRNUKORT Falleg gföf Persónulýsing, framtíðarkort, samskiptakort. Gunnlaugur Guðmundsson, Stjömuspekistöðin, Miðbæjarmarkaðinum, Aðalstræti 9, sími 10377. Hverjum ber að greiða eig- endaskiptagjald af bílum? ~ST1 KAFFIVAGNINN! Ásgeir Hannes Eiriksson, þingmaður Borgaraflokksins og fulltrúi Reykvíkinga í fjórveitinga- nefnd Alþingis, veróur í Kaffivagn- inum við Grandagarð í dag, föstu- daginn 14. des.,kl. 12.00-14.00. Smábátaeigendur eru sérstaklega hvattir til að koma og ræða um kvótann við þingmann Reykvíkinga. Til Velvakanda. Eigendaskiptagjald af bílum er kr. 2.300 og samkvæmt orðanna hljóðan er þetta gjald greitt vegna þess að nýr eigandi tekur við bílnum, og ber þá hinum nýja eig- anda að greiða umrætt gjald til þess að fá bílinn skráðan sem sína eign á sitt nafn. Nú er mér kunnugt um að svo til allar bílasölur láta seljanda bílsins greiða þetta gjald, að mínu mati, fyrir kaupanda. Við sölu á bíl er komið á samn- ingi milli seljanda og kaupanda um verð og greiðslumáta. Síðan er und- irritaður kaupsamningur eða afsal og sölutilkynning um eigandaskipti. Þar með er kaupandi löglegur eig- andi að bílnum og frá þeirri stundu hirðir hann allan arð af þessari eign sinni og greiðir allan kostnað af þeirri sömu eign, þar á meðal eig- andaskiptagjald, tryggingu, rekstur og viðhald. Þessi regla gildir um aðrar eignir, er menn kaupa eða eignast, svo sem bát og skip, sumar- bústað eða íbúð. Annað mál er svo það, að í öllumi viðskiptum geta menn samið um hveijum beri að greiða hvað, og að sjálfsögðu er einnig hægt að semja um það að seljandi greiði umrætt gjald fyrir kaupanda, en það þarf þá að gerast áður en kaup eru gerð eða a.m.k. áður en þeim er lokið. Halldór Snorrason PbnMpunvuwtíkí Metsölublad á hverjum degi. 4 FRABÆRIR HEIDI stóll 100% bómull kr. 10.500,- m/skammeli kr. 17.500,- Margir litir. Þú þarfi ekki aö fara annaö HusgagnaAöllin REGENT MÖBEL Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.