Morgunblaðið - 20.12.1990, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
SJONVARP / SIÐDEGI
TF
b
0
14.30
15.00
15.30
16.00
16.30
17.00
STOD2
16.45 ► Nágrannar
(Neighbours). Ástralskur
framhaldsþáttur.
17.30
18.00
18.30
19.00
17.40 ► Jóla- 18.20 ► Tumi
dagatal Sjón- (28)(Dommel).
varpsins. 20. 18.45 ►
Óvini bjargað. Táknmáls-
17.50 ► Stundin okkar. fréttir.
18.50 ► Fjölskyldu-
líf (22) (Famllies).
19.15 ► Benny Hill
(18).
17.30 ► Saga jólasveinsins. Fyrir þó nokkru fengu öll börnin í heiminum
jólagjafirnar sínar og nú streyma falleg þakkarbréf til jólasveinsins.
17.50 ► Með Afa. Endurtekinn þáttur frá síðastliðnum laugardegi.
19.19 ► 19:19.
SJONVARP / KVOLD
á\
b
19.30
20.00
20.30
19.50 ► Jóla-
dagatal Sjón-
varpsins.
20.00 ► Fréttir, veður og
Kastljós. f Kastljósi á
fimmtudögum verða tekin til
skoðunar þau mál sem hæst
ber hverju sinni innan lands
sem utan.
21.00
STOD2
20.55 ►
Skuggsjá.
Kvikmynda-
þáttur.
19.19 ► 19:19. Fréttir,
fréttir, fréttir.
20.15 ► Óráðnargátur(Unsolved
Mysteries). Dularfullar gátur og torræð
sakamál í sviðsljósinu.
21.30
22.00
21.20 ► Evrólöggur(3). Ófreskjan
frá Bisamberg. Þátturinn gerist ÍVÍn
og er byggður á sannsögulegum
atburðum. Fjöldi kvenna verðurfyr-
irárásum nauðgara og lögreglan
reynir að hafa hendur í hári hans.
21.20 ► Hitch-
cock.
21.55 ►
Kálfsvað
(Chelmsford
123).
22.30
22.20 ► íþrótta-
syrpa. Þáttur með
fjölbreyttu íþróttaefni
úrýmsum áttum.
23.00
23.30
23.00 ► Ellefufréttir.
23.10 ► í 60 ár. Ríkisútvarpið
og þróun þess. Annar þáttur í
syrpu sem Markús Örn Antons-
son gerði um sögu Rfkisútvarps-
ins.
24.00
22.25 ► Afangar. Björn G. Björns-
son mun skoða kirkjuna á Grund í
Eyjafirði.
22.40 ► Listamannaskálinn —
Hindemith. Fjallað verður um tón-
skáldið Paul Hindemith.
23.55 ► Dag-
skrárlok.
23.25 ► Al Capone. Glæpahundurinn
Al Capone hefurverið kvikmyndagerð-
armönnum hugleikinn, nú síðast í
myndinni Hinirvammlausu. Strang-
lega bönnuð börnum.
1.05 ► Dagskrárlok.
UTVARP
©
FM 92,4/93,5
MORGUNUTVARP KL. 6.45 - 9.00
6.45 Veðurfregnír. Bæn, séra Pétur Þórarinsson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunþáttur Rásar 1. Fjölþætt tónlistarút-
varp og málefni líðandi stundar. Soffía Kartsdóttir.
7.32 Daglegt mál, sem Mörður Árnason flytur.
7.45 Listróf — Þorgeir Ólafsson.
8.00 Fréttir og Morgunauki um viðskiptamál kl.
8.10.
8.30 Fréttayfirlit.
8.32 Segðu mér sögu — Jólaalmanakið „Mummi
og jólin" eftir Ingebrikt Davik. Emil Gunnar Guð-
mundsson les þýðingu Baldurs Pálmasonar (9)
Umsjón: Gunnvör Braga.
ARDEGISUTVARP KL. 9.00 - 12.00
9.00 Fréttir.
9.03 Laufskálinn. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir.
9.45 Laufskálasagan. „Frú Bovary" eftir Gustave
Flaubert. Arnhildur Jónsdóttir les þýðingu Skúla
Bjarkans (61)
10.00 Fréttir.
10.03 Við leik og störf. Umsjón: Bergljót Baldurs-
dóttir, Sigríður Arnardóttir og Hallur Magnússon.
Leikfimi með Halldóru Björnsdóttur eflir fréttir
kl. 10.00, veðurfregnir kl. 10.10, þjónustu- og
neytendamál og umfjöllun dagsins.
11.00 Fréttir.
11.03 Árdegistónar.
11.53 Dagbókin.
HADEGISUTVARP kl. 12.00-13.30
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Auðlindin. Sjávarútvegs- og viðskiptamál.
12.55 Dánarfregnir. Auglýsingar.
13.05 í dagsins önn — Saga Landspítalans. Þáttur
í tilefni 60 ára afmælis spítalans. Umsjón: Stein-
unn Harðardóttir.
MIÐDEGISUTVARPKL. 13.30-16.00
13.30 Hornsófinn.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan: „Babette býður til veislu" eft-
ir Karen Blixen. Hjörtur Pálsson les þýðingu sina
(3)
14.30 Miðdegistónlist.
- Divertimento fyrir flautu og gitar eftir Vinz-
enzo Gelli og.
— Serenaða ópus 127 eftir Maurio Giuliani.
Toke Lund Christiansen ieikur á flaútu'og Ingolf
Olsen á gitar.
15.00 Fréttir.
15.03 Leikrit vikunnar: „Ský' eftir Áma Ibsen. Höf-
undur leikstýrir. _________________________________________
SIÐDEGISUTVARP KL. 16.00 - 18.00
16.00 Fréttir.
16.05 Völuskrín. Kristín Helgadóttir les ævintýri og
barnasögur.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Á förnum vegi. Með Kristjáni Sigurjónssyni
á Norðurlandi.
16.40 „Ég mao þá tíð". Þáttur Hermanns Ragnars
Stefánssonar.
17.00 Fréttir.
17.03 Vita skaltú. Ari Trausti Guðmundsson, lllugi
Jökulsson og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir afla
fróðleiks um allt sem nöfnum tjáir að nefna,
tletta upp i fræðslu- og furðuritum og leita til
sérfróðra manna.
17.30 Septett fyrir strengi og blásara. eftir Frans
Berwald...Richard Adney leikur á flautu, Peter
Graeme á óbó, Gervase de Payer á klarinettu,
Wílliam Waterhouse á fagott, Neill Sanders á
hom, Emanuel Hurvitch á fiðlu, Cecil Aronovitch
á viólu, Terence Weil á selló og Adrian Beers á
kontrabassa.
FRETTAUTVARP 18.00-20.00
18.00 Fréttir.
18.03 Hér og nú.
18.18 Að utan.
18.30 Auglýsingar. Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.35 Kviksjá.
19.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Mörður Árnason flytur.
TONLISTARUTVARP KL. 20.00 - 22.00
20.00 Tónlistarkveðja útvarpsstöðva Norðurland-
anna á 60 ára afmæli Ríkisútvarpsins. Norrænir
tónlístarmenn flytja íslensk verk.
- „Kaupmannahafnar Kvartett" eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson.
- „Fra den tavse verden" verk fyrir einleiksselló
eftir Atla Heimi Sveinsson.
- „Naktir litir" eftir Báru Grimsdóttur og.
— Sönglög eftir Sveinbjörn Sveinbjömsson,
Árna Thorsteinsson, Karl 0. Runólfsson og
Gunnar Reyni Sveinsson. (Endurtekið frá 9. des-
ember.)
KVOLDUTVARP KL. 22.00 - 01.00
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan. (Endurtekinn frá 18.18.)
22.15 Veðurfregnir. .
22.20 Orð kvöldsins. Dagskré morgundagsins.
22.30 Sögur í 60 ár. Ævar Kjartansson spjallar við
gamla úNarpsmenn.
24.00 Fréttir.
0.10 Miðnæturlónar. (Endurtekin tónlist úr Árdeg-
isútvarpi.)
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
FM 90,1
7.03 MorgunúNarpið - Vaknað til lífsins. Leifur
Hauksson og félagar hefja daginn með hlustend-
um. Upplýsingar um umferð kl. 7.30 og litið I
blöðin kl. 7.56.
8.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur
áfram.
9.03 Níu fjögyr. Dagsútvarp Rásar 2, fjölbreytt
dægurtónlist og hlustendaþjónusta. Umsjón:
Jóhanna Harðardóttir og Magnús R. Einarsson.
11.30 Þarfaþing.
12.00 Fréttayfirfit og veður.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Níu fjögur. Dagsútvarp Rásar 2 heldur áfram.
13.?0 Vinnustaðaþrautirnar þrjár.
14.10 Gettu þeturl Spurningakeppni Rásar 2
með veglegum verðlaunum. Umsjónarmenn:
Guðrún Gunnarsdóttir ^g Eva Ásrún Albertsdótt-
ir.
16.03 Dagskrá. Starfsmenn dægurmálaútvarpsins
og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og
smá mál dagsins.
17.30 Meinhornið: Óðurinn til gremjunnar. Þjóðin
kvartar og kveinar yfir öllu því sem aflaga fer.
18.03 Þjóðarsálin — Þjóðfundur í beinni útsend-
ingu, sími 91-68 60 90. - Borgarljós Lisa Páls
greinir frá því sem er að gerast.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Gullskifan frá 7. áratugnum: „Days og future
passed" með Moody blues frá 1974.
20.00 Lausa rásin. Utvarp framhaldsskólanna. Bíó-
leikurinn og fjallað um það sem er á döfinni i
framhaldsskólunum og skemmtilega viðburði
helgarinnar Umsjón: Hlynur Hallsson og Oddný
Eir Ævarsdóttir. .
21.00 Stjörnuljós. Jólalög að hættl Ellýjar Vilhjálms.
22.07 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita.
0.10 í háttinn.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Gramm á fóninn. Endurtekinn þáttur Margrét-
ar Blöndal frá laugardagskvöldi.
2.00 Fréttir. - Gramm á fóninn Þáttur Margrétar
Blöndal heldur áfram.
3.00 í dagsins önn - Saga Landspitalans. Þáttur
í tilefni 60 ára afmælis spítaláns. Umsjón: Stein-
unn Harðardóttir. (Endurtekinn þáttur frá degin-
um áður á Rás 1.j
3.30 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi fimmtudags-
ins.
4.00 Vélmennið. leikur næturlög.
4.30 Veðudregnir. - Vélmennið heldur áfram leik
sínum.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Endur-
tekið úrval frá kvöldinu áður.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum!
6.01 -Morguntónar.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Norðurland.
18.35-19.00 Útvarp Austurland.
18.35-19.00 Svæðisútvarp Vestfjarða.
FMT909
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Á besta aldri. Umsjón Ólafur Tr. Þórðarson.
Létt tónlist í bland við spjall við gesti í morgun-
kafti. Kl. 7.00 Morgunandakt. Séra Cecil Haralds-
son.
9.00 Morgunverk Margrétar. Umsjón Margrét
Hrafnsdóttir. 9.30 Húsmæðrahornið. 10.00 Hvað
gerðir þú við peninga sem frúin í Hamborg gaf
þér. 10.30 Hvað er í pottunum? 11.00 Jólaleikur
Aðalstöðvarinnar. 11.30 Slétt og brugðið.
12.00 Hádegisspjall. Umsjón Helgi Pétursson.
13.00 Strætin úti að aka. Umsjón Ásgeir Tómas-
son. 13.30 Gluggað i síðdegisblaðið. 14.00
Brugðið á leik. 14.30 Saga dagsins. 15.00 Topp-
arnir takast á. 15.30 Efst á baugi vestanhafs.
Kl. 16.15 Heiðar, heilsan óg hamingjan. (Endur-
tekið frá morgni).
16.00 Akademían. Kl. 16.30 Mitt hjartans mál.
Ýmsir stjórnendur. 18.30 Aðalstöðin og jólaund-
irbúningurinn.
19.00 Eðaltónar. Umsjón Kolbeinn Gislason. Spjall
og tónlist.
22.00 Á nótum vináttunnar. Umsjón Jóna Rúna
Kvaran. Þáttur um manneskjuna. Jóna Rúna er
með gesti á riótum vináttunnar í hljóðstofu.
24.00 Næturtónar Aðalstöðvarinnar. Umsjón Rand-
ver Jensson.
Hugmyndafrelsi
Það er erfitt að fjalla um alla
íslenska sjónvarpsþætti. Und-
irritaður reynir þó að festa á blað
velflesta þætti sem hafa verið sér-
samdir fyrir íslenskt sjónvarp og
er þá ekki átt við fasta dagskrárliði
svo sem Fólkið í landinu eða Inn
við beinið. Tveir slíkir þættir voru
á dagskrá ríkissjónvarpsins í þess-
ari sjónvarpsviku. í dag verður fjall-
að um annan þessara þátta sem var
sýndur í sjónvarpinu sl. sunnudags-
kveld. Þátturinn fjallaði um ...
... SÚM-hópinn
í dagskrárkynningu sagði m.a.
um Súmmarajjáttinn: Sjónvarps-
þáttur um SUM-hópinn sem um
miðjan sjöunda áratuginn ruddi
braut nýjum viðhorfum á íslandi ...
Fram að þeim tíma var óhlutbundin
myndlist (abstrakt) ríkjandi hér á
landi en tilkoma Súmmara markaði
þáttaskii. Þeir veittu til Iandsins
ýmsum erlendum hræringum í
myndlist og breyttu ríkjandi hug-
myndum um hvað væri list með því
að nota ýmis óhefðbundin efni til
listsköpunar og fást við hugmyndir
og kenndig, sem ekki var venjan að
fást við í^myndlist. Enda fór list
Súmmara fyrir bijóstið á mörgum
og má þar nefna Heysátu Sigurðar
Guðmundssonar á gólfínu í Gallerí
SÚM og vörðu úr brauðum sem
lögreglan ijarlægði af Skólavörðu-
holtinu að kröfu heilbrigðisyfír-
valda.
Þátturinn um Súmmara var
ágætur kynningarþáttur fyrir hinn
almenna sjónvarpsáhorfanda. En í
gærdagspistli fann undirritaður að
því að ...Islenskir heimildarmynd-
smiðir leita gjarnan í smiðju til ein-
hvers „sérfræðings“ sem mótar inn-
tak myndar. Hér var Magnús Tóm-
asson í hlutverki sérfræðingsins
sem skýrði út hugmyndafræði
Súmmara. Annars brá SÚM-þáttur-
inn upp mynd af tímabili þar sem
menn vörpuðu nýjum hugmyndum
inn í staðnað kaldastríðssamfélag.
Þessar hugmyndir áttu ekki allar
upp á pallborðið hjá máttarstólpum
samfélagsins en þær áttu þátt í því
að losa um fastmótað hugmynda-
kerfí. Kom vel í ljós í gömlum mynd-
brotum hversu þvingað samfélagið
var við upphaf sjöunda áratugarins
og mikil þörf fyrir nýjar hugmynd-
ir. En kannski skiptir mestu máli
að Súmmarar voru ekki á kafi í að
markaðssetja hugmyndirnar. Nú
eru framsæknir nýlistamenn sem
starfa t.d. í hljómsveitum á kafi í
markaðssetningu. Þessir menn sitja
lon og don við að skrifa á hljómplöt-
ur fyrir framan plötubúðir. Frum-
leikinn er til sölu og líka andagiftin
og stundum frelsið.
Að utan
Frelsi íslendinga virðist stundum
koma að utan. Þannig kom hug-
myndalistin frá Evrópu og blómstr-
aði í SÚM-hópnum. Það er mikið
um það rætt á þessum síðustu og
verstu að ísland gæti orðið útkjálki
þegar Evrópubandalagið hefur inn-
an sinna vébanda velflestar Evrópu-
þjóðir. Sjónvarpsfréttamenn eru
ólatir við að ræða við embættis-
menn og stjórmálamenn um þessa
þróun og spara þá ekki flugsporin.
En er ekki líka hætta á að okkur
dagi hér uppi menningarlega?
Hvernig stendur á því að menn
heimsækja bara Evrópubandalags-
kumbaldann í Brussel? Er ekki nóg
komið af myndum af Seðlabanka-
höllinni og Alþingishúsinu? Hvernig
væri að senda umsjónarmenn
Súmmþáttarins til útlanda að ræða
við listamenn í vinnustofum þeirra.
Rýni kemur t.d. í hug Robert
Rauschenberg sá frægi Jack Dani-
elsvelgur og listamaður sem býr í
ævintýralegri húsasamstæðu á eyj-
unni Captiva í Flórída. Og svo eru
til forvitnileg söfn út um allan heim
sem hreyfa við hugmyndafluginu.
Ólafur M.
Jóhannesson
ALrá
FM 102,9
8.45 Morgunbæn. Tónlist.
10.00 „Biblían svarar." Halldór S. Gröndal.
13.30 „í himnalagi." Signý Guðbjartsdóttir.
16.00 „Gleðistund" Jón Tryggvi.
19.00 Dagskrárlok.
FM 98,9
7.00 Eirikur Jónsson, morgunþáttur.
9.00 Páll Þorsteinsson. Starfsmaður dagsins kl.
9.30. /
11.00 Valdis Gunnarsdóttir. Búbót Bylgjunnar í
hádeginu. Hádegisfréttir kl. 12.00.
14.00 Snorri Sturluson. Tónlist.
17.00 ísland í dag. Jón Ársæll Þórðarson. Málefni
liðandi stundar i brennidepli. Kl. 17.17 Síðdegis-
fréttir.
18.30 Listapopp. Kristófer Helgason fer yfir vin-
sældalistann í Bandaríkjunum. Einnig tilfæringar
é Kántrý- og Popþlistanum.
22.00 Haraldur Gislason.
23.00 Kvöldsögur.
24.00 Haralegur Gíslason áfram á vaktinni.
2.00 Þráinn Brjánsson.
FM#957
FM 95.7
7.30 Til í tuskið. Jón Axel Olafsson og Gunnlaug-
ur Helgason.
8.00 Morgunfréttir. Gluggað i morgunblöðin. Kl.
8.20 Textabrotið. Kl. 8.40 Frá hinu opinbera.
Kl. 8.50 Stjörnuspá. Kl. 8.55 Frá hinu opinbera.
9.00 Fréttayfirlit. Kl. 9.20 Textabrot. kl. 9.30 Kvik-
myndagetraun. Kl. 9.50 Frá hinu opinbera.
Stjörnuspáin endurtekin. Kl. 10.00 Fréttir. Kl.
10.03 Ivar Guðmundsson, seinnihálfleikur morg-
unsins. Kl. 10.30 Getraun. Kl. 11.45 Hvað er
að ske?
12.00 Hádegisfréttir. Kl. 13.00 Ágúst Héðinsson.
Kl. 14 Fréttayfirlit. Kl. 14.30 Getráun Kl. 15.00
Úrslit í getraun dagsins.
16.00 Fréttir. Kl. Anna Björk Birgisdóttir. Kl. 16.30
Fyrrúm topplag leikið og kynnt sérstaklega. Kl.
17.00 gttundi áratugurinn. Kl. 18.00 Fréttayfirlit
dagsins. Kl. 18.30 Flytjandi dagsins. Hljómsveit
eða listamaður tekinn fyrir, ferillinn kynntur og
eitt vinsælt lag með viðkomandi leíkið. Kl. 18.45
í gamla daga.
19.00 Kvölddagskrá helst. Páll Sævar Guðjónsson.
0Z.
FM 102 m. 104
FM102
7.00 Dýragarðurinn. Klemens Arnarson.
9.00 Bjarni Haukur Þórsson. Pizzuleikur Stjömunn-
ar og Pizzahússins.
11.00 Geðdeildin. Umsjón: Bjarni Haukur og Sig-
urður Hlöðversson.
14.00 SigurðurRagnarsson.Leikiroguppákomur.
20.00 Jóhannes B. Skúlason. Vinsældarpopp á
fimmtudagskvöldi.
22.00 Ólöf Marin Úlfarsdóttir.
2.00 Nætúrpopp.
FM 106,8
9.00 Tónlist.
16.00 „4. dagar til jóla".
20.00 Rokkað með Garðari. Umsjón Garðar Guð-
mundsson.
21.00 Kvöldvaka Rótarinnar. Opið hús. Starfsmenn
og gestir syngja jólalög. Allir velkomnir.
24.00 Næturtónlist.
Fm 104-8
FM 104,8
18.00 Framhaldsskólafréttir. 20.00 MR
18.00 MH 22.00 MS