Morgunblaðið - 20.12.1990, Síða 10

Morgunblaðið - 20.12.1990, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990 Frá g’óðu fólki í Aðalvík Lítið eitt um frásögn Gunnars Friðrikssonar . eftir Sigurð Bjarnason Það var sumarið 1937 að ég kom í fyrsta skipti inn á Aðalvík í Sléttu- hreppi. Við vorum á einum „Arna- punganna", 18 tonna vélbáti, Bolla frá Súðavík, sem var þá í. fyrsta skipti á dragnótaveiðum allt frá Látrabjargi norður að Rifstanga á Sléttu. Það var mikill veiðiskapur í fjóra mánuði. En ekki eftir því ábatasamur. Ég hafði þijú hundruð krónur upp úr sumrinu. Það dugði skammt til lífsbjargar annan vetur- inn minn í háskólanum. En þessar línur áttu ekki að vera um mig sjálfan, heldur um gamlan vin minn úr Aðalvík, Gunnar Frið- riksson, og bók hans, Mannlíf í Aðalvík, sem nýlega er komin út og er veraldarsaga hans og þess góða og dugmikla fólks, sem hann er kominn af norður þar. Við Gunn- ar kynntumst fyrst ungir drengir við sundnám í Reykjanesi við Djúp og síðan í Framhaldinu á Isafirði. Sá skóli var upphafið að gagn- fræðaskólanum á ísafirði. Síðan hafa örlögin skákað okkur til á ýmsa vegu. Þurfum við hvorug- ir undan þeim að kvarta. Lífsbaráttan var hörð í Aðalvík, búin smá en sjórinn oft gjöfull. Um hana hefur Gunnar Friðriksson skrifað fyrri hluta bókar sinnar. Hann hóf athafnaferil sinn með til- raun til útgerðar í heimabyggð sinni á Látrum, þar sem Friðrik Magnús- son faðir hans hafði sótt sjóinn í ijörutíu ár. Mikill atorkumaður, vel greindur öðlingsmaður. Mér er það minnisstætt að hann og kona hans, Rannveig Ásgeirsdóttir frá Eiði í Hestfirði í Súðavíkurhreppi, voru fyrsta fólkið á Látrum, sem ég heimsótti sumarið 1942 þegar ég kom þangað í minni fyrstu kosn- ingabaráttu í Norður-ísafjarðar- sýslu. Þau tóku mér afburða vel og raunar allt það fólk sem ég heim- sótti í þessari sérkennilegu, rúm- lega hundrað manna byggð. Eg héld þó að flestir Látramenn hafi kosið Vilmund lækni í kosningunum 1933 og 1937. Ég þurfti þó ekki að kvarta undan móttökunum þar. Ásgeir á Eiði, faðir Rannveigar móður Gunnars, var góður kunningi okkar Vigurfólks. Hjá þeim var ekki í kot vísað þegar ungir dreng- ir komu þreyttir og þyrstir úr smalamennsku í Hestfirði. Rannveig Ásgeirsdóttir átti í mér hvert bein þegar ég heimsótti hana á Látrum. Hún sagði mér að séra Sigurður í Vigur afi minn hefði fermt sig, að mig minnir í Eyrar- kirkju í Seyðisfirði. Meira þurfti ekki til að koma. Þessi gerðarlega kona varð þegar vinur minn. Bók Gunnars Friðrikssonar er full af fróðleik um menn og málefni í Sléttuhreppi. Frændur hans bjuggu þar á flestum bæjum, bænd- ur og ýtvegsmenn, margt harð- skeytt fólk. En þótt Aðalvíkin væri sjómönn- um sínum gjöful voru veður öll oft válynd við hið ysta haf. Friðrik Magnússon lenti í mörgum svaðil- förum í sinni löngu sjómannstíð. Hefur séra Sigurður Einarsson lýst einni þeirra. Tekur Gunnar upp kafla úr þeirri frásögn í bók sína, til þess að „varpa ljósi á lífsbaráttu feðra okkar sem fæstir núlifandi íslendingar geta gert sér grein fyr- ir á öld velmegunar og allsnægta". Þessa sjóferð fór Friðrik Magnús- son 6. janúar árið 1905 og var „ró- ið út á Kögur, þar sem helst þótti afla von“. Friðrik var þá 28 ára gamall formaður og hafði stundað sjómennsku frá unglingsárum. Lét hann að þessu sinni aðeins leggja nokkrar ióðir þar sem veðurhorfur gerðust nú uggvænlegar. „Skipti engum "togum að mjöll sést ijúka um allt fjallið og samtímis fara að koma skinnaköst á sjóinn, er sjó- menn kalla svo. Eftir örfáar mínút- Gunnar Friðriksson Gunnar Friðriksson og kona hans, Unnur Halldórsdóttir, á Djúpavík 1937. Þessi mynd var tekin af Látrum í Aðalvík vorið 1940. ur er kominn skarpur vindur og fer þyngjandi." Formaður skipar þá að leggja að duflinu og reyna að ná því og einhveiju af lóðunum. Var það gert svo fljótt sem auðið er. Bráðhvessti nú í einni svipan svo að andófsmenn höfðu ekki áfram á ióðinni. Voru þá settir fjórir menn til róðurs og dugði ekki til. Leið ekki á löngu uns veðrið herti svo að ekki markaði áfram.“ Um það verður ekki fjölyrt hér hvað síðar gerðist út á Kögrinu. Vitlaust veður var skollið á þetta litla fley. Formaður lét skera á lóð- ina og nú var um það eitt hugsað að ná til lands. En veðurofsinn var slíkur að aðeins var hægt að sigla með smásnepli. Til Aðalvíkur var útilokað að ná. Sjá skipveijar þar fyrst til lands að glórir í fjall fram- undan. Eru þeir þá komnir upp að grunnbrotum fram af Gijótleiti und- ir Stigahlíð fyrir utan Bolungarvík. Hafsjóar eru þungir og leggur þá inn á móti bárunni. Segl þýðir ekki að hafa uppi. í fulla þijá klukkutíma róa Látra- menn þar til komið er inn á móts við Bolungarvík, nærri landi. Lend- ing í Víkinni er nú framundan. Er nú stefnt á ljósin í þorpinu í svarta- myrkri. Þegar svo fyrsta landbrotið tók bátinn hvolfdi honum.. „Fjórir af skipshöfninni urðu þegar lausir við bátinn, en tveir lentu undir honum.“ Það sætir mikilli furðu að allir mennirnir björguðust, einn þeirra að vísu með nær engu lífsmarki. Hafði hann verið að „velkjast í mastri bátsins á annan klukku- tíma“. Þetta gerðist um klukkan átta að kvöidi. Á tólfta tímanum fannst lífsmark með Friðrik Finnbogasyni. Segir í bókinni að hann háfi „eflaust átt líf sitt að þakka nærgætni og kunnáttusamlegri aðferð Bolvík- inga“, sem tóku á móti hinum sjó- hröktu Aðalvíkingum er þá bar að landi. Eftir níu daga komust þessir menn heim til sín norður í Aðalvík. Höfðu þeir þá verið taldir af þar heima. Mörgum þeirra manna sem lýst er í bókinni kynntist ég persónu- lega. Má meðal þeirra nefna Jónas Dósótheusson hreppstjóra á Sléttu og Þórunni konu hans, Júlíus Geir- mundsson á Atlastöðum í Fljóti, Sigurð Þorkelsson sem missti hægri höndina af skotsári á unglingsárum, en varð hinn mesti afreksmaður þrátt fyrir fötlun sína. Guðmundur Pálmason vitavörður á Straumnes- vita er bjó í Rekavík bak Látur var sérkennilegur dugnaðarmaður. Júlíusar Geirmundssonar á Atla- stöðum minnast margir fyrir frá- bæran dugnað hans, skapfestu og léttlyndi. Gunnar Friðriksson segir meðal annars um hann í bók sinni: „Ég sé hann fyrir mér er hann kemur á hraðferð niður brekkuna á Látrum“. „Með frakkann frá- hnepptan svo að löfín stóðu út í loftið. Stundum sýndist mér að hann kæmi vart við jörðina, slík v'ar ferðin á honum, og svo létt sté hann til jarðar. Og löngu áður en hann kom að húsinu kallaði hann: „Komið þið blessuð, elskurnar mínar — hér er Júlíus frændi kom- inn. Hvað er að frétta.V‘ Síðan hló hann hinum hvella, smitandi hlátri sínum áður en hann kyssti föður minn og okkur öll. Það var ekki alltaf auðvelt að festa blund á réttum tíma þau kvöld, sem Júlíus frændi gisti hjá okkur því að faðir minn og hann áttu það til að ræða áhugamál sín langt fram á nótt. Umræðuefni þeirra og áhugamál virtust óþijót- andi. Meðal barna Júlíusar á Atlastöð- um og Guðrúnar voru þeir frændur mínir Jóhann og Þórður, sem stofn- uðu útgerðarfélagið Gunnvöru hf. á ísafirði 1955 ásamt Jóni B. skip- stjóra og urðu þeir kunnir útgerð- ar- og athafnamenn þar.“ Sannleikurinn er sá að Júlíus Geirmundsson var ógleymanlegur maður þeim er honum kynntust. Heimsókn mín til hans og fólks hans á Atlastöðum líður mér ekki úr minni. Baráttugleði hans var dæmalaus. Ólafur Hjálmarsson á Látrum var einn þeirra manna sem Gunnar minnist og ég kynntist við fyrstu komu mína til Aðalvíkur. Gisti ég hjá honum og naut mikillar gestrisni hjá honum og fólki hans. En Gunnar Friðriksson kvaddi Aðalvík haustið 1935» Hann hafði einlægan áhuga á að byggja þar upp betra og ijölbreyttara mannlíf. En þungur straumur lá í fang hans og annarra, sem þar vildu gjarnan búa. Nýir tímar og nýjar kröfur gerðu lífsbaráttuna þar erfiða ekki síst í og eftir síðari heimsstyijöld- ina. Þess vegna flutti unga fólkið þaðan, sumt til ísafjarðar og kaup- túnanna við Djúp en annað suður í fjölmennið við Faxaflóa. En Gunnar lýsir vel mannlífinu í Aðalvík. Honum þótti vænt um æskustöðvar sínar og fólkið þar. Bók hans lýsir síðan farsælli bar- áttu hans og hans ágætu konu, Unnar Halldórsdóttur, hér syðra. Má segja að allt hafi farnast þeim vel. Gunnar Friðriksson gerðist mikill athafnamaður ekki aðeins í Vélasölunni heldur á sviði íslenskra slysavarna. Við Slysavarnafélag íslands mun saga hans lengi verða tengd. Um bók hans, Mannlíf í Aðalvík, má segja að hún sé um marga hiuti merkilegt rit. Hún lýsir harðri lífsbaráttu dugandi fólks við erfiðar aðstæður í einum ystu og sérkenni- legustu byggðum íslands. En þar búa víkur og fjöll yfir svipmikilli fegurð og töfrum, sem fóllrið man löngu eftir að sviðið er autt í heimahögum þess. Höfundur er fv. alþingismnður, ritsljóri og sendiherra. Félagslegar íbúðir í Kópavogi Morgunblaðið/RAX Húsnæðisnefnd Kópavogsbæjar afhenti 26 nýjar félagslegar eignaríbúðir að Hlíðarhjalla 69-73 s.l. laugardag. Bygging hússins tók rúmt eitt ár. Að sögn Björns Þorsteinssonar bæjarritara er mjög vandað til alls frágangs í húsinu og undir því er bílastæðageymsla. A myndinni sést Sigurður Geirdal bæjarstjóri afhenda eina af íbúðunum 26.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.