Morgunblaðið - 20.12.1990, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.12.1990, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990 }SAtÍYO\ rýfur hljóömúrinn Betri mynd- og hljómgæði en áður hafa þekkst. CEP 3359 •Flatur skjár „MATRIX". • Stereo 2x15w magnari meö fjórum hátölurum • Super VHS • SCART-tergi • Tengi fyrir aukahátalara • Sjálfvirk stöðvaleit • Fjölkerfa, PAL, SECAM, NTSC • Nicam tengi • Fullkomin fjarstýring og skjátexti fyrir aögeröir • „Teletext" og fleira kr. 189.900,- stgr CEP 2872 28” • Flaturskjár „MATRIX" • 78 aðgerðir úr fjarstýringu • „Teletext" • Stereo • 2x16w magnari • Færan- legir hátalarar á hliöum • Tvö SCART-tengi • Sjálfvirk stöðvaleit • Super-VHS • Skjátexti með möguleika á sex tungumálum • Fjölkerfa, PAL, SECAM, NTSC. kr. 106.400,- stgr. CEP2151 21” • Flatur skjár „MATRIX" • „Teletext“tengi • Skjátexti • Tímarofi, 30, 60, 90 og 120 mín. • Tenging fyrir heyrnartól • SCART-tengi • Slekkur sjálft á sér eftir aö útsendingu lýkur • AV inngangur. kr. 60.500,- stgr. CEP 6022 20” • Skjátexti • Fullkomin fjarstýring með 32 aðgerðum • AV inngangur • Tímarofi, 30, 60, 90 og 120 mín. • Tengi fyrir heyrnartól • Stöðvalæsing • Flettir stöðvum í minni • 32 stöðvar. kr. 44.800,- stgr Ljós gegnum grimm örlög Bókmenntir Jenna Jensdóttir Jakobína Þormóðsdóttir: Horfnir dagar Skákprent, 1990 Höfundur þessarar ljóðabókar er 28 ára gömul stúlka. Um hana seg- ir í aðfaraorðum: „Jakobína fékk hrörnunarsjúkdóm, sem kom í ljós, þegar hún var tveggja ára gömul. Missti hún smám saman sjón, heym og jafnvægi og var 17 ára gömul hjálparvana í hjólastól, blind, heyrn- arlaus og lömuð.“ Eins og nafn bókarinnar ber með sér yrkir Jakobína um liðna daga. Þá daga sem hún gat að einhveiju leyti séð undur lífsins, numið með augum gróður jarðar, fylgst með störfum sveitabóndans, veðrabrigð- um náttúrunnar, lífi dýranna í frjálsræði sveitarinnar eða faðmi mannanna. í miðri lífsmyndinni er sífellt maðurinn sjálfur — önnum kafinn og oftast líkamlega fijáls. Haustljóð Ég ríð austur yfir pllin. Alfógur norðurljósin svífa um himininn. Eldibrand logandi ber ég. Orðug er leiðin langa ... Öll ljóð Jakobínu eru ort á undanförnum árum. Með gáfum sínum og andríki hefur hún, á barns- og unglingsárum, náð að festa allar þessar lífsmyndir í vitund sína, þar sem þær skýrast og skerpast með vaxandi sálarþroska hennar og leita síðan út í ljóðum, • sem móðir hennar og annað gott ' Jakobina Þormóðsdóttir ásamt móður sinni. fólk hefur hjálpað henni til þess að festa á blöð. Vorþrá Brautin langa liggur heim, lengi verð ég að ganga. Yeldur álögum öllum þeim Örlagagyðjan stranga. Tveir þekktir rithöfundar skrifa nokkurs konar aðfaraorð að bók- inni. Þessi snerting ljóðanna við tilfinningar þeirra og aðdáun á andlegri reisn Jakobínu og orða- forða samhljóma einnig í vitund minni við lestur ljóðanna. Móðir Jakobínu og velunnarar hafa einnig gert henni kleift að kynnast fjársjóðum fornra sagna eins og fáein ljóð hennar bera með sér. í byrjun bókarinnar ritar útgefandi lítinn kafla. Þar getur hann um þá sem hafa lagt út- gáfunni lið —' bæði með fjárstyrkjum og gefinni vinnu. Hagnaður af sölu bókarinnar á að renna í sjóð, sem nota skal til handa þeim er hyggjast stunda rannsóknir á sjúkdómi þeim er skóp Jakobínu örlög hennar. Og það er sannarlega von okkar allra, sem kynnst hafa Jakobínu í ljóðum hennar að nú sýni meðbræður sömu árvekni og þeir sem lögðu hönd að útgáfu bókarinnar. Kápumynd er gerð af Sigurborgu Stefánsdóttur. Bókin er 96 bls. í kilju. Hafsjór af fróðleik um knattspyrnu __________Bækur_______________ ‘Skúli U. Sveinsson Sigmundur Ó Steinarsson: Ítalía ’90 - Mexíkó ’86 60 ára saga HM í knattspyrnu. Fróði 1990 Eg hélt að Sigmundur væri hætt- ur við að skrifa fleiri bækur um heimsmeistarakeppnina í knatt- spyrnu, því eftir HM í Mexíkó árið 1986 kom ekki út bók eftir hann. Það urðu mér, og eflaust fleimm vonbrigði því bókin um HM á Spáni 1982 var bæði fróðleg og skemmti- leg. En Sigmundur er ekki hættur — sem betur fer. Nú sendir hann frá sér bókina Ítalía ’90 - Mexíkó ’86, 60 ára saga HM í knattspyrnu. Sigmundur hefur greinilega lagt geysilega vinnu í þessa bók. Fjallað er um sögu heimsmeistarakeppn- innar frá því hún var fyrst haldin í Uruguay árið 1930 og fram yfir keppnina á Ítalíu í sumar. Eðli málsins samkvæmt er stikl- að á stóru fram að keppninni í Mexíkó. Engu að síður er mjög fróð- legt að lesa um allt sem gerðist, hér áður fyrr, í kring um þessi miklu mót knattspyrnunnar. Það er með ólíkindum hversu fróður Sigmundur er um sögu heimsmeistarakeppninnar og þrátt fyrir að ég Iegði ekki í að telja þá sögulegu punkta, eða staðreyndir, sem eru í bókinn, þá gæti ég best trúað að þeir væru um 700. Þrátt fyrir að ég hafi mikinn áhuga á knattspyrnu er fjölmargt í þessari bók sem ég ekki vissi. Einnig er mikið af sögum sem maður þekkti en verða ljóslifandi við lestur bókar- innar. Keppnin í Mexíkó og á Ítalíu er meðhöndluð á annan hátt en hinar fyrri. Rætt er um riðlaskiptinguna, og síðan koll af kolli þar til komið er í úrslitaleikinn sjálfan. Þrátt fyr- ir að keppnin á Ítalíu sé mönnum enn í fersku minni er margt í bók- inni sem rifjast upp. Talsvert er af teikningum til að sýna hvernig mörk voru gerð og að sjálfsögðu er bókin full af myndum. Fyrir þá sem hafa gaman af tölu- legum staðreyndum er talsverður skammtur í bókinni því öll úrslit frá upphafi eru tíunduð og ýmislegt annað er þar að finna. Bókin er 144 blaðsíður og ritar Ásgeir Sigurvinsson formála að henni. Sérstakir kaflar eru um þátt- töku íslendinga í undankeppni HM, allt frá árinu 1958 þegar við tókum fyrst þátt í henni. Tafla er í lok bókarinnar þar sem fram kemur leikjafjöldi allra íslendinga, sem tekið hafa þátt í undankeppni HM Sigmundur Ó. Steinarsson og hversu mörg mörk menn hafa gert. Alls hafa 93 knattspyrnumenn leikið fyrir íslands hönd í HM. Sigmundur kemur verulega á óvart með þessari bók. Hún er betri og skemmtilegri en fyrri bækur hans og hefur að geyma hafsjó af fróðleik sem þægilegt er að hafa í bókahillunni sinni. Bókin er reglu- lega skemmtilega upp sett og því einstaklega þægileg sem uppfletti- rit. Ég er strax farinn að hlakka til keppninnar í Bandaríkjunum 1994 — og jólabókar Sigmundar um þá keppni. CEP 3022 14” • Fullkomin fjarstýring með 32 aðgerðum • Skjátexti • Tímarofi, 20,60,90 og 120 mín. • Tengi fyrir heyrnartól • AV inngangur • Órlampi og fleira. kr. 28.300,- stgr. <2\ Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 • Sími 680780 Jafnréttismál: Fræðsluefni fyrir foreldra Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að láta útbúa fræðsluefni fyrir foreldra um jafnréttismál. I niðurstöðum starfshóps ráðuneyt- isins um jafna stöðu kynjanna í skólum segir, að þörf sé á sér- stöku átaki vegna þeirrar stað- reyndar, að staða kvenna og karla í samfélaginu sé að mörgu leyti ólík. Hópurinn setur fram það meg- inmarkmið, að stúlkur og drengir verði búin að jöfnu undir virka þátt- töku í fjölskyldulífi, atvinnulífi og mótun samfélagsins. Lagt er til að starfsmenn leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla eigi kost á fræðslufundum og námskeiðum . um jafnrétti og stöðu kynja í skólum og viðfangsefni í skólastarfi höfði jafnt til og taki mið af reynslu beggja kynja. Náms- og kennslugögn séu án kynjafordóma og staðalmynda og boðið verði upp á nám í fjölskyldu- fræðum í grunn- og framhaldsskól- um. Menntamálaráðuneytið hefur þegar ákveðið að gefa út fræðslu- efni fyrir foreldra, samkvæmt tillögu starfshópsins. Mun það verða byggt á fræðsluriti fyrir kennara og fóstr- ur, „Upp úr hjólförunum”, sem út kom á síðastliðnu ári.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.