Morgunblaðið - 20.12.1990, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
27
Maður, líttu þér nær
eftirKarl
Ormsson
Mer var hugsað til þess á dögun-
um þvílíka takmarkalausa hræsni
sumir framagosar og stjórnmála-
menn sýna kjósendum sínum. Eins
og marga kannski rekur minni til
var Steingrími Hermannssyni ásamt
nokkrum erlendum stjórnmálamönn-
um fengið það hlutverk að fara í
austurveg, nánar tiltekið til Búlgaríu
og fylgjast með því að kosningasvik
væru ekki höfð í frammi er flest
Austur-Evrópuríkin voru á þeim
tíma að brjóta af sér hlekki kommún-
ismans sem heft hafði þau í áratuga
fjötra með ólýsanlegum kúgunum
og þrældómum. Sum þessi ríki máttu
þola þessar hörmungar í allt að 70
ár, (heilan mannsaldur). Flest þessi
ríki römbuðu á barmi borgarastyij-
aldar og þótti. því mikið við liggja
að send yrði nefnd hlutlausra stjórn-
málamanna á stúfana. Nú skyldi
maður halda að þessi nefnd hefði
unnið verk sitt af samviskusemi, sem
ekki er dregið hér í efa, en hver er
samviska Steingríms Hermannsson-
ar? Nuna undanfarnar vikur hafa
stjórnmálaflokkarnir verið að halda
prófkjör sín eða forval, uppröðun,
og hvað þetta heitir nú allt saman
hver eftir sínum reglum, siðum eða
siðleysi. í Reykjavík átti að vera
prófkjör hjá framsóknarmönnum,
(lýðræðislegt að sjálfsögðu) og átti
að einskorðast við fulltrúaráðsmeð-
limi flokksins. Tveir aðilar gáfu kost
á sér í fyrsta sæti listans. Annar var
sitjandi þingmaður flokksins í
Reykjavík en hinn var formaður full-
trúaráðsins, framagosi sem hefur
farið hamförum um nokkurt skeið
og aðallega andskotast út í heilbrigð-
isstéttirnar þar sem hann telst vera
aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.
Fljótlega kom í ljós að ekki var allt
með felldu við þetta svokallaða lýð-
ræðislega prófkjör. Maðkur var í _
mysunni, þingmaðurinn kærði þenn-
an skripaleik og krafðist þess að
alvöruprófkjör færi fram að hætti
siðaðra manna en ekki að hætti bófa
í vestrinu. En það var nú öðru nær
að hann fengi leiðréttingu mála
sinna þótt sannað væri að svik hefðu
verið í tafli. T.d. hafði maður búsett-
ur í Svíþjóð verið látinn kjósa þótt
hann hafi alls ekki verið á landinu
þennan tíma. Þótti því augljóst að
kosið hefði verið fyrir hann og eins
og áður sagði krafðist þingmaðurinn
að farið yrði að lögum. Kemur þá
ekki sjálfur Steingrímur Hermanns-
son þessi hlutlausi kosningaeftirlits-
maður og krefst þess að allri þjóð-
inni ásjáandi að þingmaðurinn Guð-
mundur G. Þórarinsson taki annað
sæti á listanum og innsigli þannig
kosningasvik sem höfð hefðu verið
frammi. Þar með gerði hann Guð-
mund meðsekan til þess að hjálpa
framagosa þeim sem hann virðist
hafa haft meiri mætur á. En hvers
vegna skyldi ég vera að rekagáttast
í innanhússmálum Framsóknar-
flokksins? Ég er sjálfstæðismaður
og er stoltur af því, en tvennt kem-
ur til, þar sem ég er meðlimur flokks
sem hefur að leiðarljósi: Gjör rétt,
þol ei órétt. Finnst því sárt að einn
valdamesti maður þjóðarinnar sem
valist hafði með alþjóðlegri þing-
mannanefnd til að koma í veg fyrir
kosningasvik og getur svo ekki kom-
ið í veg fyrir kosningasvik í sínum
eigin flokki (góð landkynning það).
Ekki svo ég hafi áhyggjur af því að
Framsóknarflokkurinn sé svo þekkt-
ur utan landsteinanna að þetta frétt-
ist út um víða veröld en gjörðin er
sú sama. Ekki dettur mér í hug að
vera að blekkja fólk með því að ég
sé ekki ánægður að framagosinn
Finnur Ingólfsson skyldi koma sér í
efsta sæti lista Framsóknarflokksins
hér í Reykjavík.
Það er þá næsta víst að framsókn
fær engan mann kjörinn hér í
Reykjavík. Guðmundur G. Þórarins-
son fer í sérframboð og atkvæðin
öll af báðum listunum detta því dauð
niður.
Það er því svo óralangt frá því
að framsóknarmenn fái uppbótar-
þingmann og geta þeir gleymt því.
Ég sem hef unnið í aldarfjórðung í
Karl Ormsson
„Það virðist vera náttúru-
lögmál að starfsfólk Borg-
arspítalans þurfi að verja
lunganum úr aðventunni
til að berjast fyrir sjálf-
stæði stofnunarinnar."
heilbrigðisgeiranum (Borgarspítal-
anum), ekki ríkisspítölunum, þykist
vita svona nokkurn veginn hvaða
hug fólk í heilbrigðisstéttunum ber
til þessara herra. Það virðist vera
náttúrulögmál að starfsfólk Borg-
arspítalans þurfi að veija lunganum
úr aðventunni til að beijast fyrir
sjálfstæði stofnunarinnar. Sjaldan
hefur það þó verið verra en núna
enda valist til forystu í heilbrigðis-
ráðuneytinu sumir aðilar sem ekkert
skynbragð bera á heilbrigðismál.
Þótt þessi grein hafi eingöngu átt
að fjalla um kosningasvik og
hneykslun á stjómmálamönnum
tengist hún einnig öðru máli, þar
•sem alltaf hefur verið óljóst frá komu
þessarar ríkisstjórnar hvort hún hafi
nokkum tímann haft meirihluta til
setu, og hvert málið á eftir öðru
hefur skroppið í gegnum þingið
vægast sagt á lotteríi. En í stjórnar-
skrá íslands, fyrstu línu, segir ein-
mitt svo: „Island er lýðveldi með
þingbundinni stjórn."
Höfundur er raftækjavörður.
Sanwaxt
Raðgreiöslur
Póstsendum samdægurs
ASKIÐI SKELLI....
SKATABUÐIN hefur nu verið stœkkuð til muna og
býður upp ó meira úrval gf sl<:íðaú,tbúnaði og
atnaði en nokkru sinni fyrr. I SKATABUÐINNI fœrð
dú vlðurkennd merki ó góðu verði, fyrir byrjendur
afnt sem keppendur.
Skeiltu þér á skíði í vetur og njóttu tignar fjallanna
með fjölskyldunnl.
SKATABUÐIN
fMMMK
SNORRABRAUT 60 SÍM112045
Byrjaðu skíöaferðina í SKATABUÐINNI
- þú getur treyst á okkur alla leið.