Morgunblaðið - 20.12.1990, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Davíð Oddson og Margrét Hallgrímsdóttir, borgarminjavördur, skoða
hér nokkrar mynda Jóns Helgasonar.
+
Arbæjarsafn:
Verk Jóns Helga-
sonar gefin út
FYRSTA askjan af þremur, sem
hafa að geyma listaverk Jóns
Helgasonar biskups, kom út i
gær.
Myndir Jóns hafa ekki verið gefn-
ar út áður í heild sinni, en
Reykjavíkurborg eignaðist myndir
hans árið 1945. Jón málaði margar
myndir af Reykjavík og eru þær
nú meðal mestu dýrgripa Árbæjar-
safns. Askja þessi er gefin út í 500
tölusettum eintökum og er frágang-
ur mjög vandaður. Auk bókarinnar
fylgir litprentun af hverri mynd.
Guðjón Friðriksson ritar skýringar-
texta við hveija mynd ásamt inn-
gangi um ævi og störf Jóns. Borgar-
stjóri Reykjavíkur, Davíð Oddsson,
ritar formála að verkinu.
Landspitahnn 60 ára:
Hátíðardagskrá fyrir starfsfólk
I TILEFNI af 60 ára afmæli
Landspítalans stendur nú yfir
listaverkasýning í anddyri K-
byggingar og í dag verður stutt
hátíðardagskrá fyrir starfsfólk
Ríkisspítala í anddyri K-bygging-
ar.
Listaverkasýningin er einkum
ætluð starfsfólki og sjúklingum. Þar
sýnir Guðmundur Bjarnason yfir-
læknir vatnslitamyndir og olíumál-
verk, Guðrún Indriðadóttir lyfja-
fræðingur sýnir leirmuni, Margrét
Þorvarðardóttir textíllistakona sýnir
málverk unnin á silki og Sigurður
Sigurjónsson læknir sýnir teikning-
ar. Einnig eru sýndar ljósmyndir
teknar á Ársfundi Ríkisspítala og
Opnu húsi.
Hátíðardagskráin í dag hefst
klukkan 15.30, en í dag eru einmitt
60 ár liðin frá því fyrsti sjúklingur-
inn var lagður inn á Landspítalann.
Davíð Gunnarsson forstjóri
Ríkisspítala býður gesti velkomna,
séra Bragi Skúlason flytur stutta
hugvekju og síðan sjá Matthías Jo-
hannessen og Pétur Jónasson um
upplestur og tónlist. Loks syngur
Kvennakór Islensku óperunnar jóla-
lög.
í tilefni afmælisins kynnti Land-
spítalinn starfsemi sína á opnu húsi
þann 25. nóvember. Föstudaginn 14.
desember var sjðan stutt dagskrá
þar sem Páll Ásmundsson læknir
flutti frumsamin ljóð og karlakór,
skipaður nokkrum læknum og
tæknimönnum spítalans, söng fyrir
viðstadda.
Listaverkasýning í tilefni 60 ára afmælis Landspítalans er nú í anddyri K-byggingar.
Morgunblaðið/Sverrir
Fulltrúar í Evrópustefnunefnd Alþingis kynna bókina ísland og Evrópa: Sólveig K. Jónsdóttir ritari
nefndarinnar er lengst til vinstri, þá Páll Pétursson, Eyjólfur Konráð Jónsson formaður nefndarinnar,
Hjörleifur Guttormsson og Kristín Einarsdóttir.
Evrópustefnunefnd Alþingis:
Vestmannaeyjar:
Papar a ferð
Vestmannaeyjum.
HLJÓMSVEITIN Papar, sem
nýverið gaf út plötu sem hefur
að geyma meðal annars mikið
af írskri þjóðlagatónlist, var á
ferð í Eyjum fyrir skömmu til
að kynna plötuna. Spiluðu strák-
arnir víða og árituðu um leið
plötuna fyrir kaupendur.
Paparnir héldu uppi fjöri í verslun
Tangans og Adam og Evu sína
dagstundina í hvorri. Auk þess fóru
þeir á dvalarheimili aldraðra og
spiluðu þar fyrir vistmenn. Þeir létu
ekki þar við sitja heldur heimsóttu
þeir félaga Hrekkjalómafélagsins
og sungu fyrir þá og einnig bönk-
uðu þeir upp á hjá Guðjóni Weihe,
sem samdi marga texta sem á plöt-
unni eru, og tóku nokkur lög fyrir
xhann heima í stofu.
Paparnir sögðust ánægðir með
þær viðtökur sem plata þeirra hefði
fengið og sögðust vona að fleiri
ættu eftir að gefa henni gaum eftir
að farið var að sýna myndbandið
sem á báðum sjónvarpsrásum.
Grímur
Bók um Island o g Evrópu
EVRÓPUSTEFNUNEFND AI- land og Evrópa. í bókinni er
þingis hefur gefið út bókina Is- steypt saman þeim sjö ritum sem
GILBERT ÚRSMIÐUR
LAUGAVEGI 62, S. 14 100
JÓN OG ÓSKAR
LAUGAVEGI 70, S. 2 49 30
nefndin hefur gefið út á starfs-
tíma sínum um samskipti Islands
við aðrar Evrópuþjóðir.
Eyjólfur Konráð Jónsson, for-
maður Evrópustefnunefndarinnar,
sagði á blaðamannafundi þar sem
bókin var kynnt að í henni væri
mikinn fróðleik að finna. Þar ætti
fólk að geta fundið girnilega lesn-
ingu, ekki síst ungt fólk, en hingað
til hefði vantað aðgengilegar upp-
lýsingar um samskipti Islands við
aðrar Evrópuþjóðir eins og ráða
mætti af skoðanakönnunum.
Papar að spila í versluninni Adam og Eva.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Bíll ársins í Evrópu:
XM Citroen í Islands-
mynd um allan heim
Citroen bílaverksmiðjurnar frönsku
settu á markað í fyrsta sinn á þessu
ári nýtt model, XM Citroen, sem
er flaggskip verksmiðjanna, en
kynningarmynd um þennan nýja
bíl lét Citroen taka á Islandi í sum-
ar og byggðist myndin á fléttu af
íslensku landslagi í ótal tilbrigðum
og XM bílnum. 15 manna kvik-
myndatökulið frá Frakklandi vann
að gerð myndarinnar í þijár vikur,
tveir bílar voru fluttir til landsins
með flugvélum og þyrla vár notuð
dögum saman við kvikmyndunina,
íslenskir hestar og hópur aðstoðar-
manna, en gerð myndarinnar kost-
XM Citroen.
aði um 30 milljónir króna.
Davíð Davíðsson sölustjóri hjá Gló-
bus sagði í samtali við Morgunblað-
ið að myndbandið, sem er 3 mínút-
ur að lengd væri nú komið í kynn-
ingu um allan heim, á bílasýning-
um, hjá bílaumboðum og í sjón-
varpsþáttum, en myndbandið var
m.a. sýnt á 50 m2 sjónvarpsskjá á
bílasýningu í París sem hundruð
þúsund gesta skoðuðu.
Davíð sagði að það væri skemmti-
legt að Island skyldi valið til þess
að kynna þetta nýja franska flagg-
skip bílaiðnaðarins, því XM bíllinn
hefði verið valinn bíll ársins í Evr-
ópu 1990 af 37 sérfræðingum úr
hópi blaðamanna frá 17 löndum,
enda væri bíllinn búinn að fá nær
20 eftirsóttustu verðlaun sem um
er að ræða varðandi bíla.