Morgunblaðið - 20.12.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
41
Uppboði á eigum Viking Brugg frestað:
Tvö áfrýjunar-
mál komin fram
Hug-sanlegl að málið bíði á annað ár
SÍÐASTA uppboði á fasteign Vik-
ing Brugg við Norðurgötu 57 á
Akureyri og tækjum verksmiðj-
unnar sem vera átti í gær var
frestað, en lögmaður uppboðs-
þola hafði áfrýjað úrskurði sem
gekk á öðrii uppboði sem var í
nóvember. A uppboðinu í gær var
ákveðið að fresta sölu þar til
dómur gengi í áfrýjunarmálinu,
en lögmaður Landsbanka Islands
áfrýjaði þeim úrskurði og bað um
dómsgerð í málinu. Tvö áfrýjun-
armál eru því í gangi vegna fyrir-
hugaðs uppboðs á eigum Viking
Brugg.
A öðru uppboði sem haldið var
30. nóvember síðastliðinn var farið
fram á frestun, en úrskurður sem
þá var upp kveðinn var á þá leið
að uppboði skyldi fram haldið. Lög-
maður uppboðsþola, Hrafnkell Ás-
geirsson, áfiýjaði þeim úrskurði í
fyrradag og á þriðja og síðasta upp-
Frá uppboðsfundi í húsakynnum
boði í gær var ákveðið að fresta
sölu þar til dómur gengi í áftýjunar-
málinu í Hæstarétti. Lögmaður
Landsbanka Islands, Gunnar Sól-
nes, mótmælti frestuninni og bað
Leikfélag Akureyrar:
Gleðileikurinn Ættarmótið
frumsýndur þriðja dagjóla
LEIKFÉLAG Akureyrar frum-
sýnir nýjan íslenskan gleðileik,
„Ættarmótið", 27. desember
næstkomandi. Verkið er eftir
Rýmri af-
greiðslutími
verslana
Verslanir á Akureyri verða
opnar fram eftir næstu kvöld.
Opið verður til kl. 22 i kvöld,
fimmtudagskvöld, og einnig verður
opið til 22 annað kvöld, föstudags-
kvöld. Á lauga.rdag verða verslanir
opnar frá kl. 10 til 23, en lokað
verður á sunnudag. Á aðfangadags-
morgun verður opið frá kl. 9 til 12.
Böðvar Guðmundsson og færði
hann félaginu það að gjöf síðast-
liðið vor er hann kom til að horfa
á uppsetningu LA á „Fátæku
fólki“ í leikgerð hans eftir endur-
minningabókum Tryggva Emils-
sonar.
Leikritið fjallar um ættarmót,
eins og nafnið bendir til, og er það
haldið á óðalinu í Fljótavík, ótiltekn-
um stað í sveit á Suðurlandi. Þar
safnast saman afkomendur Hall-
giíms Hallssonar til að halda upp
á að 100 ár eru liðin frá fæðingu
hans. Afkomendurnir eru um 300
og er ætlun þeirra að afhjúpa minn-
isvarða um gamla manninn, halda
uppboð á munum úr eigu hans,
syngja lög eftir ættarskáldið og
skemmta sér ærlega með skyldfólk-
inu eina helgi. Týndur ættingi frá
Ameríku birtist í gleðskapnum og
óboðinn gestur setur mjög svip sinn
á mótið.
Leikstjóri sýningarinnar er Þrá-
inn Karlsson, leikmynd og búninga
gerir Gylfi Gíslason, tónlist semur
Jakob Frímann Magnússon og lýs-
ingu hannar Ingvar Björnsson.
Þátttakendur í sýningunni eru vel
á þriðja tuginn, sá yngsti 12 ára
og sá elsti yfir sjötugt. Meðal leik-
enda eru Ragnhildur Gísladóttir,
Valgeir Skagfjörð, Björn Björnsson,
Jón St. Kristjánsson, Þórey Aðal-
steinsdóttir, Sunna Borg, Björn Ingi
Hilmarsson, Nanna Ingibjörg Jóns-
dóttir, Marínó Þorsteinsson, Krist-
jana Nanna Jónsdóttir og Árni Val-
ur Viggósson.
Verkið verður sem fyrr segir
frumsýnt 27. desember og eru fjór-
ar sýningar áætlaðar á milli jóla
og nýárs.
TISSOT
GÆÐIOG
GLÆSILEIKI
•I!
S. 96-25400,
Lifslíðardðmur
Morgunblaðið/Rúnar lJór
Viking Brugg í gær.
um úrskurð vegna frestunarmálsins.
Elías I. Elíasson bæjarfógeti úr-
skurðaði síðar um daginn að fresta
bæri frekari framkvæmdum upp-
boðsins þí-.r til lyktir málsins lægju
fyrir. Þeim úrskurði áfiýjaði Gunnar
Sólnes, fyrir hönd Landsbankans,
þannig að tvö áfrýjunarmál vegna
fyrirhugaðs uppboðs á eigum Viking
Brugg eru nú í gangi.
Ástæða þess að lögmaður upp-
boðsþola fer fram á frestun er sú,
að hann telur uppboðið ekki hafa
verið nægilega auglýst. Auk þess
sem það var auglýst í Lögbirtinga-
blaðinu var það einnig auglýst í
Degi. Hrafnkell Ásgeirsson, lög-
maður uppboðsþola, sagði í gær að
hann teidi ekki nægilegt að auglýsa
uppboðið einungis í svokölluðu stað-
arblaði, heldur þyrfti að auglýsa það
í íjölmiðli sem næði til landsins alls.
Gunnar Sólnes lögmaður telur
hins vegar að auglýsingin í Degi
nægi og sagði hann að gengið hefði
dómur þar sem uppboð hefði einung-
is verið auglýst í Austra auk Lög-
birtingablaðsins og það talið full-
nægjandi.
Fram kom í máli Hrafnkels í gær
að áfrýjunarmál hans yrði þingfest
í Hæstarétti 1. febrúar næstkom-
andi og eftir það yrði gefinn fjög-
urra mánaða frestur til að ganga
frá dómsgerðum, þá fengist einnig
frestur til að ganga frá málinu til
flutnings. Hann sagði aðspurður,
að hugsanlegt væri að málið myndi
frestast í á annað ár.
I6laeiöfin i ái
4
nýjar
í pakka
kr. 1.750.
Gullfallegar
jólagjafir
yacMri^
1 lerrabud y in
i Hafnarstræti 92 Sími 96-26708
Akurevrinaar - Narélendinoar
Allúr okkar verslanir veróa opnar sem hér segir:
Fimmtudag 20. des. kl. 9-22
Föstudag 2l.des.kl. 9-22
Laugardag 22.des.kl. 10-23
Mónudag 24.des.kl. 9-12 ^
Kaupfélag Eyfirðinga Kaupmannafélag Akureyrar