Morgunblaðið - 20.12.1990, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
55
Guð blessi SAA og Guð
blessi Guðmund og Jóa
eftir Karl V.
Matthíasson
Á þessari stundu eru margir,
menn, konur og börn, sem þjást
vegna þess að alkóhólismi þjáir þau.
Jólin eru að nálgast og þá vill það
oft brenna við að Bakkus konungur
fær marga til að falla fram og til-
biðja sig. Það er oft ómæld þjáning
sem hann veldur. Þetta þekkja flest-
ir íslendingar. Sumir vegna þess að
þeir eru sjálfir áfengissjúklingar sem
þrá að brjótast undan drottnunar-
valdi vínguðsins. Aðrir vegna þess
að maki þeirra, barn/börn, systkini
eða aðrir nákomnir eru að drekka.
Það eru mikil sannindi í vísunni urn
hann Villa sem dó, þó hún sé ekki
mjög vinsæl.
Ég veit þó ekki nákvæma tölu
þeirra sem þjást í landinu okkar
vegna þess að alkóhól eða önnur
vímuefni ógna þeim; samt er ljóst
að þeir skipta tugum þúsunda —
karlar, konur og börn. En sem betur
fer kemur fjöldi manns til liðs við
þá sem berjast gegn áfengisbölinu
og þúsundir landa okkar hafa sagt
skilið við myrkraríki Bakkusar. Get-
að gengið til nýs lífs vegna þess að
þeir fengu hjálp hjá SAÁ til þess.
Hvað sem um allar stúkur verður
sagt, áfengisvarnarráð, góðgerðar-
klúbba og önnur samtök er greinilegt
að bylting varð í áfengismálum Is-
lendinga þegar SÁÁ voru stofnuð
og þau fóru að táka áfengis- og-fíkni-
efnasjúklinga í meðferð. Að lang-
stærstum hluta verður þeim eignaður
heiðurinn af þeím stækkandi her sem
berst gegn áfengjs- og fíkniefnaböl-
inu, hér á landi. í þessu tilliti skiptir
það engu máli hvað mönnum finnst
um skoðanir SÁÁ á alkóhólisma eða
aðferðum þeirra, árangurinn talar
sínu máli.
Fljótlega eftir að ég fór að starfa
sem sóknarprestur gerði ég mér
grein fyrir að eitt stærsta vandamál
íslensks samfélags er áfengis-- og
fíkniefnabölið. Fólk leitar til kirkj-
unnar með ýmiss konar vandamál
og þjáningar. Og með Guðs hjálp
leitast hún við að greiða götu þegna
sinna. En ef þau viðtöl sem þjónar
kirkjunnar (oftast. prestarnir) fá
vegna áfengis- og fíkniefnamála
kæmu ekki til þeirra er víst að þeim
þættu skuggar þessa heims vera litl-
ir.
Hvað getur kirkjan gert þegar
alkóhólisti, maki hans eða barn knýr
á dyr hennar? Vissulega er það
margt, en samt er ég viss um það
að næstum því allir prestar Jandsins
hafa á þessu ári leitað til SÁÁ, vegna
einhverra sóknarbarna sinna. SAA
eru 'mikil blessun fyrir íslenska þjóð
og það er klárt að öll samtök sem
stofnuð hafa verið til höfuðs áfengis-
og fíkniefnabölinu hér á landi starfa
í skugga þeirra og á óbeinan hátt í
skjólí einnig. Með þessar staðreyndir
i huga skil ég vel hvað Guðmundur
Örn Ingólfsson- er að fara í grein
sinni (Morgunblaðið 5. desember sl.)
Og vegna þess að það er spurt (Morg-
unblaðið 13. desember bls. 56, grein
Jóns K. Guðbergssonar) hvar hann
hafi verið undanfarið vil ég svara
því til að hann (ásamt Jóhanni Érni
Héðinssyni) hefur verið á Höfn í
Hornafirði, Akureyri, Skagaströnd,
Seyðisfirði, Grundarfirði, Ólafsvík,
ísafirði, Suðureyri, Bíldudal og víðar
að efla landsbyggðarþjónustu SÁÁ.
í þessum ferðum hefur Jóhann tekið
fólk í viðtöl (alkóhólista og aðstand-
endur þeirra) og haidið fyrirlestra,
en Guðmundur hefur séð um undir-
búning og kynningu á starfseminni
og boðið þjónustu þeirra (einstakling-
um og fyrirtækjum). Þetta er miklu,
miklu meira en ýmis önnur samtök
geta sagt sem róa þó á mið lands-
byggðarinnar í fjáröflun. Guðmundur
hefur unnið ómetanlega gott starf á
vegum SÁÁ landsbyggðinni til handa
þó hann hafi fáa titla. í raun og
veru má segja að flest landssamtök
Karl V. Matthíasson
„Hvað sem um allar stúk-
ur verður sagt, áfengis-
varnarráð, góðgerðar-
klúbba og önnur samtök
er greinilegt að bylting
varð í áfengismálum Is-
lendinga þegar SAA voru
stofnuð.“
mættu taka sér SÁÁ til fyrirmynd-
ar, starf Guðmundar Amar og Jó-
hanns. Fyrir störf þeirra á vegum
SÁÁ er landsbyggð sem á undir högg
að sækja þakklát ogjjess vegna segi
ég: „Guð blessi SAÁ og Guð blessi
Guðmund og Jóa.“
Höfundur er sóknarprestur á
ísafirði.
Bakhúsið
Hskuvörwerslun
Blómahöllin
blóm og gjafavörur
BræÖroborg
söluturn
BúnoÖarbanki ísiands
Bylgjan
hárgreiöslustofa og snyrHvöruverslun
Doja
tiskuversiun
Filman
ijósmyndavörur og framköllun
Gleraugnaverslun
Benedikts
Hans og Gréta
bamafataverslun
Verslunin Inga
Hsku-, vefnaiar- og gjafavara
íslandsbanki
Klwkkan
úr, klukkur og skartgripir
Kópavogs Apótek
Mamma Rósa
veHingastaður
verslana- og þjónustumidstöd
í hjarta Kópavogs
TAKTU ÞATT
í LilTIHNI AÐ JÓLA-BOMBUNNI!
Við ,,felum“ þrjár 5.000 kr. jóla-bombur
í jafn mörgum verslunum í
Hamraborginni hvern laugardag
í desember.
Gerðu jólainnkaupin spennandi.
Komdu í Hamraborgina og ef til vill
verður heppnin með þér.
Opið alla laugardaga
Þú færð allt til jólahaldsins
í Hamraborgmni, Kópavogi
JÓUSVBNNINN VtRDURÁ SVÆDINU!
NÆG OKEYPIS BILASTÆÐI!
mmim
HAMRAB0RG
sr
Allt ó einum staÖ"
Méiý
hannyrðaverslun
Nóotún
nýlenduvöruverslun
Óli Prik
skyndibitastaiur
Ratvís
feröaskrifstofa
Sevilla
rakarastofo
Skóverslun Kópavogs
Sólarland
sólbaisstofa
SportbúÖ Kópavogs
Sveinn Bakari
Telefoxbúðin
Tónborg
hljómplötur og gjafavörur
Veda
bókavertlun
VídeómarkaÖurinn
mmmi
vis
Vótryggingofélag íslunds
KONÍAKSHRINGIR
Ijúfir til
hátíðabrigða
eða á rólegum
síðkvöldum.
I/ . .................S