Morgunblaðið - 20.12.1990, Side 68
68
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
Prufu-hitamælar
- 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
ÍtasteyiMr & <S@ M,
Vesturgðtu 16 - Símar 14680-13210
0 Q Electrokix
% Constrnctor
KERFI SEM VEX
MEÐ ÞÉR!
Stærð: H210 B30 L100
★ í bílskúrinn.
★ í geymsluna.
★ Á vinnustaðinn.
★ Á lagerinn.
Borgartúni 26,
simi 62 22 62.
GOLF / FELAG MEISTARAFLOKKSKYLFINGA A ISLANDI
Úlfar og Karen kylf-
ingar ársins hjá FMÍ
ÚLFAR Jónsson og Karen Sæv-
arsdóttir voru valin kylfingar
ársins í meistaraflokki. Sigur-
jón Arnarsson var valinn efni-
legasti kylfingurinn. Þau fengu
afhent verðlaun á uppskeru-
hátfð félags meistaraflokks-
kylfinga á Islandi, sem er rúm-
lega ársgamalt félag kylfinga
með landsforgjöf, (5,4 hjá körl-
um og 15,4 hjá konum). I félag-
inu eru um 100 félagar.
Auppskeruhátíðinni voru afhent
verðlaun fyrir árangur sum-
arsins. Fyrst var þó Eiríki Smith
listmálara afhent viðurkenningu frá
félaginu fyrir að hafa hannað merki
félagsins.
Golfklúbburinn Keilir gaf FMÍ
farandbikar í minningu Júlíusar R.
Júlíusarsonar, en hann lést í lands-
liðsferð í Lúxemborg árið 1981.
Bikarinn var síðan veittur þeim sem
náði lægsta meðalskori sumarsins.
Ragnar Olafsson og Siguijón Arn-
arsson náðu besta árangrinum með
meðalskor upp á 74,5625 högg úr
7 mótum. Ragnar hlaut þó verð-
launin þegar 6 bestu hringirnir voru
teknir, en þá var hann með 73,87
högg á móti 74,21 höggi Siguijóns.
Hálfdán Karlsson formaður GK af-
henti verðlaunin.
Forseti golfsambandsins, Konráð
R. Bjarnason, afhenti síðan stiga-
meistara GSI í karla og kvenna-
flokki sérstaka viðurkenningu.
Stigameistarar urðu þau Ragnhild-
ur Sigurðardóttir og Ragnar Ólafs-
son. Ulfari Jónssyni og Karen Sæv-
arsdóttur voru afhent verðlaun fyr-
ir árangur sinn á Norðurlandamót-
inu í Noregi. Þar hafnaði Karen í
3. sæti og Úlfar í 2. sæti.
FMÍ-félagar velja sjálfir kylfing
ársins í karla og kvennaflokki, efni-
legasta kylfinginn og vinsælasta
félagann.
Kylfingur ársins í karlaflokki var
Úlfar Jónsson og kylfingur ársins
í kvennaflokki var Karen Sævars-
dóttir. Efnilegasti kylfingurinn var
Siguijón Arnarsson. Kosningin um
vinsælasta félagann var skemmti-
leg, en þar urðu þrír menn jafnir,
þeir Ragnar Ólafsson, Hannes Ey-
vindsson og Sveinn Sigurbergsson.
FMÍ veitti síðan verðlaun fyrir
Morgunblaöiö/Einar Falur
Karen Sævarsdóttir kylfíngur ársins í meistaraflokki
kvenna.
Morgunblaðiö/Einar Falur
Ulfar Jónsson kylfingur ársins í meistaraflokki karla.
þá sem náðu bestum árangri í
stadistik sumarsins.
Fyrir flest upphafshögg á braut
í karlaflokki var Sigurður Haf-
steinsson með bestan árangur eða
68,5% í kvennaflokki sigraði Þórdís
Geirsdóttir með 72% upphafshögga
á braut.
Fyrir flatir hittar að jöfnu (regul-
ation) var Siguijón Arnarsson með
bestan árangur í karlaflokki, eða.
61% hittni, en Ragnhildur Sigurðar-
dóttir náði bestum árangri kvenna
eða 42%.
Fyrir fæstu puttin fékk Ragnar
Ólafsson verðlaun en hann var með
að meðaltali 30,69 putt í hring.
Hann fékk einnig verðlaun fyrir
flestu fuglana en hann var með
2.24 fugla á hring.
BILUARDBORÐ
í stofuna,
kjallarann eða
bílskúrinn
POT BLACK
þekktasta merkið
í minni „snookers“-
borðum
Sendum í póstkröfu
Kreditkortaþjónusta
firmúla 40.
Sími 35320
Billard borð með kjuðum og kúlum
2 fet ó borð kr. 2.990,- 4 fet kr. 8.900,- stgr. kr. 8.455,-
3 fet ó borð kr. 4.400,- 5 fet kr. 17.400,- stgr. kr. 16.530,-
4 fet ó borð kr. 5.900,- 6 fet verð fró kr. 22.100,- stgr. kr. 20.994,
l/érslunin
A/m
Sprengjusérfræðingur FMÍ var
valinn, en það er sá sem fær flestar
holur á 3 höggum yfír eða meira
yfir par. Þann vafasama heiður fékk
Rúnar Gíslason en hann var með 8
sprengjur í 9 hringjum.
í lokin voru svo afhent ótal mörg
aukaverðlaun fyrir ýmis skemmti-
leg atvik sumarsins.
Óhætt er að fullyrða að síðasta
sumar hafi verið það besta frá upp-
hafí ef mið er tekið af þeim árangri
sem náðist hjá landsliðinu og úr
mótum sumarsins hér heima.
Morgunblaðið/Óskar Sæm.
Arnar Már Ólafsson, fulltrúi FMÍ_, ásamt tveimur bestu kylfingum sumars-
ins Siguijóni Amarssyni og Ragnari Ólafssyni. Þeir voru með besta meðalskor-
ið en Ragnar hafði betur eftir töluverða útreikninga.
IÞROTTIR FATLAÐRA
Reykjavíkurmeistaramótið í boccia:
Hjahi meistari
HJALTI Eiðsson sigraði í
Reykjavíkurmeistaramóti fatl-
aðra í Boccia sem f ram fór í
íþróttahúsi Hlíðarskóians um
helgina. Hann bar sigurorð af
Ólafi B. Tómassyni og Elmu
Finnbogadóttur í úrslitum 1.
deildar. Hjalti sigraði Ólaf 5:4
og Elmu 9:3. Elma tryggði sér
síðan annað sæti með sigri á
Ólafi, 5:3.
sveitakeppninni sigraði A-sveit
ÍFR en hana skipuðu auk Hjalta
þau Haukur Gunnarsson og Jóna
Jónsdóttir. A-sveit Aspar varð í
öðru sæti.
Sigurður Valur Valsson frá Ösp
sigraði í 2. deild, Sigrún Bessadótt-
ir, IFR, í þeirri þriðju og Björgvin
Kristbergsson, Ösp, í fjórðu deild.
Þá var einnig keppt í U-flokki.
Þórdís Rögnvaldsdóttir varð örugg-
ur sigurvegari, hún vann Kristínu
Jónsdóttur 15:1 og Björk Thorar-
ensen 21:0. Kristín gerði síðan jafn-
tefli við Björk og það dugði Kristínu
í annað sætið vegna hagstæðari
stiga.