Morgunblaðið - 20.12.1990, Síða 71
KNATTSPYRIMA / EM LANDSLIÐA
MORGUNBLAÐIÐ
íÞRórtm
PIMMTODAGUR 20. ÐESEMBER 1990
URSLIT
Knaftspyrna
EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
6. riðill:
Malta—Holland.................0:8
— Marco van Basten 10., 20., 25., 68. og
80. (vsp), Aron Winter 48., Dennis Berg-
kamp 63. og 75.
6. riðill:
Spánn—Albanía.................9:0
Guillermo Amor 19., Carlos Munoz 22. og
63., Emilio Butragueno 30., 57., 66. og
75., Femando Hierro 37., Jose Bakero 86.
Staðan:
Frakkland 3 3 0 0 5: 2 6
Spánn 3 2 0 1 : 13: 4 4
Tékkósl 3 2 0 i 5: 4 4
ísland 4 10 3 4: 5 2
Albanía 3 0 0 3 0:12 0
VINÁTTULEIKIR
2:1
Sotskhinszki 35., Gebura 66. — Tsaiouhidis
Þýskaland—Sviss 4:0
Völler 1., Riedle 67., Thom 75., Mattháus
85.
EVRÓPUKEPPNI U-21 ÁRS
1. riðill:
Spánn—Albanía 1:0
Aguila (90.)
Staðan:
Tékkósl 3 3 0 0 12: 2 6
Spánn 3 2 0 1 4: 3 4
Frakkland 3 1 1 1 2: 2 3
Albanía 3 0 2 1 0: 1 2
ísland 4 0 1 3 0:10 1
Körfuknattleikur
NBA-DEILDIN
Mámidagur:
Atlanta Hawks - Cleveland.. ...109: 98
Utah Jazz - New Jersey ...100: 98
Þriðjuilagur:
...105:100
Philadelphia - LA Clippers ...110: 99
LA Lakers - New York ....100: 97
...112:103
Phoenix - Dallas ...114: 95
San Antonio - Houston .... 96: 95
Milwaukee - Detroit ....106:101
Seattle - Orlando
Portland - Golden State ...122: 94
Sacramento - Minnesota
EVROPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
Ovarense (Portúgal)—Bologna (ítai.) ..69:71
Cholet (Fra.)-Dyn. Moskva (Sov.,) ....78:95
Salonika(Gri.)-Rauða Stj. (Júg.).9i;80
Zaragoza (Spá.)-Hapoel Galil (ísr.) ...84:81
Real Madr. (Spá.)-Panathinaik. (Gri.)88:65
Hapoel Tel Aviv (Ísr.)-Zagreb (Júg.)..85:79
Charlottenb. (Þýsk.)-Juventus (Ital.) .75:90
Irak. Salonika (Gri.)-Badalona (Spá.) 70:91
Muihouse (Frakkl.)Varese (ítal.).99:83
Zadar (Júg.) Est. Madrid (Spáni).105:95
Panionios (Grikkl.)—Ostend (Belgiu)...97:91
Aftur og nýbúnir!
íslendingarflengdu sameinaða Þjóðverja öðru sinni
ÍSLENSKA landsliðið íhandknattleikflengdi Þjóðverja öðru sinni
á jafnmörgum dögum og vann verðskuldaðan sigur, 26:19, í
Laugardalshöll ígærkvöldi. Fyrri háfleikur var íjafnvægi en í
síðari hálfleik tók íslenska liðið völdin. Staðan í hálfleik var 11:10
fyrir ísland.
Morgunblaðið/KGA
Geir Sveinsson átti góðan leik í gær og skoraði þrjú mörk af línu. Hér. er
eitt þeirra í fæðingu.
orbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari, var ánægður með
leikinn. „Nýliðamir stóðu sig vel,
nýttu tækifærið og eru greinilega
staðráðnir í að vera
ValurB. með áfram. Þjóð-
Jónatansson veijar reyndu að
skrifar draga úr hraðanum
í fyrri hálfleik, en í
síðari hálfleik náðum við að keyra
upp hraðann og þá var þetta aldrei
spurning," sagði Þorbergur.
Seinir í gang
Islenska liðið var seint í gang og
klúðraði fyrstu fimm sóknunum auk
þess að misnota vítakast. Mikið fum
og fát einkenndi sóknarleik íslenska
liðsins á þessum kafla. Konráð skor-
aði fyrsta markið þegar 8 mínútur
voru liðnar af leiknum og gerði
reyndar tvö næstu líka. Jafnræði
var á með liðunum fram í hálfleik.
Mikið var um mistök í sóknarleikn-
um en varnarleikurinn var nokkuð
agaður.
Aukið sjálfstraust
I' síðari hálfleik var allt annað
upp á teningnum í sókninni, ungu
leikmennirnir fengu aukið sjálf-
straust og réðu hraða leiksins, án
þess að vera með ótímabær skot.
Sigurður Bjarnason fann sig vel í
síðari hálfleik, eftir að hafa verið
frekar daufur í fyrri hálfleik, og
gerði mörg glæsileg mörk. Hann
er að verða okkar allra besti leik-
maður og ekki ónýtt fyrir íslenska
liðið að hafa slíkan leikstjórnanda,
sem getur gert mörk upp á eigin
spýtur ef svo ber undir.
Þorbergur á réttri leið
Annars stóðu allir íslensku leik-
mennirnir sig vel og framtíðin því
björt. Konráð sýndi hversu hann er
megnugur maður gegn manni, plat-
aði hornamann Þjóðverja upp úr
skónum hvað eftir annað. Þorberg-
ur er greinilega á réttri leið með
liðið og er aðaláherslubreyting hans
í varnarleiknum. Þetta var 12. leik-
urinn í röð án taps undir stjóm
Þorbergs og verður það að teljast
góður árangur. Það er þó of snemmt
að bera nokkuð mat á styrkleika
liðsins það verður að koma í ljós
þegar út í alvöruleiki er komið.
Þjóðveijar mega skammast sín fyr-
ir það að hafa ekki sent hingað
sterkasta lið sitt og þetta saman-
safn þeirra er reyndar móðgun við
íslendinga.
„Betra en ég bjóst wið“
„Við skulum gera okkur grein
fyrir því að þýsku leikmennirnir eru
allir atvinnumenn og hafa um 80
til 300.þúsund þýsk mörk í árslaun.
Þeir eru einnig að beijast fyrir sæti
í þýska landsliðinu. Það hefur verið
stígandi í þessu hjá okkur og ég
get ekki annað en verið ánægður
með þessa tvo leiki. Þetta var mun
betra en ég bjóst við,“ sagði Þor-
bergur.
íslendingar leika við Þjóðveija
ytra á föstudag og laugardag og
þá kemur væntalega í ljós hvar lið-
ið stendur.
Hittust fyrst á mánudaginn
Þjálfari Þjóðverja frétti af leiknum fyrirtveimur vikum
HORST Bredemeier, lands-
liðsþjálfari Þjóðverja, stjórn-
aði þýska liðinu í gærkvöldi.
En hann stjórnaði ekki liðinu
í fyrri leiknum þar sem hann
var að einbeita sér að undir-
búningi A-liðsins í Þýska-
landi.
Bredemeier sagðist ekki vera
ánægður með leik liðsins í
gær. „Það er greinilegt að það
vantaði tilfinnanlega leikstjóm-
anda í liðið, enda mikið ráðleysi
í sóknarleik okkar. Ég get þó
verið þokkalega sáttur við fyrri
hálfleik. Þetta em allt ungir leik-
menn og höfðu aðeins æft saman
tvívegis fyrir leikina hér á landi.
Leikmenn liittust í fyrsta sinn á
mánudaginn,“ sagði þjálfarinn.
Hann sagði að það væm aðeins
tveir leikmenn í þessu liði sem
koma til með að vera í 17 manna
hópnum sem mætir íslendingum
ytra. í hverja stöðu væru fjórir
til fimm leikmenn sem kæmu á
undan þeim sem léku í Laugar-
dalshöll.
En hvers vegna kom Bredemei-
er ekki með sitt sterkasta lið?
„Við vissum ekki af þessum leikj-
um fyrr en fyrir hálfum mánuði
síðan. HSÍ hafði samið við
Austur-Þjóðveija um þessa leiki
og því úr vöndu að ráða því tíminn
var skammur. HSÍ neitaði að
koma út nema að við sendum lið
hingað, hvaða lið svo sem það
væri. A-liðið er að undirbúa sig
fyrir Polar Cup sem verður í jan-
úar og þessir leikir ekki inní því
dæmi. Okkar vandamál eftir sam-
eininguna er að búa til eitt lið úr
tveimur og það er mjög erfítt og
við þurfum tíma.“
Aðspurður um leikina ytra
gegn Íslendingum sagði hann;
„Satt að segja veil ég litið um
styrkleika A-liðsins. Ég hef aðeins
verið með það á æfíngum og er
ánægður með það sem ég hef séð
þar. En ég býst við spennandi
íeikjum gegn Islendingum og þá
kemur í ljós hvar við stöndum.“
Um íslenska liðið sagði hann:
„íslendingar hafa á að-skipa mjög
leikandi liði eins og alltaf. Það er
óti-úlegt hvað þið eigið marga
góða leikmenn. Mikil fjölbreytni
er í sóknarleiknum og varnarleik-
urinn er góður en þó ekki gróf-
ur,“ sagði Bredemeier.
Horst Bredemeier, landsliðs-
þjálfari Þjóðvetja, stjórnaði þýska
liðinu i gærkvöldi.
Rudi Völler var ekki lengi að skora í gær. Hér sækir hann að marki Svisslend-
inga en Andre Egli er til varnar.
Markasúpa
Marco Van Basten með fimm mörk
Mikil markasúpa var í undan-
keppni Evrópukeppninnar í
knattspyrnu í gær. I tveimur leikjum
voru gerð 17 mörk og tveir leikmenn
gerðu níu þeirra. Marco van Basten
gerði fimm mörk í 8:0 sigri Hollands
á Möltu og Emilio Butragueno gerði
fjögur er Spánverjar burstuðu Albani,
9:0. Þjóðveijar voru einnig iðnir við
kolann í fyrsta leik sínum eftir samein-
inguna og sigruðu Svissiendinga 4:0.
Maltveijar eru ýmsu vanir en tapið
gegn Hollendingur var þó það stærsta.
Van Basten gerði þijú mörk á fyrstu
25 mínútunum og það síðasta kom á
80. mínútu úr vítaspyrnu. Þriðja mark
Bastens var sérlega glæsilegt er hann
tók við sendingu Gullits og skoraði
með bakfallsspyrnu. Aron Winter og
Dennis Bergkamp skoruðu í síðari
hálfleik en þá höfðu Maltveijar játað
sig sigraði. Þeir áttu aðeins eitt skot
að marki Hollendinga og sáu vart til
sólar allan leikinn og áttu einkum í
vandræðum með að hemja Bryan Roy.
Fyrsta mark Butragueno kom á 30.
mínútu og var þriðja mark Spánveija.
Hann bætti svo þremur við í síðari
hálfleik.
Það tók Þýskaland aðeins 28 sek-
úndur að skora i fyrsta leik sínum
gegn Sviss. Rudi Völler skoraði og
Svisslendingar vissu varla hvort þeir
voru að koma eða fara. Þegar 25
mínútur voru liðnar af leiknum höfðu
Þjóðveijar gert fjögur mörk og úrslitin
ráðin.
ísland - Þýskaland
25 : 19
Laugardalshöll, vináttulandsleikur í
handknattleik, þriðjudaginn 19. des-
ember 1990.
Gangur leiksins: 0:2, 2:3, 4:4, 5:4,
6:6, 7:6, 9:8, 10:8, 11:9, 11:10, 12:10,
13:11, 15:12, 15:15, 18:15, 20:16,
23:16, 24:18, 25:19, 26:19.
Island: Konráð Olavson 7, Sigurður
Bjarnason 6/2, Geir Sveinsson 3, Valdi-
mar Giimsson 3, Stefán Kristjánsson
3, Jón Kristjánsson 2, Einar Sigurðsson
2, Gunnar Beinteinsson, Jakob Sig-
ui*ðsson, Patrekur Jóhannesson og
Gylfí Birgisson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson
4, Hrafn Margeirsson 6.
Utan vallar: 4 mínútur.
Þýskaland: Henrik Ockel 4/1, Uli
Desad 3, Bemd Ross 3, Michael Hein
2, Thomas Knorr 2, Frank Arenes 2,
Markus Hochhaus 1, Uwe Seidel 1 og
Jörg Krewinkel 1.
Varin skot.: Jan Holbert 2, Jens Körb-
is 6.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Rudinski og Moza frá
Tékkóslóvakíu.
Áhorfendur: Um 200.
| ENGLAND
Fyriiiiði
í steininn
Tony Adams, fyrirliði Arsenal, er
í vondum málum. Hann var stöðv-
aður af lögreglunni fyrir skömmu eft-
ir að hafa ekið á fullri ferð inní garð
og við blóðprufu koin í ljós að hann
hafði drukkið eitthvað sterkara en
maltöl. Þetta er í þriðja sinn sem
Adams er tekinn ölvaður við stýri og
dómarinn var ekki í vafa og sendi
fyririiðann í steininn. Hann fékk níu
mánaða fangelsisdóm og þarf að sitja
inni a.m.k. fjóra.
Margir hafa velt því fyrir sér hvort
hann missi sæti sitt í liði Arsenal enda
hefur George Graham, framkvæmda-
stjóri liðsins, tekið fast á brotum sem
þessu. Víst er að Adams verður ekki
fyrirliði, enda missir hann af stórum
hluta keppnistímabilsins og verður að
sætta sig við að fylgjast með félögun-
um úr fangelsi hennar hátignar.
HANDKNATTLEIKUR / VINATTULANDSLEIKUR