Morgunblaðið - 05.01.1991, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.01.1991, Qupperneq 1
56 SIÐUR B/LESBOK 3. tbl. 79. árg. LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1991 Tvö þúsund manns fallnir í Mogadishu Rómaborg. Reuter. UPPREISNARMENN í Mogadishu, sem berjast við stuðningsmenn Mohammeds Siads Barre forseta, sögðu í gær að um 2.000 manns hefðu fallið á síðustu sex dögum í bardögum í höfuðborginni. Háttsettur embættismaður Samráðs Sómaliu (USC), stærstu uppreisnarfylkingar- innar, sagði í Róm að flestir hinna föílnu hefðu verið óbreyttir borgar- ar og að 4.000 manns til viðbótar hefðu særst. írakar samþykkja úrslitakosti George Bush Bandaríkjaforseta: Aziz kemur til fund- ar við Baker í Genf * > Utvarp stjórnarandstæðinga í Irak hvetur til uppreisnar geg n Saddam forseta Bagdad. Washington. Lúxemborg. Nikósíu. Reuter. Daily Telegraph. ÍRAKAR samþykktu í gær úrslitakosti George Bush Bandaríkjaforseta og féllust á að senda Tareq Aziz utanríkisráðherra til fundar við James Baker utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Genf í Sviss næstkomandi miðvikudag. Talsmaður Bandaríkjaforseta sagði ákvörðun íraka upp- örvandi því tilboð Bush um að utanríkisráðherrarnir hittust hefði ver- ið lokatilraunin af hans hálfu til þess að freista þess að finna friðsam- lega lausn á deilunni um Kúveit fyrir 15. janúar en þá rennur út frest- ur sem írakar hafa til að kalla innrásarher sinn þaðan. Abdul Kadir, talsmaður USC í utanríkismálum, sagði að hótel og skólar í Mogadishu væru að fýllast af særðu fólki því ekkert pláss væri í sjúkrahúsum borgarinnar. „Vest- ræn ríki verða að senda sjúkra- og hjálpargögn til Mogadishu strax. Hungursneyð: Afríkubúar verði ekki afskiptir Genf. Reuter. TALSMENN ýmissa alþjóð- legra iijálparstofnana sögðu í gær að hætta væri á liungur- dauða tugmilljóna manna . í Afríku vegna þess að auðug lönd hjálpuðu nú freniur Austur-Evrópu og Sovétríkj- unum. Þörfin væri ekki nærri því jafn brýn í A-Evrópulönd- unum og í Afríku þar sem þurrkar og styrjaldarátök hefðu í sameiningu valdið hungri víða í álfunni. „Við verðum fyrst og fremst að huga að Afríku en svo sannar- lega ekki A-Evrópu,“ sagði Par Stenback, formaður sameigin- íegrar stjórnar neyðarhjálpar sex stofnana, þ.e. Rauða krossins og Rauða hálfmánans, Caritas, Kaþólsku hjálparstofnunarinnar, Hjálparstofnunar mótmælenda- kirkjudeilda, Oxfam og Alþjóða- kirkjuráðsins. í yfirlýsingu áðurnefndra stofnana segir að 20 milljónir Afríkumanna geti dáið úr hungri í vetur ef matvæli berist ekki tafarlaust. Starfsmenn stofnan- anna sögðu að Persaflóadeilan hefði einnig orðið til þess að draga athyglina frá hörmungun- um í Afríku. Verst væri ástandið í Eþíópíu, Súdan, Líberíu, Ang- óla og Mósambík. Hjálparstofnun kirkjunnar á íslandi barst í gær beiðni um aðstoð vegna yfirvofandi hung- ursneyðar í Afríku og hyggst leggja fram sinn skerf, en lands- söfnun stofnunarinnar stendur enn yfir. Pólska þingið, Sejm, samþykkti tilnefningu Bieleckis með þorra at- kvæða. Nýi forsætisráðherrann er ákafur stuðningsmaður vestræns Við höfum ekki einu sinni vatn. Alls staðar eru lík á götum borgar- innar. Við höfum ekki haft tíma til að grafa þau,“ sagði Kadir. Hann sagði einnig að starfsmenn USC notuðu hátalara og kalltæki til að hvetja íbúa Mogadishu til að yfir- gefa borgina áður en uppreisnar- menn hæfu þar stórskotahríð. Said Barre hefur ásamt ríkis- stjórnum Vesturlanda hvatt til vopnahlés svo hægt verði að koma útlendingum úr landi. í gær sagðist Barre tilbúinn til friðarviðræðna við uppreisnarmenn og sagðist hann myndu taka hverri þeirri niðurstöðu sem yrði í þeim. Kadir, sem verið hefur í útlegð í 11 ár, sagði að vopnahlé yrði kom- ið á um leið og starfsmenn Alþjóða- stjórnar Rauða krossins hefðu skipulagt brottflutning útlendinga úr landi. Vopnaðir menn réðust hins vegar inn á skrifstofur stofnunar- innar í Mogadishu í gær en við það tefst undirbúningsstarf fyrir brott- flutning útlendinganna. íraska fréttastofan IRNA birti yfirlýsingu frá Aziz um að hann færi til fundar við Baker. Þar sagði að ekki mætti túlka ákvörðun hans sem undanlátssemi vegna þrýstings markaðshagkerfis er hann segir grundvöll þess frelsis sem verka- lýðshreyfingin Samstaða hafi barist fyrir í rúman áratug. frá Bandaríkjamönnum heldur sem tillitsemi við almenningsálitið í heim- inum, eins og komist var að orði. Leiðtogar ríkja um heim aílan höfðu hvatt Iraka til að taka boði Bush. Jan Krzysztof Bielecki Sagði IRNA að ákvörðunin hefði verið tekin í gær á fundi byltingar- ráðsins sem Saddam Hussein hefði stýrt. Bush hafði boðið upp á fund mánu- dag, þriðjudag eða miðvikudag, el- legar yrðu írakar að horfast í augu við styrjöld. Gaf hann þeim frest þar til í dag að gera upp hug sinn en hingað til höfðu írakar hafnað öllum friðartilraunum. Bush sagði að ekki yrði samið um tilslakanir á fundinum, engin málamiðlun væri í farvatninu, krafan um að írakar drægju innrás- arher sinn frá Kúveit væri ófrávíkj- anleg. írakar hafa ítrekað neitað að fara með her sinn frá Kúveit sem þeir hafa innlimað í ríki sitt og sett það sem skilyrði fyrir lausn Persaf- lóadeilunnar að framtíðarlausn verði fundin á málum Palestínumanna. Utanríkisráðherrar Evrópubanda- lagsins (EB) afréðu á fundi í gær að bjóða Aziz til fundar við Jacques Poos utanríkisráðherra Lúxemborg- ar í Lúxemborg daginn eftir fund þeirra Bakers. Hart var deilt á fund- inum en Roland Dumas utanríkisráð- herra Frakka lagði m.a. til að EB ábyrgðist að ekki yrði ráðist á írak gegn því að þeir hétu því að hverfa með hersveitir sínar frá Kúveit. Á Prentsmiðja Morgunblaðsins spýtunni hékk að síðar yrði efnt til einnar eða fleiri alþjóðlegra ráð- stefna um önnur deilumál í Miðaust- urlöndum. Þá lagði Francois Mitter- rand Frakklandsforseti til að að Ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði boðað til fundar um stöðu mála við Persaflóa fyrir 15. janúar ef Irakar héldu fast við sinn keip að fara ekki frá Kúveit og stríð þætti vofa yfir. Hinn illræmdi hryðjuverkamaður Ilych Ramirez Sanchez, eða „sjakal- inn Carlos“, er sagður kominn aftur til Bagdad, að sögn bandarísku sjón- varpsstöðvarinnar ABC, en hann hafði haft bækistöðvar undir hið síðasta í Líbýu. Að sögn sjónvarps- stöðvarinnar óttast alþjóðalögreglan Interpol að Saddam íraksforseti muni fá Carlos til þess að standa fyrir hefndai-verkum á Vesturlöndum komi til átaka í Kúveit. Útvarpsstöð íraskra stjórnarand- stæðinga skoraði í gæi' á Iraksher að steypa harðstjórn Saddams for- seta þar sem hún hefði auðmýkt írösku þjóðina og vanhelgað virðingu hennar á alþjóðavettvangi. Breska útvarpið BBC nam sendingar stöðv- arinnar sem hvatti írösku þjóðina til „intifada", uppreisnar, gegn Saddam á degi hersins á morgun, sunnudag. Nýr forsætísráðherra tekinn við 1 Póllandi Varsjá. Reuter. JAN Krzysztof Bielecki, 39 ára gamall ltagfræðingur, tók í gær við embætti forsætisráðherra í Póllandi af Tadeusz Mazowiecki. Lech Walesa forseti tilnefndi Bielecki í embættið í síðustu viku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.