Morgunblaðið - 05.01.1991, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1991
3
Bankar og sparisjóðir:
SPRON með mesta inn-
lánsaukningn á síðasta ári
INNLÁN viðskiptabankanna juk-
ust um 13,1% ■ á síðastliðnu ári
samkvæmt _ bráðabirgðatölum
Seðlabanka íslands. Þar lágu ekki
fyrir tölur um innlán sparisjóð-
anna en samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins eru þau talin
hafa aukist um 22%. Mest innláns-
aukning varð hjá Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis þar
sem innlán jukust um 38,7% á
árinu og námu samtals 4,3 mill-
jörðum í árslok. Inn í þessum
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson,
alþingismaður Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík, segist ákveðinn í
að fara í sérframboð í Reykjavík
í næstu alþingiskosningum. Hann
hefur óskað eftir því við fulltrúa-
ráð framsóknarfélaganna í
Reykjavík að fá listabókstafinn
BB, en ella segist hann munu bjóða
fram undir öðrum listabókstaf.
Guðmundur G. Þórarinsson lenti í
öðru sæti í skoðanakönnun fulltrúa-
ráðsins um framboðslistann í
Reykjavík. Vildi hann ekki una þeirri
niðurstöðu og óskaði eftir því að
valið yrði á listann í opnu prófkjöri.
Þeirri ósk var hafnað af fulltrúaráð-
inu og fór Guðmundur. þá fram á,
að það heimilaði honum að bjóða
fram BB-lista. Almennur fundur í
fulltrúaráðinu mun taka afstöðu til
þeirrar beiðni hans um miðjan mán-
uðinn.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Guðmundur, að hann væri ákveðinn
í að bjóða fram sérstakan lista í
Reykjavík, hvort sem það yrði undir
listabókstafnum BB eða ekki, enda
hefði hann fengið mikla hvatningu
um að tefla inn í auða rúmið í stjórn-
tölum er ekki aukning á útgáfu
markaðsverðbréfa en ljóst er að
hún var umtalsverð á árinu hjá
sumum bankastofnunum.
Innlán jukust um 18,5% hjá
Landsbanka eða um 6,6 milljarða
og námu þau í ársiok alls 42,5 mill-
jörðum. Ekki er tekið tillit til innlána
Samvinnubankans en tölur þar um
lágu ekki fyrir í gær. Þá jukust inn-
lán Búnaðarbankans um 25% eða
5,4 milljarða og námu 27,2 milljörð-
um í árslok. Islandsbanki var með
málunum. Guðmundur var spurður
hvort hann hygðist hafa samstarf
við einhveija flokka eða stjórnmála-
samtök um framboðið og sagði hann
að engin áform væru uppi um það.
Hins vegar hefðu ýmsir aðilar rætt
slíkt við sig.
Eins og kom fram í Morgunblað-
inu í gær héldu fulltrúar ísfélagsins
og forystumenn SH langan fund
um úrsögn ísfélagsins í fyrradag.
Jón Ingvarsson, stjórnarformaður
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
um 10% innlánsaukningu að með-
töldum innlánum í Samvinnuban-
kaútibúinu á Húsavík sem bankinn
festi kaup á nú um áramótin. Heild-
arinnlán íslandsbanka samkvæmt
bráðabirgðatölum voru um 28,5
milljarðar í lok ársins og höfðu auk-
ist um 2,3 milljarða.
Til samanburðar má nefna að
hækkun lánskjaravísitölu á. síðasta
ári var 7,15%. Raunaukning á inn-
lánum bankanna samkvæmt ofan-
greindum tölum er því um 5,6% en
13,9% hjá sparisjóðunum.
Baldvin Tryggvason, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis, sagði í samtali.við Morgun-
blaðið að ástæðan fyrir mikilli innl-
ánsaukningu sparisjóðsins væri sú
að fólk hefði áttað sig á því að gott
væri að skipta við sparisjóði. Hann
sagðist einnig gera ráð fyrir að
samruni banka hefði komið róti á
fólk og einhveijir kosið að fara yfir
til sparisjóðsins. Þá væru sparisjóð-
irnir almennt í góðu áliti og nytu
trausts.
gær 'að enginn fótur væri fyrir því
að forsvarsmenn ísfélags Vest-
mannaeyja hf. og Vinnslustöðvar-
innar hf. í Vestmannaeyjum hafi
nefnt sem ástæður fyrir úrsögninni
að Sölumiðstöðin tæki of há um-
boðslaun.
Guðmundur G. ákveðinn
að bjóða fram í Reykjavík
Jón Ingvarsson stjórnarformaður SH:
Astæður úrsagna ekki
of há umboðslaun SH
STJÓRN ísfélags Vestmannaeyja hf. kemur saman til fundar í dag,
þar sem ákvörðun verður tekin um það hvort úrsögn úr SH verður
dregin til baka eða ekki, Magnús Kristinsson, stjórnarformaður ísfé-
lagsins, sagði í Morgunblaðinu í gær að hann ætti von á að ákvörðun-
in yrði dregin til baka.
Sjö skip farin til loðnuleitar
FIMM þeirra sex loðnuskipa sem valin voru til loðnuleitar nú í
ársbyijun eru komin á fyrirfram ákveðin leitarsvæði ásamt rann-
sóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni. Að
sögn Jakobs Jakobssonar, forsljóra Hafrannsóknastofnunar, getur
leiðangurinn hugsanlega staðið fram í febrúar. Leiðangursstjóri
er Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur.
Rannsóknaskipin héldu úr höfn
í Reykjavík eftir hádegið á mið-
vikudag, en loðnuskipin gátu hins
vegar ekki haldið úr höfn fyrr en
aðfaranótt fimmtudags vegna
samninga við áhafnir skipanna.
Skipin sem um ræðir eru Víkingur
AK, Júpiter RE, Börkur NK,
Hólmaborg SU, Helga II RE og
Hilmir RE, og eru það stærstu
loðnuskipin í flotanum. Að sögn
Jakobs Jakobssonar hefur hveiju
loðnuskipanna verið úthlutað
ákveðnu leitarsvæði, en þegar þau
hafa fundið hvar loðnan er þá fara
rannsóknaskipin á viðkomandi
svæði og mæla hve mikið magn
er á hveijum stað. Hann sagði að
ótiltekinn tími væri ætlaður til leit-
arinnar, en gert væri ráð fyrir að
hún gæti staðið fram í febrúar.
„Það er hugsanlegt að þessu ljúki
miklu fyrr ef allt gengur upp og
nóg finnst af loðnu, en loðnuskipin
geta í sjálfu sér farið langt með
að ljúka verkum sínum á 6-8 góð-
viðrisdögum í fyrstu yfirferð,“
sagði hann.
Kjaradeila aðstoðarlækna:
Sérfræðingar
íhuga uppsagnir
SÉRFRÆÐINGAR á spítölunum
munu íhuga uppsagnir verði
ekki fljótlega samið í kjaradeilu
aðstoðarlækna. Sérfræðingar
skora jafnframt á læknaráð
spítalanna að endurskipuleggja
starfsemi á spítölunum þannig
að hægt verði að veita eins góða
þjónustu og aðstæður leyfi.
Kjaradeilu aðstoðarlækna og
ríkis og borgar hefur verið vísað
til ríkissáttasemjara og verður
fundað í deilunni á mánudaginn.
Sérfræðingafélag lækna efndi
til ijölmenns fundar í gær vegna
þeirra aðstæðna, sem skapast hafa
á spítölunum vegna kjaradeilu að-
stoðarlækna annars vegar og ríkis
og borgar hins vegar. Haraldur
Briem, formaður félagsins, segit'
að niðurstaða fundarins hafi verið
sú, að leysist deilan ekki bráðlega
myndu sérfræðingar fara að íhuga
uppsagnir. Ekki hafi verið gefinn
ákveðinn tímafrestur hvað það
varðar, en ljóst sé að sérfræðingar
muni ekki bíða lengi, enda sé
ástandið þannig á sumum deildum,
að sérfræðingar hafi ekki aðstöðu
til að leysa úr þeim málum, sem
upp koma.
Haraldur sagði að á fundinum
hefði hka verið ákveðið, að beina
þeim tilmælum til læknaráða
spítalanna, að bregðast við kjafa-
deilunni með því að endurskipu-
leggja starfsemina.
Orn Smári Arnaldsson, formað-
ur læknaráðs Borgarspítalans,
segir að þjónusta á sjúkrahúsunum
hljóti að dragast saman vegna þess
ástands, sem nú ríki þar og skipu-
leggja þurfi stöi'f sérfræðinga
þannig að hægt vei'ði að sinna
þeim aðgerðum sem séu mest að-
kallandi.
Hann nefnii' að á skurðdeiid
Borgarspítalans hafi þegar verið
komið á þeirri skipan, að þar séu
ávallt sérfræðingar á vakt til að
sinna aðkallandi aðgerðum, en hins
vegar verði sjúklingar, sem bíða
eftir aðgerðum, ekki kallaðir inn
eins og málin standi.
Fimm á slysa-
deild eftir
bílveltu
BIFREIÐ valt á Mosfellsheiði um
miðjan dag í gær og voru fimm
farþegar fluttir á slysadeild.
Bifreiðin var á leið austur og
rann til í mikilli hálku með þeim
afleiðingum að hún fór eina veltu
á veginum.