Morgunblaðið - 05.01.1991, Side 4

Morgunblaðið - 05.01.1991, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991 Dagpeningar til ríkisstarfsmanna: Sérreglur gilda um marga embættismenn SÉRREGLUR gilda um greiðslu dagpeninga til ráðherra, aðstoðar- manna ráðherra, ráðuneytisstjóra, biskups, forseta Alþingis, ski-ifstofu- stjóra Alþingis, rikisendurskoðanda, hæstaréttardómara, ríkissátta- semjara og forsetaritara, samkvæmt reglum um greiðslu ferðakostnað- ar vegna ferðalaga á vegum ríkisins. Samkvæmt sérreglunum fá ráð- herrar og forseti hæstaréttar greidda dagpeninga með 20% álagi og að auki er þeim greiddur gistikosnaður, hótelherbergi og símtöl. Öðrum þeim sem séireglumar gilda um eru greiddir 2/3 hlutar fullra dagpeninga auk gisti- og símakostnaðar. Þá seg- ir í reglunum að heimilt sé að greiða ferðakostnað og helming dagpeninga til maka ráðherra. Samkvæmt upp- lýsingum frá Ríkisbókhaldi fá makar ráðherra greiddan helming dagpen- inga með 20% álagi. Reglur þessar eru í 14. greinum, og að sögn Jóns Sveinssonar aðstoð- armanns forsætisráðherra hafa þær gilt í nokkur ár í þessu formi. Jón sagði að síðasta breyting á reglunum hefði verið gerð í fjármálaráðherratíð Alberts Guðmundssonar, 1983-85 en þá voru aðstoðarmenn ráðherra sett- ir undir sérreglurnar. í október 1971 samþykkti þáver- andi ríkisstjórn reglur varðandi greiðslu kostnaðar við utanferðir ráð- herra og voru þær í fjórum liðum. Þar kemur fram að fargjöld greiðist eftir reikningi, gistikostnað og símtöl á ferðalögum erlendis skuli greiða en annar kostnaður greiðist með dagpeningum. Þá sé heimilt að greiða ferðakostnað og helming dagpeninga vegna eiginkonu ráðherra allt að tvi- svar sinnum á ári. Fjórum árum síðar var ákveðið að greiða 20% álag á dagpeninga ráðherra. Við upptöku staðgreiðslu skatta, áramótin 1987/1988, voru reglur um skattgreiðslur af dagpeningum hert- ar, en fram að því höfðu engir skatt- ar verið greiddir af dagpeningum. Nú þarf ekki að greiða skatt af venju- legum dagpeningum, en að sögn Jónasar H. Jónssonar deildarstjóra Ríkisbókhalds þurfa ráðherrar að greiða staðgreiðsluskatt af helmingi dagpeninga og 20% álaginu, ef gisti- kostnaður er þegar greiddur. Þá greiða eiginkonur ráðherra stað- greiðsluskatt af álagshluta sinna dagpeninga. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson svaraði áramótaspumingu Morgun- blaðsins 31. desember sl. sagðist hann telja að núverandi fyrirkomu- lagi á dagpeningagreiðslum þyrfti að breyta, og sú breyting ætti ekki aðeins að taka til ráðherra og þing- manna heldur einnig embættis- manna, bankastjóra, og starfsmanna Seðlabanka og ríkisbanka, sem og stjórnenda ríkisstofnana og ríkisfyr- irtækja eða sameignarfyrirtækja ríkis og sveitarfélaga. Ekkert er get- ið um þessa aðila í reglunum um greiðslu ferðakostnaðar, að öðru leyti en því, að viðkomandi ráðherra geti heimilað að greiða gistikostnað for- stjóra stærstu ríkisstofnanna og helming dagpeninga að auki. VEÐUR YFIRLIT I GÆR: Skammt suðaustur af landinu er 970 mb all víðáttumikil lægð, sem þokast austur og frá henni lægðardrag í vesturátt allt að Suður-Grænlandi. Yftr Austur-Grænlandi er 1012 mb heldur vaxandi hæð. SPÁ: Norðaustanátt, víöa allhvöss eða hvöss norðan og vestan til á landinu en mun hægari suðaustanlands. Áfram má búast við snjókomu á Vestfjörðum og á Norðurlandi en slyddu norðaustan til á landinu. Sunnanlands verður hins vegar bjart veður að mestu. Lítið eitt kólnar i veðri. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 1 sfydduél Reykjavík 2 skýjað I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norðaustanátt. líklega nokkuð hvöss um norðvestanvert landið. Snjókoma eða éljagang- urá Vestfjörðum, Norður- og Norðausturlandi, en viðast bjart veð- ur sunnanlands. Frostlaust við suður- og austurströndina en frostv- iðast annars staðar. 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Y Skúrir * V E' EE Þoka = Þokumóða 5, » Súld OO Mistur —[- Skafrenningur |Y Þrumuveður TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * Bergen 2 skúrásíð.ktsL Helsinkl 0 þokumóða Kaupmannahöfn 5 léttskýjað Narssarssuaq +1 snjókoma Nuuk +9 afskýjað OsJó 2 skýjað Stokkhólmur 2 þokumóða Þórshöfn 6 skýjað Algarve 14 léttskýjað Amsterdam 6 skýjað Barcelona 12 mistur Berlín 8 skýjað Chicago +11 heiðskfrt Feneyjar 8 þokumóða Frankfurt 8 skýjað Glasgow 6 skúrásíð.klst. Hamborg 8 skýjað Las Palmas 20 skýjað London S skúrásíð.klst. LosAngelea 12 skúr Lúxemborg S skúrásíð.klst Madrfd 6 mistur Malaga 16 skýjað Mallorca 16 skýjað Montreal +7 snjókoma NewVork +2 léttskýjað Orlando 18 alskýjað Parfs 7 skýjað Róm 16 hálfskýjað Vín 5 þokumóða Washington vantar Winnipeg +19 skafrenningur Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundur Ágústsson bendir á gatið í stofuglugganum eftir flugeldin. Snarráður unglingur kom í veg fyrir stórijón Vorgum. GUÐMUNDUR Agústsson, 15 ára unglingur, hefur líklega bjargað miklum verðmætum með snarræði sínu á gamlárs- kvöld. Guðmundi tókst að slökkva í flugeldi sem fór inn um stofuglugga heima hjá honum. „Ég var úti að skjóta upp flug- eldum þegar ég heyrði ægilegan dynk. Vinur minn, Sigurður Nóa- son, sá rauðan loga í stofunni hjá mér og við hlupum inn í húsið. Ég greip slökkvitækið um leið og ég kom inn og sprauta á flugeldinn þar sem hann lá á gólfinu. Hann skaust þá út að vegg þar sem mér tókst að slökkva í honum,“ sagði Guð- mundur í samtali við Morgun- blaðið..^ Flugeldurinn, svokallaður neyðarflugeldur, skall á stofur- úðunni og gerði á hana þriggja tommu gat. Hann reif gat á þykk gluggatjöld og sleit niður króka sem héldu þeim uppi. Síðan lenti hann á sófasettinu og reif það og endaði síðan á gólfinu. Líklega hefur flugeldurinn ekki sprungið fyrr en hann lenti á stofugólfinu og mesta mildi að ekki kveiknaði í innanstokks- munum. Talsvert tjón er í íbúðinni en Guðmundur kom í veg fyrir meira tjón með snarræði sínu. EG Níu brunar veg’iia sjón- varpstækja síðustu ár TALIÐ er að eldurinn sem varð laus í íbúð í Álftahólum síðdegis á nýársdag hafi kviknað út frá myndlykli sem tengdur var við sjónvarpstæki í íbúðinni. Níu eldsvoðar út frá sjónvarpstækjum hafa verið skráðir hjá Rafmagnseftirliti ríkisins síðustu fimm árin og sex vegna útvarpstækja. Að sögn Hauks Ársælssonar hjá Rafmagnseftirlitinu bendir flest til þess að eldur hafi komið upp í myndlyklinum, borist þaðan í borð og þaðan áfram í sjónvarp og gluggatjöld. Hann sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem eldsvoði út frá myndlykli væri skráður hjá Rafmagnseftirlitinu. Síðustu fimm árin hefðu níu eldsvoðar út frá sjónvarpstækjum verið skráðir hjá eftirlitinu og sex frá útvarpstækj- um. Hins vegar væri þetta í fyrsta sinn sem eldsvoða mætti rekja til myndlykils. „Okkur hefur þótt myndlyklam- ir ganga nokkuð heitir en þeir hafa staðist allar prófanir þrátt fyrir það. Það er mjög algengt að alls ekki sé slökkt á myndlyklum á heimilum og þótt slökkt sé er ennþá spennustraumur á þeim. Það er eingöngu slökkt á lág- spennuhluta tækjanna. Hins vegar er alltaf spenna á spennubreyti í tækjunum og er það til þess að halda rafhlöðu fyrir minni sem er í tækjunum hlöðnum. Það er því ekki nóg að slökkva á myndlyklum til að vera öruggur heldur verður að taka þá úr sambandi," sagði Haukur. Hann sagði að það væri þó ekki mikið tiltökumál þótt slíkt gerðist með einn myndlykil af öllum þeim fjölda sem væri í notkun hér á landi. Haukur sagði að starfsmenn Rafmagnseftirlitsins hallist helst að því að rykmyndun í sjónvarps- tækjum valdi bruna í tækjunum. Hann sagði það eitt til ráða gegn hugsanlegum eldsvoða að láta hreinsa þau oftar að innan. Lenging’ vegriðs í Artúns- brekku til umfjöllunar BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur vísað til borgarverkfræðings og yfirverkfræðings umferðardeildar tillögu um að vegriðið í Ártúns- brekku verði lengt til vesturs, þannig að það nái að austurenda miðeyju Miklubrautar. Tillaga um lengingu vegriðsins var lögð fram í borgarráði í síðasta mánuði af Kristínu Á. Ólafsdóttur; borgarfulltrúa Nýs vettvangs. I greinargerð með tillögunni segir, að vegriðið, sem nýlega hafi verið sett upp í Ártúnsbrekku, hafi vafa- laust aukið öryggið á þessum hættulega vegarkafla. Nýlega hafi hörmulegt umferðarslys átt sér stað skammt vestan við vestari enda þess og því sé ljóst, að ástæða sé til að girða frekar fyrir þær hættur, sem við blasi á þessu svæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.