Morgunblaðið - 05.01.1991, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991
5
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þeir kynntu undirskriftasöfnunina vegna átaks gegn stríði. Frá vinstri: Haraldur Ólafsson dósent,
Heimir Pálsson kennari, Matthias Halldórsson læknir, Órnólfur Thorlacius rektor, sr. Gunnar Krisljáns-
son, Elías Davíðsson tónlistarmaður, Gísli Sigurðsson læknir.
Undirskriftasöfnun
gegn stríðsaðgerðum
Samstarfsnefnd um mál-
efni barna og unglinga
AÐ TILLÖGU framkvæmdahóps um málefni miðborgar Reykjavíkur,
hefur Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, ákveðið að skipa
samstarfsnefnd um málefni barna ög
Markmið samstarfsnefndarinnar
er að hafa yfirsýn yfir máiefni barna
og ungmennna á höfuðborgarsvæð-
inu, safna upplýsingum, miðla upp:
iýsingum og styðja rannsóknarverk-
efni sem varða málefni þessa þjóðfé-
lagshóps.
Framkvæmdahópur um málefni
miðborgarinnar, var stofnaður að
frumkvæði Lögreglunnar íReykjavík
vegna ástands, sem skapast hefur í
miðborg Reykjavíkur um helgar.
Hópinn skipuðu fulltrúar frá lög-
reglu, félagsmálaráðuneyti, mennta-
málaráðuneyti, Félagsmálastofnun
Reykjavíkur, íþrótta- ogtómstundar-
áði Reykjavikurborgar, Félagsmála-
mglinga á höfuðborgarsvæðinu.
stofnun Kópavogs og Æskulýðsráði
Hafnarfjarðar. I áliti hópsins kemur
fram, að hluti þess vanda sem skap-
ast hefur í miðborg Reykjavíkur eigi
rót að rekja til óljósrar stefnumörk-
unar í málefnum barna og unglinga
og skorti á samræmdum úrræðum
og heildaryfirsýn.
I tillögu félagsmálaráðherra, er
gert ráð fyrir að samstarfsnefndina
skipi fulltrúar úr dóms- og kirkju-
málaráðunejAi, félagsmálaráðuneyti,
heilbrigðis og tryggingaráðuneyti og
menntamálaráðuneyti. Auk þess
verður Reykjavík, Kópavogi og Hafn-
arfirði boðið að tilnefna fulltrúa í
nefndina.
AÐSTANDENDUR „Átaks gegn
yfirvofandi tortímingarstríði í
Austurlöndum nær skora á al-
menning um land allt að lýsa
opinberlega andstöðu við hinn
yfirvofandi óhugnað í þessum
heimshluta."
Steingrími Hermannssyni forsæt-
isráðherra var 19. desember sl. af-
hent áskorun til ríkisstjórnar Islands
um að lýsa ótvírætt yfir andstöðu
við stríðsaðgerðir gegn nokkurri þjóð
í Austurlöndum nær. Áskorunin var
lögð fram á ríkisstjórnarfundi 21.
desember. Islensk stjórnvöld voru
einnig hvött til að beita sér á alþjóða-
vettvangi fyrir friðsamlegri lausn
Persaflóadeilunnar og fyrir því að
haldin verði sem fyrst alþjóðleg frið-
arráðstefna um Austurlönd nær með
þátttöku allra deiluaðila, í saAiræmi
við ályktanir. Sameinuðu þjóðanna.
Níutíu einstaklingar skriftíðu und-
ir áskorunina. Nokkrir þeirra ítrek-
uðu þessa friðarbæn á blaðamanna-
fundi á fimmtudag. Fundarboðend-
ur, aðstandendur „átaks gegn stríði"
telja ófriðinn geta náð víða, stríðið
verði háð með hryllilegustu vopnum
sem mannleg hugvitssemi hafi upp
fundið og mannfaliið verði óskap-
legt.
Fundarboðendur sögðust ekki
trúa að deiluefni yrðu leyst með
stríði; Gísli Sigurðsson læknir _sem
var haldið í gíslingu í Kúveit og Irak
taldi að þjóðunum í Austurlöndum
nær hefði ekki verið gefið tækifæri
til að leita til handa sjálfum sér frið-
samlegra lausna, en það væri ein-
dreginn friðarvilji meðal almennings
í Jórdaníu, Kúveit og Irak. Gísli sagði
að þótt ályktanir Sameinuðu Þjóð-
anna heimiluðu hernaðaraðgerðir
bæri ekki að líta á slíkar aðgerðir
sem nauðsyn. Þau ríki sem ættu
sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna bæru einnig þunga ábyrgð, þar
sem þau hefðu stutt Saddam Huss-
ein með oddi og egg; með vopnum
og tækniþekkingu.
Einstaklingarnir níutíu sem upp-
haflega undirrituðu áskorunina eru
af ýmsum sviðum þjóðlífsins: Alfreð
J. Jolson biskup hinnar almennu
kaþólsku kirkju á íslandi, Anna R.
Magnúsardóttir húsmóðir, Arnar
Jónsson leikari, Arthur Morthens
kennari, Árni Bergmann ritstjóri,
Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri,
Bergljót Jónsdóttir framkvæmda-
stjóri, Birgir Björn Siguijónsson
framkvæmdastjóri BHMR, Birna
Hjaltadóttir ritari, Bragi Guðbrands-
son félagsmálastjóri, Einar Karl
Haraldsson ritstjóri, Elías Davíðsson
tónlistarmaður, Frank Ponzi list-
fræðingur Garðar Sverrisson rithöf-
undur, Gísli Sigurðsson læknir Guð-
jón Magnússon læknir, Guðmundur
Árni Stefánsson bæjarstjóri, Guð-
mundur E. Sigvaldason fram-
kvæmdastjóri, Guðmundur Karl
Ágústsson prestur, Guðmundur
Steinsson rithöfundur, Guðmundur
Þ. Jónsson formaður Iðju, Guðrún
Agnarsdóttir læknir, Guðrún Ólafs-
dóttir dósent, Guðrún S. Gísladóttir
leikari, Gunnar Kristjánsson prestur,
Gunnþór Ingason prestur, Hallmar
Sigurðsson leikari, Haraldur Óiafs-
son dósent, Haukur Guðlaugsson
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar,
Heimir Pálsson kennari, Helga Kress
dósent, Helga Þórarinsdóttir þýð-
andi, Ifjlmar Ingólfsson skólastjóri,
Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld,
Ingibjörg Hjartardóttir bókasafns-
fræðingur, Ingvar Gíslason fyrrver-
andi ráðherra, Jóhanna Þráinsdóttir
þýðandi, Jón Ormur Halldórsson
lektor, Jón R. Gunnarsson lektor,
Karl Grönvold jarðfræðingur, Karl
Sigurbjörnsson prestur, Karolína
Eiríksdóttir tónskáld, Kári Arnórs-
son skólastjóri, Kristín Á. Ólafsdótt-
ir borgarfulltrúi, Kristján Einar Þor-
varðarson prestur, Magnús T. Ólafs-
son fréttaskýrandi, Margrét Guðna-
dóttir prófessor, María Kristjáns-
dóttir leikstjóri, Matthías Halldórs-
son læknir, Ólafur H. Torfason rit-
stjóri, Ólafur Ólafsson landlæknir,
Ólína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi,
Óttar Guðmundsson læknir, Páll
Halldórsson formaður BHMR, Páll
Skúlason prófessor, Ragnar Árnason
j arðskj álftaf ræðingur, Rögnvaldur
Finnbogason prestur, Selma Guð-
mundsdóttir píanóleikari, Sigmund-
ur' Stefánsson framkvæmdastjóri
BHM, Sigríður Kristinsdóttir form-
aður SFR, Sigríður S. Rögnvalds-
dóttir fulltrúi, Sigurbjörn Einarsson
biskup, Sigurður A. Magnússon rit-
höfundur, Sigurður Björnsson lækn-
ir, Sigurður Harðarson arkitekt, Sig-
urður Haukur Guðjónsson prestur,
Sigurður Pétufsson sagnfræðingur,
Sigurður R. Gíslason jarðefnafræð-
ingur, Sigurður Steinþórsson pró-
fessor, Siguijón Björnsson prófess-
or, Siv Friðleifsdóttir sjúkraþjálfari,
Stefán Arnórsson prófessor, Svan-
hildur Kaaber formaður Kennara-
sambands íslands, Sveinn Einarsson
leikstjóri, Sveinn Rúnar Hauksson
læknir, Sverrir Bergmann læknir,
Vilborg Dagbjartsdóttir kennari og
rithöfundur, Yngvi Örn Kristinsson
hagfræðingur, Þorbjörn Broddason
dósent, Þorbjörn Hlynur Árnason
biskupsritari, Þorvaldur Örn Árna-
son námsstjóri, Þór Jakobsson veð-
urfræðingur, Þórarinn Sigurjónsson
fyrrverandi alþingismaður, Þórunn
S. Þorgrímsdóttir leikmyndateikn-
ari, Ævar Kjartansson dagskárgerð-
armaður, Ögmundur Jónasson form-
aður BSRB, Örnólfur Thorlacius
rektor, Össur Skarphéðinsson að-
stoðarforstjóri.
Hægt er að panta undirskriftalista
í síma 91-26444. Stuðningsyfirlýs-
ingar má senda í pósthólf 1760, 121
Reykjavík.
Höfn í Hornafirði:
KASK kaup-
ir Hörpu GK
KAUPFÉLAG Austur-Skaftfell-
inga á Höfn hefur samið um kaup
á Hörpu GK frá Gullvík hf. í
Grindavík ásamt tæplega 1100
tonna kvóta í þorskígildum.
Harpa GK er 144 tonna stálbátur
smíðaður á Seyðisfirði árið 1985.
Að sögn Hermanns Hanssonar,
kaupfélagsstjóra, hafa kaupin á
skipinu verið gerð með fyrirvara
um samþykki veðhafa.
Ljúffeng
íslensk landkynning
á borð vina og viðskiptavina erlendis
Vart er hægt að hugsa sér meira spennandi gjöf en fulla körfu af
forvitnilegu góðgæti frá framandi landi. Slík gjöf segir meira en mörg
orð um matarmenningu einnar þjóðar.
r-■
Hægt er að velja um ostakörfu með
mismunandi tegundum af íslenskum ostum,
vv
\f
sœlgcetiskörfu með gómsætu íslensku sælgæti
s.s. Opali, súkkulaði, brjóstsykri og lakkrís.
Sr
Og íslenska matarkörfu með
sérlega ljúffengum smáskömmtum af ýmsu tagi.
ICEMART
íslenskur markaður
- á leið út í heim.
Leifsstöð Keflavíkurflugvelli - Sími: 92-5 04 53
AUK k627d21-51