Morgunblaðið - 05.01.1991, Page 15

Morgunblaðið - 05.01.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1991 15 Morgunblaðið/KGA Utgefendur tímaritsins Skotmark, talið frá vinstri eru Þór Sveins- son, Tryggvi E. Þorsteinsson og Guðmundur Guðmundsson. Tímarit um skotvopn og skotveiði: Fyrsta tölublað Skot- marks komið út ÚT er komið fyrsta tölublað tima- ritsins Skotmark, en það fjallar eingöngu um skotvopn og skot- veiði. Því er ætlað að koma út fjór- um sinnum á ári. Að sögn útgefenda blaðsins kemur hvert blað til með að fjaila um það sem heist er um að vera á hveijum tíma. Þannig verður aðalefni sept- emberblaðsins tengt gæsaveiði, í des- emberheftinu verður ijúpnaveiði gerð sérstök skil, í mars verður sjónum beint að anda- og sjófuglaveiði og í júní verður íjallað um skotfimi. Stefnt er að því að efni blaðsins verði sem íjölbreyttast, og verður meðal annars íjallað um hluti tengda byssum, skotfærum, veiði, náttúru og dýralífi í bland við aðalefni blaðs- ins hveiju sinni. Unnið verður bæði með innlendum sem erlendum fræði- mönnum á sviði náttúru-, dýra- og fuglafræði, og auk þess fagmönnum á sviði skotvopna, skotveiði og skot- fimi. í blaðinu verða fastir þættir, og má þar nefna matreiðsluþátt þar sem kynnt verður matreiðsla á þeirri bráð sem fjallað er um hveiju sinni, og veiðihundaþjálfari veitir lesendum um ýmsar tegundir veiðihunda. Að útgáfu Skotmarks standa Tryggvi E. Þorsteinsson, ritstjóri, Þór Sveinsson og Guðmundur Guð- mundsson. Útgefandi auk þeirra er auglýsingastofan Frábær, Auglýs- ingastofa Hafnarfjarðar hf., sem set- ur upp og umbrýtur blaðið. Prentun og filmuvinnu annaðist Prentbær. Formenn stjórnarflokkanna: Hlynntir fækkun ráðuneyta FORMENN stjórnarflokkanna, þeir Jón Baldvin Hannibalsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Steingrímur Hermannsson segja fátt nýtt vera í hugmyndum Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins um fækkun ráðuneyta, fækkun þingmanna og breytta kjördæmaskipan, sem hann reifaði í áramótagrein sinni í Morgunblaðinu. „Það er fátt nýtt undir sólinni og þar á meðal ekki fækkun ráðuneyta. Það er skynsamleg hugsun að fækka ráðuneytum, en jafnframt vanda- samt og umdeilt. Öll viðleitni í þá veru að sameina ráðuneyti er við- leitni í rétta átt. Það þarf hins vegar að leggja mikla vinnu í útfærslu á slíkum hugmyndum, því tregðu- og andstöðuöflin eru víða á fleti fyrir, bæði innan og utan stjórnkerfisins. Ég er til dæmis ekki viss um að ráðuneytisstjóraklúbburinn verði mjög hrifinn,“ sagði Jón Baldvin. Hann sagði samruna og fækkun ráðuneyta og breytta kjördæmaskip- an hafa verið mjög á dagskrá í stjórnarmyndunarviðræðum 1987, sem leiddu til ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar, en um slíkt hefði ekki tekist pólitískt samkomulag milli flokka. „Þetta með níu ráðuneyti er nú bara tekið beint upp úr því sem ég lagði fyrir Alþingi um Stjórnarráð íslands," sagði Steingrimur Her- mannsson forsætisráðherra um hug- mynd Þorsteins um fækkun ráðu- neyta. Steingrímur kvaðstteljaþess- ar hugmyndir góðra gjalda verðar, þótt hann teldi að of mikið væri gert úr þeim sparnaði sem af slíkri fækkun yrði. Steingrímur sagðist einnig vera hlynntur því og alltaf hafa verið að hafa færri þingmenn, jafnframt því sem hann hefði aldrei verið hrifinn af því hlutfallskosningafyrirkomu- lagi sem hér væri. „Ég get því vel stutt það að þingmönnum verði fækkað hér,“ sagði Steingrímur. Jón Baldvin sagði að endurskoðun á kosningalögum væri á dagskrá á næsta kjörtímabili, samkvæmt kosn- ingastefnuskrá Alþýðuflokksins, „vegna þess að þessi bastarður sem kom út úr síðustu endurskoðun er náttúrlega ekki á vetur setjandi.“ Ólafur Ragnar sagði:„Við erum að vinna í því hér að fækka ráðu- neytum. Við lögðum fram frumvarp í desemberbyijun um að sameina fjárlaga- og hagsýslustofnun við íjármálaráðuneytið, en það strandað á því að Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki afgreiða það fyrir áramót." Fjármálaráðherra sagði að Alþýðu- bandalagið hefði lengi viljað sameina iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, þannig að sú hugmynd gæti ekki heldur talist til mikilla tíðinda. „Það er alltaf af og til sem ýmsir snillingar bjóða fram fækkun þing- manna, en sjaldnast fylgir nú hugur máli. Ef þetta hins vegar verður formleg tillaga Sjálfstæðisflokksins, þá er hægt að skoða það þegar og ef að því kemur," sagði olafur Ragn- ar um þá hugmynd Þorsteins að fækka þingmönnum úr 63 í 55. Minnisbók Bók- rúnar komin út MINNISBÓK Bókrúnar árið 1991 er komin út. I hverri opnu er ein vika og eru efnisatriði við hvern dag. í frétt frá útgáfunni kemur fram að pistlahöfundar að þessu sinni eru Inga Jóna Þórðardóttir, Ragna Berg- mann, Sólveig Anna Bóasdóttir, Una María Óskarsdóttir og Vilboi’g Dag- bjartsdóttir. Starfslýsingu ritar Hjördís Árnadóttir íþróttafréttaritari Sjónvarps. Að venju eru félagasam- tök kynnt og að þessu sinni er það Kvenréttindafélag íslands. Ritstjóri Bókrúnar er Valgerður Kristjónsdóttir varaformaður Bók- rúnar hf. en formaðurinn Björg Ein- arsdóttir fylgir henni úr hlaði. Sá sem öðlast orma- gull - leiðrétting BÍLASÝNING Í DAG KL. 13-17 Leiklist Súsanna Svavarsdóttir Þau leiðu mistök urðu við vinnslu blaðsins í gær að niður féll kafli í gagnrýni um leiksýninguna „Á köldum klaka,“ sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu 29. desember síðastliðinn. Morgunblaðið birtir því þann hluta gagnrýninnar hér og biður hlutaðeigendur velvirð- ingar. Bára er ekkert ný í íslenskum skáldskap; hún er ein af þessum Uglum — saklaus sveitastúlka, sem stendur lengi vel álengdar og fylgist með. En þótt hún verði vísari um veröldina, varðveitir hún hreinleika sinn og sjálfstæði og stendur uppi sem sigurvegari að lokum - þó ekki verði sá sigur talinn í krónum sem skreppa saman og skorpna um tíu prósent á ári. En sigur yfir hveijum? Jú, Bára er varla komin inn, þeg- ar birtast allsvakalegar kvennsur sem eru einhver blanda af Barbie- dúkkum og köngulóarkonum: Brynja Blyton, útbreiðslustjóri og fylgjur hennar Lissý og Dissý. Þær eru út- sendarar Snjólfs Shelton, sem kemur á einkaþotu og skilur þær eftir á þessu guðsvolaða skeri, ásamt Skugga Brixton, deildartæknifræð- ingi, sem aldrei sefur og er kvenhat- ari. Þetta gengi er með fullar töskur fjár og hjá þeim vaxa peningar eins og gras. Þau hrífa Manna hótel- stjóra með sér inn í hringiðu alþjóð- legs auðmagns - á meðan allsheijar reddarinn, Valþjófur, þingmaður og frændi, fellur fyrir Lólu Van Dong, dansmær - hverfur með henni upp á herbergi, með sjóðakerfi lands- manna í hinum aðskiljanlegustu heftum. Brynja og flokkur hennar snara sér í að gera hótel Landnámu að nýtísku lúxushóteli og Manni sogast dýpra og dýpra niður í græna doll- arafenið, með „lyftiduft" í nefinu. VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000 Smnir bflar eru betri en aðrir Honda Accord er búinn miklum góðum kostum. Kostagripir liggja ekki alltaf á lausu, en þessi er það og til- búinn til þinnar þjónustu. Bíll fyrir alla og við allra hæfi. Greiðsluskilmálar fyrir alla. Verð frá kr. 1.360.000,- staðgr. WHONDA HONDA A ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900 [yjHONDA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.