Morgunblaðið - 05.01.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1991
17
Finnland:
Fara nýjar leið-
ir í vopnakaupum
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
FINNSKI flugherinn hefur birt áætlun um væntanleg þotukaup á
næstu árum og kveður hún á um kaup á 60 orrustuþotum og sjö
æfingaþotum. Um er að ræða algjöra endurnýjun á þessum tegund-
um herflugvéla finnska hersins. Það þykir einkum merkilegt að
Elisabeth Rehn, varnarmálaráðherra Finna, skýrði frá áætlun
hersins um að horfið yrði frá þeirri hefð að kaupa hergögn jafnt
frá Sovétmönnum sem frá vestrænum ríkjum. Til þess að gæta
hlutleysis í varnarmálum hafa Finnar alla tíð eftir siðustu styrj-
öld reynt að kaupa vopn til skiptis hjá vinum sínum í austri og
vestri.
Flugherinn notar nú sænskar
orrustuþotur af Draken-gerð
ásamt sovéskum MiG-þotum. Þar
að auki eiga Finnar nokkra tugi
breskra æfingaþotna af Hawk-
gerð. Sænsku Draken-þoturnar
eru nú úreltar og hafa umræðurn-
ar hingað til eingöngu fjallað um
að finna eitthvað í stað þeirra.
Nú segist Rehn varnarmálaráð-
herra vera tilbúinn að endurnýja
allar þoturnar í einu. Þannig væri
unnt að fá meiri afslátt að mati
Rehns.
Þar sem engin tilboð hafa borist
frá Sovétmönnum um að selja
Finnum MiG-29 orrustuflugvélar
eru aðeins þijár gerðir taldar koma
til greina: F-16 frá Bandaríkjun-
um, Mirage 2000 frá Frakklandi
og JAS Gripen frá Svíþjóð. Svíar
hafa mikinn áhuga á þessum
kaupum því þróunarkostnaður
Gripen-þotunnar verður ekki borg-
aður með því aðeins Svíar kaupi
vélina. Samtals telja finnskir sér-
fræðingar að um sé að ræða
vopnakaup fyrir fjárhæð sem sam-
svarar 160 milljörðum íslenskra
króna.
*
„Björgum Astralíu!“
50.000 dreifbýlisbúar komu samán fyrir utan þinghúsið í Melbourne í Ástralíu í'gær og létu óánægju sína
með frammistöðu ríkis- og sveitarstjórna í ljós. Á myndinni sér yfir mannljöldann á samkomunni sem var
haldin undir yfirskriftinni „Björgum Ástralíu!“.
E1 Salvador:
Skæruliðar sakaðir um morð
á bandarískum hermönnum
Hundaæði á
Grænlandi
Kaupniannahöfn. Frá Nils Jorgen
Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
FUNDIST hafa tvö tilfelli um
hundaæði á Grænlandi, ann-
að í Bukse-firði um 50 kíló-
metra fyrir sunnan Nuuk,
hitt í Qasigianngult við
Diskó-flóa.
í Bukse-firði fannst sjúkdómur-
inn í hreindýri, en í hinu tilfell-
inu var um að ræða sleðahund.
Þetta hefur í för með sér að
einangra verður viðkomandi
byggðir og banna ferðir sleða-
hunda þaðan í nágrannabyggðir
og bæi. Soren Nofdby Holck,
yfirdýralæknir í Nuuk, hefur
varað fólk við dýrum sem hegða
sér annarlega.
Grænland:
Landsljórniii
yfirtekur flug-
vallareksturinn
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
LANDSTJÓRNIN í Grænlandi
hefur tekið yfir rekstur flugvall-
ar sem bandaríska olíuvinnslu-
fyrirtækið Arco hefur rekið á
austurströnd landsins.
Flugvöllurinn nefnist Constable
Pynt og Arco lagði hann árið 1984
í tengslum við olíuleit á skaganum
Jameson Land. Sjö starfsmenn
grænlensku flugvallastofnunarinn-
ar munu framvegis starfa þar og
gert er ráð fyrir að reksturinn kosti
sem svarar rúmum 70 milljónum
ÍSK ári.
Síðar á þessu ári mun landstjórn-
in einnig taka að sér rekstur á flug-
vellinum í Kulusuk. Bandaríski
flugherinn hefur annast rekstur
hans vegna samgangna við ratsjár-
stöðina DYE 4.
San Salvador, Washington. Reuter.
TALSMAÐUR bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins, Richard
Boucher, sagði í gær að vinstri-
sinnaðir skæruliðar í E1 Salvador
hefðu myrt þrjá bandaríska
hernaðarráðgjafa fyrr í vikunni
eftir að hafa skotið niður þyrlu
þeirra um 120 kílómetra austur
af höfuðborginni, San Salvador.
Þessum staðhæfingum vísuðu
talsmenn skæruliða á bug og
sögðu mennina hafa farist er
þyrlan hrapaði til jarðar. Kváð-
ust þeir ekki hafa vitað að
Bandarikjamenn væru um borð
í henni.
Talsmaðurinn kvað bandarísk
stjórnvöld hafa heimildir fyrir því
að Bandaríkjamönnunum hefði tek-
ist að lenda þyrlunni eftir að skotið
hefði verið á hana með léttum vopn-
um. Mennirnir þrír hefðu hins vegar
allir verið skotnir í höfuðið og hefðu
engin sár önnur fundist á tveimur
þeirra.
Skæruliðar segjast hins vegar
hafa skotið þyrluna niður með eld-
flaug og kveðast þeir hafa fundið
lík Bandaríkjamannanna í flaki
hennar. Sagði í tilkynningu sem
leynileg útvarpsstöð þeirra birti að
þyrlan hefði verið á flugi yfir átaka-
svæði og bæru bandarísk stjórnvöld
því fulla ábyrgð. Talsmaður ut-
anríkisráðuneytisins fullyrti hins
vegar að þyrlan hefði verið fjarri
öllum átakasvæðum. Hermenn úr
stjórnarher E1 Salvador fluttu líkin
til borgarinnar San Miguel og
kvaðst dómari einn í borginni geta
staðfest að einn Bandaríkjamann-
anna hefði augljóslega verið skot-
inn. „Mér skilst að hinir hafi einnig
orðið fyrir skotum," bætti hann við.
í gær hélt bandarísk rannsóknar-
nefnd til E1 Salvador og mun hún
skila skýrslu um málið.
Bóndi einn sem býr nærri staðn-
um þar sem þyrlan hrapaði sagði
fréttamönnum að hann hefði að-
stoðað við að bjarga tveimur mönn-
um úr brakinu en þriðji maðurinn
hefði farist er hún skall til jarðar.
Fleiri vitni staðfestu frásögn hans.
Ekkert þeirra vildi þó fullyrða að
skæruliðar hefðu tekið mennina af
lífi þó svo þeim bæri flestum saman
um að mennirnir hefðu látist eftir
að þyrlan hrapaði.
21 Bandaríkjamaður, hernaðar-
ráðgjafar og leyniþjónustumenn,
hefur fallið frá því borgarastyijöld
braust út í E1 Salvador fyrir 11
árum en hún er talin hafa kostað
75.000 mannslíf hið minnsta. í gær
hófst í Mexíkó ný lota friðai-við-
ræðna milli fulltrúa skæruliða og
stjórnvalda og sagðist fyrrnefndur
.talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins ekki sjá -ástæðu til
að ætla að þær skiluðu árangri.
M:
Fmhaldí
eldri
alddrsíópdm
Kennsla hefst laugardaginn 12. janúar.
Fjölbreytt og skemmtilegt kerfi fyrir alla
aldurshópa frá 4ra ára.
Framhaldsnemendur mæta á sömu
tímum og fyrir jól.
Afhending og endurnýjun skírteina í skól-
anum föstudaginn 11. janúar kl. 16-18.
Innritun og upplýsingar í síma 38360.
5 " Ballettskóli ^ Lausir
Eddu W tídiar
Scheving v) - þræigatl
Skúlatúni 4 Mj ftgffj
Meðlimur í Fólagi tslenskra listdansara.
Togarar - línubátar
10-70m langir til sölu. Til greina kemur að taka
eldri báta uppí sem hluta af greiðslu.
Hafið samband við Jörgen Carlsson í síma
(91)10926 í Reykjavík eða Carlsvik Shipping,
Gautaborg, Svíþjóð, sími 9046-31-420220.
Fax. 143526.