Morgunblaðið - 20.01.1991, Síða 1
96 SIÐUR B/C
16. tbl. 79. árg.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 20. JANUAR 1991
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Israelskir raðherrar boða að eldflaugaárása Iraka verði hefnt:
Arabaríki talin sætta
sig við árásir ísraela
Fjölþjóðaherinn leggur megináherslu áað
finna og eyða eldflaugaskotpöllum Iraka -
Sýrlendingar segja Iraka reyna að bjarga sér
fyrir horn með því að draga ísrael inn í stríðið
Nikosíu, Jerúsalem, Washington, Damaskus. Reuter.
MIKIL spenna var í ísrael í gær, laugardag, eftir að Irak-
ar höfðu gert eldflaugaárásir á landið í annað sinn. Þrem-
ur íröskum eldflaugum af gerðinni Scud var skotið á Tel
Aviv frá vesturhluta íraks í gærmorgun. Sextán manns
særðust. ísraelskir ráðherrar sögðu að það væri aðeins
spurning um tíma hvenær ísraelar hefndu fyrir árásirnar.
Leiðtogar arabaríkja, sem gengið hafa til liðs við fjölþjóða-
herinn við Persaflóa, gáfu í skyn að írökum tækist ekki
að rjúfa samstöðu ríkjanna, sem hafa sameinast gegn írök-
um í deilunni um Kúveit, þótt ísraelar gerðu hefndarárás-
ir á írak.
Ehud Olmert, heilbrigðisráðherra
ísraels, kvaðst telja að ráðherrar
ísraelsstjórnar væru þeirrar skoð-
unar að það væri „næstum óhjá-
kvæmilegt" að svara árásum íraka.
Talsmaður Yitzhaks Shamirs for-
ísraelsk kona í Jerúsalem, Rina
Hollander, kyssir gasgrímuna
sem fimm ára gömul dóttir henn-
ar, Alexandra, hefur um höfuðið.
Loftvarnaflautur kváðu enn við
í ísrael í gærmorgun en þá var
þrem íröskum Scud-eldflaugum
skotið á Tel Aviv. Flaugarnar
báru enn sem fyrr hefðbundnar
sprengjuhleðslur en margir ótt-
ast enn að til efnavopnaárása
geti komið.
Reuter
Bandaríska utanríkisráðuneytið:
Sovéskir ríkisfjölmiðlar sagð-
ir afskræma málstað Litháa
sætisráðherra, Avi Pazner, lét þau
orð falla að stjórnin ætti aðeins
eftir að ákveða „hvar, hvenær og
hvernig" það yrði gert.
Málgagn stjórnarflokksins í Sýr-
landi, al-Baath, sagði að írakar
Hernaðarmáttur
ísraels
Allt útlit er
fyrir oð
Israelar láti
nú til sín
tpka gegn
Irökum.
Fastaher: 141.000
Varalið: 504.000
Stórskotalið: 2.790
Skriðdrekarr 4.288
Flugvélar: 953
Árásarþyrlur: 75
Skotpallar: 112
Skip: 126
Brynvagnar: 10.300
Kafbátar: 3
væru að reyna að bjarga sér fyrir
horn með árásunum á Israel. „Eftir
að hafa leitt stríð yfir írösku þjóð-
ina reyna nú valdhafarnir í Bagdad
að breiða það út til allra ríkjanna
á svæðinu. Hvernig má vera að leið-
togi skuli koma af stað stríði án
þess að ráðfæra sig við aðra og
biðja svo araba að kasta sér í eldinn
í nafni bræðralags?" spurði blaðið.
Egypski sendiherrann í Banda-
ríkjunum, Abdel el-Reedy, áréttaði
að afstaða Egypta hefði ekki breyst,
þeir yrðu áfram í bandalaginu gegn
Irökum. Leiðtogar Vesturlanda for-
dæmdu eldflaugaárásina í gær.
Þeir hvöttu þó enn Israela til að
grípa ekki til hefndaraðgerða nema
allt annað brygðist.
Fjölþjóðaherinn við Persaflóa
lagði. í gær megináherslu á að
tortíma hreyfanlegum eldflauga-
skotpöllum sem Irakar gætu notað
til árása á ísrael. Haft var eftir
heimildarmönnum í bandaríska
varnarmálaráðuneytinu að loftárás-
um yrði haldið áfram á skotmörk í
írak, einkum -á Lýðveldisvörðinn,
úivalssveitir Iraka, fram í næsta
mánuð og síðan yrði landherinn
látinn sækja fram.
Bandarískar hersveitir réðust í
gær á olíuborpalla í Kúveit, sem
íraskir hermenn notuðu til að skjóta
á herþotur fjölþjóðahersins, og tóku
níu stríðsfanga. Irakar hafa skýrt
frá því að þeir hafi tekið höndum
nokkra bandaríska flugmenn en það
hefur ekki verið staðfest.
Sjá fréttir og umfjöllun um
stríðið fyrir botni Persaflóa á
bls. 2, 4 og 16-19.
Washington, Moskvu. Reuter.
TALSMAÐUR bandaríska utanríkisráðuneytisins sakar sovésk
stjórnvöld um að auka á spennuna í Eystrasaltsríkjunum með ein-
hliða fréttaflutningi og lygum. Jafnframt sagði hann það jákvætt
að Æðsta ráðið hefði vísað á bug þeirri hugmynd Míkhaíls Gor-
batsjovs forseta að fella úr gildi
Adam Shub, talsmaður utanrík-
isráðuneytisins, sagði að stuðning-
ur Bandaríkjamanna við umbætur
Gorbatsjovs byggðist á þeim skiln-
ingi stjórnar sinnar að virðing fyr-
ir mannréttindum væri meðal
„grundvallaratriða stefnunnar".
Shub nefndi tvö dæmi um
„ósanngjarnar og einhliða ásakan-
ir“ sem komið hefðu fram í ríkis-
íjölmiðlunum. Litháar, sem gætt
lög um prentfrelsi.
hefðu sjónvarpsturnsins í Vilnius,
hefðu verið sakaðir um að hafa
skotið að fyrra bragði á hermenn
sem réðust á turninn og myrtu
nokkra óbreytta borgara. Shub
sagði einnig að ekkert væri hæft
í ásökunum ríkisfjölmiðla er segðu
ríkisstjórn Litháens hafa í hyggju
að láta myrða úr launsátri leiðtoga
Rauða hersins auk embættis-
manna ÁToskvustjórnarinnar og^
láta íbúa Litháens sæta ógnar-
stjórn.
í fréttum frá Moskvu segir að
baráttan um völdin í Kreml virðist
vera að ná hámarki með sigri
harðlínumanna úr her og
kommúnistaflokknum. Réðust þeir
harkalega að Borís Jeltsín, forseta
Rússlands, á föstudag og sögðu
hann vera „fjandmann föðurlands-
ins“ og bandamann „nýfasískra
afla“. Var það haft eftir talsmanni
Jeltsíns að hann byggist við „stór-
sókn afturhaldsaflanna . . . við
væntum einskis góðs frá Gor-
batsjov".
Utanríkisráðherra fund-
ar með forseta Litháens
Vilnius. Fra Petri Gunnarssym, blaðanianni Morgunblaðsins.
JÓN Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra Islands, mun á
fundi sínum með Vytautas Lands-
bergis, forseta Litháens, ræða
hvort formleg viðurkenning Is-
lendinga á lýðræði Eystrasalts-
ríkjanna muni koma að gagni í
baráttunni við sovésk yfirvöld.
Utanríkisráðherra kom undir há-
degi á laugardag til Vilnius. A leið,-
inni var ekið framhjá sjónvarpsstöð-
inni í borginni sem sovéskir hermenn
tóku hinn 13.janúar. Hermennstóðu
vörð um stöðina og andspænis þeim
stóð fjöldi fólks með fána Eystra-
saltsríkjanná og merki Samstöðu í
Póllandi. Fólkið hefur lagt blóm á
götur og sundurskotnir bílar bera
átökunum sem þarna áttu sér stað
vifni.