Morgunblaðið - 20.01.1991, Page 2
EFIMI
2 FRÉTTIR/INNLENT
---M.______________
ieer haúmái .02 íiuoAauKViu?, aiaAjavtuoaoM
'MDRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUK 20. JANÚAK 1991
*
Alitamál
hvort heimilt
er að senda
út efni sem
CNN kostar
- segir formaður út-
varpsréttarnefndar
ÞORBJÖRN Broddason, formað-
ur útvarpsréttarnefndar, segir
að nefndin muni á næsta fundi
sínum taka til athugunar, hvort
útsendingar Stöðvar 2 á dagskrá
bandarísku sjónvarpsstöðvarinn-
ar CNN stangist á við ákvæði
útvarpslaga, um að óheimilt sé,
að aðrir aðilar en þeir, sem leyfi „
hafi til útvarpsrekstrar, kosti al-
menna dagskrárgerð.
Útvarpsréttarnefnd fjallaði um
útsendingar Stöðvar 2 á dagskrá
CNN á fundi sl. miðvikudag. Þar
komst nefndin að þeirri niðurstöðu,
að útsendingamar brytu í bága við
ákvæði laga og reglugerðar um
þýðingarskyldu og auglýsingar. Á
fimmtudag gaf Svavar Gestsson
menntamálaráðherra út reglugerð,
þar sem meðal annars voru rýmkað-
ar heimildir til að senda út fréttir
og fréttaskýringar beint, án þess
að það efni sé textað eða þýtt.
I 7. lið 3. greinar útvarpslaganna
segir, að óheimilt sé, að aðrir aðilar
en þeir, sem leyfi hafi til útvarps-
rekstrar, kosti almenna dagskrár-
gerð, þótt ekki gildi það um ein-
staka dagskrárliði. Þorbjörn
Broddason, formaður útvarpsréttar-
nefndar, segir að þegar nefndin
hafi fjallað um útsendingar CNN á
miðvikudag hafi þetta atriði ekki
verið til umræðu. Hins vegar sé það
álitamál, hvort þær samræmist
þessu ákvæði laganna og verði það
því tekið til umræðu á næsta fundi.
_ Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá íslandsmótinu í atskák sem fram fer í Skákmiðstöðinni í
Faxafeni 12.
Islandsmótið í atskák:
Úrslitin sýnd í beinni
sjónvarpsútsendingu
ÚRSLITAVIÐUREIGNIN í íslandsmótinu í atskák verður í beinni
útsendingu í Ríkissjónvarpinu í dag og hefst klukkan 13.30. Teflt
er í Skákmiðstöðinni í Faxafeni 12.
I undanúrslitum, sem fram fóru
síðdegis í gær, tefldu Þröstur
Þórhallsson og Friðrik Ólafsson
annars vegar og hins vegar Jó-
hann Hjartarson og Karl Þor-
steins.
í annarri umferð vann Þröstur
Jón L. Ámason 2‘A - IV2 og viður-
eign Jóhanns 0g Hannesar H.
Stefánssonar lauk eins. Friðrik
vann Þröst Ámason 3-1 og Karl
Þorsteins vann Margeir Pétursson
í bráðabana 4-3. Jafnt var hjá
þeim eftir fjórar skákir og einnig
eftir tvær tíu mínútna skákir.
Margeir féll síðan á tíma í fimm
mínútna skák.
I atskák hefur hvor keppandi
hálfrar klukkustundar umhugsun-
artíma og því verður atburðarásin
mun hraðari en í hefðbundinni
kappskák. I hveiju einvígi eru
tefldar fjórar skákir.
SH og íslenskar sjávarafurðir hf.;
------------------------------------ O |
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts:
Frestur
rennur út
á morgun
FRESTUR til að skila inn um-
sókn til skattstjóra um endur-
greiðslu virðisaukaskatts vegna
endurbóta og viðhalds íbúðar-
húsnæðis á árinu 1990 rennur
út á mánudag, 21. janúar.
Hjá ríkjsskattstjóra fengust þær
upplýsingar að þótt frestur væri
gefinn til 20. janúar í reglugerð,
yrði tekið tiliit til þess að þá er
sunnudagur og því tekið á móti
umsóknum á mánudag.
Fuglaverndarfélag
Islands:
40 arnarpör
helguðu sér
óðul í fyrra
ÁRIÐ 1990 helguðu 40 amarpör
sér varpstaði eða óðul hérlendis.
Þar af komu 12 pör upp 19 ung-
um en varp misfórst hjá 28 pömm
af ýmsum orsökum. í sumum tilfell-
um var annar öminn ekki kyn-
þroska og þar af leiðandi voru egg-
in ófijó.
Auk þess sást 21 stakur örn
víðsvegar um landið, segir í frétt
frá Fuglavemdarfélaginu.
Hækkun á frakt til A-Asíu
hefur ekki niikil áhrif að sinni
„ÞESSI 8-10% hækkun á flutningsgjöldum til Austur-Asíu hefur ekki
mikil áhrif hjá okkur, að minnsta kosti ekki að sinni,“ segir Friðrik
Pálsson forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Eimskipafélag
íslands hefur tilkynnt útflytjendum um 8-10% hækkun flutningsgjalda
til Austur-Asíu, þar sem skipafélög, sem sigla til Austurlanda fjær,
hafa ákveðið að innheimta sérstakt álag á flutningsgjöld til að mæta
hærri tryggingaiðgjöldum og frávikum í siglingaáætlunum vegna átak-
anna við Persaflóa.
Tæplega 20% af heildarútflutningi
SH fór til Austur-Asíu í fyrra en
um 25% árið áður. „Auðvitað er
hækkun á öllum kostnaði af hinu
illa,“ segir Friðrik Pálsson. „Við selj-
um aðallega síld, loðnu, karfa og
grálúðu til Japans. Hins vegar er
síldin frá haustinu nánast öll farin,
loðnuvertíðin er ekki byijuð, grá-
lúðuvertíðin byijar ekki fyrr en í
maí og venjuleg karfafrysting hefst
ekki fyrr en í apríl eða maí.“
Friðrik segist geta ímyndað sér
að fraktin til Japans hafi að meðal-
tali verið 12-13% af verði vörunnar
en fraktin til Evrópu 5-6%.
„Hækkun á frakt vegur því
þyngra fyrir Japan en Evrópu. Hins
vegar fer geysilega eftir söluverðinu
hversu stór hluti fraktin er af því
en ég get ímyndað mér að miðað
við meðalverðmæti þeirrar vöru, sem
við seljum til Japans, þýði 10%
hækkun á frakt þangað um 1% af
heildarverðmæti vörunnar. Kaup-
andinn verður því að taka á sig 1%
hækkun eða framleiðandinn 1%
lækkun. Markaðsfræðin segja okkur
hins vegar að allur kostnaður lendi
á kaupandanum, neytandanum, þeg-
ar til lengdar lætur.“
Af heildarútflutningi íslenskra
sjávarafurða hf. (áður sjávarafurða-
deildar Sambandsins) hafa 15-25%
farið til Austur-Asíu undanfarin ár.
„Samskip hf. er okkar aðalflutnings-
aðili og við tökum ekki við neinum
tilkynningum um hækkun á flutn-
ingsgjöldum, þar sem þau eru samn-
ingsatriði hveiju sinni,“ segir Bene-
dikt Sveinsson framkvæmdastjóri
íslenskra sjávarafurða hf.
Benedikt segir að Samskip hafi
ekki sagt upp þessum samningum
* *
• Irakar skjóta fleiri eldflaugum á Israel:
Fólk virðist óttaslegið
og heldur sig heima við
- segir Salbjörg Sveinsdóttir í Haifa
SALBJORG Sveinsdóttir, sem búsett er í Haifa í ísrael ásamt
eiginmanni sínum og tveggja ára dóttur, segir að fólk í ísrael
virðist óttaslegið eftir að Irakar héldu eldflaugaárásum sínum á
landið áfram í fyrrinótt. Salbjörg segir að fólk sé hvatt til að
halda sig heima við og hafi fólk hlýtt þeim ábendingum.
„Héma í Haifa hefur fólk ekki
farið út fyrir hús síðan á föstu-
dag,“ sagði Salbjörg Sveinsdóttir
í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Útvarpið hvetur fólk til að halda
sig heima við og hafa gasgrímurn-
ar við höndina. Því hefur verið
hlýtt, þanaig að götur hér eru
alveg auðar.“
Salbjörg hefur frá því á föstu-
dag dvalist ásamt fjölskyldu sinni
í sprengjuvarnarbyrgi í Allsheij-
arhúsi Baháía í borginni. Hún
segir að þar eigi þau að vera ör-
ugg, enda eigi byrgið jafnvel að
þola kjarnorkuárás.
Hún segist eiga erfitt með að
meta viðbrögð almennings við eld-
flaugaárásunum, en fólk sem rætt
hafi verið við í sjónvarpi, hafí virst
mjög óttaslegið.
um flutningsgjöld. „Þessir samning-
ar eru þannig í stórum dráttum að
samið er í dollurum en fraktin er
með SDR-viðmiðun vegna gengis-
breytinga og olíuverðsbreytingar
hafa áhrif á flutningstaxtana."
Þrotabú Hermanns
Björgvinssonar:
Ekkert var
greitt upp
í 135 millj-
óna kröfur
EKKERT fékkst greitt upp í 135
milljóna króna almennar kröfur
í þrotabú Hermanns Gunnars
Björgvinssonar, en starfsemi
hans var miðpunktur okurmáls-
ins svokallaða, sem upp kom
1985. Skiptum á búinu er lokið,
með fyrirvara um að óinnheimt-
ar kröfur þess innheimtist.
Langflestir, sem fengu sam-
þykktar kröfur í bú Hermanns, eru
einstaklingar, að sögn Guðgeirs
Eyjólfssonar, fulltrúa hjá skipta-
ráðandanum í Kópavogi. Lýst var
309 milljóna króna kröfum í búið,
en 135 milljónir voru samþykktar.
Óinnheimtar kröfur búsins
nema óverulegum fjárhæðum.
Skiptakostnaður fékkst ekki að
fullu greiddur, upp í búskröfur
greiddust 1,7 milljónir, eða 74%.
►Hvaða áhrif hefur umræðan um
Persaflóastríðið á sálarlíf barna?
/10
Ástandið í Litháen
►Henry Kissinger, fyrrum ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
fjallar um ástandið í Eystrasalt-
slöndunum og viðbrögð stjórnvalda
á Vesturlöndum: /14
Hvernig Saddam
verður sigraður
► Hvað tekur við að loknu stríðinu
við Persaflóa?
/16
Stríð fyrir botni
Persafióa
►Fréttir og fréttaskýringar af
atburðunum við Persaflóa./18
Bheimili/
FASTEIGNIR
► l-24
Norrænt samstarf í
húsnæðismáium
notadrjúgt
►- segir Jón Rúnar Sveinsson,
félagsfræðingur hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins /12
C
► 1-32
Tískan
►Konur sem skapa tískuna /1
Ekki allt sem sýnist
►Viðtal við frímerkjasafnarann
Don Brandt /6
ÓlafurV
Noregskonungur
►Norðmenn gráta nú konung sinn
/12
Uppgjör poppara
►Þrírdægurtónlistarmenn ræða
um popptónlistina á níunda ára-
tugnum /14
Bassasöngvarar
sjaldgæfir
►ViðarGunnarsson óperusöngv-
ari í viðtali/16
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Dagbók 8
Hugvekja 9
Leiðari 20
Helgispjall 20
Reykjavíkurbréf 20
Myndasögur 22
Brids 22
Stjörnuspá 22
Skák 22
Fólk i fréttum 34
Karlar 35
Útvarp/sjónvarp 36
Gárur 39
Mannllfsstr. 8c
Pjölmiðlar 18c
Kvikmyndir 20c
Dægurtónlist 21c
Menningarstr. 22c
Minningar 24-25c
Bió/dans 26c
Velvakandi 28c
Samsafnið 30c
Bakþankar 32c
INNLENDAR FRÉTTIR:.
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4