Morgunblaðið - 20.01.1991, Síða 39
ifM/Nto ÚTVARP/SjÖlMV'AfeP'ÆISWPW
tekið úrval frá kvöldinu áður.)
6.00 Fréltir af veðri. færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Norðurland.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Á besta aldri, Umsjón Ólafur Tr. Þórðarson.
Létt tónlist, gestur í morgunkaffi. 7.00 Morgun-
andakt. Sérs Cesil Haraldsson.
9.00 Fram að hádegi. Umsjón Þuriöur Sigurðar-
dóttir. Kl. 9.15 Heiðar, heilsan og hamingjan.
9.30 Heimilispakkinn. Kl. 10.00 Hver er þetta.
Verðlaunagetraun. Kl. 10.30 Morgungestur. Kl.
11 Margt er sér til gamans gert. Kl. 11.30 Á
ferð og flugi.
12.00 Hádegisspjall. Umsjón Helgi Pétursson.
13.00 Strætin úti að aka. Umsjón Ásgeir Tómas-
son.
Kl. 13.30 Gluggað i siðdegisblaðið. Kl. 14.00 Brugð-
ið á leik í dagsins önn. Kl. 14.30 Saga dagsins.
15.00 Topparnir takast á. Kl. 15.30 Efst á baugi
vestanhafs. Kl. 16.15 Heiðar, heilsan og hamingj-
an. (Endurtekið frá morgni).
16.30 Akademian.
Kl. 16.30 Mitt hjartans mál.
19.00 Kvöldtónar. Umsjón Halldór Backman. Ljúfir
kvöldtónar.
22.00 í draumalandi. Umsjón Ragna Steinun Ey-
jólfsdóttir. Draumar hlustenda ráðnir.
24.00 NæturtónarAðalstöðvarinnar. Umsjón Rand-
ver Jensson.
ALFA
FM 102,9
8.45 Morgunbæn. Tónlist.
10.00 íslensk tónlist.
13.30 Alfa-fréttir.
16.00 „Svona er lífið" Ingibjörg Guðmundsdóttir.
19.00 Dagskrárlok.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Eirikur Jónsson og morgunvakt Bylgjunnar.
9.00 Páll Þorsteinsson. Starfsmaður dagsins val-
inn. iþróttafréttir kl. 11. Valtýr Björn Valtýsson.
11.00 Þorsteinn Ásgeirsson á vaktinni.
12.00 Hádegisfréttir.
14.00 Snorri Sturluson. Fróðleikur. létt spáug og
óskalög.
17.00 ísland í dag. Jón Áraæll Þórðarson og Bjarni
Dagur Jónsson taka á málum liðandi stundar.
18.30 Hafþór Freyr á vaktinni.
22.00 Kristófer Helgason. Tónlist.
23.00 Kvöldsögur. Simatimi ætlaður hlustendum.
24.00 Kristófer Helgason á vaktinni.
02.00 Þráinn Brjánsson á næturvakt.
EFFEMM
FM 95,7
7.30 Til i ti(£kið.
8.00 Morgunfréttir. Kl. 8.20 Textabrotið. Kl. 8.40
Frá hinu opinbera. Kl. 8.50 Stjörnuspá. Kl. 9.00
Frétayfirlit.
12.00 Hádegisfréttir.
19.00 Breski og bandariski listinn. Vilhjálmur Vil-
hjálmssdn kynnir 40 vinsælustu lögin i Bretlandi
og Bandaríkjunum.
22.00 Jóhann Jóhannsson áTólegu nótunum.
STJARNAN
FM 102/104
7.00 Dýragarðurinn. Stjömutónlist, leigubilaleikur,
getraunir.
9.Ö0 Vinsældatónlist. Bjarni Haukur Þórsson.
11.00 Geðdeildin, Döri Mödder, Lilli og Baddi,
Svenni sendill og allar figúrunar mæta til leiks.
Umsjón Bjarm Haukur og Sigurður Helgi.
12.00 Sigurður Helgi Hlöðversson. Getraunir og
orð dagsins.
14.00 Sigurður Ragnarsson. Ráðgjataþjónusta
Gabriels Stefánssonar, kvikmyndagetraunir, leikir
og tóniist.
17.00 Björn Sigurðsson
20.00 Vinsældapopp. Jóhannes B. Skúlason.
22.00 Arnar Albertsson.
02.00 NæturtónlisL
ÚTRÁS
FM 104,8
16.00 MS
18.00 Framhaldsskólafréttir.
18.00 FB
20.00 MH
22.00 IR
Rás 2:
Sakamálagetraun
■■^■1 Sakamálagetraunin „Hver myrti Sir Jeffrey Smith?“ hefst
1 A 00 1 þættinum Níu fjögur á Rás 2 í dag. Á hveijum degi verð-
“ ur lesið brot úr sögunni, fyrst milli kl. 14 og 15 í Níu fjög-
ur þættinum og svo er lesturinn endurtekinn í þættinum Landið og
miðin, milli kl. 22 og 23 sama kvöld.
Laugardaginn 2. febrúar verða svo allir lestrarnir tíu endurfiuttir
í Helgarútgáfu Rásar 2. Hlustendur hafa svo fjóra daga til að senda
Rás 2 sína tilgátu um þann seka. Dregið verður úr réttum lausnum
föstudaginn 8. febrúar og auk þess fluttur síðasti lestur sögunnar.
Verðlaunin eru ferð fyrir tvo til Lundúna.
ásamt Bíbí og Lóló í 5 stjömu
KABARETT Á SÖGU
FYRSTA SÝNING
Ánæturvaktinni njótið gleði,
nýjung sem er að allra geði.
Halli við dyrnar og hleypir þeim inn,
sem hungrar og þyrstir í gleði um sinn.
2. FEBFIÚAR
OPINN DANSLEIKUR
FRÁ KL. 23.30 TIL 3.
Hljómsveitin Einsdæmi leikur |
§
Bessi hann þjónar og þýtur um salinn,
í þjóðkunnum hlutverkum Laddi er falinn.
Lóló og Bíbí hér liðast um svið,
lokkandi dansa á baki og kvið.
Ástina forðum við upplifum keik,
til ársins ’30 bregðum á leik.
Kabarett, borðhald og blíð er syndin, ,
Berlín og París er fyrirmyndin.
Þrírétta veislukvöldverður
(val á réttum)
Leikstjóri: Björn G. Björnsson
Hljómsveitarstjóri: Árni Scheving
Miöaverð: 4.400 kr.
Húsiö opnað kl. 19.
Tilboðsverö á gistingu.
Pöntunarsími 91-29900.
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
Að heiman
aldrei fara má
Sofðu, ufigi anginn minn,
enn svo hýr og góður.
næðir svalt um Köldukinn,
kenna vil ég þér, litla skinn,
að forðast afglöp föður þíns og móður.
Taktu aldrei upp á því
að æða á jökulbungur.
Þar eru veðrin þeygi hlý
þraut að kúldrast víslum i
og lenda í þeim ofan í djúpar sprungur.
j
Iársbyijun var Gáruhöfundur
einn daginn farinn að raula
ósjálfrátt fyrir munni sér þetta
..Vögguljóð jöklamæðra", sem
hann dr. Sigurður Þórarinsson
setti einu sinni saman okkur til
skemmtunar sem þvælst höfðum
með honum um hvít fjöll og jök-
ulbungur. Ein slík fjallafála er
þar að vara krógann sinn við.
Tilefni þess
að heilræð-
unum skaut
allt í einu
upp í hugann
voru stans-
lausar ógn-
arfréttir úr
útvörpunúm:
Leitarmenn
hafa ekki
enn fundið
ungmennin,
sem fóru inn
á Fljótsdals-
heiði í tveim-
ur jeppumog
voru ekki
komin heim
til sín á áæt-
luðum tíma.
Leitarmenn
eru að beij-
ast áfram.
Eru kílómetra frá skálanum, 200
metra...“ Á þessu gekk þann dag
allan í öllum fjölmiðlum, gott ef
ekki fleiri daga. Hættuástandið
ekki minna en við Persaflóa nú.
Forspár, hann Sigurður. Það var
vissara að aðvara strax í vöggu
börn þeirra, sem þá þótti það
dulítið sport að læra og takast
á við íslenska náttúru. Eftir
margar aðvörunai-vísur um hvers
kyns hættur sem mætt geta fólki
á voru landi, klykkti hann út
með öruggu heilræði:
Ef að vilt þú elli ná,
elsku litla krúttið,
hollráð það skal hafa þá,
að heiman aldrei fara má.
Líka er ráð að leggjast ekki í sprúttið.
Bráðnauðsynlegt heilræði til
þjóðar, sem telur það til stór-
hættu að bíða af sér íslenska
hríð í bíl á fjöllum. „Giftusamleg
björgun sex ungmenna“ var fjór-
dálka fyrirsögn í einu dagblað-
anna og ákafinn í viðtölunum við
hetjurnar heimtar úr helju sýndi
að ljósvakafjölmiðlarnir voru
sama sinnis, enda búið að gefa
þá mynd að þarna væri illa búið,
matarlaust og fávíst fólk á fjöll-
um. Ungmennin voru sýnilega
svolítið hissa og kindarleg, enda
höfðu þau verið vel búin með
nægan mat, vantaði bara konf-
ektið, sagði eih í gríni. Bílarnir
höfðu festst og þau gerðu eins
og allt vant ferðafólk gerir í
íslenskri stórhríð. Skríður í
svefnpokana og bíður af sér veð-
rið. A.m.k. fáa daga. Hríð á ís-
landi linnir nefnilega alltaf um
síðir. Og þá getur vel á sig kom-
ið og röskt fólk, eins og ung-
mennin sex sýnilega voru, jafn-
vel gengið til byggða eftir hjálp.
Allir vita að engin leið er að
vera kominn á stefnumót heima
á nákvæmlega réttri stundu eins
og á kaffihús í Reykjavík. Ein
stúlkan sagði að veðurhamurinn
hefði verið slíkur að ekki hefði
einu sinni verið hægt að fara út
að pissa, hvað þá annað. Það
hendir á íslenskum fjöllum að
vetrarlagi, svo sem alkunnugt
er þeim sem til þekkja og lifa í
sátt við landið sitt. *
Lausnin á þeim vanda getur
orðið að skemmtisögum út
ævina. Þegar hún Lydia konan
fjallagarpsins Guðmundar Ein-
arssonar þurfti einhvern tíma að
bregða sér út úr tjaldi á Vatna-
jökli í iðandi stórhríð og óstæðu
roki, þá bundu karlamir hana
bara í kaðal og gáfu út í hríðina
svo þeir týndu henni ekki. Hö-
luðu hana svo inn aftur. Reynist
ekki óyfirstíganleg þraut þeim
sem kann á aðstæður. Að snúa
sér t.d. rétt upp í veðrið svo
þuxurnar fyllist ekki af snjó í
skafrenningnum og verði ekki
hysjaðar upp aftur.
Sjálf man ég eftir að hafa
fengið fílefldan karlmann með
mér á „vatikanið“, gröf undir
snjóhúsi eða vegg sem fyrst var
jafnan reynt að koma upp. Þá
vorum við snjóuð inni með bilað
an bíl í glórulausri hríð í skálan-
um á Grímsíjalli í tvo sólar-
hringa, spiluðum Olsen Olsen,
sungum og sváfum. Misstum af
því að verða landsfrægar hetjur.
Skömmu áður hafði hópur lent
í slíku veðri á jökli, eins og get-
ur gerst, fjarri skálanum. Þau
komu upp tjöldum, bundu í snjó-
bílana og skriðu í poka. Einhverj-
ir þurftu þó að vera útiklæddir
á vakt til.að sópa frá tjöldunum
og púströrum bílanna. í aftaka-
veðrinu kom það í hlut hraust-
menna. Ekki þótti skynsamlegt
að fleiri bleyttu sig og bæru
vætu inn í tjöldin. Ein ferðakon-
an hafði skilið íslensk vetrarveð-
ur og verið svo forsjál að stinga
niður plastkoppi. Útihetjurnar
brugðu því skjótt við þegar úr
tjaldi heyrðist kallað á koppinn
Sigurður Þórarinsson var einn
• af þeim og orti auðvitað
skemmtilegan brag. Viðlagið var
svona:
Stúlkur, elsku stúlkur,
drekkiði ekki meir.
En verði það að stórdrama ef
vel búið íjallafólk í vetrarferðum
á íslandi festist í skafli og þarf
að bíða af sér veður er ráð gömlu
jöklaníömmunnar vissulega orðið
tímabært: Vilji maður elli ná, er
öruggast að fara aldrei að heim
an. En þá er líka borin von að
lenda í þeim hremmingum
vera giftusamlega bjargað
verða fjölmiðlahetja.
að
og