Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991 11 Ástir unglinga Bókmenntir Súsattna Svavarsdóttir Vinir á vegamótum Höfundur: Jan de Zanger Þýðandi: Hilmar Hilmarsson Útgefandi: Mál og menning - UNG Vinir á vegamótum segir frá tveimur hollenskum vinum, Freek og Bart. Þeir eru tæplega 17 ára þegar sagan hefst og hafa verið klessuvinir í fjögur ár. Síðasta skólaárið þeirra er að hefjast, en Bart er ekki mættur. Þeir vinirnir höfðu farið í hjólreiðaferð um Dan- mörku í sumarleyfinu - en þar höfðu leiðir skilist, þegar Bart tjáði Freek að hann væri hommi og væri ástfanginn af Freek. Freek sem er gagnkynhneigður bregst ókvæða við - kallar Bart „hommaógeð" - og daginn eftir fer hvor sína leið. Freek hittir danska stúlku, Ingu. Þau verða ástfangin og eyða nokkrum dögum saman en Freek þarf að fara til Hollands að ljúka skólanum og þau ákveða að skrifast á milli skólaleyfa en reyna þá alltaf að hittast. Þegar Bart mætir ekki aftur í skólann, þykir öllum það nokkuð grunsamlegt, því hann er mjög góð- ur nemandi. Móðir Barts fær frá honum póstkort, sent frá Póllandi, þar sem hann segist vera á leið til Wladivostok og er myndin á kortinu frá Avernak. Freek áttar sig strax á því að Bart er ekki að tala um Sovétríkin og þegar hann fer að skoða mynd- irnar frá sumarleyfinu, sér hann að ein myndin af honum og Ingu er við lítinn flutningabát sem heitir Wladivostok. Þarmeð er hann kom- inn á sporið. Hann heldur, ásamt föður sínum, til Danmerkur, því þeir ætla að fínna Bart, en hafa aðeins tvo daga til þess. Þeir fara auðvitað strax til Ingu og móður hennar og Inga hjálpar þeim við leitina. En þegar þeir Freek og fað- ir hans þurfa að fara aftur heim til Hollands, komast þeir loks á slóð Barts. Hann er um borð í Wladivost- ok. Faðir Freeks stingur upp á því að hann fái leyfi fyrir hann í skólan- um fram að helgi og að Freek og Inga fái lánaðan bát, til að leita áfram. Það gera þau og eftir þrjá daga finna þau skipið - og Bart. Bart var semsagt kominn í felur. Þegar hann sá hvernig Freek brást við hneigðum hans, rann honum til rifja tilhugsunin um hvernig móðir hans mundi bregðast við - og skóla- félagarnir. Hann ákvað því að láta sig hverfa og dvelja þar sem enginn þekkti hann og hann gæti byrjað nýtt líf. Þeir vinirnir sættast þó og Freek, Inga og Bart eyða þremur dögum saman á bátnum í besta veðri. Bart sér líka að Inga og Freek eiga mjög vel saman og er sáttur við að þeir eru ólíkir að þessu leyti. Vináttan er of rótgróin og sterk til að þeir vinirnir hræðist umtalið. Þetta er sæmilega skrifuð saga, að mörgu leyti. Kannski ofurlítið einfölduð og raunsæisleg þegar ver- ið er að fjalla um fordóma og fórn- arlömb þeirra. Samkynhneigðin í sögunni verður of mikið aðalatriði, til að leitin að Bart verði nokkurn tímann spennandi og höfundi tekst ekkert sérstaklega vel að lýsa til- finningum sögupersónanna - manni er bara sagt að þær gráti. Og sögur eru alltaf frekar leiði- gjarnar ef skilaboðin í þeim eru svo veigamikill þáttur, að það gleymist að gæða persónurnar dýpt og sögu- þráðinn spennu. Það sem er þó kostur við söguna er að hún er blátt áfram og hispurslaus. Þýðingin virðist ágæt; málfar er þjált og frá- 'gangur góður.. LottkæUar dleselrafsföðvar fyrir verktaka, bændur, sumarhúsaeigendur, björgunarsveitir og útgerðarmenn. Eigum á lager margar stærðir frá 1.7KW til 5 KVA, 220 og 380 volt. Pantanir óskast sóttar sem fyrst. Á næstunni getum við einnig boðið vatnskældar rafstöðvar 7.6 - 10.0 -17.0 og 36 KW á ótrúlega hagstæðu verði. Sala - Ráðgjöf - Þjónusta. LIFSVF.RND LEFEYRIR FYRIR ÞIG <n> VERÐBREFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF HAFNARSTRÆTI 7, 101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566 KRINGLUNNI 8-12,103 REYKJAVÍK, S. (91) 689700 RÁÐHÚSTORGI 3, 600 AKUREYRI S. (96) 11100 Með Lífsvemd slærð þú tvær flugur í einu höggi. Þú getur hlíft ástvinum þínum við fjárhagslegum skakkafóllum, en um leið ávaxtað þitt pund og safnað í varasjóð sem getur komið að drjúgum notum síðar á lífsleiðinni. Því U'fsvemd er hvort tveggja lfitrygging og hentug leið til spamaðar. Þú kýst þér líftryggingu sem nemur þremur milljónum króna, svo dæmi sé tekið. Sú upphæð óskert getur tryggt fjárhagsafkomu ástvina þinna við fráfall þitt. Jafnframt sparar þú ákveðna fjárhæð í hverjum mánuði. Tíminn vinnur með þér og líflryggingin lækkar með hverju ári en að sama skapi vex sjóðurinn þinn og dainar. Að endingu áttu auk verðbóta þrjár milljónir í handraðanum, lífeyri sem þú getur sjálfur ráðstafað.að vild. Framtíðin er í þínum höndum. Ávinningurinn er öryggi, þitt eigið og þinna nánustu. Sameinaða líftryggingarfélagið hf Kringlunni 5 • 103 Reykjavík Sími 91-692500 Eignaraðilar Sameinaða líftryggingarfélagsins eru: © TRYGGINGAMIÐSTOÐIN HF AÐALSTRÆTI 6 101 REYKJA\/lK SIMI 91-26466 SJQVi Kringlunni 5, aimi 91-692500 l II -.ílíííiiÍliliilLLi.Vx.i t I .T-TT.T"-*- '. ". "■ I .*.»■ * . ;.T TI-V? V-r -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.