Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 16
íe 00 r MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ.RIDAGDR 5. FEBRÚAR 1991 FARVIÐRI GENGUR YFIR LANDIÐ Keflavíkurflugvöllur: Óveðrið jafnaðist á við fellibylinn Hug’o - segir Scott Wilson hjá Varnarliðinu Ibúar við Baugholt yfirgáfu heimili sín Keflavík. „VIÐ VITUM að viða varð eignatjón, en ég heid samt að menn geti verið þokkalega sáttir við að tjónið skyldi ekki verða enn meira en raun varð á miðað við veðurhæðina," sagði Ellert Eiríks- son bæjarstjóri í Keflavík en hann er jafnframt formaður Almanna- vamanefndar Suðumesja sem hafði yfimmsjón með aðgerðum á Suðuraesjum. Karl Karlsson, sem heldur á dótturinni Karen Helgu, og Margrét Jónasdóttir. Moreunblaðlð/Bj°rn Blondal Klöpp við Sandgerði: „Fyrst fór þakplata og síðan sviptist þakið af í heilu lagi“ - sagði Margrét Jónasdóttir húsfreyja á Klöpp við Sandgerði Keflavík. „FYRST heyrðust brestir og vatn fór að leka inn, þá hringdi ég til Karls sem var veðurteppt- ur í Reykjavík og var heima hjá foreldrum mínum. Þá dundu ósköpin yfir. Fyrst fór þakplata og síðan sviptist þakið af í heilu lagi. Það fyrsta sem ég gerði var að finna föt til að klæða okkur í og síðan forðaði ég mér út úr húsinu,“ sagði Margrét Jónasdóttir sem býr á Klöpp við Sandgerði ásamt unnusta sínum, Karli Karlssyni, og 2 ára dóttur, Karen Helgu, sem átti 2 ára afmæli í gær. Margrét sagðist hafa verið ein heima ásamt dóttur sinni, þær hefðu báðar verið veikar og legið í rúminu. „Ég flýtti mér út í bílinn okkar sem stóð fyrir utan og beið þar uns hjálp bárst. Þakið fór af um 15 mínútum yfir 1 og ég hugsa að ég hafí beðið í um hálftíma í bflnum þar til aðstoð barst.“ Það sem eftir er af þakinu á bænum Klöpp, sem var byggður 1936, liggur um 50-70 metra frá bænum og er brak eitt. Aðkoman Eldhúsið var eins og eftir loftárás og á borðinu var afmælisterta Karenar Helgu ósnert. inni var ekki fögur í gær, þar var allt á rúi og stúi. „Sem betur fer slasaðist enginn og það var lán í óláni að rafínagnið hafði farið af húsunum skömmu áður. Ljósa- krónur slitnuðu' niður og glugga- tjöldin soguðust út ásamt ýmsu öðru. Við vorum með nýtt innbú sem liggur undir skemmdum og var það tryggt. En hvort við fáum skaðann á húsinu bættan vitum við ekki á þessari stundu en það er ljóst að hann er verulegur. Við erum samt staðráðin í búa hér áfram,“ sagði Karl Karlsson unn- usti Margrétar, en þau hafa búið á Klöpp í 9 mánuði. BB Vatnsleysuströnd: Fastur í fjárhúsi Vogfum. TJÓN varð á mörgnm stöðum í Vatnsleysustrandarhreppi í óveðr- inu á sunnudaginn. Björgunarsveitin var á vakt frá sunnudags- morgni og fram eftir degi og veitti aðstoð á 20-25 stöðum, en á þriðja tug manna tók þátt í hjálparstarfinu. ÓVEÐRIÐ á sunnudag jafnast á við fellibylinn Hugo, sem olli miklum skemmdum í Suður- Carolinufylki í Bandaríkjunum 1989. Þetta er mat Scotts Wilsons upplýsingafulltrúa Varnarliðsins Garður: Pottarn- ir fuku Garði. SVO virðist sem Garðmenn hafi sloppið nokkuð vel frá óveðrinu sl. laugardag a.m.k. miðað við þær fréttir sem birzt hafa í fjölmiðlum um helgina. Þak mun hafa farið af einu húsi auk þess sem eitthvað losn- aði á nokkrum húsum. Stór trilla sem stóð heim við hús fauk á hliðina en er ekki talin mikið skemmd. Þá fauk eitt- hvað af skúrarusli og tveir pott- ar sem menn nota til að baða sig í á góðviðrisdögum fuku. Tveir staurar brotnuðu og ýmis- legt lauslegt eins og fískikör og kassar fuku víða. Einhveijar skemmdir urðu á bflum en það mun vera óverulegt. Björgunarsveitin Ægir hafði í nógu að snúast og hjálpaði bæjarbúum sem lentu í vand- ræðum. Starf þessara manna er ómetanlegt og mikill styrkur fyrir bæjarbúa að vita af þess- um mönnum sem alltaf má snúa sértil jafnt að nóttu sem degi. Raftnagn var á Garðinum meðan óverðið gekk yfír en fór um miðjan dag og kom svo aft- ur síðdegis. Mun hafa verið rafmagnslaust í 2-3 tíma. Amór Keflavík: í Kefiavík varð ástandið alvar- legastvið efri hluta Baugholts sem snýr að iðnaðarhverfinu en þaðan stóð skæðadrífa af þakjárni og öðrum munum. Stórir stofu- gluggar sem sneru að vindátt eru á flestum húsanna og í ljósi þess sagði Ellert að íbúamir hefðu ver- ið beðnir að yfirgefa húsin þar til mesta hættan var liðin hjá. Ellert sagði að ekki væri ljóst á þessari stundu hversu mikið tjón hefði orðið en samt Ijóst að það væri allnokkuð um öll Suðumes. Aðallega væri um að ræða þak- plötur sem hefðu fokið af húsum og einnig hefði verið mikið um rúðubrot sem hefðu orsakað vatns- skemmdir. Talsvert af járni fauk af Sparisjóðshúsinu við Suðurgötu og af Félagsbíói. I Sandgerði urðu skemmdir á að minnsta kosti 27 húsum. Þar varð rafmagns- og vatnslaust og símakerfið varð óvirkt og komst rafmagnið ekki á á Keflavíkurflugvelli, en þar urðu verulegar skemmdir á byggingum, sem talið er að nemi um 2 milljónum bandaríkjadala, eða um 115 milljónum króna. „Mér virðist að vindhraðinn hafi verið svipaður í báðum þessum til- fellum. En í Suður-Carolinu er lofts- lagið frekar milt, þannig að fólk byggir ekki eins rammgerð hús og hér, og því varð eyðileggingin mun meiri þar,“ sagði Wilson. Hann sagði að venjulega væru gerðar ráðstafanir í amerískum herstöðvum, þegar von væri á slíkum verðrum. Þannig hefðu flug- vélar verið fluttar frá Puerto Rico áður en fellibylurinn Hugo kom þangað. „Það var ekki gert hér, vegna þess að veðurspár gerðu ekki ráð fyrir að veðrið yrði eins vont og raun bar vitni,“ sagði Wilson. Töluvert tjón varð á mannvirkj- um á Keflavíkurflugvelli, og var þar aðallega um að ræða skemmdir á þökum, gluggum og rafkerfí. Þak- plötur fuku af mörgum húsum og lentu á öðrum húsum og bflum. Gluggar á íbúðarhúsum og skrif- stofuhúsum brotnuðu og þök og dyr á flugskýlum skemmdust. Þá urðu skemmdir á rafkerfí þegar háspenn- ulínum sló saman og að skamm- hlaup varð í spennistöðvum. Enginn hlaut alvarleg meiðsl en nokkuð var um að fólk fengi skrámur og mar, að sögn Wilsons. Wilson nefndi sem dæmi um veðurofsann að P3 Orion kafbátale- itarflugvél hefði verið bundin niður með stálvírum sem kræktir voru með krókum í lykkjur, sem steyptar voru niður. Krókamir á vímum rétt- ust, vélin losnaði og vindurinn snéri henni við og feykti henni 30-40 metra. Vélin skemmdist þó lítið og ekki er vitað til að skemmdir hafí orðið á flugvélum eða tækjum. fyrr en kl. 5 aðfaranótt mánu- dags. Brunavamir Suðumesja fóm með vararafstöð og komu símakerfinu í gang. Tjón varð einnig í Höfnum er jám fauk af húsum og rúður brotnuðu. Raf- magnsstaurar brotnuðu við Fitjar og þar unnu menn langt fram á nótt við lagfæringar. Sjómenn á Suðumesjum voru búnir að búa báta sína vel fyrir illviðrið, en einhverjar skemmdir urðu þó á nokkrum bátum sem nudduðust saman og lítill bátur sökk í Njarðvíkurhöfn. Björgunar- sveitir í öllum byggðarlögum voru með menn sína á þönum og sagði Ellert að liðlega 200 manns hefðu unnið við björgunarstörf á Suður- nesjum á óveðursdaginn auk lög- reglu, slökkviliðs og sjúkraflutn- ingamanna og hefðu þessir aðilar staðið sig frábærlega vel. BB Rafmagn fór af í öllum hreppn- um um tíuleytið á sunnudagsmorg- un. Raflínur slitnuðu við Efri- Brunnastaði og rafmagnsstaurar brotnuðu við Asláksstaði. í Vogum fauk þak af bílskúr og járn fauk af einu íbúðarhúsi og tveimur fyrirtækjahúsum. A Vatnsleysuströnd fauk trilla á hlið- ina við Halakot. Trilla fauk og skemmdist við Neðri-Brunnastaði, þar fauk járn af þaki heyhlöðu og ein hlið hússins lagðist inn. Á Efri- Brunnastöðum fauk þak af útihúsi og á Ásláksstöðum fauk ein hlið úr fjárhúsi. í Breiðagerði losnaði klæðning á sumarbústað. Rúður brotnuðu í þremur húsum á Vatnsleysuströnd, og lofttúður sprungu undan veðrinu hjá Nesbúi. Þorkell Kristmundsson á Efri- Brunnastöðum sagði í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins að hann hefði farið í fjárhúsið í myrkri um morguninn, en vegna veðursins hefði hann þurft að halda sig þar fram yfir hádegi. Á Reykjanesbraut tókst yfir- byggður flutningabíll á loft og brá ökumaðurinn þá á það ráð að aka út fyrir veg. Eftir að veðrið lægði fóru björgungarsveitarmenn og aðstoðuðu við að koma bílnum upp á veg aftur. - E.G. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Starfsmaður Nesbúsins með loft- úðu sem sprakk í óveðrinu, C

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.