Morgunblaðið - 05.02.1991, Síða 18

Morgunblaðið - 05.02.1991, Síða 18
íl Í8Í?I !ÍATI3aTi .3 3r:;)AnUí.<II5J4 (IMIAJgMUfíflOM MORGUNfiLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. KEBRUAR 1991 FARVIÐRI GENGUR YFIR LANDIÐ Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson Dauðar plöntur í gróðurhúsi í Sólbyrgi. Á innfelldu myndinni sést illa farið gróðurhús á Kleppjárns- reykjum. < Uppsveitir Borgarfjarðar: Gróðurhús brotnuðu og ræktun eyðilaffðist Grund, Skorradal. FOKTJÓN varð mjög víða í Skorradal, Reykholtsdal og Lundareykjadal á sunnudag. Þök fuku af útihúsum, og miklar skemmdir urðu hjá garðyrkju- bændum í Reykholtsdal. Á Hálsum fauk gafl og 15-16 þakplötur af fjárhúshlöðu. í Dag- verðarnesi fauk þak af gömlu fjár- húsi og bílskúrshurðir. Á Mófells- staðakoti fauk þak af haughúsi. Minnstu munaði að nýtt tilrauná- gróðurhús á Hvanneyri fyki í heilu Iagi en því var bjargað með naum- indum. Á Mófellsstöðum laust eld- ingu í gær niður í spenni.með þeim afleiðingum að kýr varð fyrir raf- losti og drapst. Þá urðu heimilis- tæki fyrir nokkrum skemmdum. Um 1.400-1.500 rúður brotnuðu í gróðurhúsum í Sólbyrgi í Reyk- holtsdal og um 10.000 tómata- plöntur eyðilögðust. í Kvisti í Reykholtsdal eyðilögðust um 1.500 plöntur og um 80 rúður brotnuðu. I Skrúð brotnuðu 463 rúður og I Björk fóru um 200 rúður. Þar dráp- ust ennfreraur 1000 paprikuplönt- ur og 300 gúrkuplöntur eyðilögð- ust. I Braut brotnuðu um 200 rúð- ur í gróðurhúsum og 2.000 gúr- kuplöntur, 1.500 paprikuplöntur og mikið af blómum drápust. Á Sturlureykjum brotnuðu um 200 rúður og sömuleiðis varð tjón í Víðigerði. Gafl fauk af hlöðu í Múlakoti í Lundareykjadal, geymslubraggi fauk í Gilsstreymi og járn fauk af fjárhúsum á Tungufelli. Þak fór af geymsluhúsi á Hvítárvöllum. Vegklæðning fauk af vegi á Hvanneyri og lenti á íbúðarhúsi með þeim afleiðingum að rúður brotnuðu og klæðning skemmdist. Á Nautastöðum á Hvanneyri sprakk gluggi með þeim afleiðing- um að 14 fermetra hlaðinn milli- veggur sprakk og skekktist. Þá fór þak af fjárhúsum og hlöðu á Mið- fossum. Nokkrar piötur fuku af útihúsi í Efri-Hrepp. í Múlastöðum fuku plötur af fjósi. Víða á bæjum brotnuðu rúður og ýmiskonar minniháttar tjón varð. Algengt er að bændur á þessum slóðum hafl tryggingu fyrir fok- tjónum en einhvetjir munu hins vegar þurfa að bera skaðann sjálfír. DP Arnarfjörður: Hlöður fuku á haf út og þakjám fór af flestum bæjum Sigurjón á Lokinhömrum man ekki eftir öðrum eins veðurham síðan 1936 Bíldudal. BÆNDUR í Arnarfirði fóru ekki varhluta af fárviðrinu sem gekk yfir landið á sunnudag, en þar muna menn ekki eftir öðru eins óveðri á þessari öld. Algengt var að sjá hlöður fjúka á haf út og mikið var um rúðubrot. Heyvagnar og járnplötur flugu um bæina eins og tómir pappa- kassar. Á bænum Ósi fuku þakplötur af íbúðarhúsi og lítið útihús fór í heilu lagi á haf út. Girðingar eru víða lask- aðar og bitar losnuðu á einum vegg kúahlöðunnar. Mönnum tókst að festa þá niður til bráðabirgða. Þá fauk áburðardreifari um koll og gam- all heyvagn sem stóð niður við sjó fauk yfir vegg og hafnaði á fjárrétt sem hreinlega flísaðist út í loftið. Ekkert tjón var á fólki né skepnúm á Ósi. Á Neðra-Bæ fauk þriðjungur af hlöðuþakinu með sperrum og öðrum fylgihlutum. Rúða brotnaði í fjárhúsi í Selárdal og bifreið Ólafs Gíslasonar á Neðra Bæ dældaðist þegar óþekkt- ur hlutur fauk á húddið. Á bænum Fremri-Hvestu fuku þakplötur af fjárhúsi og stórar hurð- ir brotnuðu. Girðingar eru víða skemmdar. Mikið krap og mosi í ánni hafa hamlað orku til bæjarins, en notuð er rafstöð til orkugjafa. Vegurinn að bænum er í sundur að hluta og segist Bjarni Kristófersson, bóndi,. ekki muna eftir öðru eins óveðri í þau 63 ár sem hann hefur lifað. Haft var samband við bæina, Hrafnabjörg og Lokinhamra, en þeir eru meðal þeirra fáu íslensku báeja þar sem enn er ekki notað rafmagn. Hjá Sigríði Ragnarsdóttur á Hrafna- björgum fuku þakplötur af íbúðar- húsi og fjárhúsi, Áburðardreifari fór um koll, en ekkert tjón varð á skepn- um. Sigríður hefur búið ein í tíu ár. Hún er að sögn mjög veðurhrædd og leið því illa í veðurofsanum á sunnudag. „Þetta var fárviðri af verstu gerð. Ég fór snemma til þess að gefa fénu og hélt mig svo innan dyra allan daginn. Ég batt allar hurð- ir og hlera fasta í húsinu, en þetta slapp furðu vel hjá mér,“ sagði Sigríður Ragnarsdóttir í samtali við Morgunblaðið. ' Á bænum Lokinhömrum, skammt hjá Hrafnabjörgum, fauk gömul hlaða og þakplötur af fjárhúsi. Plö- tumar höfnuðu á íbúarhúsinu, en engar rúður brotnuðu. Á Lokinhöm- rum og Hrafnabjörgum eru vindrell- ur notaðar til að halda símsam r1 bandi, en þær brotnuðu báðar af.‘ Siguijón Jónasson, bóndi á Lokin- hömrum, sagðist ekki muna eftir öðmm eins veðurofsa síðan 1936, þegar þrír bátar skemmdust og hlaða full af heyi fauk út í bláinn. „Ég kyndi upp með gasi, en nota gamla kolaeldavél til að elda mat,“ sagði Siguijón Jónasson. Á bænum Hringsdal fauk vélarhús út í buskann svo eftir stóð einn vegg- ur og traktor við hliðina á honum. í Otradal fauk hús á bílskúrinn við bæinn og braut nokkrar rúður. Mikið verk er framundan hjá bændum í öllum Amarfirði. Víst er að á sumum stöðum þar sem vega- samgöngur em slæmar, verður að fá Landhelgisgæsluna til að færa bændum efni til viðgerðar á næstu dögum. R.Schmidt. ísafjörður: Rokstrókar dönsuðu af öllum áttum um Pollínn ísaflrði. FYRSTU áhrif stórviðrisins á ísafirði á sunnudag voru þegar vest- urlínan datt út og rafmagnslaust varð í bænum. Miklar truflanir urðu á rafmagnsflutningum, þó að ekki yrði mikið um að línur féllu niður. Um miðjan dag í gær var ekki búið að finna hvað olli trufluninni á vesturlínu, en nægjanlegur flutningur var frá Mjólká. oft í botn en hann mælir mest 90 hnúta. Suðvestan áttin var stöðug og mjög ólík austanáttinni, og urðu mestar fokskemmdirnar þá tvo tíma sem hún stóð yfír. - Úlfar Mjólkárvirkjun: Glerbrotum rigndi yfir starfsmenn Bíldudal. RAFMAGN hefur verið skammtað á Bíldudal, Tálknafirði og Pat- reksfirði síðan á sunnudag, en Vesturlínan bilaði frá leggnum að Geiradal og Mjólká, og því ekkert rafmagn komið frá Mjólkárvirkj- un. Tvær stjórar rúður brotnuðu í raf- stöðinni þegar tveir menn voru þar inni að störfum. Þeir sluppu við meiðsli, en stór krani í rafstöðinni dró úr dreifíngu glerbrotanna. Vesturlínan hefur verið skoðuð án árangurs og munu starfsmenn keyra meðfram línunni til að fínna orsakir biiunarinnar. Veður var mjög slæmt á þessum slóðum í gær, hríðarbylur með ofankomu og skafrenningi. R.Schmidt Það má segja að ballið hafi byijað í gamla hænsnakofanum á Fagra- hvammi í hádeginu, en þá tók ein hviða þakið af nokkrum útihúsum á bænum, lagði saman nýlega boga- skemmu aðeins framar í Dagverð- ardalnum og velti stórum jeppa nokkrar veltur af veginum þama hjá. í honum voru hjón að koma frá að skoða sumarbústað sinn. Bílstjór- inn mun hafa slasast á baki, en hann festist í bílnum, kona hans komst við illan leik til manna sem vom að binda niður hús bílasölunnar Eldingar á Skeiði. Um eittleytið vom björgunarsveitir kallaðar út og al- mannavamanefnd kom saman um klukkan hálf tvö. Bílastöðin, sem var í tveimur skúmm utanvert við menntaskólann, fauk og er gjörónýt. Þakplötur og klæðningar fuku víða af húsum, þak fauk af hlöðu í Hrauni í Hnífsdal og skemmdir urðu á spennistöð í Hnífsdal. Björgunarsveitin, slökkviliðið og starfsmenn áhaldahúss bæjarins voru að fram eftir degi, en skömmu fyrir kvöldmat var verður orðið skap- legt og um miðnætti var hér logn og stjörnubjartur himinn um tíma. Áhlaupin vora í rauninni tvö, fyrripartinn var hér austanátt og mikið misvindi. Rokstrókar dönsuðu þá af öllum áttum um Pollinn og gat fólk fylgst með stormsveipnum I björtu veðri, svo mglað var veðrið og þrátt fyrir rakta austanátt í lofti er aðalvindátt á flugvellinum að norðri að sögn Gríms Jónssonar flug- umsjónarmanns. Vindstyrkur varð þar mestur um 70 hnútar, en völlur- inn er í nokkm skjóli fyrir austanátt- inni. En um þijúleytið rann áttin í einu vetvangi í suðvestur með snjó- komu, þá varð vindstyrkur mestur á flugvellinum og fór mælirinn marg Fór tvær veltur með bílnum - segir Ásberg Pétursson sem fauk útaf Hnífsdalsvegi ^ fsafirði. ÁSBERG Pétursson, framkvæmdastjóri hjá fiskverkuninni Leiti í Hnlfsdal og útgerðarstjóri skuttogarans Jöfurs, slapp naumlega á sunnudaginn þegar bíll hans, nýlegur 3 tonna þungur Ford Pickup, fauk út af veginum á leitinu milli Hnifsdals og Skutulsfjarðar og lenti úti I sjó. Ásberg hafði verið að beijast við að halda togaranum við bryggju á ísafirði fyrr um daginn, en farið heim til þess að fara í þurr föt. Hann hafði farið nokkrar ferðir á milli um daginn og ákvað að heppi- legra væri að spenna ekki beltið í þessari ferð ef bíllinn fyki einhvers staðar út af. Sú ákvörðun varð honum Iíklega til lífs því þegar hann kom á leitið fékk hann á sig geysiöfluga vindhviðu sem feykti bílnum þvert yfír veginn. „Ég fann að bíllinn lyftist og reyndi að keyra hann upp í veðrið en það skipti engum togum að hann rann þvert yfír veginn, á handriðið og valt svo yfír það. Ég veit varla hvað gerðist, held þó að ég hafí farið tvær veltur með bflnum og henst svo út, rétt áður en hann fór fram af klettunum." Ásberg sagðist hafa verið svo heppinn að Gunnar Þórðarson í ísveri var á leið úteftir og stoppaði um það bil sem Ásberg var að koma upp á veginn aftur. „Rétt eftir að ég komst inn í bílinn hans kom ný hryðja en Gunnari tókst að keyra upp fyrir veginn og ofan í vegrásina." Ásberg er ótrúlega lítið slasað- ur, aðeins skrámaður í andliti og mjöðm auk þess sem hann er með eymsl í baki. Á þessum sama stað fórst þriggja manna fjölskylda við svipaðar aðstæður fyrir 15 ámm. Rétt utan við bfl Ásbergs liggur gamall Volvo skutbfll sem virðist hafa fokið frá fjölbýlishúsi við Dal- braut í Hnífsdal, yfír veginn og vegriðið og virðist hann ekki hafa komið við jörðu fyrr en í fjörunni. Úlfar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.