Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 20
MO'RGUNBLÍÍÐEÐ. tlábjÚDAGUK 5' .bMíib'Jái ÍÍM1.. FARVIÐRI GENGUR YFIR LANDIÐ Hofsós: 17 tonna eikarbát rak upp í fjörugijót héldu. Báturinn er talinn ónýtur, hann er svo mikið brotinn.“ Aðrar skemmdir á Hofsósi voru mestar þegar þakplötur fuku af þaki heilsugæslustöðvarinnar sem er tveggja hæða steinhús. Af bæjum í Skagafirði varð Sandfell í Unadal verst úti. Þar skemmdust öll hús mikið og eitt er gjörónýtt. Á Óslandi í Sléttuhlíð hurfu fjárhús og hlaða út í bu- skann en féð sakaði þó ekki. Á Sleitustöðum urðu björgunarsveit- armenn að festa niður gamlar húsarústir til að varna því að þær fykju upp og skemmdu önnur hús. Einar sagði að auk þessa hefðu björgunarmenn þurft að snúast í ýmsu fleiru. Gömul bílgrind sem hafði staðið af sér öll veður í mörg ár, tókst á loft og bátur sem stóð á vagni, fór á hvolf. „Það er mesta mildi að enginn slasaðist. Einu meiðslin sem ég veit um er þegar björgunarsveitarmaður skarst á handlegg við að reyna að hemja þakplötu. Við eigum enn mikla vinnu eftir við að lagfæra og taka til,“ sagði Einar Jóhannsson for- maður björgunarsveitarinnar Grettis. Flugskýlið splundraðist og fjórar flugvélar skemmdust MIKLAR skemmdir urðu í Skagafirði í ofsaveðrinu á sunnudag. Einar Jóhannsson formaður björgunarsveitarinn- ar Grettis á Hofsósi sagði að skemmdir hefðu verið Iitlar þar í bænum, en þeim mun meiri í sveitunum í kring. Enginn hér hefði sloppið með öllu. Einar sagði að mestu skemmd- imar á Hofsósi hefðu orðið þegar 17 tonna eikarbátur, Berghildur, slitnaði frá bryggju og rak upp í fjörugijótið. „Menn sáu að bátur- inn var að losna en vegna veðu- rofsans fengum við ekki við neitt ráðið,“ sagði hann. „Veðurhamur- inn var svo mikill að festingar í bátnum gáfu sig þó landfestar Flugskýlið á Blönduósi vafðist utan um flugvélamar. Tugmilljóna tjón varð á Blönduósi: Morgunblaðið/Kjartan Aðalsteinsson Tjón varð á flestum bæjiim í nágraimasveitum VERULEGT eignatjón varð af völdum óveðursins á Blönduósi og í nágrannasveitum, og að sögn Ófeigs Gestssonar, bæjarstjóra og form- anns almannavarnanefndar, er ljóst að það skiptir tugum milljóna króna. Mesta einstaka tjónið varð þegar flugskýlið á flugvellinum splundraðist, en í því voru fjórar einkaflugvélar, sem allar skemmdust tnikið. Tjón varð á flestum bæjum í nágrannasveitum Blönduóss þegar klæðning fauk af útihúsum eða öðrum byggingum. Einn maður slasað- ist þegar bíll sem hann var að færa til fór nokkrar veltur, en meiðsli hans eru ekki talin hafa verið alvarleg. Ófeigur sagði að flugskýlið hefði allt saman splundrast og það væri ónýtt alveg ofan í jörð, því festingar hefðu meira og minna rifnað upp úr grunninum. Fyrst eftir að flugskýlið hrundi varð gríðarlegt fok af því yfir byggðina vestast í bænum, og skemmdust bflar af þeim sökum og rúður brotnuðu í húsum, en net var síðan strengt yfir rústimar til að takmarka fokið. „Annað mesta tjónrð- varð þegar gríðarlega stór hurð á skoðunarað- stöðu Bifreiðskoðunar íslands eyði- lagðist, en loftið á húsinu inn af henni tættist upp. Þá fauk þakhluti á stafni grunnskólans, og í húsagöt- unni syðst í bænum er eins og vél- byssuskothríð hafi staðið nánast á alla húsaröðina, en flestar ef ekki allar rúður sem snéru að veðrinu eru ónýtar. Þá eru margar rúður brotnar í Essoskálanum og þakið tætt, og svona er þetta víða í bænum. Bílar hafa skemmst og rúður í þeim brotn- að, sólhús hafa skemmst, skjólveggir eru sundurtættir og ónýtir, og skúrar af ýmsum stærðum og gerðum hafa fokið hingað og þangað, ýmist beint upp af grunninum og splundrast í loftinu eða oltið og brotnað niður fjarri grunni," sagði hann. Ófeigur sagði að í sveitunum í kringum Blönduós hefði orðið tjón á flestym bæjum, og þar hefði ýmist fokið af fjárhúsum eða öðrum bygg- ingum. „Það er varla hægt að telja þetta upp, það má segja að foktjón hafi orðið víðast hvar í sveitunum og hér í bænum. Við höfum ekki handbærar neinar tölur yfir þetta tjón, hvorki hér á Blönduósi eða í héraðinu, en ég er þó sannfærður um að þetta er tugmilljóna tjón. Ég skal ekkert segja um hvort það eru 100 milljónir eða jafnvel meira, en það liggur auðvitað ekki fyrir fyrr en búið er að gera við.“ Vakt var hjá björgunarsveitinni og síðan almannavamanefndinni frá kl. 9.20 á sunnudagsmorguninn til Ásgeir Jónsson stendur hér þar sem suðurveggur hlöðunnar var áður. Veggurinn hrundi þegar þakið sviptist af hlöðunni. Skagafjörður: Eins og spílastokkur á lofti segir Ásgeir á Óslandi Skagafirði. „ÞAÐ VAR eins og einhver hefði kastað spilastokk á loft þegar skæðadrífan af þakplöt- um sveif fyrir gluggana," sagði Ásgeir Jónsson á Óslandi í Skagafirði. Ásgeir var við eldhúsgluggann á Óslandi þegar hann sá fjárhús- þakið fara fyrir gluggann í mörg- um hlutum. Húsið stóð sunnan við bæinn og má telja mestu mildi að þakið lenti ekki á honum eða næsta bæ. „Hlöðuloftið fór líka af. Fyrst fuku nokkrar plötur, en svo_ svipt- ist þakið allt af,“ sagði Ásgeir. „Auk þess brotnaði suðurveggur hlöðunnar og töluvert af heyi hvarf út í buskann. Hlaðan og fjárhúsið eru ónýt, en það er óvíst hvort -við fáum þetta bætt úr tiyggingunum." kl. rúmlega 22 um kvöldið, en þá kom síðasti hópurinn úr útkalli. Á þessu tímabili voru skráð 80 útköll eða einhverskonar tilkynningar um tjón af völdum veðursins. „Fyrsta útkallið kom kl. 9.20 og síðasta út- kall vegna foks vartilkynnt kl. 17.05, og var þá farið í síðustu nýju aðgerð- ina, en mannskapurinn var úti í við- gerðum vegna tjóna sem tilkynnt höfðu verið fyrir þann tíma til kl. 22. Á milli 60 og 70 menn voru í vinnu alveg samfellt frá hádegi, en fyrir hádegi voru tæplega 30 björug- unarsveitarmenn á vakt,“ sagði Ófeigur. Ekki er vitað til þess að um tjón hafi orðið á skepnum af völdum óveð- ursins, en björgunarsveitarmenn fóru um morguninn og könnuðu meðal annars hurðir á útihúsum og skálk- uðu allt sem menn voru hræddir um að gæti fokið upp. Sagði Ófeigur að með þessum fyrirbyggjandi aðgerð- um hefði áreiðanlega tekist að koma í veg fyrir verulegt tjón í mörgum tilfellum. „Þetta er mjög víðtækt tjón, þó kannski hafi ekki orðið neitt stórtjón hjá einstaklingum, en það er hins vegar ljóst að það fæst í sumum til- fellum ekki bætt. Hvað bæjarfélagið varðar þá eru eignir þess foktryggð- ar, þannig að ég á ekki von á að verulegt fjárhagslegt tjón verði fyrir bæinn vegna þess sem skemmst hef- ur hjá honum,“ sagði Ófeigur Gests- son. Vindurinn tætti þakið í smástykki Skagaflrði. AUÐUNN Hafsteinsson og Ólöf Þórhallsdóttir á Narfastöðum í Skagafirði urðu fyrir öðru áfall- inu á skömmum tíma þegar nýbyggt trégrindarhús á jörð þeirra brotnaði í smátt í óveðr- inu á sunnudag. I ofsaveðri í janúar skemmdist jeppi þeirra hjóna. Húsið sem eyðilagðist núna var 300 fermetra trégrindarhús, klætt stálplötum. Húsið átti að nota undir kanínur en þau hjón hafa ræktað kanínur í 5 ár. Húsið sem dýrin eru í nú er orðið lélegt en stóð þó af sér veðrið. Aðeins nokkrar þakplötur fuku af því. „í einni hviðunni fór hurðin úr nýja húsinu og svo sviptist það í sundur,“ sagði Auðunn. „Þakið fór af í einu lagi en seinna um daginn reif vindurinn það á loft aftur og tætti það í smástykki." Sauðárkrókur: Engir stórskaðar urðu af völdum óveðursins Sauðárkróki. NOKKUÐ tjón varð á Sauðárkróki af völdum óveðursins á sunnudag- inn, en þó urðu þar engir stórskaðar. Einna mest varð tjónið á íbúðar- húsi við Ránarstíg þar sem nánast öll klæðning flettist af þakinu. Þá fuku þakplötur af fjölbýlishúsi við Víðigrund, og eins af hluta af mjólkursamlagi kaupfélagsins. Þakplöturnar brutu og brömluðu þar sem þær komu við, og meðal annars fór ein þeirra inn um stofu- glugga á húsi í nágrenninu. Oveðrið brast á um hádegisbilið og negldu niður þakplötur sem voru að losna. Að sögn Björns Mikaelssonar, yfirlögregluþjóns, urðu smærri og stærri skaðar á nánast hveijum bæ í Skagafirði. Þar var að mestu leyti um að ræða tjón á útihúsum. Miklar rafmagnstruflanir urðu hér í bænum í gærmorgun og af þeim sökum var öllu skólahaldi af- lýst. BB Iveðrið brast á um hádegisbilið hér í bænum, og er það með verstu veðrum sem hér hafa komið, en þó hafa komið hér veður sem valdið hafa meira tjóni. Björgunarsveitar- menn voru að frá hádegi til klukkan átta um kvöldið og björguðu þeir því sem bjargað varð. Tæplega 40 manns unnu að björgunarstörfum og var mikið af iðnaðarmönnum þar á meðal, sem fóru víða upp á þök

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.