Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 21
Það sem á sunnudag var fullbúið einbýlishús á Leifs- stöðum liggur nú á víð og dreif um túnið. Á innfelldu myndinni stendur Eygló Birgisdóttir við nýju þvottavél- ina sem verður varla notuð úr þessu. Austur-Landeyjar: Við horfðum á húsið okkar hreinlega springa í loft upp - segir Eygló Birgisdóttir á Leifsstöðum í A-Landeyjum Hvolsvelli. NÝREIST einbýlishús á bænum Leifsstöðum í Austur-Landeyjum fauk um hádegi á sunnudag. Ekkert er eftir nýtanlegt af húsinu og liggur það eins og hráviði um túnin. Húsið var í eigu ungra hjóna sem höfðu nýlokið við að reisa það og selja í stand. „Við horfðum á húsið hreinlega eins og springa í loft upp klukkan 15 mínútur fyrir tólf á sunnudag- inn,“ sagði Eygló Birgisdóttir á Leifsstöðum en hún og maður hennar, Auðunn Leifsson, áttu húsið. „Við vorum alveg tilbúin að flytja inn í nýja húsið okkar, búin að mála allt og setja í stand, við áttum bara eftir að setja gólfdúk á eitt herbergið. Þetta var viðlaga- sjóðshús, svokallað gámahús, sem við keyptum og reistum hér, u.þ.b. 70 fermetrar að stærð. Við þökk- um bara guði fýrir að hafa ekki verið flutt í húsið, þá værum við líklegast ekki til frásagnar. En við vorum búin að flytja megnið af búslóðinni okkar svo við misst- um svo að segja allar okkar eig- ur“, sagði Eygló. Þau hjónin höfðu nýkeypt inn- anstokksmuni og heimilistæki fyr- ir um hálfa milljón króna, en höfðu ekki enn tekið allt úr umbúðúnum og þessir munir liggja nú á víð og dreif í allt að kílómeters fjar- lægð frá húsinu. Innbúið var ekki tryggt. Eygló sagði að fjósþakið hefði einnig að mestu fokið og nú sætu þau bara og biðu eftir að rafmag- nið kæmi. Ekki var búist við að rafmagn kæmist á fyrr en seinni- partinn á mánudag en margir staurar brotnuðu í Landeyjum í óveðrinu. Þar fór rafmagn af á sunnudagsmorgun. Svo virðist að skemmdir hafi orðið á allflestum bæjum í Landeyjum. Flóinn: Hlaðan fór fram á götu Selfossi. TÍU METRA há tré lögðust á hliðina, rúður í gamla kaupfélagshúsinu brotnuðu, gróðurhús molnuðu og þakplötur losnuðu á nokkrum húsum, þar á meðal íþróttahúsi Gagnfræðaskólans á Selfossi. Björgunarsveitar- menn á Selfossi voru önnum kafnir allan sunnudaginn, líkt og félagar þeirra á öðrum þéttbýlisstöðum. í suðaustanáttinni á sunnudags- morgninum varð eitt og annað undan að láta. Nýr uppsláttur einbýlishúss í Tjamarhverfi á Selfossi lagðist saman og vinnuskúrar lyftust. Um hádegið þegar suðvestanhvellurinn skall á sviptust þakplötur af íþrótta- húsinu og fleiri húsum. Hurð á flug- skýli á Selfossflugvelli lagðist inn en björgunarmönnum og eigendum flugvéla tókst að forða tjóni á vélun- um. Mikið tjón varð á sveitabæjum í Flóanum. Þök fuku í heilu lagi af útihúsum og dæmi eru um að útihús hafi lyfst í heilu lagi og splundrast. Á Stokkseyri fuku þakplötur, hest- hús eyðilagðist og hlaða á sjávar- kambinum austarlega í þorpinu fauk í heilu lagi milli húsa. „Þegar ég leit út var hliðin farin úr hlöðunni og þegar ég ætlaði að huga að þessu þá var hlaðan farin fram á götu milli húsanna," sagði Jón Kristinsson á Stokkseyri, eigandi fjárhússins og hlöðunnar. í austanáttinni um morguninn fauk mikill sandur inn um sjávarhlið á gamla varnargarðinum og hlóðst í skafla á lóðunum fyrir innan. Jón sagði að sandinn hefði skafið eins og snjó inn um sjávarhliðið. Þá flett- ist torfið á Þuríðarbúð af henni fram- anverðri og blakti í vindinum. Á Eyrarbakka voru björgunar- sveitarmenn í önnum allan daginn. Þar fauk þak af gamalli hlöðu og hesthús í miðju þorpinu eyðilagðist. Veðurhamurinn náði hámarki milli flóða þannig að aldrei var nein hætta af sjávarflóðum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þegar ekið var um götur á Eyrar- bakka og Stokkseyri og víðar mátti sjá viðbúnað manna. Kaðlar voru strengdir yfir gömul hús til að halda niðri þakplötum, límband var innan á stórum rúðum og skjólveggir voru stífaðir af. Útifyrir ströndinni byltist svo sjórinn í brimgarðinum þegar fjallháar öldurnar brotnuðu. Og á Selfossi strókaði upp af Ölfusá þegar vatnið skóf í mestu vindhviðunum. Sig. Jóns. Jón Kristinsson á Stokkseyri við tóftina á hlöðunni sem fauk. Hvolsvöllur: Flaug 3 metra og rotaðist Hvolsvelli. ÞAÐ VAR mikil mildi að ekki fór verr fyrir Guðfinni Guðmanns- syni byggingameistara þegar hann var að reyna að loka stórri hurð á trésmíðaverkstæði sínu. „Við vorum að reyna að loka • stórri flekahurð þegar félagi minn fór að ná í kúbein. Þá kom snörp vindhviða og ég vissi ekki af mér fyrr en ég raknaði úr rot- inu. Þá lá ég á sandhrúgu 3 metra frá hurðinni. Hún hafði þá slegist í höfuðið á mér og þeytt mér þessa vegalengd," sagði Guðfinn- ur. Hann slapp ótrúlega vel, en fékk aðeins skurð á höfuðið og sagðist vera dálítið dofinn. „Annars er allt meira _og minna á tjá og tundri hjá mér. Á trésmíða- verkstæðinu opnuðust stórar hurðir, ein þeirra sem er 250 kg að þyngd þeyttist 100 metra í loft upp og lenti á planinu hjá Sláturfélaginu í um 300 metra fjarlægð. Sem betur fór lenti hún á auðu planinu. Inni á trésmíðaverkstæðinu eyðilögðust hurðir og milliveggir gáfu sig og - allt er fullt af sandi og drullu. Við erum að reisa hús hjá Sláturfélag- inu. Þar gaf sig mótauppsláttur og lagðist niður. Kaffiskúrinn tókst á loft og splundraðist. Ég rek hér einnig söluskála, þar brotnuðu rúður og fylltist allt af sandi og drullu svo að við þurftum að þrífa allt. Þar fauk bensíndæla, skilti og útiborð með áföstum bekkj- um. Þau tókust á loft og við þökkum bara fyrir að þau komu ekki inn í búðina. Þau liggja núna hérna úti á túninu. Annars er þetta nú ekki svo mikið hjá mér. Það hafa svo margir orðið fyrir tjóni, sérstaklega í sveit- unum, sagði Guðfinnur að lokum. Hann varð fyrir einna mestu tjóni hér á Hvolsvelli. Víða varð fólk fyr- ir smávægilegu tjóni s.s. rúðubrot- um, þar sem möl þeyttist í gegnum rúður og inn í hús. Mesta tjónið virðist hafa orðið í sveitunum, þar eru fáir bæir sem hafa sloppið. Sérstaklega urðu göm: ul útihús og skemmur illa úti. í Fljótshlíð fuku sumarbústaðir og víða varð mikið tjón þar. Fjárhús fuku við bæinn Vindás á Rangárvöllum. Húsfreyjan þar stóð við gluggann og sá að járnið var farið að losnað á fjárhúsunum. Hún ætlaði að teygja sig í sjónauka en þegar hún leit út aftur voru íjárhús- in horfin. Þessi saga er lýsandi fyrir þann mikla veðurofsa sem hér var á sunnudag. - S.Ó.K. Þorlákshöfn: Gamla kaup- félagshúsið bundið niður með köðlum Þorlákshöfn. I óveðrinu sem gekk yfir landið um helgina varð töluvert tjón i Þorlákshöfn en guðsmildi að ekki fór verr því veðurhamurinn var gífurlegur og man undirritaður ekki eftir öðru eins. Björgunarsveitarmenn voru kall- aðir út snemma á sunnudagsmorgun og voru að stanslaust fram á kvöld og hafa margir haft á orði að þeim megi að hluta þakka að ekki fór verr. Þeir settu kaðla á þak gamla Kaupfélagshússins og njörfuðu niður en þess eru menn hér minnugir að þetta sama þak flaug nokkra tugi metra í heilu lagi fyrir nokkrum árum, en það fór ekki langt núna þó það sé að vísu laust frá húsinu. Þakplötur fuku af stórum hluta Meitilsins og klæðning og plötur af fleiri húsum í bænum. Veiðihús sem veiðifélagið átti og var nýlokið við tókst á loft og leystist upp í frum- eindir þegar það lenti. Tjaldvagnar, hestakerrur, auglýsingaskilti og fleira lauslegt fauk um bæinn. Nokkrar rúður brotnuðu ýmist undan veðurhamnum eða eitthvað fauk í þær. - J.H.S. Magnús Gíslason gefur hrossum sínum væna tuggu utandyra. Stokkseyri: Hrossin fundu veðrið á sér Selfossi. „Hrossin hafa alltaf komið inn í hesthúsið þegar ég gef á garðann en núna stóðu þau fyrir utan og góndu á dyrnar. Ég reyndi að reka eina hryssuna inn en það var ekki við það kom- andi að þau færu inn,“ sagði Magnús Ingi Gíslason varðstjóri á Stokkseyri en hesthús hans splundraðist í veðrahamnum á sunnudag. ,Eg gat komið tveimur trippum inn en þau hlupu út aftur og þá var ekkert annað að gera en loka og bjóða hrossunum góða nóttþar sem þau stóðu og góndu á húsið. Á sunnudagsmorguninn varð mér órótt vegna þeirra þegar ég heyrði í veðrinu. Eg leit út og sá þá hvar hesthúsið bókstaflega þandist út eins og blaðra og sprakk síðan í loft upp. Það er alveg á hreinu að hross- in vita mikið meira en við menn- irnir. Ég hef oft tekið eftir óró- leika hjá hrossunum við veðra- brigði. Það var svo greinilegt þarna um kvöldið að þau vildu ekki koma nálægt húsunum," sagði Magnús. Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.