Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991 35 ,Greinargerð um eignabreytingar" i fyrstu síðu framtals í lið 4. Þegar íifreiðin er færð til eignar á fram- ;al er kaupverðið lækkað um fjár- :æð styrksins og þannig ákvarðað stofnverð fært á framtal í lið 10.5 í bls. 4. Yfirteknar skuldir við íbúðarkaup Valgerður Davíðsdóttir spyr: 1. Þegar afborgun af nafnverði yfir- ;ekins láns, sem er breytileg, er æiknuð, hvaða vísitölu notar mað- jr? 3var: Kvittanir fyrir afborgun láns- ns bera með sér hvaða tegund vísi- ;ölu er um að ræða. Þegar um er ið ræða yfirtöku verðti-yggðs láns nyndar lánið, með áföllnum verð- oótum miðað við þann dag sem ý'firtakan fer fram, nýjan höfuðstól hjá þeim sem við láninu tekur. Grunnvísitalan er þá vísitalan eins Dg hún er á þeim tíma þegar yfirtak- an fer fram. 2. Hvaða upphæð er notuð þegar ífallnir vextir eru reiknaðir á yfirte- knu láni? Svar: Ef reikna á áfallna vexti af yfirteknu láni er miðað við höfustól- inn eins og hann er skilgreindur hér að framan og áfallnir vextir reiknast frá yfirtökudegi til ársloka. 3. Hvar eiga að koma fram endur- gr^iddir vextir vegna yfirtekinna lána frá seljanda, við afsal? Ef lán- in eru fleiri en eitt, þarf þá að sund- urliða endurgreiddu vextina eða má hafa eina samtals upphæð? Svar: Sá sem yfirtekur lánið á rétt á þeim vaxtagjöldum sem reiknast eftir að yfirtakan fer fram og ein- ungis þeir vextir eiga að færast á greinargerð um vaxtagjöld. Ef um endurgreidda vexti frá seljanda er að ræða hlýtur það að vera vegna vaxta sem féllu til fyrir yfirtöku og eiga því ekki að hafa áhrif á framtalin vaxtagjöld hjá þeim sem yfirtekur lánið. 4. Má telja til vaxtagjalda, þinglýs- ingakostnað og lántökugjald af láni frá Byggingasjóði ríkisins, sem tek- ið var í desember 1989 og hefur ekki komið fram á vaxtablaði fyrr en nú? Svar: Lántökukostnað sem gjald- féll á árinu 1989 er ekki heimilt að færa sem vaxtagjöld á framtal 1991. Hlutabréfakaup unglinga Arnór Ragnarsson spyr: Dóttir mín keypti hlutabréf fyrir peningana sem hún fékk í ferming- argjöf. Hún greiðir síðan 6% skatt af því sem hún vann sér inn í sum- ar. Fær hún þennan skatt endur- greiddan vegna hlutabréfakau- panna? Svar: Frádráttur vegna hlutafjár- kaupa er ekki heimilaður á barna- framtali. Foreldrar hafa heldur ekki heimild til frádráttar vegna hlutaf- járkaupa barna yngri en 16 ára. Launaskrifstofa ríkisins: Flugximfer ðar stj órar fengu ekki hækkun umfram „þjóðarsátt“ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Launaskrifstofu ríkisins: í fyrirsögn að grein sem Halldór Blöndal alþingismaður skrifaði í Morgunblaðið 31. janúar er fullyrt að flugumferðarstjórar hafi fengið launahækkun umfram þjóðarsátt. Af hálfu fjármálaráðuneytisins er þessari fullyrðingu hér með vísað á bug, enda kemur það fram í grein- inni sjálfri að laun flugumferðar- stjóra hafa ekki hækkað umfram það sem aðrir hafa fengið og lög kveða á um. Sá kjarasamningur sem gerður var við Félag flugumferðarstjóra 13. júlí sl. var í engu frábrugðinn þeim kjarasamningum sem gerðir hafa verið við aðra hópa eða félög undir formerkinu „þjóðarsátt“. Það samkomulag sem gert var við flugumferðarstjóra á sama tíma byggði hins vegar á eldri ákvörðun framkvæmdavaldsins, þ.e. setningu reglugerðar nr. 240/1989, sem fól það i sér að starfslok flugumferðar- stjóra skyldu verða 7-10 árum fyrr en verið hafði. Við breytingu reglu- gerðarinnar voru öryggissjónarmið höfð að leiðarljósi fyrst og fremst. Flugumferðarstjórar brugðust við þessari reglugerðarbreytingu með því að knýja fram bókun með kjarasamningi sínum frá 1989 þess efnis að „vegna breytinga á starfs- lokaskilyrðum flugumferðarstjóra, sbr. reglugerð nr. 329/1986, sbr. nr. 240/1989, um skírteini útgefin af flugmálastjórn, eru aðilar sam- mála um að endurskoða þau atriði ★ GBC-Pappírstætarar Þýsk framleiðsla Ýmsar stærðir og gerðir fáanlegar OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 • 105 Reykjavik Símar 624631 / 624699 kjarasamningsins, sem þær hafa áhrif á. Niðurstaða endúrskoðunar- innar liggi fyrir við lok samnings- tíma“. Samkvæmt þessari bókun var skipuð nefnd sem lauk störfum 23. mars 1990. Það samkomulag sem síðar var gert var í meginatriðum byggt á niðurstöðum nefndarálits- ins. Nú kann það að vera álitamál hveiju sinni hvort, og þá með hvaða hætti tekið er á því þegar löggjaf- inn eða framkvæmdavaldið breyta starfsskilyrðum stétta eða hópa. Þeir sem semja um kaup og kjör af hálfu ríkisins sakna þess líka einatt að slíkar breytingar eiga sér stað án þess að fram komi að hugs- að hafi verið fyrir aðstæðum þess fólks sem fýrir verður og er þar skemmst að minnast laga nr. 87/1989 um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þrátt fyrir vandkvæði af því tagi hefur það samkomulag sem hér um ræðir verið framkvæmt af Launa- skrifstofu ríkisins þannig að ekki brýtur í bága við nýstaðfest bráða- birgðalög. Kr. 1.995,- Herrastærðir 21212 , \ r f 1 — •- Ll ill'JlQ Við bjóðum þig velkomin í 6, 7 eöa 8 daga hvíldar- og hressingardvöl í júní og júlí. Þar veröa kynntar leiöir til að bæta heilsuna, öölast meiri lífsorku og fyrirbyggja sjúkdóma. Við bjóðum uppá: ¥ Makrobiotískt fæði (fullt fæði) ¥ Líkamsæfingar, yoga ¥ Hugkyrrð, slökun ¥ Fræðslu og uppskriftir úr Makrobiotik ¥ Sundlaug, nuddpott ¥ Rúmgóð 2ja manna herbergi ¥ (möguleiki á eins manns) ¥ Bátsferð um eyjarnar ¥ Gönguferðir ¥ Erlendan matreiðslumeistara ¥ Nudd Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hannesdóttir í síma 35060 milli kl. 9-10 alla virka daga. Kær kveðja, Sigrún Olsen Þórir Barðdal VIRÐISAUKASKATTUR Gjalddagi virðisaukaskatts er 5. febrúar Athygli skal vakin á því að uppgjörstímabil virðisauka- skatts með gjalddaga 5. febrú- ar var frá 16. nóvember til 31. desember. Skýrslum til greiðslu, þ.e. þegar útskattur er hærri en innskattur, og núllskýrslum má skila til banka, sparisjóða eða pósthúsa. Einnig má gera skil hjá innheimtumönn- um ríkissjóðs en þeir eru toilstjórinn í Reykjavík, bæjarfógetar og sýslumenn úti á landi og lögreglustjór- inn á Keflavíkurflugvelli. Bent skal á að bankar, spari- sjóðir og pósthús taka aðeins við skýrslum sem eru fyrir- fram áritaðar af skattyfir- völdum. Ef aðili áritar skýrsl- una sjálfur eða breytir áritun verður að gera skil hjá inn- heimtumanni ríkissjóðs. Inneignarskýrslum, þ.e. þegar innskattur er hærri en útskattur, skal skilað til við- komandi skattstjóra. Til að komast hjá álagi þarf greiðsla að hafa borist á gjalddaga. Athygli skal vakin á því að ekki er nægilegt að póstleggja greiðslu á gjald- daga. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.