Morgunblaðið - 05.02.1991, Side 38

Morgunblaðið - 05.02.1991, Side 38
38 MORGUNBLiAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. PEBRÚAR 1-991 Mhming: Helga Illugadóttir frá Laugalandi Með örfáum orðum langar mig til að kveðja elsku langömmu. Eg kynntist henni í raun og veru lítið fyrr en fyrir fáum árum. Auð- vitað hafði ég oft hitt hana, en af því við bjuggum úti á landi, sáum ' við systurnar hana ekki eins oft og æskilegt væri. Hún kom í ferming- una mína fyrir nokkrum árum, hress og kát með spaugsyrði á vör- um. Svo í september 1989 átti ég að skrifa ritgerð í skólanum, urp aldraða persónu sem ég þekkti. Við mamma og amma héldum á fund langömmu, vopnaðar penna og blaði. Við vorum ekki vissar um, að hún vildi greina frá ævi sinni. En þar höfðum við ekki rétt fyrir okkur. Langamma hafði frá mörgu að segja, svo mörgu ótrúlegu, eins og þegar hún fékk sopa af kaffí með brennivíni útí, þegar hún var átta ára, og hún sagðist ennþá muna, hvað það hefði verið hræði- lega vont. Eða þegar hún var á gangi með vinkqnu sinni, ung stúlka, og drukkinn maður gerðist nærgöngull við þær. Þá gerði hún sér lítið fyrir og braut regnhlífína á hausnum á honum. Öðru sinni ýtti hún fullum manni á rassinn ofan í tóma tunnu, því hún þoldi aldrei drukkna menn, enda bindind- ismanneskja allt sitt líf. Hún langamma var frábær, alltaf kát og glöð, og sagð mér hreint út, að ég ætti að vera glöð á svip- inn, ef ég var í einhverri fýlu. Það leið sjaldnast á löngu, þar til fýlu- svipurinn hvarf. Eg var stolt eins og páfi, þegar ég fór með ritgerðina mína í skól- ann, ekki af ritgerðinni, heldur af langömmu. Síðast þegar við vorum öll fjöl- skyldan samankomin heima hjá henni, var á afmælisdaginn hennar 7. október sl. Þá sat hún í stól, ánægð á svip, horfði á hópinn sinn, og sá um að allir borðuðu sig pakksadda. Tveimur mánuðum seinna fóru hún á spítala og átti ekki afturkvæmt. Við barnabarnabörnin minnumst hennar með þakklæti og virðingu, og vonumst til, að geta líkst henni í sem flestu, er fram líða stundir. Guð blessi minningu langömmu. Guðbjörg Lísa Gunnarsdóttir Það eina sem við vitum fyrir víst, er að eitt sinn skal hver maður deyja. En þrátt fyrir það veldur dauðinn okkur alltaf sárindum. Ég hef í nokkrar vikur vitað, að hveiju stefndi með ömmu, í hvert sinn sem ég kvaddi hana, átti ég ekki von á að hitta hana aftur. Samt var eins og eitthvað brysti innra með mér laugardaginn 26. janúar sl. þegar hún kvaddi þetta líf, sátt við guð og menn. Þrátt fyrir háan aldur, var eins og dauðinn væri jafn fjarlægur henni, og okkur sem yngri erum. Hún lifði lífínu lifandi, fylgdist með öllu og öllum, sá um sig að mestu leyti sjálf, og vildi hafa það þannig. Hún vildi vera sjálfstæð, og var það líka. Ég veit ekki hvort hún var sátt við að deyja, en í hjarta sínu hefur hún eflaust vitað, að það varð ekki umflúið. En hún ræddi ekki um það, var ekki vön að flíka tilfínning- um sínum, maður átti bara að standa sig, og taka því sem að höndum bæri án þess að gefast upp. Það þykir víst ekki héraðsbrest- ur, þótt öldruð hetja hversdagsins kveðji þetta jarðlíf. En væru allir eins hugsandi og nægjusamir og amma, leyfí ég mér að fullyrða, að ekki ríkti sami ófriðurinn í heimi hér, og raun ber vitni. Amma, Helga Illugadóttir, var fædd í Olafsvík 7. október 1901. Hún ólst að mestu upp hjá móður- systur sinni, því hún var ekki hjóna- bandsbarn, en hafði þó alltaf sam- band við foreldra sína. Hún sagði alltaf, að hún hefði átt góða æsku, og aldrei liðið skort þrátt fyrir fá- tækt. Ung fór hún að vinna fyrir sér, fyrst við að moka kolum og salti eða í fiskvinnu. Sextán ára gömul fór hún til Reykjavíkur, og réði sig í vist. I Reykjavík kynntist hún fyrri manni sínum, afa mínum Jóni Jóns- syni söðlasmið frá Hunkubökkum í Vestur-Skaftafellssýslu. Þá var amma 23 ára gömul. Með afa eign- aðist hún tvær .dætur, Guðbjörgu Bjarnheiði og Guðný Halldóru. Skömmu eftir fæðingu yngri dótturinnar skildu amma og afí. Má nærri geta hversu erfítt það hefur verið að vera einstæð móðir á þessum tíma. Enda varð hún að koma yngri dótturinni í fóstur, og vinna hörðum höndum í físki, og við að þvo þvotta fyrir fólk. Ég heyrði ömmu aldrei kvarta um þessa hluti, hún sagði frá þessu eins og hveijum öðrum sjálfsögðum hlut, en ég veit, að henni leið ekki alltaf vel á þessum árum, og var oftþreytt. Árið 1936 urðu þáttaskil í lífí hennar, þegar hún kynntist Theodór Þorlákssyni, og fluttist með honum að Laugalandi í Reykhólasveit. Með Theodór eignaðist hún tvo syni, Guðmund og Guðlaug. Á Laugalandi voru engin þæg- indi, sem við teljum sjálfsagðan hlut, ekki einu sinni akvegur heim að bænum. Þrátt fyrir það, eða kannski þess vegna, tók ammá ást- fóstri við sveitina, þau lifðu af því sem landið gaf í orðsins fyllstu merkingu, og undu hag sínum vel. Fyrst rúmum tíu árum seinna fór amma í stutta ferð til Reykjavíkur, til að líta fyrsta barnabarn sitt aug- um, þá er þetta ritar. Heimsókn að Laugalandi var heilt ævintýri fyrir borgarbarn eins og mig. Ef ég ætlaði að skrifa um allt það frá ævi ömmu, sem mér fínnst í senn ótrúlegt og aðdáunar- vert yrði það efni í heila bók. Allt frá því að fara aðeins einu sinni á ári í kaupstað, til þess að leggja net og nýta æðarvarpið, komin hátt á níræðisaldur. Árið 1975 fluttu þau amma og Theodór til Reykjavíkur, en þá var heilsu Theodórs farið að hraka, og hann lést árið 1978. En öll sumur fóru þau vestur, og síðan amma ein, og síðast í sumar var hún á Laugalandi í rúman mánuð. Með þakklæti í hjarta kveð ég elsku ömmu, þakklát fyrir að hafa átt hana svona lengi, og þakklát • forsjóninni fyrir að láta hana ekki líða kvalir lengur. En síðast en ekki $íst þakklát ömmu fyrir það sem hún var mér og okkur öllum, boð- beri hins góða í manninum. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og alit. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Jóna Sigurbjartsdóttir BLÓM SEGJA ALLT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími689070. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48. SIMI 76677 t SVEINN ÁGÚSTSSON frá Ásum, andaðist 2. febrúar. Aðstandendur. t Faðir minn og tendafaðir, STEFÁN KRISTJÁNSSON, Faxabraut 13, Keflavík, lést sunnudaginn 3. febrúar. Hermann Stefánsson, Guðrún Jensdóttir. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LOVÍSA MARGRÉT EYÞÓRSDÓTTIR, Háaleitisbraut 42, Reykjavik, andaðist á Vífilsstaðaspítala laugardaginn 2. febrúar. Jóhannes H. Jónsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Ástkaer eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, INGI HALLBJÖRNSSON, Brekkustíg 14, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag þriðjudaginn 5. febrúar kl. 15.00. Þeir, sem vilja minnast hans, láti Krabbameinsfélagið njóta þess. Rósa Eyjólfsdóttir, \ Sigríður Þóra Ingadóttir, Grétar Sigurðsson, Þórður Ingason, Helga Guðbjörg Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ílammiaYÁm^a Minningarkort Krabbameinsfélagsins fást í flestum lyfjabúðum í Reykjavík og á nær öllum póstafgreiðslum úti á landi. Einnig er hægt að hringja í síma 62 14 14. Ágóða af sölu minningarkortanna er varið til baráttunnar gegn krabbameini. Krabbameinsfélagið Sonur okkar, t MAGNÚS KRISTJÁNSSON, Hvolsvegi 28, Hvolsvelli, lést í Tromsö, Noregi, föstudaginn 1. febrúar. Erla Jónsdóttir, Kristján Magnússon. t Systir mín, SVEINBJÖRG HALLVARÐSDÓTTIR frá Reynisholti í Mýrdal, íést á dvalarheimilinu Hjallatúni, Vík, laugardaginn 2. febrúar. Fyrir hönd vandamanna, Guðrún Hallvarðsdóttir. t Móðir okkar, SVANLAUG PÉTURSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, andaðist á Landspitalanum 3. febrúar. Járðarförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Litli sonur okkar og bróðir, MAGNÚS MÁR BJÖRNSSON, sem lést þann 28. janúar, yerður jarðsunginn frá Seljakirkju þriðju- daginn 5. febrúar kl.13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Björn Magnússon, Dagbjört Ósk Steindórsdóttir, Árni Guðjón. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN BJÖRNSDÓTTIR frá Berunesi við Reyðarfjörð, Skálagerði 9, Reykjavík, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði miðvikudaginn 6. febrúar kl. 13.30. Harpa J. Möller, Sigurður Ingólfsson, Jón Ómar Möller, Magna Sigbjörnsdóttir, Bylgja Möller, Gíslí Þór Gíslason, Örvar Möller, Ólöf Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. „ 'n • TT i' 'nt 3 vrvuv iðvii«úr njvun.oifí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.