Morgunblaðið - 05.02.1991, Page 48

Morgunblaðið - 05.02.1991, Page 48
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Morgunblaðið/RAX Frá vinstri: Ester Aradóttir, Friðrik Friðriksson, Gísli Örn Arnarson og Halla Guðlaugsdóttir nýkomin að Hótel Geysi í fylgd hjálpar- sveitarmanna. í baksýn sést Sigurður Óli Guðbjörnsson slysavarnafélagsmaður. Fjórmenningarnir fundnir heilir á húfi á hálendinu: Bíllinn lyftist upp og kastaðist í 90 gráður Haukadal, frá Pétri Gunnarssyni blaðamanni Morgunblaðsins. „VEÐRIÐ var ofboðslegt, bíllinn lyftist upp og afturendi hans kast- aðist í níutíu gráður og við vorum heppin að hann hélst á hjólun- um,“ sagði Gísli Orn Arnarson, einn fjögurra ungra Reykvíkinga sem biðu af sér fárviðrið skammt frá brúnni yfir Hvítá norðan Bláfells, uppi á miðju hálendinu. Fjórir menn frá Slysavarnadeild- inni Tryggva á Selfossi óku fram á fjórmenningana um kl. 19 í gærkvöldi þar sem þau höfðu lagt bíl sínum við vatnsmælingaskúr við Hvítárbrú. Það væsti ekki um þau og þau óku í bæinn á sinum eigin bíl og kváðust þurfa fára aftur á miðvikudag eða fimmtudag til að koma hinum bílnum í gang og til byggða. Fjórmenningarnir fóru frá Reykjavík snemma á laugardag á tveimur velútbúnum jeppum og komu síðdegis á laugardag að skál- anum í Hvítárnesi. Þá var ekkert að veðri, að sögn þeirra. „En á sunnudagsnóttina vöknuðum við við að veðrið var að verða vitlaust og ákváðum að reyna að komast í bæinn,“ sagði Gísli þegar Morgun- blaðsmenn ræddu við fjórmenning- ana á Hótel Geysi í Haukadal í gærkvöldi eri þangað komu þau í fylgd björgunarsveitarmanna laust eftir kl. 21. Þegar þau voru nýlögð af stað frá skálanum bilaði annar bíllinn og þau fluttu sig öll yfir í hinn bílinn og létu fyrirberast þar meðan veðrahamurinn var sem mestur. „Bíllinn var mjög þungur með okk- ur öll og farangur okkar innan- borðs en hann lyftist samt upp og skall til og hlerinn fauk upp að aftan. Það mátti litlu muna að hann ylti. Þegar veðrið gekk loks niður þá var bíllinn enn ökufær en við ákváðum að sofa í honum og reyna að koma hinum jeppanum í gang þegar birti. í morgun heyrðum við í útvarpi að það væri farið að leita að okkur og við höfð- um líka heyrt hvaða eyðileggingu veðrið hafði valdið. Það var vont að geta ekki látið vita af sér því við vissurn að fólk var farið að hafa áhyggjur af okkur,“ sagði Gísli. Eini fjarskiptabúnaður þeirra var farstöð sem ekki kom að gagni til að láta vita af sér til byggða. Fjórmenningarnir sögðu að þau hefðu aldrei verið í hættu enda voru þau vel útbúin og voru með vistir .til að láta fyrirberast þarna í þrjá daga í viðbót ef á hefði þurft að halda. „Þau höfðu heyrt í útvarpinu að við værum að koma til þeirra og þegar þau sáu okkur koma blikk- uð.u þau ljósum. Þá sáum við hvar bíll þeirra stóð við vatnsmælinga- skúrinn við Hvítárbrú," sagði Sig- urður Óli Guðbjörnsson, slysa- varnafélagsmaður. ^Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: Tjón á ótryggðu varla bætt RÍKISSTJÓRNIN mun á fundi sínum í dag fjalla um það tjón sem varð hér á landi af fárviðrinu á sunnudag. Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ljóst væri að margir þyrftu að taka á sig mikið tjón og stjórnvöld myndu ekki beita sér fyrir því að opinber aðstoð yrði veitt þeim sem ekki hefðu tryggt sig gegn áföllum. Nokkrir þingmenn hvöttu hins vegar til þess á Alþingi í gær, að þeir, sem orðið hefðu fyrir verulegu eigna- «4iýni í fárviðri helgarinnar fengju það bætt þótt tryggingar skorti. Ámi Johnsen varaþingmaður ósk- aði eftir umræðu utan dagskrár á sameinuðu þingi í gær um ástandið í fjarskiptamálum eftir fárviðrið, en helsti hlekkurinn í öryggiskerfi landsmann hefði þá brostið, þar sem væri annað útvarpsmastrið á Vatn- senda. Þar með hefðu langbylgju- *séndingar útvarpsins stöðvast og um '1.000 skip með 6.000 mönnum misst hefðbundna þjónustu sem gæti skipt sköpum. Árni spurði menntamála- ráðherra hvernig ríkisstjórnin hyggðist standa að úrlausn þessa máls sem enga bið þyldi. Svavar Gestsson menntamálaráð- herra kvaðst myndu ræða við Póst og síma og samgönguráðuneytið hvort unnt væri að þessir aðilar tækju beinan þátt í þeim endurbótum sem núna yrði að taka ákvörðun um. Sagðist menntamálaráðherra ætla að leggja sérstaka tillögu fram á ríkisstjórnarfundinum í dag, en taka yrði ákvörðun um ineð hvaða hætti staðið að endurskoðun lánsfjárlag- anna, þannig að þeir fjármunir sem nú stefndu í ríkishirsluna rynnu til ríkisútvarpsind. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði að það tjón sem sneri að einstaklingum væri í raun og veru miklu verra mál en önnur. „Það virðist vera sem stór hluti gróð- urhúsabænda hafi ekki verið með foktryggingu og það er náttúrlega gífurlegt tjón. Sumt af því mun Bjargráðasjóður bæta, en hann er fjárvana. Líklega verður að bæta einhverju fé í hann,“ sagði Steingrímur, „en það er ljóst að margir munu bíða mikinn skaða af. Viðlagatrygging kemur ekki þarna við sögu nema að mjög litlu leyti." Forsætisráðherra kvaðst ekki bú- ast við að ríkisstjórnin myndi á fund' sínum í dag taka neinar ákvarðanii; um opinbera aðstoð við einstaklinga vegna íjárhagslegs tjóns sem þeir kynnu að hafa orðið fyrir í óveðrinu. „Enda sér það nú hver maður að það myndi enda með ósköpum, ef ríkissjóður ætti að bæta þeim tjón sem hafa vanrækt að tryggja," sagði Steingrímur. Rúta rann á gang- brautarskýli: Hefði get- að farið mun verr - segirSigrún Jónsdóttir gang- brautarvörður sem var inni í skýlinu LITLU mátti muna að stórslys yrði _ á gatnamótum Skólatraðar og Álfhólsvegar kl. 8.45 í gær þegar áætlunarbíll rann stjórnlaus í hálku niður Skólatröðina, fór þvert yfir Álfhólsveginn, í gegn- um járnhandrið og á gangbrautar- varðskýli. Var gangbrautarvörð- urinn, Sigrún Jónsdóttir, sem er 67 ára gömul, í skýlinu þegar bíllinn rakst á það. Marðist hún illa en slapp við meiriháttar meiðsli. Var hún flutt á slysadeild en fékk að fara heim að skoðun lokinni. Ökumaður áætl- unarbílsins missti stjórn á honum végna mikillar hálku þegar hann ók niður Skólatröð- ina. Gangbrautar- skýlið er norðan- megin Álfhólsveg- ar en gangbraut er þar yfir götuna. Stendur járnhand- riðið á milli götunnar og skýlisins. Braut bíllinn járnhandriðið niður og rakst harkalega á skýlið sem er ónýtt eftir áreksturinn en bifreiðin skemmdist hins vegar lítið. „Þetta hefði getað farið verr. Það var blindhríð og ég var að horfa út um gluggann á skýlinu niður Álfhóls- veginn og ætlaði að fara að setjast niður þegar rútan skall á skýlinu. Ég sá hana aldrei, þá hefði ég reynt að forða mér,“ sagði Sigrún í sam- tali við Morgunblaðið í gær en hún var þá að jafna sig á heimili sínu og hafði læknir fyrirskipað henni að halda kyrru fyrir í viku. „Ég vankaðist eitthvað við höggið sem var mjög mikið þrátt fyrir að rútan hafi sennilega runnið hægt á skúrinn. Mér tókst að komast út um hurðina og niður tröppurnar og þá kom bílstjórinn hlaupandi til mín. Hann var mjög elskulegur," sagði hún. Sigrún hefur verið gangbrautar- vörður á þessum stað í sjö ár og vinn- ur dóttir hennar á móti henni við vörsluna. Líkfundurinn við Faxamarkaðinn: Talið vera af F æreyingi ENN var ekki endanlega ljóst í gær hver maöurinn er sem fannst látinn við Faxamarkaðinn í Reykjavíkurhöfn á föstudag. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- Ins er talið að um sé að ræða 31 árs gamlan færeyskan sjómann. Rannsóknarlögregla ríkisins vildi ekki staðfesta í gær að um Færeying væri að ræða né fengust þar upplýs- ingar um hver dánarorsök mannsins hefði verið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.