Morgunblaðið - 03.04.1991, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1991
55
„Líf og landshagir“
Tímabær bók
eftir Guðmund J.
Guðmundsson
Það er góð regla að byija lestur
bókar á formálanum. í formála of-
angreindrar bókar eftir dr. Magna
Guðmundsson er m.a. að finna
þessa málsgrein:
„í inngangskafla segir frá atrið-
um, sem spegla tíðarandann á upp-
vaxtarárunum. Þá koma þjóðmálin
í röð stuttra þátta, sem sameigin-
lega mynda hagsögu í hnotskurn."
Höfundi tekst í inngangskaflan-
um að kalla fram andblæ liðinna
tíma, sem eru flestum gleymdir.
Það er einnig gagnlegt fyrir lesand-
ann, að höfundur gerir þarna grein
fyrir menntun sinni og starfs-
reynslu, sem hefir mótað viðhorf
hans. Fram kemur, að hann hefir
verið nátegndur atvinnulífinu, bæði
sem starfsmaður og stjórnandi,
þegar frá barnæsku og til þessa
dags. Það gerir honum auðveldara
að skilja vandamál atvinnuveganna
— gagnstætt svonefndum „stofu-
hagfræðingum", sem hoppa beint
af skólabekk í embætti stjórnsýslu
án þess að hafa difið hendinni í
kalt vatn. Inngangskaflinn, sem er
tæpar 14 bls., er skemmtilegur af-
lestrar og lífgar bókina alla.
Hagsagan er rakin allar götur
frá 1930 til 1990. Það er með ólík^
indum, hversu miklum fróðleik höf-
undur getur þjappað saman á lið-
lega 150 bls. Sá fróðleikur kemur
á heppilegum tíma, þegar þjóðin
stendur á krossgötum og þarf að
taka ákvarðanir, sem varða sjálf-
stæði hennar í framtíð, aðild að EB,
stóriðju, opnun fjármagnsmarkað-
■ GRIKKLANDSVINAFÉLAG-
IÐ Hellas heldur árshátíð sína nk.
föstudag, 5. apríl, klukkan 20.30 í
Sportklúbbnum, Borgartúni 32,
3. hæð. Á boðstólum verður grískt
hlaðborð. Gestur kvöldsins verður
Friðrik Þórðarson, háskólakenn-
ari í Osló. Karl Guðmundsson,
leikari, flytur kafla úr þýðingu sinni
á Skýjunum eftir Aristófanes.
Einnig kemur fram nýstofnuð
hljómsveit, sem flytur gríska tón-
list. Hana skipa söngkonurnar Alda
Arnardóttir og Ólöf Sverrisdótt-
ir, ásamt hljóðfæraleikurunum
Aðalgeir Arasyni, búzúkí, Guð-
mundi Guðmundssyni, gítar, og
Guðmundi Ingólfssyni, bassa. Þá
gefst mönnum kostur á að taka
„Höfundi tekst í inn-
g-angskaflanum að
kalla fram andblæ lið-
inna tíma, sem eru
flestum gleymdir.“
ar. Ekki dregur úr mikilvæginu, að
kosningar eru á næsta leiti. Bókin
er aðgengileg fyrir þorra lesenda,
framsetning ljós, frásögnin fagleg
og hlutlaus, studd hagskýrslum frá
opinberum stofnunum, Hagstofu,
Seðlabanka, ÞHS o.fl. Það er styrk-
ur höfundar, að hann hefir ekki
ánetjast neinum flokki eða þrýsti-
hóp. Hann hafnaði stjórnmálaþátt-
töku og kaus að nálgast efnahags-
mál frá fræðilegri hlið. Höfundur
er í sátt við samtíð sína og skrifar
lofsamlega um ráðherra, sem hann
hefir unnið fyrir og unnið með.
Höfundi var sýndur heiður í
Kanada er honum voru tvívegis
falin vandasöm trúnaðarstörf, fyrst
fyrir fylkisstjórn Manitoba, síðar
fyrir sambandsstjórnina í Ottawa.
Hann kenndi og við Manitoba-
háskóla.
Þetta er sjötta bók höfundar.
Allar fjalla um hagfræði og stjórn-
mál, einkanlega ríkisíjármál og
peningastjórn, sem voru sérgreinar
höfundar í námi. Þessi síðasta bók
kom út fyrir jólin. Ég hvet lands-
menn til að lésa hana og rifja upp
hagsögu fyrstu 50 ár íslenzka lýð-
veldisins. Sérstaklega vil ég hvetja
forystumenn launþegasamtakanna
til að kaupa bókina og kynna hana
í félögum sínum.
Höfundur er formaður
Dagsbrúnar.
þátt í grískum hópdansi undir stjórn
Hafdísar Árnadóttur, danskenn-
ara. Miðapantanir eru hjá Sj>ort-
klúbbnum og hjá Kristjáni Arna-
syni, formanni félagsins.
FERMINGARTILBOÐ TIL 15. APRIL
. 5% Vísa- og Euro afsláttur
12Vo StaðgreiðsluafsWur
ESOEN - PARKETT
Norska gœðaparketicX sem allir fagmetm þekkja.
N o k k u r d æ m i :
Fullt verð Tilboðsverð stgr. afsláttur
Askiir 4.279.- pr.m^ 3.765.- pr.m2 514.- pr.m2
Eik rustik 3.775.- pr.m^ 3.322.- pr.m2 453.- pr.m2
Merbau 4.490.- pr.m^ 3.950.- pr.m2 540.- pr.m2
Beyki 4.115.- pr.m^ 3.621.- pr.m2 494.- pr.m2
Eik natur-B 3.286.- pr.m^ 2.890.- pr.m2 396.- pr.m2
Þú getur sparað tugi þúsunda ef þú
grípur tækifærið!
Nýr glæsilegur litmyndabæklingur
með íslenskum texta. Póstsendum
mynda- og verðlista ef óskað er.
Sölumenn okkar veita fúslega allar
upplýsingar um BOEN - PARKETT.
TEPPABUÐIN
GOLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950
Ný og góð þykkmjólk
Tvær bragðtegundir: jarðarber, mangó
og appelsíhu