Morgunblaðið - 07.05.1991, Side 1
64 SIÐUR B
101. tbl. 79. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kúrdar í írak:
Skipulag griða-
svæðis á lokastigi
' Silopi í írak, Nikosíu, Bagdad. Reuter, Daily Telegraph.
IRAKAR hófu í gær brottflutning hermanna sinna frá höfuðstað
nyrsta héraðs Kúrda í norðurhluta íraks. Sums staðar bárust fréttir
af því að einstakir herflokkar sýndu liði bandamanna mótþróa en
hvergi kom til bardaga þótt spenna ríkti. Yestrænar hersveitir
bjuggu sig undir að ljúka stofnun griðasvæðis fyrir um 850.000
kúrdíska flóttamenn, sem flúðu til landamæranna að Tyrklandi.
Vestrænu hersveitirnar eru nú
um 10 km frá borginni Dahuk.
Margir kúrdísku flóttamannanna
koma frá bænum og nágrenni hans
og héruðum utan núverandi griða-
svæðis. í Dahuk voru höfuðstöðvar
Kúrda í uppreisninni gegn Saddam
Hussein Iraksforseta eftir stríðið
fyrir botni Persaflóa.
í upphaflegum áætlunum Banda-
ríkjamanna óg bandamanna þeirra
frá í apríl var gert ráð fyrir að
vestrænu hersveitirnar stofnuðu
griðasvæði umhverfis íraska bæinn
Zakho, færu síðan 70 km austur á
bóginn til Amadiya og kæmu upp
öðru griðasvæði umhverfis Dahuk.
Vestrænu hersveitirnar eru þegar
komnar til Zakho, sem er um 10
km frá landamærunum að Tyrk-
landi, og Amadiya. Núverandi
griðasvæði nær einnig til bæjarins
Suriya, um 25 km austan við
Amadiya. Ekki var vitað í gær
hvenær herliðið færi til Dahuk.
íraska þingið lýsti því yfir í gær
að stofnun griðasvæðis Kúrda væri
gróf íhlutun í innanríkismál íraka
og bryti í bága við stofnskrá Sam-
einuðu þjóðanna. Kúrdískir flótta-
menn héldu áfram að streyma til
svæðisins um helgina og embættis-
menn sögðu á sunnudag að um
21.000 þeirra hefðu komið þangað
á einni viku. Telja Bandaríkjamenn
að alls hafi nú um 130 þúsund
manns haldið heim frá Tyrklandi.
Læknar sögðust hafa orðið varir
við kóleru-veiru í búðum Kúrda.
íraks, lúti yfirráðum Kúrda og að
alþjóðastofnanir sjái um að írösk
stjórnvöld standi við hugsanlegan
sjálfstjórnarsamning.
Dick Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hélt í gær til
Persaflóa til að ræða öryggismál
svæðisins við ráðamenn í ríkjum
þar og James Baker utanríkisráð-
herra fer síðar í vikunni í enn eina
ferð til Mið-Austurlanda til að
kanna möguleika á friðarsamning-
um ísraela og arabaþjóða. Kúveitar
hafa farið fram á að vestrænar
landhersveitir verði þar áfram. ír-
anir eru algjörlega andvígir því að
Bandaríkjamenn hafi hersveitir á
svæðinu. Ali Akbar Hashemi Rafs-
anjani, forseti írans, sagði á sunnu-
dag að ekki kæmi til greina að taka
upp stjórnmálasamband við Banda-
ríkjamenn að nýju.
Reuter
Öveðurhamlar hjörgunaraðgerðum íBangladesh
Hermenn varpa pokum með matvælum út úr flug-
vél til fólks á flóðasvæðunum í Bangladesh. Alls
hafa fundist lík 125.000 manna eftir óveðrið í
síðustu vikú og flóðin sem fylgdu í kjölfarið en
óttast er að 200.000 hafi týnt lífi. Slæmt veður
hefur valdið því að þyrlur og flugvélar hafa átt
erfitt með að koma neyðargögnum til bágstaddra
en talið er að tíu milljónir hafi misst heimili sín.
Alþjóðahjálparstofnanir hafa beðið ríki heims um
tafarlausa hjálp. Segja talsmenn stofnananna að
fjórar milljónir manna séu í bráðri lífshættu vegna
skorts á mat og ferskvatni. Viðvaranir yfirvalda
í Bangladesh um óveðurshættu koma að jafnaði
að litlu haldi þar sem almenningssamgöngutæki
eru fá og léleg og fólkið getur því ekki forðað sér.
Sovétstjórnin sökuð um
liernað gegn Armenum
Þyrlum, skriðdrekum og stórskotaliði beitt í árásum á armensk þorp
Moskvu. Reuter.
Kúrdísk sendinefnd hóf að nýju
samningaviðrfeður um sjálfstjórn
Kúrda í Bagdad í gær. Oddviti
nefndarinnar er Massoud Barzani,
leiðtogi Kúrdíska lýðræðisflokksins,
sem krefst þess að Kirkuk, miðstöð
olíuframleiðslunnar í norðurhluta
Yfirstjóm júgóslavneska hersins
fékk á sunnudag skipun um að kveða
niður þjóðaátökin og síðdegis í gær
var heraflinn settur í viðbragðsstöðu.
Hermaðurinn var drepinn og félagi
hans særður þegar mótmælendurnir
umkringdu flotastöðina. „Þetta er
Króatía. Ef þið viljið ekki hjálpa okk-
ur skulið þið fara burt,“ hrópaði fólk-
ið. Þess var krafist að herinn gripi
til aðgerða gegn serbneska minni-
hlutanum í lýðveldinu sem berst gegn
stefnu króátískra stjórnvalda. Mót-
„SOVÉTSTJÓRNIN hefur í raun
lýst yfir stríði á hendur Armen-
um,“ sagði Levon Ter-Petrosjan,
forseti Armeníu, í gær þegar
hann skýrði frá því, að sovéskt
herlið, búið þyrlum, skriðdrekum
og stórskotaliði, hefði ráðist á
mælendurnir náðu tveimur herflutn-
ingaskipum á sitt vald um tíma og
júgóslavneska sjónvarpið sýndi
myndir af því er þeir réðust á her-
mann í bryndreka.
Helst dagblað Júgóslavíu, Borba,
skýrði frá því að Franjo Tudjman,
forseti Króatíu, hefði stungið upp á
því á blaðamannafundi á sunnudag
að Króatar efndu til mótmæla við
herstöðina. Forsetinn hvatti hins
vegar til þess í gær að fólkið hætti
þorp í Armeníu og fellt tugi
manna. Þá sagði hann, að sov-
éskar og azerskar hersveitir
hefðu ráðist á þorp og bæi í
Nagorno-Karabak, umdeildu
sjálfstjórnarhéraði í Azerbajd-
zhan.
mótmælunum þar sem þau hefðu
þegar haft hörmulegar afleiðingar.
Serbneskt dagblað og síðar júgó-
slavneska fréttastofan Tanjug
skýrðu frá því á sunnudag að júgó-
slavneski herinn hefði lagt hald á
í gær sagði armenski þingmaðurinn
Nyuton Grígorjan, að 37 manns
hefðu fallið og margir verið særðir
í bardögum milli Azera og Armena,
sem eru í miklum meirihluta í Nag-
orno-Karabak. Sagði Grígorjan, að
Á skyndifundi sovéska þingsins
rúmenskt skip sem hefði flutt vopn
til Króatíu. í yfirlýsingu frá utanrík-
isráðuneyti Rúmeníu sagði að málið
hefði verið rannsakað en ekkert kom-
ið fram sem benti til þess að fréttin
væri rétt.
sovéskar og azerskar hersveitir,
búnar skriðdrekum og stórskota-
liðsvopnum, hefðu ráðist á armensk
þorp í héraðinu með það fyrir aug-
um að reka íbúana burt.
Ter-Petrosjan, forseti Armeníu,
sagði að deildir úr fjórða sovéska
hernum, sem aðsetur hefur í Az-
erbajdzhan, hefðu ráðist á þorpið
Voskepar í Norðaustur-Armeníu og
fellt þar tugi manna og auk þess
gert árás á annað þorp í suðurhluta
landsins. Sakaði hann sovétstjórn-
ina um að hafa tekið höndum sam-
an við Azera um að valda upplausn
í Armeníu og nota hana síðan sem
átyllu til að bæla niður kröfur Ar-
mena um sjálfstæði.
Innanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, harðlínumaðurinn Borís
Púgo, sagði aftur á móti, að tilgang-
urinn með aðgerðum Azera og sov-
éska hersins væri aðeins að upp-
ræta skæruliðasveitir Armena.
Verulegt magn vopna hefði verið
gert upptækt. Óháða, sovéska
fréttastofan Interfax sagði í gær,
að vopnaviðskipti væru jafnt á nóttu
sem degi í Nagorno-Karabak og á
landamærum Armeníu og Az-
erbajdzhans. Hún hafði eftir so-
véskum embættismönnum að marg-
ir, sem engan þátt ættu í óöldinni,
hefðu fallið þegar sprengjum rigndi
yfir þorpin.
Sjá ennfremur „Rússneskar
námur ... “ á bls. 27.
Hörð átök í Króatíu:
Tug’þúsundir gera
atlögu að flotastöð
Hclgriul. Rcuter, Daily Telcgraph..
HERMAÐUR beið bana er átök brutust út að nýju í Júgóslavíu í gær
þegar að minnsta kosti 30.000 manns réðust á stöð júgóslavneska flot-
ans í hafnarborginni Split í Króatíu. Fólkið mótniælti meintum stuðn-
ingi Júgóslavíuhers við serbneska minnihlutann í lýðveldinu.
Reuter
Júgóslavneskir iienneiin á bryndrekum við króatíska bæinn Borovo
Selo þar sem komið hefur til blóðugra óeirða milli Króata og Serba.