Morgunblaðið - 07.05.1991, Page 2

Morgunblaðið - 07.05.1991, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1991 Morgunblaðið/KGA Savannatríóið syngur á ný Nærfellt 30 ár eru síðan Savannatríóið tróð fyrst upp sem slíkt, en síðast söng tríóið inn á plötu 1967. í gærkvöldi komu svo þeir félagar úr tríóinu, Þórir Baldursson, Troels Bentsen og Björn Björnsson, saman til að syngja inn á plötu í fyrsta sinn eftir þetta langa hlé. Lagið sem þeir tóku upp er Jarðarfarardagur eftir Þóri Baldursson við texta Sigurðar Þórarinssonar, en Savannatríóið hljóðritaði lagið 1964. Jarðarfaradag- ur verður á safnplötu með íslenskum lögum sem Gunnar Þórðarson er að vinna með ýmsum flytjendum. Mannbjörg er bátur sökk við Barða: Kafarar kanna orsakir óhappsins MANNBJÖRG varð er sex tonna plastbátur, Gummi í Nesi ÍS 95 frá Flateyri, fylltist af sjó og sökk á stuttri stundu, skammt út af Barða við mynni Dýra- fjarðar laust fyrir miðnætti á sunnudagskvöld. Tveir menn voru á bátnum og var þeim bjargað úr gúmmíbáti um borð í Hafdísi ís 25, sem var skammt undan þegar báturinn sökk. Tryggingafélag bátsins ætlar að reyna að láta kafa niður að bátnum, sem er talinn liggja á um 60 metra dýpi, til að kanna orsakir óhappsins. „Það er ekki vitað um orsökina en báturinn byijaði skyndilega að síga,“ sagði Sigurður H. Garðars- son skipstjóri við Morgunblaðið. „Ég var sofandi þegar þetta gerð- Ríkissjóðiir liækkar forvexti ríkisvíxla úr 11% í 14,5% Búist vid frekari vaxtahækkunum á næstunni FORVEXTIR á ríkisvíxlum hækkuðu úr 11% í 14,5% í gær og eru nú svipaðir forvöxtum á svonefndum bankavíxlum. Ekki hefur ver- ið tekin ákvörðun um hvort vextir á spariskírteinum ríkissjóðs verði hækkaðir. Þá hafa bankar og sparisjóðir ekki ákveðið hvort þeir hækki vexti næsta vaxtadag, en það er þó talið Iíklegt í ljósi aukinn- ar samkeppm á fjármagnsmarkaði og samdráttar í innlendum sparn- aði. Sigurgeir Jónsson forstjóri lána- sýslu ríksins sagði við Morgunblað- ið í gær, að ríkið hefði ekki fylgt vaxtahækkunum bankanna eftir, það sem af væri árinu. Með hækk- un á vöxtum ríkisvíxla væri verið að koma ríkisvíxlunum í fyrri stöðu gagnvart víxilvöxtum banka. Ríkisvíxlar hafa fyrst og fremst keppt við svonefnda bankavíxla, en aðalkaupendur þeirra eru bank- ar og stórir aðilar sem þurfa að Brenndist er kviknaði í föt- um sem bensín hafði slest á UNG kona skaðbrenndist á fæti aðfaranótt laugardagsins er eldur kviknaði í bensínblautum buxum hennar þegar hún var að kveikja sér í sígarettu. Hún var þá stödd fyrir utan Borgarspítalann og komst við illan leik inn á slysa- deild. Þegar konan var að dæla bensíni á bíl sinn úr bensínsjálfsala slettist bensm í föt hennar. Frá bensínstöð- inni ók hún að Borgarspítalanum, þangað sem hún átti erindi. Um leið og hún steig þar út úr bílnum kveikti hún sér í sígarettu en þá hljóp neisti í buxur hennar sem þegar stóðu í björtu báli. Konan gat fleygt sér í nálægan poll og slökkt þannig eldinn og síðan komst hún við illan leik inn í á slysa- deild Borgarspítalans. Önnur buxna- skálm hennar var þá mikið brunnin og hún var með svöðusár á hné. ávaxta stórar fjárhæðir í skamman tíma. Að jafnaði hafa vextir á bankavíxlum verið um 0,5% hærri en vextir á ríkisvíxlum, þótt sundur hafi dregið á þessu ári. Bankavíxlar bera nú 14-15% for- vexti en þeir vextir hafa farið lækk- andi undanfarið, enda útlit fyrir minni verðbólgu næstu mánuði en verið hefur. Samkvæmt síðustu spá Seðlabankans verður verðbólga milli 4-5,5% næstu tvo mánuði, og gangi hún eftir bera tveggja mán- aða banka- og ríkisvíxlar því nú um 10% raunvexti á ársgrundvelli. Fyrstu fjóra mánuði var verðbólgan hins vegar um 10% miðað við láns- kjaravísitölu, en spá Seðlabanka gerði ráð fyrir um 8% verðbólgu. Þá mældi lánskjaravísitala fyrir maí um 15% verðbólgu. Að sögn Sigurgeirs Jónssonar hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort vextir á spariskírteinum rfkissjóðs verði hækkaðir. Þau bera nú 6% verðtryggða nafnvexti, þ.e. raunvexti, en í endursölu eru vext- irnir 7,5-8%. Sigurgeir sagði að verið væri að skoða markaðinn fyr- ir spariskírteinin og aðra pappíra sem kepptu við þau, og ákvörðun yrði tekin mjög fljótlega. Bankar og sparisjóðir hafa ekki tekið ákvörðun um hvort vextir verði hækkaðir næsta vaxtadag, sem er 11. maí, en það verður m.a. metið í ljósi upplýsinga um minni innlendan sparnað á þessu ári en áður var talið og aukinnar samkeppni á fjármagnsmarkaði. Verðtryggðir útlánskjörvextir banka eru nú 6,5% og hafa þeir að jafnaði verið 0,5% hærri en vext- ir spariskírteina. Benda banka- menn á, að ef ríkið hækkar raun- vexti á spariskírteinum verði bank- ar einnig'að hækka sína raunvexti þar sem þeir séu í beinni sam- keppni við ríkið um innlán. Ríkis- skuldabréf séu, eðli sínu sam- kvæmt, tryggustu verðbréf á mark- aðnum og eigi því að bera lægstu vextina. ist en þegar ég vaknaði var hálft dekkið á kafi í sjó og allt á niður- leið. Við keyrðum í hringi í svona 5 mínútur. Eg var inni í stýrishús- inu þar til það var orðið nærri fullt, áður en ég náði að kalla út hjálparbeiðni. Ég varð svo að synda út um dyrnar,“ sagði Sig- urður. Hann og skipsfélagi hans, Vil- mundur Þ. Ólafsson, komust í gúmbjörgunarbát, og höfðust þar við í 10-15 mínútur áður en Hafdís ÍS kom þeim til hjálpar. Sigurður sagði að þeim hefði ekki verið sérlega kalt og hvorugum hefði orðið meint af volkinu. Gummi í Nesi var smíðaður í Póllandi og kom til landsins í ágúst í fyrra. Hann var að koma úr línu- róðri með um 3 tonn. Um 2 vind- stig voru og nokkur bára. Sigurð- ur H. Garðarsson sagðist ekki hafa neina skýringu á því hvers vegna báturinn sökk. Hafdís kom með mennina inn til Flateyrar í morgun og voru teknar af þeim skýrslur á Isafirði í gær. Ekki hafði verið ákveðið í gærkvöldi hvenær sjópróf verða haldin. Mannaráðningar fyrrverandi dómsmálaráðherra: A Akvarðanir um þrjár stöður ógiltar og fjórða til athugiinar ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra hefur ákveðið að ógilda ákvarðanir Óla Þ. Guðbjartssonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra, varðandi þrjár stöðuvcitingar og ákvörðun um þá fjórðu verður til- kynnt í dag. Allar þessar ákvarðanir, sem nú er breytt, voru teknar á síðustu dögum fyrrverandi dómsmálaráðherra í embætti. Þorsteinn Geirsson ráðuneytis- stjóri í dómsmálaráðuneytinu sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þegar hefði verið tekin ákvörðun varðandi þrjár stöðuveitingar og við- komandi aðilum tilkynnt um þá ákvörðun. Hann sagði dómsmálaráð- herra hafa ákveðið að staðfesta skipurit það sem lögreglustjórinn í, Reykjavík gerði tillögu um síðastlið- inn vetur og óskaði eftir að gilti hjá embættinu. „Það þýðir að sú aðstoð- aryfirlögregluþjónsstaða sem auglýst var er ekki inni samkvæmt því skipu- lagi. Það er búið að endurskipu- leggja það starf þannig að ekki er lengur þörf á því. Hins vegar hefur verið ákveðið að sá maður sem var skipaður í það gegni sínu gamla starfi, sem var eftirlit með ökutækj- um og er varðstjórastaða. Hann mun hins vegar halda launaflokki sínum, þar sem þessi ráðstöfun byggir á 33. grein starfsmannalaga, sem kveður á um að flytja má menn til í starfi, enda missi þeir ekki af launum," sagði Þorsteinn Geirsson. Þá sagði hann að afturkölluð hafl verið fyrirmæli um að auka starfs- hlutfall hjúkrunarfræðings á Litla Hrauni úr hálfu starfi í heilt. Ennfremur hafði verið gerður samningur um ráðningu aðstoðar- manns fanga með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Þeim samningi hefur verið sagt upp með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Fjórða málið, varðandi stöðu for- stöðumanns bifreiðaprófa, er enn til skoðunar og kvaðst Þorsteinn Geirs- son gera ráð fyrir að niðurstaða verði kynnt viðkomandi í dag. Sent þingfararkaup án þess að hafa ver- ið kjörinn á þing ÁRNI Matthiasson, blaðamaður a Morgunblaðinu, fékk í gær senda Iaunaávísun frá ríkisféhirði og með henni launaseðil, þar sem tíundað er þingfararkaup til hans. Árni er á ávisuninni titlaður alþingismaður, en hefur þó ekki enn verið kjörinn til þess og aldrei verið í framboði. Sigurður Þorkelsson ríkisféhirðir sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að trúlega væru mistökin fóigin í því að kennitala Árna hefði verið sett á Iista yfir alþingismenn í misgripum fyrir kennitölu nafna hans, Árna M. Mathiesen, ný- kjörins alþingismanns. Árni M. Mathiesen alþingis- maður sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að hann hefði ekki enn fengið sitt þingfararkaup. Hins vegar kvaðst hann ekki vita hvort það hefði misfarist, þar sem hann hefði ekki spurst fyrir um það. Árni sagði það ekki vera nýtt að þeim nöfnunum væri ruglað saman. „Ég fékk póst Árna Matthíassonar síðast í síðustu viku og stundum hef ég verið spurður að því hvort ég skrifi um músík í Morgunblaðið," sagði Árni M. Mathiesen. Árni Matthíasson sagði það hafa komið fyrir áður að hann hefði fengið póst Árna Mathiesen. Þennan nýjasta póst sagðist hann vera alveg sáttur við, „á meðan ég fæ ekki líka rukkanirnar". Ávísunin er á 115.913 krónur. Á launaseðlinum kemur fram að upphæðin skiptist í mánaðarlaun, fyrir maímánuð, að upphæð 170.632 krónur og ferðakostnað, að upphæð 20 þúsund krónur, eða samtals 190.632 krónur. Frá- dráttarliðir eru 6.825 krónur í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, alþingismannadeild, og 67.894 krónur í staðgreiðslu skatta. Sigurður Þoi'kelsson sagði ótví- rætt að í tilvikum sem þessum bæri viðtakanda ávísunarinnar að skila henni aftur. Hann sagði að- spurður, að ef ávísun sem þessari væri skipt, yrði viðtakandinn kraf- inn um upphæðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.