Morgunblaðið - 07.05.1991, Page 12

Morgunblaðið - 07.05.1991, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1991 © PCRCHER TILBOÐ Handlaug - salerni (meS setu og þrýstihnapp) sturtubotn (80 x 80sm.) Allt í einum pakka. Tilboðsverð: Kr. 29.150,- Gerum tilboð - leitið upplysinga ! Sendum um land aílt ► \ K.AUÐUNSSON HF. Sérverslun meö hreinlætistæki Grensásvegi 8 - Sími: 686088 Skagfirska söngsveitin __________Tónlist_____________ Jón Ásgeirsson Skagfirska söngsveitin hélt tón- leika í síðustu viku og fór undirrit- aður á tónleikana, sem haldnir voru sl. laugardag í Langholtskirkju. Einkenni tónleikanna að þessu sinni var að efnisvalið miðaðist við verk- efni sem ekki þurfti undirleik við, þ.e.a.s. að söngskráin var „a capp- ella“ og að meginhluti hennar varð byggður upp af þjóðlögum. Fyrstu sex lögin voru þó frum- samin, Lýsti sól, eftir Jónas Helga- son, I rökkurró hún sefur, eftir Björgvin Guðmundsson, nýtt lag í alþýðulagastíl, Kveðja heimanað, eftir söngstjórann, Björgvin Þ. Valdimarsson, tvö lög eftir Jon Nordal, Heilræðavísur og Smávinir fagrir, og Þú sem gafst mér þessa skál, sem Gunnar Reynir Sveinsson samdi við kveðskap Leirulækjar- Fúsa. Öll lögin nema það síðast- nefnda voru mjög vel sungin en það er eins og söngstjórinn hafi ekki fundið sig í þeim skemmtilega hryn- leik og raddfleygum, sem einkennir kórverk Gunnars og má alls ekki syngja „beint af augum“, en dvelja verður við hér og þar, svo sniðugar hrynhugmyndirnar verði lifandi leikur. Það sem eftir lifði tónleikanna voru eingöngu sungin þjóðlög. Kindur jarma í kofunum, í raddsetn- ingu söngstjórans, var um margt skemmtilega unnin en hefði mátt vera sungin í örlítið breytilegum hraða, til að leggja áherslu á fjöl- breytileikann í úrvinnslu þessa stutta en sérkennilega þjóðlags. Raddsetningar Hjálmars H. Ragnarssonar á fjórum íslenskum þjóðlögum, sem eru einfaldar en mjög skemmtilega unnar, voru ekki alls kostar vel fluttar og kemur þar til skjlningur söngstjórans. Til að nefna dæmi var Stóðum tvö í túni, sem er eitt af sárustu ástarkvæðum íslenskum, sungið allt að því rudda- lega og sá virðuleiki, sem má vera ÆVIi\Tfj kRABÖjf^C^ 4^JMILINU STU]*GUm da starfsári okkar bjóðum við upp á fjölbreytta og vandaða undir stjórn reyndra leiðbeinenda: Reiðnámskeið, íþróttir, leiki, sveitastörf, siglingar, sund, kvöldvökur o.fi. VERÐ: I I tilefni þjóðarsáttar höldum við verðinu óbreyttu frá því í fyrra: 1 vika kr. 15.800, 2 vikur kr. 29.800. Staðfestingargjald fyrir 1 viku kr. 5.800, fyrir 2 vikur kr. 9.800. Systkinaafsláttur: 1 vikakr. 1.200, 2 vikur kr. 2.400. TÍMABIL: 2. júní - 8. júní, 1 vika 9. júní - 15. júní, 1 vika 16. júní - 22. júní, 1 vika 23. júní - 29. júní, 1-2 vikur 29. júní - 6. júlí, 1 vika 7. júlí - 13. júlí, 1 vika 14. júlí - 20. júlí, 1 vika 21. júlí - 27. júlí, l-2vikur 27. júlí - 2. ágúst, 1 vika 5. ágúst - 11. ágúst, 1 vika 11. ágúst - 17. ágúst, 1 vika Innritun fer fram á skrifstofu SH Verktaka, Stapahrauni 4, Hafnarfirði. Samkort SIMI 65 22 21 p V/SA —> y ■m yfir grafskrift Sæmundar Klemens- sonar, var látinn víkja fyrir óþarf- lega miklum styrk. Fjögur sænsk þjóðlög voru ágæt- lega sungin en þau hefði öll mátt syngja á frummálinu, því hvorki er þar um mikinn skáldskap að ræða eða merkilegar þýðingar. Ung- verskt þjóðlag, í útsetningu Ljaos Bardos, var þokkalega sungið fram- anaf en batnaði er á leið. Tónleikunum lauk með þremur negrasálmum sem voru í heild ágætlega sungnir. Skagfirska söng- sveitin hefur undir stjórn Björgvins Þ. Valdimarssonar náð því að telj- ast með betri kórum hérlendis og var söngur kórsins í heild mjög mótaður, samvirkur, jafnvel þar sem deila má um túlkun og út- færslu á einstaka lögum. Til að nefna dæmi þá var Lýsti sól mjög vel flutt og eftirtektarvert að Björg- vin hefur lagt áherslu á að eyða þeim leiða vana hjá íslenskum söng- mönnum, sem margir kórstjórar virðast ekki heyra, að enda tón- hendingu með áherslu á síðasta eða síðara atkvæði orða t.d. einsog í Ránarklæð-i, næð-i, fæð-i og heilla- kvæð-i. Þrátt fyrir fáar karlraddir var hljómur kórsins góður og aðeins á efsta tónsviðinu var hægt að merkja ofstyrk kvenraddanna. Óperutónleikar Tónlist Ragnar Björnsson Óperutónleikar, gulir, rauðir, grænir eða bláir, á vegum Sin- fóníuhljómsveitar íslands voru haldnir í Háskólabíói föstudaginn 3. maí. Tenór á besta aldri var sóttur til lands tenóranna, Ítalíu, að vísu kvefaður á ítaiskan mæli- kvarða en söng þó hveija aríuna á fætur annarri eftir stórsnillinga 'ítölsku óperunnar og var Puccini þó í miklum meirihluta. Kvefið urðum við Frónbúar lítið varir við enda illu vanir í þeim efnum, það var þá helst að söngvarinn, sem heitir Giorgio Tieppo, minnti okkur stöðugt á kvefið sitt með snjöllum tilburðum þar að lút- andi. Tieppo breytti um val á aríum á staðnum að því er virtist og að öllum líkindum vegna kvefsins, en tók svo aðrar sem venjulega eru dæmdar erfiðari eins og t.d. er hann sleppti „ Amor ti vieta“ úr „Fedora" en söng svo „Nescon dorma“ úr Turandot rétt á eftir sem aukalag. Tenór- um virðist allt mögulegt, jafnvel að syngja eins og englar kvefað- ir. Ekki er því að neita að Tieppo hefur glæsilega lýrisk-dramat- íska tenórrödd, sem virðist að ítalir og Skagfirðingar fái stund- um í vöggugjöf. Hvernig minni söngvarinn hefur aftur á móti skal ósvarað, en hann virtist styðjast allan tímann við nótna- blöð, jafnvel „O sole mio“ vogaði hann ekki að syngja blaðlaust og söng hann það þó tvisvar. Stundum hleypur kvefið reyndar í minnið, en nokkur móðgun verður þó að teljast við áheyrend- ur að stafa sig á þennan hátt fram úr aríunum. Aríurnar áttu misvel við raddgerð Tieppo, sem eðlilegt er, og mest vantaði á aríurnar úr „Turandot", þar þarf miklu meira til. Ekki þurfti Ti- eppo að kvarta undan undirtekt- um áheyrenda sem bravóuðu og húrrahrópuðu, ekki áttaði ég mig Tieppo Robin Stapleton þó á hvort undirtekir þessar voru fyrir listrænan flutning eða bara háu nóturnar, eða átti kannski stjórnandinn Robin Stapleton eitthvað af þessum bravóum, en hann var líka númer á pallinum. Inngangur tónleikanna var for- leikurinn að „Valdi örlaganna" (Verdi) sem var vel útfærður bæði af hljómsveit og stjórnanda og yfirleitt var samvinna stjórn- anda og söngvarans góð, einnig þegar söngvarinn þurfti að minna á kvefið í sér, þá tók stjórnand- inn fullan þátt í þeim leik og á stundum jaðraði sú samvinna þeirra við að verða að grínatriði á leiksviði. í forspili 3. þáttar óperunnar „Manon Lescaut“ léku þær Bryndís Halla og Helga Þór- arins einleiks-strófur, sem ski- luðu sér ágætlega, sama má segja um einleik Jóns Sigur- björnssonar á flautu í þætti úr Carmen-svítunni, sem hann lék mjög fallega en var ekki hans sök að hún var örlítið of hröð. Sama ástæða var e.t.v. fyrir því að það „festlega" vantaði í Tsjaj- kofskí-Polonesuna. Ekki var rétt að staðsetja kontrabassana á bak við hljómsveitina, þeir hreinleg náðu ekki gegn um hljóðmúrinn fyrir framan þá. Yfirdrifnar hreyfingar og uppstillingar stjórnandans urðu nokkuð þreyt- andi og truflandi á hljómlei- kapalli, en ganga frekar í hljóm- sveitargryfju þar sem hann er mikið til hulinn áhorfendum. Nýjar og notaðar vinnuvélar • Nýjar HYUNDAI beltagröfur, 20 og 27 tonn. • Nýjar HYUNDAI hjólagröfur 11,5 tonn. • Notuð CAT D4-H jarðýta (800 vinnustundir). • Notaður AVELING BARFORD ASG-13 veghefill. • Notuð FIAT-ALLIS hjólaskófla 20 tonn. • Notaðar50 Kwrafstöðvar. Getum útvegað með skömmum fyrirvara að utan flestar gerðir af notuðum vinnuvélum. Ráðgjöf - Sala - Þjónusta J^»gS Skútuvogur 12A- Reykjavík - S 82530

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.