Morgunblaðið - 07.05.1991, Síða 27

Morgunblaðið - 07.05.1991, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991 £7 Bandaríkin: Bush sneri aftur til starfa í gærmorgun Washington, Frankfurl og Singapore. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti, sem lagður var inn á sjúkrahús á laugardag vegna hjartsláttartruflana, útskrifaðist þaðan í gær og sneri til starfa sinna í Hvíta húsinu. Haiin sagði að það væri stórkostlegt að vera aftur byrjaður að vinna. Bush heiisaði upp á fréttamenn og starfsmenn Hvíta hússins í Rósa- garði forsetasetursins klukkan hálftíu í gærmorgun. Þá var aðeins liðinn tæpur klukkutími frá því að læknar Bethesda-hersjúkrahússins í Maryland lýstu yfir að þeir hefðu hætt við að beita raflostsmeðferð til að losa forsetann við hjartsláttar- truflanirnar, svokallað hjartaflökt, en ætluðu þess í stað að halda sig eingöngu við lyfjameðferð. Bush sagði að sér liði vel og lækn- ar hefðu ráðlagt sér að hefja smám saman líkamsæfingar á nýjan leik og gæta þess að ofgerá sér ekki. Bush var að skokka við sumarsetur sitt í Camp David þegar hann hneig niður og átti í erfiðleikum með að ná andanum. Ef forsetinn hefði þurft að gang- ast undir raflostsmeðferð og þar með svæfingu, hefði Dan Quale varafor- seti orðið að taka tímabundið við forsetaembættinu. Sá möguleiki olli miklum titringi á fjármálamörkuðum heimsins og endurvakti deilur um það hvort varaforsetinn væri fær um að vera aðeins einu hjartaslagi frá æðsta embætti Bandaríkjanna. Sam- kvæmt nýlegri skoðanakönnun töldu aðeins 19% aðspurðra að Quayle væri hæfur til að gegna forsetaemb- ættinu. Fréttirnar um heilsufar forsetans ollu því að dollarinn snarféll í verði gagnvart öllum helstu gjaldmiðlum í gærmorgun, en náði sér aftur á strik síðdegis. „Markaðirnir eru ekki hrifnir af Dan Quale,“ sagði gjaldeyr- issali í Frankfurt. Læknar forsetans sögðust mundu fylgjast náið með heilsufari hans á næstunni. Hann þyrfti í engu að breyta lífsstíl sínum — aðeins að halda aftur af sér í fáeina daga. EB-fréttir Reuter Fjárlög EB fyrir 1992 um 5.000 milljarðar 100.000 Zulumenn sendirgegn gegn ANC? Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, Framkvæmdastjórn Evrópu- bandalagsins (EB) samþykkti í síðustu viku tillögur að fjárlögum bandalagsins fyrir næsta ár. Sam- kvæmt tillögunum hækka fjárlög- in um 11,3% frá fjárlögum yfir- standandi árs. Gert er ráð fyrir að heildarútgjöld bandalagsins verði 65,2 milljarðar ECU eða tæplega fimm þúsund millj- arðar ÍSK. Hækkunin er töluvert hærri en hækkun fjárlaga meðal aðildarríkjanna, sem er 6,3% að jafn- aði og sömuleiðis yfír spám um vöxt þjóðartekna innan EB, sem er 7,1%. Rúmlega helmingur útgjalda banda- lagsins fer til landbúnaðarmála, eða 53%, en í krónum talið er hækkun framlaga vegna landbúnaðarstefn- unnar 10%. Rúmlega fjórðungur út- gjaldanna er vegna byggðastefnu bandalagsins en árið 1988 var ákveð- ið að tvöfalda framlög til þess mála- flokks innan fimm ára. Lagt er til að framlög til rannsókna og vísinda- starfsemi verði aukin að mun og við blasir að þróunaraðstoð til ríkja utan bandalagsins mun ekki aukast um- talsvert. Framkvæmdastjórnin á götunni Ljóst er að framkvæmdastjórn EB verður að rýma það húsnæði sem hún hefur til umráða á næsta ári. Byggingin Berlaymont var byggð á þeim tíma er asbest þótti hið gagn- legasta byggingarefni. Seinni tíma rannsóknir hafa hins vegar staðfest hið gagnstæða og byggingin er talin óhæf sem vinnustaður. Ekki er ljóst hvort húsið verður endurbyggt eða rifíð til grunna en það ræðst af samn- ingum framkvæmdastjórnarinnar við ■ BRUSSEL - Fram- kvæmdastjórn Evrópubandalagsins hefur lagt bann við samvinnufyrir- tæki 17 evrópskra sjónvarpsstöðva um íþróttafréttir, Eurosport, og voru síðustu sendingar á sunnudag. Samstarfið er talið stangast á við lög bandalagsins um frjálsa sam- keppni. í fréttatilkynningu frá Sam- bandi evrópskra sjónvarpsstöðva er lokunin hörmuð og sagt að sam- bandið vænti þess að hægt verði að hefja sendingar aftur síðar. 60 milljónir áhorfenda hafa fylgst með útsendingunum er notið hafa fjár- hagslegs stuðnings fjölmiðlafyrir- tækis Ruperts Murdochs, News Int- ernational. fréttaritara Morgunblaðsins. belgísk stjórnvöld um viðgerðir á byggingunni. Inkatha-frelsisflokkurinn í Suður-Afríku hótaði því um helgina að senda 100.000 Zulu-menn gegn fylgis- mönnum Afríska þjóðarráðsins (ANC) eftir að lögreglan hafði ráðist á tvö gistiheimili farandverkamanna úr röðum Zulu-manna í grennd við Jóhannesarborg og gert vopn þeirra upptæk. ANC hefur sakað Inkatha um að hafa átt upptökin að átökum þessara stríðandi fýlkinga, sem hafa kostað 1.500 manns lífið á svæð- inu frá því í ágúst, og haldið því fram að Zulu-mennirnir njóti stuðnings lögreglunnar. Sextán blökku- menn biðu bana í átökum fylkinganna í grennd við Jóhannesarborg í gær og á myndinni sjást lögreglu- menn við lík eins þeirra. Sovétríkin: Rússneskar námur færðar undan stj órninni í Kreml Gorbatsjov varar við nýju, köldu stríði dragi úr samvinnu Sovétmanna og vestrænna ríkja Moskvu. Reuter. MIKHAIL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, undirritaði í gær samn- ing við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, um að rússneskar kolanám- ur skyldu falla undir Rússlandsstjórn en ekki sovétstjórnina eins og hingað til. Var það eitt af meginskilyrðum kolanámamanna fyrir að hætta verkföllum, sem staðið hafa í tvo mánuði. í annan stað varaði Gorbatsjov Vesturlandamenn við að efast um framgang „per- estrojkunnar" og sagði, að færi samvinnan við Sovétmenn út um þúfur væri hætta á nýju, köldu stríði. „Við sjáum nú fyrir endann á að þeir tækju aftur upp vinnu á verkföllum námamanna," sagði Jeltsín á rússneska þinginu í gær þegar Gorbatsjov hafði undirritað samning um, að námurnar í Síberíu, Rostov og Komí skyldu hér eftir heyra undir Rússlandsstjórn. Ætl- uðu verkfallsmenn að ræða. málin í dag, þriðjudag, og var búist við, morgun. Þykir Jeltsín hafa unnið mikinn sigur í þessu máli en hann lofaði ekki aðeins, að námurnar yrðu færðar frá alríkisstjórninni, heldur einnig, að þær fengju efna- hágslega sjálfstjórn ogyrði hugsan- lega komið í einkaeigu eða í hendur námamönnum sjálfum. Þá gaf hann fyrirheit um, að námamenn fengju að ráðstafa 80% þess gjaldeyris, sem fengist af útflutningi. Að öðru leyti hefur samningurinn þau áhrif, að kolamálaráðuneyti alríkisstjórnarinnar verður nú ekki nema svipur hjá sjón en það er stefna Jeltsíns og umbótasinna að draga sem mest úr miðstjórnarvald- inu. Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch var gestur Gorbatsjovs í Kreml á sunnudag og við það tæki- færi sagði sovétforsetinn, að Vest- urlönd yrðu að átta sig á, að það tæki sinn tíma fyrir „perestrojkuna" eða umbótastefnuna að skila ár- angri. Gorbatsjov hefur verið harð- lega gagnrýndur í Sovétríkjunum fyrir að taka afstöðu með flokknum, hernum og harðlínumönnum og vegna þess nýtur hann ekki lengur sama stuðnings á Vesturlöndum og áður. Lét Gorbatsjov orð um það falla við Murdoch, að þess sæjust merki, að Bandaríkjastjórn væri „að endurmeta afstöðuna" til Sovétríkj- anna. „Ef það glatast, sem áunnist hefur í tíð Reagans og Bush, er hætta á, að heimurinn verði vitni að nýju, köldu stríði," sagði Gorb- atsjov. íþróttavörur í úrvali Dæmi um verð: Fótboitaskór - verð frá kr. 1.990,- íþróttaskór m/frönskum lás - verð frá kr. 1.990,- íþróttagallar- verð frá kr. 3.995,- »humaiéH? SPORTBÚÐIN ÁRMÚLA 40, SÍMI 83555

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.