Morgunblaðið - 07.05.1991, Side 29

Morgunblaðið - 07.05.1991, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991 28 Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags íslands aðstoðaði við gróður- höfðu þegar séð á íslandssýningu í Tórínó fyrir tveimur árum. Síðan var Ítalíuforseta afhent fyrsta ein- tak íslensk-ítölsku og ítölsk- íslensku orðabókarinnar sem ný- lega var gefin út . Cossiga var sæmdur heiðurs- doktorsnafnbót við lagadeild Há- skóla íslands. Athöfnin fór fram í Háskólabíó og við það tækifæri gaf Ítalíuforseti Háskólabókasafni um 700 ítalskar bækur, og til- kynnti að hann myndi ennfremur senda lektor í ítölsku til Háskóla íslands. Að lokinni athöfninni í Háskólabíó fór Cossiga í Höfða Jossiga þar sem borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson og kona hans, frú Astríður _ Thorarensen tóku á móti honum. Á jaugardags- kvöld hélt forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, kvöldverð- arboð á Hótel Sögu til heiðurs ít- alíuforseta. Francesco Cossiga hóf sunnu- daginn á að fara til kaþólskrar messu í Landakotskirkju, þar sem hann las sjálfur guðspjall dagsins. Hann gekk til altaris og að lokinni guðsþjónustunni sat hann kaffi- samsæti í samkomusal safnaðar- ins. Að því loknu fór Ítalíuforseti, ásamt forseta íslands, í Þingvalla- sveit þar sem þau gróðursettu hvort sína birkiplöntuna í Vina- skógi. Cossiga virtist afslappaður og á Þingvöllum, þegar ítalskir fréttamenn gerðu tilraunir til að fá álit hans á hinum ýmsu vanda- málum ítalskra stjórnmála, bað Cossiga þá að líta í kringum sig: „Horfið í kringum ykkur! Þarna varð elsta þing Evrópu til,“ sagði hann meðal annars og reyndi að komast hjá því að ræða ítölsk inn- anríkismál, sló á léttar nótur og vitnaði í heimspekingana Kant, Pascal og Descartes. í Þingvallakirkju rakti Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður sögu Þingvalla. Áð því loknu hélt Coss- iga til Reykjavíkur þar sem Davíð Oddsson forsætisráðh^ra hélt hádegisverðarboð á Þingholti til heiðurs forsetanum. Síðdegis á sunnudag lauk hinni opinberu heimsókn er forsetinn hélt til Bandaríkjanna með þotu ítalska flughersins. Davíð Oddsson, forsætisráðherra og borgarstjóri Reykjavíkui', Franc- esco Cossiga, forseti Italíu, og Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, á tröppum Höfða en þar hélt borgarstjórinn í Reykjavík Ítalíufor- seta boð á laugardag. 700bækur og lektor í ítölsku FRANCESCO Cossiga færði Háskólabókasafni uni 700 ítalskar bækur i heimsókn sinni um síðustu helgi. Hann til- kynnti ennfremur að hann hyggðist senda hingað til lands lektor sem annast myndi ítölskukennslu við Háskóla ís- lands. „Þetta er höfðingleg gjöf og ég þakka Ítalíuforseta og ítölsku þjóðinni stuðninginn," sagði dr. Sigmundur Guðbjarnarson Há- skólarektor í samtali við Morgun- blaðið. Þór Whitehead deildarfor- seti heimspekideildar Háskólans sagðist eiga von á að kennsla í ítölsku gæti hafist haustið 1992. „Þetta * eru ákaflega ánægjuleg tíðindi, því ítalska er eina höfuð- tungan sem ekki hefur verið kennd við Háskólann. Ég lít á þessa gjöf forsetans sem lið í að auka menn- ingartengsl milli þjóðanna,“ sagði hann. Hann sagði að deildin hefði árangurslaust óskað eftir því á undanförnum árum við íslensk stjórnvöld að fá lektorstöðu í ítölsku. • Þór sagði að bókagjöf forsetans yrði undirstaðan í itölskukennsl- unni. Síðastliðin þijú ar hefur end- urmenntunardeild HÍ staðið fyrir ítölskunámskeiðum sem um 300 manns hafa sótt, en ekki hefur verið hægt að læra itölsku til BA-prófs. Frá blaðamannafundi Ítalíuforseta og utanríkisráðherra íslands og Ítalíu. Á myndinni eru talið frá vinstri: Jón Baldvin Hannibalsson, Francesco Cossiga og Gianni De Michelis. Gianni De Michelis utanríkisráðherra Ítalíu: Styðjum sérkröfur Islend- inga 1 sjávarútvegsmálum GIANNI De Michelis utanríkisráðherra Ítalíu, segir ítali hafa fullan skilning á sérkröfum Islendinga i sjávarútvegsmálum gagnvart Evr- ópubandalaginu. Lýsti hann yfir stuðningi ítala við sjónarmið íslend- inga. De Michelis kom hingað til Iands á laugardag í fylgd með ít- alíuforseta og átti fund með Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráð- herra. Ræddu þeir meðal annars stöðuna í samningaviðræðum Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) og Evrópubandalagsins (EB) um myndun evrópsks efnahagssvæðis (EES). De Michelis tilkynnti einnig að ítalir hyggjast opna sendiráð í Reykjavík á næstu mánuðum. „Við styðjum Islendinga og höf- um fullan skilning á sérkröfum ykkar í þessu máli,“ sagði Gianni De Michelis í samtali við Morgun- blaðið á laugardag. „Fiskveiðar eru undirstaða íslensks efnahagslífs og þegar 18 þjóðir gera með sér samn- ing, verður hann að tryggja að allar viðkomandi þjóðir hafi hag af samn- ingnum. Þetta viðhorf er í samræmi við afstöðu okkar í viðræðum milli EB og EFTA. Lönd í Suður - Evr- ópu munu til dæmis njóta góðs af stuðningi EFTA í þróunarstarfi í viðkomandi löndum. Eins munu lönd í Austur - Evröpu njóta góðs, í landbúnaðarmálum, af opnu efna- hagssvæði í öðrum Evrópulöndum. Fiskimið Islendinga eru eina auð- lind þjóðarinnar og því þykir okkur réttlátt að styðja ísland í sérkröfun- um sem þeir hafa lagt fram. Ég vona að samkomulag náist fyrir lók ársins þar sem tillit er tekið til sjón- armiða íslendinga í sjávarútvegs- máluin." Á blaðamannafundi sem forseti Italíu og utanríkisráðherrar íslands dg Ítalíu héldu síðdegis á laugardag sagði utanríkisráðherra Italíu að hann vonaðist til að á ráðherra- fundi EB- og EFTA-ríkjanna síðar í mánuðinum myndu menn reyna að ná samkomulagi í ljósi þess hversu mikilvægur samningurinn um evrópska efnahagssvæðið væri. Allir yrðu hins vegar að_ gefa eitt- hvað eftir. Sagði hann ítali munu leggja mikla áherslu á það við Spán- veija, í ljósi hins nána sambands ríkjanna tveggja, að þeir myndu ekki láta málið stranda á þessu eina ágreiningsefni. Um þá ákvörðun ítalskra stjórn- valda að opna sendiráð í Reykjavík sagði De Miehelis við Morgunblað- ið: „Við höfum hingað til haft sam- eiginlegt sendiráð fyrir ísland og Noreg og hefur sendiherrann haft aðsetur í Osló. Er ísland eina Evró- puríkið þar sem ekki er starfrækt ítalskt sendiráð. Við hyggjumst opna sendiráð hér á næstu mánuð- um og viljum með því undirstrika þá vináttu sem myndast hefur milli þessara tveggja þjóða.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.