Morgunblaðið - 07.05.1991, Side 39

Morgunblaðið - 07.05.1991, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991 39 HJÁ SIMPSON Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Barnaleikur 2 („Child’s Play 2“). Sýnd í Laugarásbíói. Leik- stjóri: John Lafia. Aðalhlutverk: Alex Vincent, Jenny Aqutter og Brad Dourif talar fyrir brúðuna. Bandaríkin. 1990. Þær þurfa ekki að vera merki- legar bandarísku bíómyndirnar til að geta af sér framhald. Þetta á sérstaklega við um hryllingsmynd- ir sem jafnvel ná tölunni átta áður en þær deyja drottni sínum. Barna- leikur 1 var ekki beysinn hryllir og Barnaleikur 2 er það ekki held- ur. Það hefur eitthvað að gera með aðalpersónuna er ég viss um - morðóða dúkku. Hún einhvern veginn skelfir mann skelfilega lítið. Dúkkan er andsetin af fjölda- morðingja og þótt sá ágæti Brad Dourif (Særingamaðurinn) ljái henni öfluga rödd sína nægir það ekki til að hræða. Efnið er máski nýstárlegt en leikstjórinn, John Lafía, sem gerði margt gott fyrir Bláu eðluna hans Sigurjóns Sig- hvatssonar og Propaganda Films, beitir lítt nýstárlegum brögðum til að vekja ótta. Gamalkunnar þrum- ur og eldingar þjóta um himininn, gleiðhornslinsan skapar óttalegt andrúmsloft og hvert gabbið rekur annað áður en alvöruhrekkurinn 'kemur. Hrollurinn er í hæfilegu hlut- falli við spaugið eins og títt er um hryllingsmyndir fyrir unglinga- markaðinn en heildaráhrifin eru harla lin. Dólgslegur dúkkuhúmor- inn fór þó vel oní bandarísk ung- menni því myndin gekk ágætlega vestra. Hinn léttlyndi spaugln-yllir kem- ur best fram í lokaatriðinu sem er líflegasti hluti myndarinnar en það fer fram í dúkkuverksmiðjunni sjálfri. Þar er gert af alvöru út á grínið með tækjum og tólum dúkkugerðarinnar. Annare er söguþráðurinn þessi að drengurinn litli úr númer eitt er nú tekinn í fóstur hjá Simpson- fjölskyldunni (já, Simpson) á með- an móðir hans er að jafna sig eft- ir fyrri myndina en hin andsetna dúkka er síst dauð og reynir morð- óð sál hennar sem fyrr að komast yfír í drenginn. Snáða gengur illa að sannfæra fólk um að hann sé ekki valdur að óhöppum og dauðsföllum í ' kringum sig heldur bévuð dúkkan en tekst það svona álíka vel og myndinni að sannfæra okkur um að nokkurt vit sé í sögunni. Daníel Magnússon ■ DANÍEL Magnússon opnar sýningu í Gallery Westlund í Stokkhólmi 7. maí næstkomandi. Sýningin ber yfírskriftina Niður- staða landkönnunar. Verkin á sýn- ingunni eru unnin í handteipað eld- húsfílabein, tré og akríl með bland- aðri tækni. Verkin eru öll frá þessu ári. AEG FRÁBÆR BORVÉL Á FRÁBÆRU VERÐI PROLINE BEKKJALÍNAN I Pressubekkur með fótatæki, róður og mittisbekkur + 46 kg. lyftingarsett. Verð kr. 25.780.-stgr. kr. 24.490. • SNYST I BAÐAR ATTIR • M/HÖGGI • STIGLAUS HRAÐI • 380-W MÓTOR 4.995 KR. STGR. BRÆÐURNIR ©JORMSSOHHF Lágmúli 8-9 0 8760, 128 Reykjavik, island UMBOÐSMENN UM ALLT LAND FÉLAGSLÍF I.O.O.F. Rb. 4 = 140578 G.H. - 8 'h I □ EDDA 5991757 - Lf. I.O.O.F. 8 = 173588'A? = Lf. D ÚTIVIST GRÓFINMII • REYKMVÍK • SÍMIAÍMSVARI M606 Kvöldganga Miðvikud. 8. mai kl. 20.00: Vogavfk - Vogstapi, eitt af skemmtilegri útivistarsvæðum hér á suövesturhorninu, sem allt of fáir þekkja. Gengið upp Reyðarskarö og niður Brekku- skarð, áfram upp Rauöaskarö (Heljarskarð) og upp á Grimshól en þaðan er mjög gott útsýni ti! allra átta. Haldið til baka niður á ströndina um Urðarskarð, Einnig boðið uþp á Ijúfa strand- göngu. Að göngu lokinni verður kveíkt fjörubál, hlýtt á drauga- sögur frá þessu magnaða svæði og raddböndin þanin við harm- ónikuleik. Tvær góðar ferðir 9./10.-12. maí: Eyjaf jallajökull Gist í Básum. Þaðan verður gengin Hátindaleið yfir jökulinn og komið niður við Seljavelli. Þórsmörk - Giljagöngur M.a. farið í hin stórfenglegu gil, Bæjargil og Nauthúsagil, enn- fremur Merkurkerið, Selgil, Grýtugil og Smjörgilin. Þá verður einnig boðið upp á göngur upp á Morinsheiöi og yfir í Hamra- skóla ef farið er 9. maí. Jöklaför- unum fagnaö i Seljavallalaug, í Útivistarferð eru allir velkomnir. Sjáumst! Útivist. FERÐAFÉLAG ÍSIANDS ÖLDUGÖTU3S: 11798 19533 Hvítasunnuferðir Ferðafélagsins 17.-20. maí 1. Snæfellsnes - Snæfellsjök- ull. Jökullinn hefur sitt aðdráttar- afl en það er margt annað i boði m.a. strandgöngur, hellaskoðun i Purkhólahrauni einu hella- auðugasta hrauni landsins (nýtt), gengin verður ný leið af jöklinum. Silungsveisla, Gist á Görðum í Staðarsveit, ein besta svefnpokagisting á Snæfells- nesi. Stutt í sundlaug. Matsala á staðnum. 2. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs- skála, Langadal, en þar er að- staðan ein sú þesta í óþyggðum. Gönguleiðir við allra hæfi. Það hefur vorað óvenju snemma i Mörkinni. 3. Fimmvörðuháls - Mýrdals- jökull. Jöklaferð á skiðum. Ferð að hluta sameiginleg Þórsmerk- urferðinni. Gist i Þórsmörk. 4. Öræfajökull (Hvannadals- hnjúkur) - Skaftafell. Því ekki að reyna að sigra hæsta fjall landsins. Leiðbeint í jöklatækni áöur en lagt er upp. Gönguferð- ir um þjóðgarðinn. 6. Skaftafell - Öræfasveit - Jökulsárlón. Göngu- og ökuferð- ir. M.a. farið um nýju göngu- brúna á Morsá og gengið i Bæj- arstaðaskóg og jafnvel í hina litríku Kjós. Svefnpokagisting eða tjöld á Hofi. Í Hvítasunnu- ferðum ættu allir að finna eitt- .hvað við sitt hæfi. Munið að fé- lagar fá afslátt i helgar- og lengri ferðirnar; skráið ykkur i Feröafé- lagið. Góð fararstjórn í öllum ferðum. Pantið tímanlega á skrifst. Öldugötu 3, 101 Reykjavík. Símar: 19533 og 11798. Fax: 11765. Uppstigningardagur 9. maí: 1. Kl. 10.30 Esja að norðan. 2. Kl. 13.00 Esja - Þverfells- horn. Árleg fuglaskoðunarferð Feröa- félagsins um Suðurnés verður laugardaginn 11. maí kl. 10.00. Fróðleg ferð. Þórsmerkuferð um næstu helgi. Verið með! Ferðafélag íslands. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Miðvikudagur 8. maí kl. 20 Hellaferð í Hrútagjár- dyngju (gosbeltið neðanjarðar) Skoðaðir verða tveir hellar; Hell- irinn eini og HD-3. Hellirinn eini er mjög sérstæður, 170 m lang- ur og skorinn mörgum þverspr- ungum. 'h klst. gangur að hell- unum. Skemmtileg fjölskyldu- ferð. Munið vasaljós, húfu og góða skó. Fararstjóri frá Hella- rannsóknafélagi íslands. Brott- för frá Umferðarmiðstöðinni austanmegin (stansað á Kópa- vogshálsi og v. kirkjugarðinn Hafnarfirði). Ferðin er metin sem þriðji áfangi gönguferðar um gosbeltið, en fjóðri áfangi er næstkomandi sunnudag. Ferðagetraun. Fimmtudagur 9. maí kl. 13 a. Esja - Kerhólakambur - Vesturbrúnir. Góö fjatlganga. b. Verferð 2. Nes - Borg - Bakki. Létt fjöruganga í Hvalfirði og fjöruskoöun fyrir alla fjöl- skylduna. Munið fuglaskoðunarferð- ina um Suðurnes á laugar- daginn 11. maíkl. 10. Helgarferð í Þórsmörk 11.-12. maí Brottför laugard. kl. 8. Góð gist- ing i Skagfjörðsskála Langadal. Helgarferðir og á Eyjafjallajökul verða um mánaðamótin mai- júní. Ferðafélag íslands. Pressubekkur með fótatæki, róður, mittisbekkur og flug + 46 kg. lyftingarsett. Verð lcr. 31.995. - stgr. kr. 29.755. Einstakur sitjandi pressubekkur með fótatæki, róður og mittisbekkur + 20 kg. af lóðum. Verð kr. 35.420. - stgr. kr. 32.940. Fjölhæfur pressubekkur með fótatæki, róður, niðurtog, uppsetur o.fl. + 46 kg. lyftingarsett. Verð kr. 38.500. -stgr. kr. 35.420. -frískandi verslun- SKEIFUNNI 19 - SiMI 681717 - FAX 83064 Fullkomin, fjölhæf æfingastöð, þyngdir allt að 90 kg. Einföld í notkun, hentor öllum aldurshópum. Verð kr. 75.000. -stgr. kr. 69.750. UTTU FAGMENN VlSA ÞÉR VE6INN Tll BETRA llFS. HREYSTN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.