Morgunblaðið - 07.05.1991, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
39
HJÁ SIMPSON
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Barnaleikur 2 („Child’s Play
2“). Sýnd í Laugarásbíói. Leik-
stjóri: John Lafia. Aðalhlutverk:
Alex Vincent, Jenny Aqutter og
Brad Dourif talar fyrir brúðuna.
Bandaríkin. 1990.
Þær þurfa ekki að vera merki-
legar bandarísku bíómyndirnar til
að geta af sér framhald. Þetta á
sérstaklega við um hryllingsmynd-
ir sem jafnvel ná tölunni átta áður
en þær deyja drottni sínum. Barna-
leikur 1 var ekki beysinn hryllir
og Barnaleikur 2 er það ekki held-
ur. Það hefur eitthvað að gera með
aðalpersónuna er ég viss um -
morðóða dúkku. Hún einhvern
veginn skelfir mann skelfilega lítið.
Dúkkan er andsetin af fjölda-
morðingja og þótt sá ágæti Brad
Dourif (Særingamaðurinn) ljái
henni öfluga rödd sína nægir það
ekki til að hræða. Efnið er máski
nýstárlegt en leikstjórinn, John
Lafía, sem gerði margt gott fyrir
Bláu eðluna hans Sigurjóns Sig-
hvatssonar og Propaganda Films,
beitir lítt nýstárlegum brögðum til
að vekja ótta. Gamalkunnar þrum-
ur og eldingar þjóta um himininn,
gleiðhornslinsan skapar óttalegt
andrúmsloft og hvert gabbið rekur
annað áður en alvöruhrekkurinn
'kemur.
Hrollurinn er í hæfilegu hlut-
falli við spaugið eins og títt er um
hryllingsmyndir fyrir unglinga-
markaðinn en heildaráhrifin eru
harla lin. Dólgslegur dúkkuhúmor-
inn fór þó vel oní bandarísk ung-
menni því myndin gekk ágætlega
vestra.
Hinn léttlyndi spaugln-yllir kem-
ur best fram í lokaatriðinu sem
er líflegasti hluti myndarinnar en
það fer fram í dúkkuverksmiðjunni
sjálfri. Þar er gert af alvöru út á
grínið með tækjum og tólum
dúkkugerðarinnar.
Annare er söguþráðurinn þessi
að drengurinn litli úr númer eitt
er nú tekinn í fóstur hjá Simpson-
fjölskyldunni (já, Simpson) á með-
an móðir hans er að jafna sig eft-
ir fyrri myndina en hin andsetna
dúkka er síst dauð og reynir morð-
óð sál hennar sem fyrr að komast
yfír í drenginn.
Snáða gengur illa að sannfæra
fólk um að hann sé ekki valdur
að óhöppum og dauðsföllum í
' kringum sig heldur bévuð dúkkan
en tekst það svona álíka vel og
myndinni að sannfæra okkur um
að nokkurt vit sé í sögunni.
Daníel Magnússon
■ DANÍEL Magnússon opnar
sýningu í Gallery Westlund í
Stokkhólmi 7. maí næstkomandi.
Sýningin ber yfírskriftina Niður-
staða landkönnunar. Verkin á sýn-
ingunni eru unnin í handteipað eld-
húsfílabein, tré og akríl með bland-
aðri tækni. Verkin eru öll frá þessu
ári.
AEG
FRÁBÆR BORVÉL Á FRÁBÆRU VERÐI
PROLINE
BEKKJALÍNAN
I
Pressubekkur með fótatæki,
róður og mittisbekkur
+ 46 kg. lyftingarsett.
Verð kr. 25.780.-stgr. kr. 24.490.
• SNYST I BAÐAR ATTIR
• M/HÖGGI
• STIGLAUS HRAÐI
• 380-W MÓTOR
4.995
KR. STGR.
BRÆÐURNIR
©JORMSSOHHF
Lágmúli 8-9 0 8760, 128 Reykjavik, island
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. Rb. 4 = 140578 G.H. -
8 'h I
□ EDDA 5991757 - Lf.
I.O.O.F. 8 = 173588'A? = Lf.
D ÚTIVIST
GRÓFINMII • REYKMVÍK • SÍMIAÍMSVARI M606
Kvöldganga
Miðvikud. 8. mai kl. 20.00:
Vogavfk - Vogstapi, eitt af
skemmtilegri útivistarsvæðum
hér á suövesturhorninu, sem
allt of fáir þekkja. Gengið upp
Reyðarskarö og niður Brekku-
skarð, áfram upp Rauöaskarö
(Heljarskarð) og upp á Grimshól
en þaðan er mjög gott útsýni ti!
allra átta. Haldið til baka niður
á ströndina um Urðarskarð,
Einnig boðið uþp á Ijúfa strand-
göngu. Að göngu lokinni verður
kveíkt fjörubál, hlýtt á drauga-
sögur frá þessu magnaða svæði
og raddböndin þanin við harm-
ónikuleik.
Tvær góðar ferðir 9./10.-12. maí:
Eyjaf jallajökull
Gist í Básum. Þaðan verður
gengin Hátindaleið yfir jökulinn
og komið niður við Seljavelli.
Þórsmörk - Giljagöngur
M.a. farið í hin stórfenglegu gil,
Bæjargil og Nauthúsagil, enn-
fremur Merkurkerið, Selgil,
Grýtugil og Smjörgilin. Þá verður
einnig boðið upp á göngur upp
á Morinsheiöi og yfir í Hamra-
skóla ef farið er 9. maí. Jöklaför-
unum fagnaö i Seljavallalaug,
í Útivistarferð eru allir velkomnir.
Sjáumst!
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU3S: 11798 19533
Hvítasunnuferðir
Ferðafélagsins
17.-20. maí
1. Snæfellsnes - Snæfellsjök-
ull. Jökullinn hefur sitt aðdráttar-
afl en það er margt annað i boði
m.a. strandgöngur, hellaskoðun
i Purkhólahrauni einu hella-
auðugasta hrauni landsins
(nýtt), gengin verður ný leið af
jöklinum. Silungsveisla, Gist á
Görðum í Staðarsveit, ein besta
svefnpokagisting á Snæfells-
nesi. Stutt í sundlaug. Matsala
á staðnum.
2. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála, Langadal, en þar er að-
staðan ein sú þesta í óþyggðum.
Gönguleiðir við allra hæfi. Það
hefur vorað óvenju snemma i
Mörkinni.
3. Fimmvörðuháls - Mýrdals-
jökull. Jöklaferð á skiðum. Ferð
að hluta sameiginleg Þórsmerk-
urferðinni. Gist i Þórsmörk.
4. Öræfajökull (Hvannadals-
hnjúkur) - Skaftafell. Því ekki
að reyna að sigra hæsta fjall
landsins. Leiðbeint í jöklatækni
áöur en lagt er upp. Gönguferð-
ir um þjóðgarðinn.
6. Skaftafell - Öræfasveit -
Jökulsárlón. Göngu- og ökuferð-
ir. M.a. farið um nýju göngu-
brúna á Morsá og gengið i Bæj-
arstaðaskóg og jafnvel í hina
litríku Kjós. Svefnpokagisting
eða tjöld á Hofi. Í Hvítasunnu-
ferðum ættu allir að finna eitt-
.hvað við sitt hæfi. Munið að fé-
lagar fá afslátt i helgar- og lengri
ferðirnar; skráið ykkur i Feröafé-
lagið. Góð fararstjórn í öllum
ferðum. Pantið tímanlega á
skrifst. Öldugötu 3, 101
Reykjavík. Símar: 19533 og
11798. Fax: 11765.
Uppstigningardagur 9. maí:
1. Kl. 10.30 Esja að norðan.
2. Kl. 13.00 Esja - Þverfells-
horn.
Árleg fuglaskoðunarferð Feröa-
félagsins um Suðurnés verður
laugardaginn 11. maí kl. 10.00.
Fróðleg ferð. Þórsmerkuferð um
næstu helgi. Verið með!
Ferðafélag íslands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Miðvikudagur 8. maí kl. 20
Hellaferð í Hrútagjár-
dyngju
(gosbeltið neðanjarðar)
Skoðaðir verða tveir hellar; Hell-
irinn eini og HD-3. Hellirinn eini
er mjög sérstæður, 170 m lang-
ur og skorinn mörgum þverspr-
ungum. 'h klst. gangur að hell-
unum. Skemmtileg fjölskyldu-
ferð. Munið vasaljós, húfu og
góða skó. Fararstjóri frá Hella-
rannsóknafélagi íslands. Brott-
för frá Umferðarmiðstöðinni
austanmegin (stansað á Kópa-
vogshálsi og v. kirkjugarðinn
Hafnarfirði). Ferðin er metin
sem þriðji áfangi gönguferðar
um gosbeltið, en fjóðri áfangi
er næstkomandi sunnudag.
Ferðagetraun.
Fimmtudagur 9. maí kl. 13
a. Esja - Kerhólakambur -
Vesturbrúnir. Góö fjatlganga.
b. Verferð 2. Nes - Borg -
Bakki. Létt fjöruganga í Hvalfirði
og fjöruskoöun fyrir alla fjöl-
skylduna.
Munið fuglaskoðunarferð-
ina um Suðurnes á laugar-
daginn 11. maíkl. 10.
Helgarferð í Þórsmörk
11.-12. maí
Brottför laugard. kl. 8. Góð gist-
ing i Skagfjörðsskála Langadal.
Helgarferðir og á Eyjafjallajökul
verða um mánaðamótin mai-
júní.
Ferðafélag íslands.
Pressubekkur með fótatæki,
róður, mittisbekkur og flug
+ 46 kg. lyftingarsett.
Verð lcr. 31.995. - stgr. kr. 29.755.
Einstakur sitjandi pressubekkur
með fótatæki, róður og
mittisbekkur + 20 kg. af lóðum.
Verð kr. 35.420. - stgr. kr. 32.940.
Fjölhæfur pressubekkur með
fótatæki, róður, niðurtog,
uppsetur o.fl.
+ 46 kg. lyftingarsett.
Verð kr. 38.500. -stgr. kr. 35.420.
-frískandi verslun-
SKEIFUNNI 19 - SiMI 681717 - FAX 83064
Fullkomin, fjölhæf æfingastöð,
þyngdir allt að 90 kg.
Einföld í notkun, hentor öllum
aldurshópum.
Verð kr. 75.000. -stgr. kr. 69.750.
UTTU FAGMENN VlSA ÞÉR VE6INN Tll BETRA llFS.
HREYSTN