Morgunblaðið - 07.05.1991, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1991
31
47
fullir þeirrar vissu að fyrst hann
lagði þetta til þá værum við að
gera réttan hlut, slíkt var traust
okkar til hans, enda stóðust allar
hans ákvarðanir.
Hann var glaðvær maður að eðl-
isfari, grínisti, orðheppinn en um
leið mjög orðvar, og þær voru marg-
ar ánægjustundirnar sem við áttum
með honum bæði í starfi og utan
þess, og nú á þessum tímamótum
rifjast þessar stundir upp.
Það riijast einnig upp þegar horft
er aftur til baka að aldrei kom það
til að grín hans bitnaði á eða særði
einn eða neinn, slíkur maður var
Gísli.
Við kveðjum góðan vin og vinnu-
félaga með söknuði.
Við starfsfélagar hans vottum
eiginkonu hans og fjölskyldu okkar
dýpstu samúð.
Fyrir hönd starfsmanna ARD,
Hörður Jóhannesson.
Að hann hafi verið vinur vina
sinna, orðheldinn og laus við allan
hroka eru þau ummæli sem hvar-
vetna heyrðust þegar nafn Gísla
Björnssonar bar á góma manna í
milli. Og nú er hann farinn yfír
móðuna miklu til þeirra mikilvægu
starfa sem þar bíða okkar allra.
Það var 27. apríl sl. að Gísli varð
að láta undan þeim sjúkdómi sem
um nokkra hríð hafði tafið hann frá
daglegu vafstri. Hann hafði tekist
á við sjúkdóminn eins og honum
einum var lagið, rætt um afleiðing-
ar og það sem framundan var.
Hann vissi að hveiju hann gekk,
hvers var að vænta.
Leiðir okkar lágu saman þegar
ég hóf störf í lögregluliði Reykjavík-
ur 1972, en þá þegar var Gísli einn
af yfirmönnum í lögreglu. Hann
þekkti að vfsu aldrei muninn á því
að vera yfirmaður og undirmaður,
í hans huga vorum við bara.lög-
reglumenn allir saman, til starfans
ráðnir að vinna að sameiginlegu
markmiði, löggæslu.
Þó all-nokkur aldursmunur væri
með okkur Gísla, tókst fljótlega
mikill vinskapur á milli okkar og
fjölskyldna okkar. Réð þar nokkru
að saman fóru áhugamál. Einhver
hafði kallað hann náttúrubarn, og
var það sannmæli því hvergi undi
hann sér betur en úti í náttúrunni
eða á óðali sínu í Borgarfirði og
gilti þá einu við hvað var fengist,
vinna og leikur fóru oftast saman.
Samneyti við fjölskylduna, leikur
með barnabörnunum, Gísli nánast
endurfæddist í hvert sinn er komið
var yfír Borgarfjarðarbrú. Hann
hefði átt skilið að njóta þess leng-
ur, en enginn ræður sínum nætur-
stað.
Þær voru ófáar ferðirnar sem
farnar voru í Sveinatungu með
Gísla og Systu. Það var nánast al-
veg sama hveiju synir okkar Sillu
þurftu að fórna til þess að komast
upp í Sveinatungu, þessar ferðir
höfðu algeran forgang. Þeir geyma
með sér ljúfar minningar um þessar
ferðir, sem ávallt voru fullar af
ævintýrum.
Gísli var mikill gæfumaður. Sjálf-
ur sagði hann mér fyrir örfáum
dögum, að sennilega væru fáir jafn
miklir gæfumenn og hann. Hann
hefði alla tíð haft góða samferða-
menn, og íjjölskyldu eins og hvern
dreymir um. Verið heilsuhraustur
mest alla sína ævi og náð að gera
flest það sem hann langaði til að
gera.
Að Gísli hafi verið slíkur gæfu-
maður, var ekki síst að þakka eigin-
konu hans, Elínu B. Magnúsdóttur,
sem var honum styrkur og stoð.
Sem klettur í úthafinu allt þar til
yfir lauk.
Missirinn er mikill, barnabörnin,
Elín og Hafdís, undra sig á því
hvar afi er. Afi sem alltaf átti tíma
aflögu handa þeim og var tilbúinn
að láta ljósið lýsa í myrkrinu.
Vinir fara og vinir koma, í minn-
ingunni áttum ég og fjölskylda mín
góðan vin. Ég trúi því að næst þeg-
ar ég geng um Sveinatunguland í
Borgarfírði fari ég ekki alveg einn.
Ég bið hinn hæsta höfuðsmið að
blessa minningu hans og veita eig-
inkonu hans, syni, dóttur og Qöl-
skyldu hans allri styrk í sorginni.
Þröstur
.Jón S. Halldórs-
son — Kveðjuorð
Það er oft lítið sem skilur á
milli lífs og dauða eins og við höf-
um enn einu sinni fengið að reyna
en nú kveðjum vin okkar og félaga
Jón S. Halldórsson, sem kvaddi
þennan heim á sviplegan hátt.
Við félagarnir aí BFÖ kynnt-
umst honum fyrir 12 árum þegar
hann tók þátt í ökuleikni félagsins
í fyrsta sinn. Hann vildi verða
betri ökumaður og ökuleiknin gaf
honum tækifæri til þess. Fljótlega
hafði hann lært nær alla þá tækni
sem góður ökumaður þarf að hafa
og þar sem markmið hans sem
bindindismanns og áhugamanns
um bætta umferðarmenningu fóru
saman við starf BFÖ fór hann
fljótlega að starfa fyrir félagið.
BFÖ fékk að njóta hugmynda-
auðgi hans og krafta. Hann tók
ýmis erfið verkefni að sér fyrir
félagið þar sem áhugi hans og
samviskusemi nutu sín. Alltaf var
hægt að leita til hans með erfið
og vandasöm mál.
Síðustu árin sat hann í stjórn
félagsins og er það m.a. honum
að þakka hversu vel ökuleiknin
sem félagið heldur á hveiju sumri,
hefur gengið vel. Hans fijóa hugs-
un kom viða fram í starfí félagsins
og er nú stórt skarð höggvið í
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
raðir okkar eftir hið sviplega frá-
fall Jóns.
Um leið og við vottum eiginkonu
hans, börnum, systkinum og for-
eldrum okkar dýpstu samúð, þá
viljum við þakka fyrir að hafa
fengið að kynnast Jóni, starfa með
honum og hafa notið starfskrafta
hans.
Stjórn Bindindisfélags
ökumanna
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
S.HELGASONHF
STEINSMHUA
SKEMMUVEGI48. SIMI76677
t
Elskulegur eiginmaður minn, faöir, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR H. SIGURJÓNSSON,
Hjaltabakka 4,
lést á Landspítalanum 3. maí.
Fyrir hönd vandamanna.
Inga Bergþórsdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EYJÓLFUR VILMUNDSSON,
frá Löndum, Grindavik,
Þórustíg 26, Njarðvik,
lést á Landspítalanum 30. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 10. maí
kl. 14.00.
Guðjón Eyjólfsson, Marta A. Hinriksdóttir,
Snorri Eyjólfsson, Ingileif Emilsdóttir,
Kristin Eyjólfsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
STEINÞÓRS MAGNÚSSONAR,
Stekkjarholti 20,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks A-deildar, Sjúkrahúss Akraness.
Sumarlína Jónsdóttir,
Súsanna Steinþórsdóttir, Jón Jóhannsson,
Ingibjörg Steinþórsdóttir, Jón Kr. Baldursson,
Jónína Steinþórsdóttir, Böðvar Ingvarsson,
Sigurður M. Steinþórsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför systur okkar, móður og ömmu,
FANNEYJAR ÁSDÍSAR BJÖRNSDÓTTUR,
Laugavegi 27a.
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunar- og starfsfólks á deild 14G
á Landspítalanum.
Aðstandendur.
t
Þökkum auösýnda vináttu og hlýhug við andlát og útför,
SKÚLA ÞÓRÐARSONAR,
Valsmýri 5,
Neskaupstað.
Ingibjörg Finnsdóttir, Þórður Þórðarson,
Anna Finnsdóttir,
Þórður, Finnur, Sturla og fjölskyldur.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem heiðruðu minningu
ÁSMUNDAR J. ÁSMUNDSSONAR
og sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför hans.
Hanna Helgadóttir,
Ragnhildur Ásmundsdóttir, Finnur P. Fróðason,
Sigrún Ásmundsdóttir, Guðbjartur Hannesson,
Helgi Ásmundsson, Ásmundur Páll Ásmundsson,
Magnús Þór Ásmundsson, Soffía G. Brandsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður og afa,
GÚSTAFS R. KRISTIANSEN
pípulagningamanns,
Stóragerði 28.
Þóra Kristiansen, Sverrir Einarsson,
Svandis Kristiansen, Gylfi Birgisson,
Davíð Bergþór Sverrisson,
Finnur Árni Sverrisson,
Einar Gústaf Sverrisson,
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir,
Birgir Gylfason,
Bergþóra Gylfadóttir.
t
Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma
okkar,
SIGRÚN GISSURARDÓTTIR,
Áifaskeiði 40,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 8. maí
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á minningarsjóð um
Guðmund Gissurarson, Sólvangi.
Kristján Steingrímsson,
Steingrímur Kristjánsson,
Margrét Ág. Kristjánsdóttir, Júlíus Hinriksson,
Gissur V. Kristjánsson, Dóra L. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við lát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
PÁLS SVEINSSONAR,
Miðleiti 3, Reykjavík.
Guðrún Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabarn.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur sam-
úð, hlýjar kveðjur og ómetanlega hjálp við fráfall og útför eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ERLU ÞORSTEINSDÓTTUR,
Þverholti 2,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við læknum og öðru starfsfólki lyfjadeild-
ar F.S.A. Guð veri með ykkur öllum.
Zóphonías Baldvinsson,
Svanur Elvar Zóphoníasson,
S. Ósk Zóphoníasdóttir, Karl Haraldsson,
Brynjar Zóphoníasson, Sólveig Hallsdóttir,
Guðbjörn Ólafur Zóphonfasson,
Baldvin Zóphoníasson
og barnabörn.