Morgunblaðið - 18.05.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 18.05.1991, Síða 1
64 SIÐUR B/LESBOK llO.tbl. 79. árg. LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991________________________________Prentsmiðja Morgnnblaðsins Júgóslavía: Átök í for- sætísráðinu Belgrad. Reuter. LEIÐTOGUM lýðvelda Júgó- slavíu tókst ekki að kjósa nýjan forseta á neyðarfundi í gær en Króatinn Stipe Mesic sagðist líta á sig sem löglegan forseta. Fund- ur forsætisráðsins leystist upp þegar hann og tveir aðrir fulltrú- ar þess stormuðu út vegna þess að Serbar og bandamenn þeirra komu í veg fyrir kjör Mesics. Forsetaráðið hafnaði útnefningu Mesics í forsetaembættið í at- kvæðagreiðslu á miðvikudag og er landið þess vegna forsetalaust og herinn án æðsta yfirmanns síns. Lýðveldin skiptast á um embætt- ið og Króatar hafa lýst yfir því að þeir muni segja sig úr Júgóslavíu ef Mesic verður ekki forseti. Hann sagðist hafa yfirgefið fundinn ásamt Janez Drnovsek frá Slóveníu og Vasil Tupurkovski frá Make- dóníu. Drnovsek sagði í viðtali við slóvenska útvarpið að þing lýðveld- isins myndi sennilega koma saman í dag og ræða hvort Slóvenar yrðu áfram í ríkjasambandinu. 'T" • . ' ■ " .. ■ • > - •'^._ .. • 'L" Grænfriðungar vilja stjórna fiskveiðunum Reuter Grænfriðungar hafa látið verða af hótun sinni um afskigti af fiskveiðum Norðmanna í Bar- entshafi. í fyrradag stöðvuðu þeir veiðar tog- arans Ingar Iversens með því að fleyta sér á stórum, uppblásnum hjólbarðaslöngum að trollinu og binda sig við það. Skýrðu grænfrið- ungar frá þessu í fréttatilkynningu í gær en þar segir einnig, að áhöfnin á „MV Greenpeace“ hafi veitt þvi athygli, að Ingar Iversen, sem er á rækjuveiðum, hafi fengið í trollið mikið af alls kyns aukaafla, þar á meðal karfa. Rússnesk verkalýðsfélög hafna banní víð verkföllmn Moskvu. Reuter. FORYSTUMENN Sambands óháðra verkalýðsfélaga í Rússlandi sögðust í gær ætla að sniðganga bann við verkföllum, sem Míkhail S. Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, hefur sett. Leiðtogar sam- bandsins segja að 60 milljónir Rússa séu í aðildarfélögum þess. Bannið var sett eftir níu vikna verkfall nokkur hundruð þúsunda kolanámamanna, en því lauk fyrr í mánuðinum eftir að samkomulag Finnar ósátt- ir við Stóra- beltisbrúna Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. FINNAR hafa stefnt Dön- um fyrir alþjóðadómstólinn í Haag vegna fyrirhugaðr- ar Stórabeltisbrúar milli Fjóns og Sjálands. Eru Finnar óánægðir með að hún verði ekki hærri en 65 metrar. Líklega eru vandfundin skip, sem eru hærri en 65 metrar fyrir ofan sjólínu en Finnar hafa engar venjulegar fleytur í huga, heldur olíubor- palla, sem geta verið allt að 200 metra háir. Eru slíkir pall- ar í smíðum í finnskum skip- asmíðastöðvum fyrir fyrirtæki í löndum, sem ekki liggja að Eystrasalti, og þess vegna þarf að draga þá langan veg. Telja Finnar, að með því að hafa brúna ekki hærri en 65 metrar sé verið að hindra eðli- lega umferð og viðskipti. hafði náðst um að námurnar yrðu færðar undir yfirstjórn stjórnvalda í rússneska lýðveldinu. „Við getum engan veginn fallist á slíkar aðgerðir,“ hafði fréttastof- an TASS eftir ígor Klotsjkov, leið- toga verkalýðssamtakanna. „Bönn lækna engar meinsemdir. Þau verða aðeins til þess að þær leggj- ast enn dýpra.“ Samband óháðra verkalýðsfélaga nær til verka- manna í öllum atvinnugreinum þessa víðáttumikla Sovétlýðveldis, meðal annars í orkuiðnaði og námavinnslu. Samkvæmt nýrri neyðaráætlun í efnahagsmálum, sem Gorbatsjov hefur lagt fram, verður gripið til ýmissa aðgerða til að auka fram- leiðslu. Fyrirtækjum verður meðal annars heimilað að ráðstafa tíunda hluta framleiðslu sinnar að eigin vild, geta til að mynda flutt hann út fyrir erlendan gjaldeyri. Kola- námamenn fá einnig hlut í arði. Þrátt fyrir verkfallsbannið hafa starfsmenn flugumferðareftirlits boðað verkfall á þriðjudag til að krefjast þess að kaup þeirra verði hækkað, orlofsdögum fjölgað og að þeir komist á eftirlaun fyrr en nú tíðkast. Þeir segjast leggja þessar kröfur fram að ráði lækna vegna hörmulegra mistaka, sem þeir hafi gert af völdum of rnikils vinnuálags og kostað hafi saklaust fólk lífið. „Við þörfnumst aðeins stuðnings þriðjungs starfsmanna helstu stjórnstöðva til að lama alla flugumferð yfir lofthelgi Sovétríkj- anna,“ sagði talsmaður stéttarfé- lags þeirra. Verkfallið gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir vest- ræn flugfélög, því flugvélar þeirra fara inn fyrir lofthelgi Sovétríkj- anna í beina fluginu milli Evrópu og borga í Austur-Asíu. Vladímír Stsjerbakov, aðstoðarforsætisráð- herra Sovétríkjanna, sagði að ríkisstjórnin myndi grípa til að- gerða til að binda enda á verkfall- ið ef af því yrði. • Sprenging varð í skrifstofu helstu samtaka sovéskra stjórnar- andstæðinga, Lýðræðislegs Rúss- lands, í Moskvu í fyrrinótt. Tals- maður samtakanna, Leoníd Bogd- anov, sagði að um tilræði hefði verið að ræða. Skrifstofan gjör- eyðilagðist en enginn varð fyrir meiðslum. Reuter Rústir aðalstöðva Lýðræðislegs Rússlands. Kona heldur á skadd- aðri mynd af Borís Jeltsín. Kúrdískt sjálf- sljórnarsvæði: Barzani segirerfið- asta hjall- annaðbaki Bagdad, London. Reuter. MASSOUD Barzani, einn af leiðtogum Kúrda, sagði í gær, að vel hefði miðað í viðræðunum við íraksstjórn þótt enn væri nokkuð í að formlegur samning- ur um kúrdískt sjálfstjórnar- svæði yrði undirritaður. Bresk- ur verkfræðingur hefur verið dæmdur í ævilangt fangelsi í írak fyrir njósnir og hótar breska stjórnin að sjá til, að ekki verði slakað á efnahags- þvingunum gagnvart landinu fyrr en honum hefur verið sleppt. „Enn er ósamið um margt en ég tel þó, að erfiðasti hjallinn sé að baki,“ sagði Barzani en viðræð- urnar við íraksstjóm hafa snúist mikið um kröfu Kúrda um yfirráð yfir borginni Kirkuk og olíulindun- um, sem þar eru. Fyrr í vikunni sagði annar leiðtogi Kúrda, Jalal Talabani, að líklega gæfu Kúrdar eftir olíuna gegn því að fá stjóm borgarinnar og héraðsins í sínar hendur. Þá vildu þeir einnig fá sinn skerf af fjárlögum ríkisins eða 20%, sem væri hlutfall Kúrda af íbúum íraks. Iraksstjórn hefur harðlega for- dæmt nærveru vestrænna her- manna í norðurhluta landsins og hún hefur einnig hafnað tillögu Breta um, að gæslulið frá Samein- uðu þjóðunum leysti þá af hólmi. Barzani kvaðst þó viss um, að ír- aksstjórn féllist að lokum á ein- hvers konar eftirlit af hálfu SÞ. Breskur verkfræðingur, Dougl- as Brand að nafni, sem var hand- tekinn þegar hann reyndi að flýja frá írak í september sl., hefur ver- ið dæmdur í ævilangt fangelsi fyr- ir njósnir. Hafa bresk stjórnvöld brugðist mjög harkalega við dóm- inum, sem þau segja vera skýlaust brot á ályktunum Sameinuðu þjóð- anna, og heita að sjá til, að efna- hagsþvingununum verði ekki létt fyrr en Brand hefur verið látinn laus. Bæði EB og EFTA viður- kenni sérstöðu Islendinga Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. HENNING Christophersen, einn af varaforsetum framkvæmda- stjórnar Evrópubandalagsins (EB), sagði í gær að forsenda þess að hægt sé að koma til móts við kröfur íslendinga í samningunum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) væri að bæði EB og aðild- arríki Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) viðurkenndu óum- deilanlega sérstöðu Islands. . Chvistophersen segir að ekki sé nóg að EB taki tillit til sér- stöðu Islendinga vegna yfirgnæf- andi hagsmuna í sjávarútvegi ef ekki sé jafnframt samkomulag innan EFTA um að íslendingar njóti sérkjara. Eins og kunnugt er hafa Norðmenn lagt aukna áherslu á mikla hagsmuni sína í útflutningi sjávarafurða til aðild- arríkja EB. Gro Harlem Brundt- land, forsætisráðherra Noregs, sagði við blaðamenn í Brussel eft- ir einkaviðræður við Jacques Del- ors, forseta framkvæmdastjórnar EB, fyrir skemmstu að ekki bæri síður að taka tillit til hagsmuna Norðmanna en íslendinga. Sjá EB-fréttir á bls. 21.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.