Morgunblaðið - 19.05.1991, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
111. tbl. 79. árg. SUNNVDAGUR 19. MAÍ 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
ROLAÐ UTIEITT
Morgunblaðið/RAX
Það er gaman að vera til þegar maður er lítill og fullur af fjöri.
Þá getur maður bara rólað sér allan daginn og þarf ekki að hafa
Viðræður Kúrda og Iraksstjórnar:
áhyggjur af einu eða neinu. Og það gerir ekkert til þótt það rigni
svolítið eða jafnvel mikið.
Samningur í aðalatriðum
um lýðræði og siálfstjórn
Bagdad. Reuter. ^ V—^
LEIÐTOGAR Kúrda sögðu í gær, að þeir hefðu náð grundvallarsamkomulagi við
íraksstjórn um lýðræðislega stjórnarhætti í landinu og sjálfstjórn Kúrda í norður-
hluta Iandsins. Væri nú aðeins ágreiningur um mörk sjálfstjórnarhéraðsins, einkum
hvað varðaði olíuborgina Kirkuk. Rúmur helmingur þeirra 440.000 íraka, flestir
Kúrdar, sem flýðu til Tyrklands, hefur snúið aftur til Iraks.
Gervitenn-
ur kæfa þjóf
56 ARA gamall spænskur þjófur kafnaði
í vikunni eftir að hafa gleypt fölsku
tennurnar sínar er hann var á flótta
undan konu, sem liafði staðið hann að
verki. Maðurinn kom á heimili konunnar
í Alicante, þóttist ætla að gera við
saumavél hennar og hljóp á brott með
18.000 peseta (um 9.000 ÍSK). Konan
veitti honum eftirför út á götu og í flýt-
inum gleypti hann tennurnar. Vegfar-
endur reyndu að ná þeim út úr honum
en án árangurs og þjófurinn dó áður
en hann komst á sjúkrahús.
Stelur skóm
í skjóli nætur
Lögreglumenn í borginni Kassel í
Þýskalandi leita nú ljósum logum að
manni sem situr fyrir konum og stelur
af þeim skónum. Hann hefur ráðist á
12 konur á aldrinum 20 til 40 ára. Sum-
ar þeirra fengu taugaáfall en flestar
brugðust við af rósemi. „Hann ræðst á
konur sem eru einar á ferð á kvöldin,
tekur þær úr skónum og hleypur út í
myrkrið," sagði Gerhard Dippmann,
rannsóknarlögregluþjónn í Kassel. .
„Hann hefur aðeins áhuga á skónum og
engum peningum hefur verið stolið."
Presturinn
vill byssuleyfi
Faðir Agostino Acireale, prestur á Sikil-
ey, segir bænirnar ekki duga sér til
verndar — hann vill fá byssu. Að sögn
lögreglunnar í bænum Valguarnera sótti
presturinn um byssuleyfi „af öryggisá-
stæðum". Dagblöð segja að Acireale,
hafi sótt um leyfið vegna þess að þjófar
hafi brotist inn í kirkjuna hans nokkrum
sinnum. En það eru ekki allir sáttir við
umsókn hans og hefur yfirmaður hans,
biskupinn af Enna, fengið allmörg nafn-
laus bréf þar sem kvartað er yfir henni.
Stakk af frá
85 köttum
Chessy Hawkins gafst upp í baráttu
sinni við heilbrigðisyfirvöld í Berkeley
í Kaliforníu í Bandaríkjunum i síðustu
viku. Þá yfirgaf hún hótel, þar sem hún
leigði herbergi, í fylgd fjögurra katta
og hefur ekki sést síðan. Eftir í herberg-
inu urðu hins vegar 85 kettir sem urðu
87 nokkrum dögum seinna þegar ein
læðanna gaut tveimur kettlingum. Kon-
an hélt því alltaf fram að hún ætti „ekki
nema“ 30 ketti en heilbrigðisyfirvöldum
fannst víst nóg um þann fjölda.
Massoud Barzani, helsti leiðtogi og samn-
ingamaður Kúrda í viðræðunum við íraks-
stjórn, efndi til blaðamannafundar í Bagdad
í gær og skýrði þar frá samkomulagsdrögun-
um, sem eru í 20 atriðum. Samkvæmt því
verður komið á fjölflokkakerfi í írak og
ftjálsar kosningar haldnar. Sagði hann, að
nú væri aðeins deilt um olíuborgina Kirkuk,
sem Kúrdar kreijast en íraksstjórn er treg
til að láta af hendi. Þar er unninn um fjórð-
ungur írösku olíunnar en Kúrdar hafa sjálfir
nefnt, að Iraksstjórn fái olíuna gegn því, að
Kúrdar fari með stjórn borgarinnar og hér-
aðsins að öðru leyti. Auk þess vilja þeir fá
sinn hlut í fjárlögum ríkisins í samræmi við
fólksfjölda eða 20%.
Sami Abdul-Rahman, einn kúrdísku leið-
toganna, sagði á fundinum, að íraksstjórn
hefði fullvissað Kúrda um, að þróunin í átt
til lýðræðis væri óafturkallanleg og Barzani
sagði, að í samningnum væri ákvæði um
almenna sakaruppgjöf, sem ætti að auðvelda
Kúrdum að setjast aftur að í sínum átthög-
um.
Saddam Hussein íraksforseti átti sjálfur
frumkvæði að viðræðunum við Kúrda og
virðist honum mikið í mun að semja við þá
til að geta bent á, að þar með hafi vestræn
ríki enga ástæðu til að vera með herlið í
Norður-írak. Fréttaskýrendur og erlendir
stjómarerindrekar í arabalöndum eru þó
fullir efasemda og finnst með mestu ólíkind-
um, að Saddam hyggist standa við samninga
við Kúrda og koma á lýðræði í Irak.
Tyrkneskir embættismenn sögðu í gær,
að af 440.000 kúrdískum flóttamönnum í
Tyrklandi væru 259.000 farnir til griðasvæð-
anna, sem hermenn bandamanna hefðu kom-
ið upp í Irak.
Ljóst er, að ógjömingur er að eyðileggja
eldflaugar og efnavopn íraka á 45 dögum
eins og kveðið er á um í vopnahlésskilmálun-
um, sem Sameinuðu þjóðirnar settu írökum.
I Irak eru nú 34 kjarnavopnasérfræðingar
frá SÞ en þeir segja í skýrslu til samtak-
anna, að íraskir embættismenn geri flest til
að torvelda þeim starfið.
Baráttan við Bakkis
r\
Viðhorf
almennings
samkvæmt
þjóðmóla-
könnunum
Félagsvísinda-
stofnunar
VERkEFH
NÝRRAR .■
RÍKISSTJORNAR
í HEIMSÓKN HJÁ
FRIÐARGÆSLU-
SVEITINNI í
GÓLANHÆÐUAA
C