Morgunblaðið - 22.05.1991, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
112. tbl. 79. árg.
MIÐVIKUDAGUR 22. MAI 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
70 ára afmælis
Sakharovs
minnst
Sovéskir stjórnmálamenn og
erlendir gestir minntust þess í
Moskvu í gær að 70 ár eru lið-
in frá fæðingu sovéska andófs-
mannsins og Nóbelsverðlauna-
hafans Andrejs Sakharovs.
Aðstoðarborgarstjóri Moskvu,
Sergej Stankíevítsj, afhjúpaði
minnismerki um friðarverð-
launahafann við húsið þar sem
hann bjó og andaðist í desemb-
er 1989. Ennfremur var sett
ráðstefna um mannréttinda-
mál, sem standa mun í viku.
Myndin er af ekkju Sakharovs,
Elenu Bonner, sem setti ráð-
stefnuna og fór hörðum orðum
um stefnu Míkhaíls Gorbatsjovs
Sovétforseta.
Mannskæðasta kosningabarátta í sögu Indlands:
Rajiv Gandhi bíður
bana í sprengjuárás
Nýju Delhí. Reuter.
RAJIV Gandhi, fyrrverandi forsætisráðherra Indlands, lét lífið í
sprengjutilræði í gær er hann var á ferð um ríkið Tamil Nadu í suður-
hluta landsins vegna þingkosninganna í landinu. Indverska fréttastof-
an PTI sagði að sprengja hefði sprungið er Gandhisteig út úr bifreið
sinni til að halda ræðu á kosningafundi. Hafði sprengjan verið falin
í blómvendi. Lík Gandhis var illa útleikið og fjórtán mamis til viðbót-
ar biðu bana í sprengjutilræðinu, þar á meðal tveir lífverðir hans, auk
þess sem tíu særðust. Lögreglan var með hámarks viðbúnað víðs veg-
ar um landið eftir tilræðið. Um 200 manns hafa beðið bana í kosninga-
baráttunni, sem er sú mannskæðasta í sögu landsins. Akveðið var í
gærkvöldi að fresta kosningunum til 12. júní.
Fréttastofan PTI sagði að
sprengjutilræðið hefði átt sér stað í
Sriperumpudur, um 40 km frá borg-
inni Madras í suðurhluta landsins.
Gandhi hefði verið á leiðinni að
ræðupúlti er sprengjan sprakk.
Fórnarlömbin lágu í blóði sínu í einni
kös og tókst lögreglunni að bera
kennsl á forsætisráðherrann fyrrver-
andi þótt lík hans væri illa útleikið.
Stór gígur, tíu metrar að þvermáli,
myndaðist í sprengingunni.
Samkvæmt heimildum innan lög-
reglunnar er hugsanlegt að sprengj-
an hafi verið fjarstýrð. Leikur grun-
ur á að tamílskir skæruliðar frá Sri
Lanka hafi tekið þátt í tilræðinu,
þar sem þeir hafa beitt slíkri aðferð.
Gandhi hafði sent friðargæslusveitir
til Sri Lanka til að freista þess að
binda enda á borgarastyrjöld í
landinu.
Lögreglan var með hámarks við-
búnað í Nýju Delhí og fleiri borgum
eftir tilræðið. Ramaswamy Venkat-
araman forseti og Chandra Shekhar
forsætisráðherra hvöttu Indveija til
að halda stillingu sinni. Óeirðir brut-
ust þó út í Madras er fregnir bárust
af tilræðinu.
Um 200 manns hafa týnt lífi í
óeirðum frá því kosningabaráttan
hófst fyrir sex vikum. Kosningarnar
hófust á mánudag og áttu að standa
í viku en þeim hefur nú verið frestað.
Að minnsta kosti 75 manns létu lífið
Reuter
Eiginkona Rajivs Gandhis, Sonia, ásamt vinnukonu sinni í gærkvöldi.
í óeirðum á fyrstu tveimur kjördög-
unum. Verst var ástandið í Bihar-
ríki og í Uttar Pradesh og hafa átök-
in ekki síst staðið um trúmál, einkum
Mengistu Eþíópíuforseti
segir af sér og flýr land
Addis Ababa. Reuter.
MENGISTU Haile Miriam, sem stjórnað hefur Eþíópíu með harðri
hendi undanfarin fjórtán ár, sagði af sér embætti forseta í gær
og flúði landið. Ríkisráðið, æðsta valdastofnun landsins, hvatti
uppreisnarmenn til að fallast þegar í stað á vopnahlé og sagði að
áform væru um að mynda bráðabirgðastjórn með aðild allra hreyf-
inga stjórnarandstæðinga. Talsmenn uppreisnarmanna brugðust
varfærnislega við fregninni um afsögn Mengistus en henni var
fagnað víða um heim. Allt var með kyrrum kjörum í höfuðborg-
inni, Addis Ababa.
hluta landsins, sagði að stríðið
myndi halda áfram þar til róttækar
breytingar yrðu gerðar á stjórn
landsins.
Sveitir uppreisnarmanna hófu
stórsókn í átt að Addis Ababa fyri
á árinu, hafa náð þremur héruðum
í vesturhluta landsins á sitt vald
og eru nú innan við 100 km frá
höfuðborginni.
milli hindúa og múslima, og stétta-
skiptinguna í landinu.
Gandhi var dóttursonur fyrsta
forsætisráðherra Indlands eftir sjálf-
stæði landsins, Jawarharlals Nehi-us.
Hann varð leiðtogi Kongress-flokks-
ins og forsætisráðherra fyrir sjö
árum eftir að lífverðir móður hans,
Indiru Gandhi, höfðu ráðið hana af
dögum. Yngri bróðir hans, Sanjay,
lést í flugslysi árið 1980. Gandhi
lætur eftir sig konu og tvö börn.
Morðið á Rajiv Gandhi var for-
dæmt víða um heim. John Major,
forsætisráðherra Bretlands, sagði
að mikil eftirsjá væri að Gandhi, sem
hefði verið „afar hugrakkur maður“,
en kvaðst þó telja að lýðræðið í
landinu væri ekki í hættu. George
Bush Bandaríkjaforseti sagði
hörmulegt að Gandhi skyldi hafa
látið lífið á þennan hátt.
Sjá „Gekk nauðugur til
leiks ...“ á bls. 29.
í tilkynningu frá stjórninni sagði
að Mengistu hefði sagt af sér til
að afstýra frekari blóðsúthelling-
um í landinu. Mengistu var óþekkt-
ur herforingi þegar herinn steypti
Haile Selassie keisara af stóli árið
1974 og í blóðugri valdabaráttu í
kjölfar byltingarinnar tókst honum
að hrifsa tii sín völdin í Iandinu
með kænsku og grimmd. Hann
kom á alræðiskerfi i anda Stalíns
árið 1977 og stóð fyrir þjóðnýtingu
á öllum sviðum atvinnulífsins. Enn-
fremur lét hann taka 10.000
manns, einkum vinstrisinnaða
námsmenn, af lífi. Valdatími hans
einkenndist af stöðugum stríðsá-
tökum, efnahagsþrengingum og
hungursneyðum. Hann fékk mikla
aðstoð frá öðrum kommúnistaríkj-
um, einkum á sviði hernaðar, en
honum tókst þó aldrei að bijóta
uppreisnarmenn í norðurhéruðum
landsins á bak aftur. Eftir hrun
kommúnismans í Austur-Evrópu
boðaði hann þó lýðræðis- og efna-
hagsumbætur.
Utvarpið í Addis Ababa sagði
að ríkisráðið beitti sér nú fyrir
tafarlausu vopnahléi milli stjórnar-
hersins og uppreisnarmanna og
myndun bráðabirgðastjórnar með
þátttöku allra hreyfinga stjórnar-
andstæðinga. Varaforseti landsins,
Tesfaye Gabre Kidan, myndi
gegna forsetaembættinu þar til ný
stjórn tæki við.
Ekki var vitað í gær hvar Meng-
istu myndi beiðast hælis. Óstað-
festar fregnir í Addis Ababa
hermdu þó að hann kynni að hafa
farið til Zimbabwe í sunnanverðri
Afríku. Mengistu er náinn vinur
Roberts Mugabe, forseta Zimbab-
we, og er sagður eiga þar búgarð.
Talsmaður erítreskra uppreisn-
armanna, sem beijast fyrir sjálf-
stæði héraðsins Erítreu í norður-
Pólski herinn
kallaður út
Um 600 pólskir hermenn
voru kallaðir út til að hreinsa
götur Varsjár í gær eftir sex
daga verkfall sorphreinsun-
armanna. Heilbrigðisyfirvöld
höfðu varað við „mikilli fjölg-
un flugna og meindýra, eink-
um rottna og músa,“ og far-
sóttum vegna rotnandi sorps
í borginni. Þetta er í fyrsta
sinn sem hermenn eru sendir
út á götur Varsjár frá því
kommúnistar settu herlög í
Póllandi árið 1981. Verkfalls-
mennirnir krefjast allt að
100% launahækkana.
Reuter