Morgunblaðið - 22.05.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 22.05.1991, Síða 1
80 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 112. tbl. 79. árg. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter 70 ára afmælis Sakharovs minnst Sovéskir stjórnmálamenn og erlendir gestir minntust þess í Moskvu í gær að 70 ár eru lið- in frá fæðingu sovéska andófs- mannsins og Nóbelsverðlauna- hafans Andrejs Sakharovs. Aðstoðarborgarstjóri Moskvu, Sergej Stankíevítsj, afhjúpaði minnismerki um friðarverð- launahafann við húsið þar sem hann bjó og andaðist í desemb- er 1989. Ennfremur var sett ráðstefna um mannréttinda- mál, sem standa mun í viku. Myndin er af ekkju Sakharovs, Elenu Bonner, sem setti ráð- stefnuna og fór hörðum orðum um stefnu Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta. Mannskæðasta kosningabarátta í sögu Indlands: Rajiv Gandhi bíður bana í sprengjuárás Nýju Delhí. Reuter. RAJIV Gandhi, fyrrverandi forsætisráðherra Indlands, lét lífið í sprengjutilræði í gær er hann var á ferð um ríkið Tamil Nadu í suður- hluta landsins vegna þingkosninganna í landinu. Indverska fréttastof- an PTI sagði að sprengja hefði sprungið er Gandhisteig út úr bifreið sinni til að halda ræðu á kosningafundi. Hafði sprengjan verið falin í blómvendi. Lík Gandhis var illa útleikið og fjórtán mamis til viðbót- ar biðu bana í sprengjutilræðinu, þar á meðal tveir lífverðir hans, auk þess sem tíu særðust. Lögreglan var með hámarks viðbúnað víðs veg- ar um landið eftir tilræðið. Um 200 manns hafa beðið bana í kosninga- baráttunni, sem er sú mannskæðasta í sögu landsins. Akveðið var í gærkvöldi að fresta kosningunum til 12. júní. Fréttastofan PTI sagði að sprengjutilræðið hefði átt sér stað í Sriperumpudur, um 40 km frá borg- inni Madras í suðurhluta landsins. Gandhi hefði verið á leiðinni að ræðupúlti er sprengjan sprakk. Fórnarlömbin lágu í blóði sínu í einni kös og tókst lögreglunni að bera kennsl á forsætisráðherrann fyrrver- andi þótt lík hans væri illa útleikið. Stór gígur, tíu metrar að þvermáli, myndaðist í sprengingunni. Samkvæmt heimildum innan lög- reglunnar er hugsanlegt að sprengj- an hafi verið fjarstýrð. Leikur grun- ur á að tamílskir skæruliðar frá Sri Lanka hafi tekið þátt í tilræðinu, þar sem þeir hafa beitt slíkri aðferð. Gandhi hafði sent friðargæslusveitir til Sri Lanka til að freista þess að binda enda á borgarastyrjöld í landinu. Lögreglan var með hámarks við- búnað í Nýju Delhí og fleiri borgum eftir tilræðið. Ramaswamy Venkat- araman forseti og Chandra Shekhar forsætisráðherra hvöttu Indveija til að halda stillingu sinni. Óeirðir brut- ust þó út í Madras er fregnir bárust af tilræðinu. Um 200 manns hafa týnt lífi í óeirðum frá því kosningabaráttan hófst fyrir sex vikum. Kosningarnar hófust á mánudag og áttu að standa í viku en þeim hefur nú verið frestað. Að minnsta kosti 75 manns létu lífið Reuter Eiginkona Rajivs Gandhis, Sonia, ásamt vinnukonu sinni í gærkvöldi. í óeirðum á fyrstu tveimur kjördög- unum. Verst var ástandið í Bihar- ríki og í Uttar Pradesh og hafa átök- in ekki síst staðið um trúmál, einkum Mengistu Eþíópíuforseti segir af sér og flýr land Addis Ababa. Reuter. MENGISTU Haile Miriam, sem stjórnað hefur Eþíópíu með harðri hendi undanfarin fjórtán ár, sagði af sér embætti forseta í gær og flúði landið. Ríkisráðið, æðsta valdastofnun landsins, hvatti uppreisnarmenn til að fallast þegar í stað á vopnahlé og sagði að áform væru um að mynda bráðabirgðastjórn með aðild allra hreyf- inga stjórnarandstæðinga. Talsmenn uppreisnarmanna brugðust varfærnislega við fregninni um afsögn Mengistus en henni var fagnað víða um heim. Allt var með kyrrum kjörum í höfuðborg- inni, Addis Ababa. hluta landsins, sagði að stríðið myndi halda áfram þar til róttækar breytingar yrðu gerðar á stjórn landsins. Sveitir uppreisnarmanna hófu stórsókn í átt að Addis Ababa fyri á árinu, hafa náð þremur héruðum í vesturhluta landsins á sitt vald og eru nú innan við 100 km frá höfuðborginni. milli hindúa og múslima, og stétta- skiptinguna í landinu. Gandhi var dóttursonur fyrsta forsætisráðherra Indlands eftir sjálf- stæði landsins, Jawarharlals Nehi-us. Hann varð leiðtogi Kongress-flokks- ins og forsætisráðherra fyrir sjö árum eftir að lífverðir móður hans, Indiru Gandhi, höfðu ráðið hana af dögum. Yngri bróðir hans, Sanjay, lést í flugslysi árið 1980. Gandhi lætur eftir sig konu og tvö börn. Morðið á Rajiv Gandhi var for- dæmt víða um heim. John Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði að mikil eftirsjá væri að Gandhi, sem hefði verið „afar hugrakkur maður“, en kvaðst þó telja að lýðræðið í landinu væri ekki í hættu. George Bush Bandaríkjaforseti sagði hörmulegt að Gandhi skyldi hafa látið lífið á þennan hátt. Sjá „Gekk nauðugur til leiks ...“ á bls. 29. í tilkynningu frá stjórninni sagði að Mengistu hefði sagt af sér til að afstýra frekari blóðsúthelling- um í landinu. Mengistu var óþekkt- ur herforingi þegar herinn steypti Haile Selassie keisara af stóli árið 1974 og í blóðugri valdabaráttu í kjölfar byltingarinnar tókst honum að hrifsa tii sín völdin í Iandinu með kænsku og grimmd. Hann kom á alræðiskerfi i anda Stalíns árið 1977 og stóð fyrir þjóðnýtingu á öllum sviðum atvinnulífsins. Enn- fremur lét hann taka 10.000 manns, einkum vinstrisinnaða námsmenn, af lífi. Valdatími hans einkenndist af stöðugum stríðsá- tökum, efnahagsþrengingum og hungursneyðum. Hann fékk mikla aðstoð frá öðrum kommúnistaríkj- um, einkum á sviði hernaðar, en honum tókst þó aldrei að bijóta uppreisnarmenn í norðurhéruðum landsins á bak aftur. Eftir hrun kommúnismans í Austur-Evrópu boðaði hann þó lýðræðis- og efna- hagsumbætur. Utvarpið í Addis Ababa sagði að ríkisráðið beitti sér nú fyrir tafarlausu vopnahléi milli stjórnar- hersins og uppreisnarmanna og myndun bráðabirgðastjórnar með þátttöku allra hreyfinga stjórnar- andstæðinga. Varaforseti landsins, Tesfaye Gabre Kidan, myndi gegna forsetaembættinu þar til ný stjórn tæki við. Ekki var vitað í gær hvar Meng- istu myndi beiðast hælis. Óstað- festar fregnir í Addis Ababa hermdu þó að hann kynni að hafa farið til Zimbabwe í sunnanverðri Afríku. Mengistu er náinn vinur Roberts Mugabe, forseta Zimbab- we, og er sagður eiga þar búgarð. Talsmaður erítreskra uppreisn- armanna, sem beijast fyrir sjálf- stæði héraðsins Erítreu í norður- Pólski herinn kallaður út Um 600 pólskir hermenn voru kallaðir út til að hreinsa götur Varsjár í gær eftir sex daga verkfall sorphreinsun- armanna. Heilbrigðisyfirvöld höfðu varað við „mikilli fjölg- un flugna og meindýra, eink- um rottna og músa,“ og far- sóttum vegna rotnandi sorps í borginni. Þetta er í fyrsta sinn sem hermenn eru sendir út á götur Varsjár frá því kommúnistar settu herlög í Póllandi árið 1981. Verkfalls- mennirnir krefjast allt að 100% launahækkana. Reuter

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.