Morgunblaðið - 22.05.1991, Blaðsíða 41
STI& { 1 3 5 b T 8 9 10 VINN kÖP
4 SAIOV ZÍ35 //// W, ’k 'A iz 1 /z { iz iz 1 (o 1-2
2 SHORT LíiS % A//A CuvL % 'Á /z { 1 iz { iz G 1-2
3 KASPAROV im Íz íz W/ iz { iz ‘ll iz { iz 5/z 3-V
H KARPOV 2725 ’/z % /z iz iz { i iz iz 5/z 3-1
5 K0RCHNOI 2(,15 o íz 0 iz Y/// iz { iz Zz { H/z s
(o JÖHANN 2535 /z 0 íz iz iz 0 iz { iz &-?
7 TIMMAhl líiO o 0 % 0 0 { V// yY// iz { { k á-7
8 GUREVICH U50 ’k % iz 0 iz iz iz 0 /z 3 /z 8
9 L JUBOJEVIC 2510 % o o iz íl 0 o { ’/z -3 1-10
10 VANÖER IA/lEL 2530 o iz iz iz 0 iz 0 iz /z V/// 3 1-10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1991
41
Minningarmótið um Max Euwe:
Short og Salov
slógu K-unum við
Skák
Margeir Pétursson
Aftur máttu þeir Kasparov og
Karpov báðir bíta í það súra epli
að missa af efsta sæti á skák-
móti. Á hinu geysisterka minn-
ingarmóti um Max Euwe í Amst-
erdam sigruðu þeir Nigel Short
frá Englandi og Vaiery Salov frá
Sovétríkjunum, með sex vinninga
af níu mögulegum. Þeir Kasp-
arov og Karpov urðu jafnir í
þriðja sæti með fimm og hálfan
vinning. Eins og skákáhuga-
mönnum er væntanlega í fersku
minni náði Vassily Ivanchuk
einnig að skjóta þeim ref fyrir
rass á mótinu í Linares um dag-
inn, svo einokun K-anna tveggja
eins og þeir eru oft nefndir, virð-
ist endanlega hafa verið rofin.
Þátttakendurnir á mótinu áttu
það allir sameiginlegt að hafa áður
tekið þátt í minningarmótinu um
Euwe, en á því tefla venjulega að-
eins íjórir keppendur. Pyrir tveimur
árum var Jóhann Hjartarson á
meðal þátttakenda, en vegnað þá
mjög illa, en að þessu sinni mátti
hann vel við una, hann varð í 6.-7.
sæti með fjóra vinninga. Jóhann
tapaði fyrir þeim Short og Timman,
en í næstsíðustu umferð náði hann
að sigi-a Ljubojevic og bætti þar
með stöðu sína á mótinu verulega.
Hinum sex skákum Jóhanns á mót-
inu lyktaði með jafntefli.
Gary Kasparov vár langt frá sínu
bezta og stóð sig ver en í Linares
þar sem hann náði þó öðru sætinu.
I fyrsta skipti á ferli sínum vann
hann ekki eina einustu skák með
hvítu. Svo virðist sem heimsmeist-
arinn hafi slakað of mikið á eftir
síðustu titilvörn sína, en hann hefur
meðal annars farið að skipta sér
af stjórnmálum. Að þessu sinni
tefldi Karpov hins vegar miklu
traustar en í Linares og hann var
hársbreidd frá því að vinna á mót-
inu, missti t.d. vinningsstöðu gegn
Kasparov niður í jafntefli.
Sigurvegararnir mega auðvitað
afar vel við una, þótt þeir hafi ekki
unnið með sama glæsibrag og Ivan-
chuk í Linares. Það hefur greinilega
haft mjög góð áhrif á Nigel Short
að komast í aðra umferð áskorenda-
keppninnar. Fyrir nokkrum árum
gerðu Englendingar sér góða von
um að Short næði áskorunarrétti á
heimsmeistarana, en afhroð í áskor-
endaeinvígi við Speelman í London
1988 setti stórt strik í reikninginn
og hann staðnaði um tíma. En nú
hefur hann gert upp reikningana
við Speelman og virðist til alls
líklegur í næsta áskorendaeinvígi
gegn Boris Gelfand, þriðja stiga-
hæsta skákmanni heims, sem hefur
þó undanfarna mánuði verið í hlut-
verki hinnar fallandi stjörnu.
Valery Salov er geysilega traust-
ur og öflugur skákmaður sem fyrst
vakti verulega athygli árið 1987 er
hann varð efstur á millisvæðamót-
inu í Szirak ásamt Jóhanni Hjartar-
syni. Salov náði þriðja sætinu í
síðustu heimsbikarkeppni, en
heilsuleysi hefur háð honum mikið
og hann hefur ekki treyst sér til
að tefla mikið.
Við skulum líta á vinningsskák
Jóhanns Hjartarsonar á mótinu í
Amsterdam:
Hvítt: Ljubojevic
Svart: Jóhann Hjartarson
Spánski leikurinn, opna afbrigðið
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5
- a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 - Rxe4,
6. d4 - d5, 7. Bb3 - d5, 8. dxe5
- Be6, 9. a4!?
Júgóslavinn er ekki mikið fyrir
að þræða troðnar slóðir í byrjunum
og velur sjaldgæft afbrigði, en
venjulega er leikið 9. c3, eins og
Jóhann lék reyndar sjálfur í fyrstu
einvígisskákinni gegn Korchnoi um
árið, og vann örugglega.
9. - b4, 10. a5 - Rc5, 11. Bg5
- Dd7, 12. Rbd2 - h6, 13. Bh4 -
Be7, 14. Bxe7 - Dxe7, 15. c3 -
bxc3, 16. bxc3 - Rxb3, 17. Rxb3
- 0-0, 18. Hel?!
Hér eða í næsta leik hefði hvítur
getað haldið jafnvæginu í stöðunni
með því að leika Rb3-d4, en bezta
tilraunin til að ná frumkvæði virðist
18. Dd3! í stað þess velur hvítur
ranga áætlun.
18. - Hab8, 19. Rfd4?! - Ra7!
Þetta er fallegur stöðulegur leik-
ur sem gerir svarti kleift að bæta
peðastöðu sína verulega og ná
frumkvæðinu. Ljubojevic hlýtur að
hafa yfirsézt hann, því hann finnur
ekkert betra svar en undanhald.
20. Re2 - c5, 21. Rf4 - Hfd8,
22. Dc2 - Rc6, 23. Rxe6 - fxe6,
24. f4 - Hb5!
Jóhann hefur byggt upp mjög
sterka stöðu og veikburða staða
hvíts getur ekki staðist pressu hans
eftir b-línunni til lengdar. Júgóslav-
inn reyndi nú skiljanlega að skipta
upp á einum veikleika sínum, en
þá tekur ekki betra við, svartur nær
stórsókn.
25. c4? - Rb4, 26. De2 - dxc4,
27. Dxc4 - Rd3, 28. Hebl -
Hb4, 29. Dxa6 - c4
Vegna hótana sinna á skálínunni
gl-a7 vinnur svartur mann, en
hvítur heldur þó vonlausri barátt-
unni áfram í nokkra leiki:
30. Rd4 - Dc5, 31. Dxe6+ -
Kh8, 32. h3 - Dxd4+, 33. Khl -
Rf2+, 34. Kh2 - Dxf4+, 35. Kgl
- Dd4, 36. Kh2 - Hxbl, 37. Hxbl
- c3, 38. Hb7 - Df4+, 39. g3 -
Rg4+, 40. hxg4 - Hd2+, 41. Kh3
- Dfl+, 42. Kh4 - Hh2+ og mát!
STUDENTSGJAFIRNAR I A R !
Vantóar bækur
. framttbarefn
Landi5,Sagan°gsogu
MagnnsMagnnssonerf obleg e
kmnitileglesningnmfyrstualdu
uSrfi®'^'"'a“5ko,,a
prýba bókina.
JHAGNÚS MAGNÚSSON
aAok ° Fyn-i Wuli bókann»ar
.G »r »s., Z u' ^d"ra Snorr *
lióL. SoimetM™**”'"”'1 vi(, [,ilk .
, ' l L td stádenngjala:
Urar áimgaverbar ...............k 3
ÍMandseto ^ ^6-
Tóidist og Wjóófa'rh Guomuna' ...................
...............^«4-
VanGogkogks « ’ aanakVer Skula ...........
íslenskar þjobsogur■ r ‘ \9\,-
Verk HaMórs Laxness 1 nyrti utgafu.............. b'.2."60.-
Barnnáttúrunaar..... .............................. fo. 2.950-
.................................................. 2.521 -
Sjáffstælt folk ■ • • •
KrUtniivaW uudir Jöklt. •
HELCAFELL
Síðumúla 6 • sími 688300
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA