Morgunblaðið - 23.05.1991, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
Fleiri símalínur sett-
ar í farsímakerfið
MIKLAR truflanir hafa verið í farsímakerfinu að undanförnu og var
ástandið verst dagana fyrir hvítasunnuhelgina. Ásta;ða þessa er sú
að verið er að fjölga línum i kerfinu og breyta um hugbúnað.
Að sögn Kristins M. Kristinssonar símafjarskiptum.
hjá tæknideild Pósts og síma tekur „Ástandið var óvenjuslæmt á
það alltaf nokkurn tíma að koma föstudaginn. Föstudagur fyrir hvíta-
hlutunum í samt lag aftur. Hann sunnu hefur alltaf verið þungur og
bjóst við að kerfið kæmist í lag í nokkrir aðrir þættir orsökuðu það
dag. Hann sagði að verið væri að að erfitt var að ná sambandi," sagði
ijölga um 30 línur við svokallað Kristinn. Hann kvaðst eiga von á
fastanet farsímakerfísins og eru því að línum yrði fjölgað enn frekar
línurnar því orðnar vel á fjórða í öllu netinu mjög fljótlega.
hundrað. Einnig verður móttökurum Farsímanotendur eru farnir að
Qölgað á milli símstöðva sem greiðir nálgast 11 þúsund.
enn frekar fyrir snurðulausum
Ráðherrabílar:
Jeppinn fór á; 2,3 milljónir
JEPPI fyrrverandi umhverfis-
málaráðherra var á þriðjudag
. boðinn upp hjá Innkaupastofnun
ríkisins. Hæsta boð í bifreiðina var
tæplega 2,3 milljónir króna.
Núverandi umhverfismálaráð-
herra skilaði jeppanum fljótlega eftir
að hann tók við og því var bíllinn
settur á uppboð hjá Inn*kaupastofn-
un. Nokkur tilboð báru^it í bílinn en
VEÐUR
'hæst voru boðnar 2,3 milljónir króna.
iÁ næstu dögum kemur í ljós hvort
jeigendur bílsins eru sáttir við tilboð-
,ið og hvort bjóðandi ætlar að standa
ivið það.
Jeppi fyrrverandi dómsmálaráð-
herra var einnig boðinn upp á þriðju-
!dag. Hæsta tilboð í hann var rúm-
ilega 1,3 milljón króna, en hann er
inokkuð eldri og meira ekinn en bíll
umhverfismálaráðherra.
Davíð og
„babúskarnir“
Davlð Oddssyni forsætis-
ráðherra var á dögunum
færð þessi rússneska
matroskja-dúkka að gjöf
sem máluð er í líki
íslenskra stjórnmálaleið-
toga. Hann sagði við
Morgunblaðið að þessar
dúkkur væru oft kallaðar
„babúskur“ en þar sem
þessar væru í karlformi
væru þetta líklega „babú-
skar“. Davíð sagði að hon-
um hefðu verið gefnir
þessir babúskar af stað-
kunnum manni i Sov-
étríkjunum. Belgmesta'
dúkkan væri af honum
sjálfum en innan í henni
kæmi Steingrimur Her-
mannsson, svo Jón Bald-
vin Hannibaisson, síðan
Ólafur Ragnar Grímsson
og loks fulltrúi Kvenna-
listans.
Morgunblaðið/Einar Falur
VEÐURHORFUR í DAG, 23. MAÍ
YFIRLIT: Yfir sunnanverðu Grænlandshafi er lægðardrag á hreyf-
ingu norðaustur og 1.038 mb hæð við írland.
SPÁ: Suðvestan- og vestangola eða kaldi. Skúrir um vestanvert
landið en annars þurrt.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Fremur hæg vestan-
og suðvestanátt. Dálítil súld og 7-12 stiga hiti um vestanvert landið
en lengst af léttskýjað og allt að 20 stiga hiti austantil.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnin 990600.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
a Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ ■» / * Slydda
/ * /
* * *
* * * » Snjókoma
■JO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V H
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
4
> 1 /
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 4 skýjað
Reykjavik 4 úrk.ígrennd
Bergen 7 rigning
Helsinki 8 skúr
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Narssarssuaq 6 rigning
Nuuk +1 heíöskfrt
Osló 12 hálfskýjaö
Stokkhólmur 10 rigning
Þórshöfn 6 snjókoma
Algarve 17 heiðskírt
Amsterdam 12 skýjað
Barcelona 11 heiðskfrt
Berlín 14 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar 14 þokumóða
Frankfurt 13 þokumóða
Qlasgow 9 skýjað
Hamborg 11 iéttskýjað
Las Palmas vantar
London 14 lóttskýjað
LosAngeles 13 aiskýjað
Lúxemborg 14 þokumóða
Madrfd vantar
Malaga 17 mistuf
Mallorca 10 heiðskfrt
Montreal 17 skýjað
NewYork vantar
Orlando 25 alskýjað
París 16 þokumóða
Róm 13 þokumóða
Vín vantar
Washington 19 skýjað
Winnipeg 22 skýjað
Skilorðsbundið fangelsi
fyrir að eyða ránsfeng
SAKADÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt 20 ára konu til 6 mán-
aða fangélsisvistar, skilorðs-
bundinnar í 2 ár, og 24 ára konu
í fjögurra mánaða fangelsisvist-
ar, einnig skilorðsbundið í tvö
ár, fyrir hylmingu með því að
hafa tekið þátt í að hluta um 250
þúsund króna ránsfeng með unn-
ustum sínum, sem frömdu rán
og urðu manni að bana í bensín-
stöð-við Stóragerði í Reykjavík
í april á síðasta ári.
Konumar vissu hvemig fjárins
hafði verið aflað og við ákvörðun
refsingarinnar var það haft í huga.
Einnig var tekið tillit til þess að
konurnar, sem voru unnustur brota-
mannanna og því tilfmningalega
háðar þeim, skýrðu hreinskilnislega
frá þætti sínum og málavöxtum í
heild, einkum sú þeirra sem vægari
refsingu hlaut. Hún hafði ekki áður
sætt refsingu, auk þess sem hún
var haldin þrálátum sjúkdómi og
mældist með lága greind. Brot hinn-
ar konunnar var hegningarauki við
dóm frá síðastliðnu ári fyrir þjófn-
aðarbrot þar sem ákvörðun refsing-
ar hafði verið frestað skilorðsbund-
ið í eitt ár.
Ingibjörg Benediktsdóttir saka-
dómari kvað upp dóminn.
Þröstur aðstoð-
armaður Jóns
ÞRÖSTUR Ólafsson hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Jóns Bald-
vins Hannibalssonar utanríkisráð-
herra. Hann tekur við stöðunni
af Birgi Dýrfjörð
Þröstur Ólafs-
son er hagfræðing-
ur að mennt. Hann
hefur meðal ann-
ars gengt stöðu
aðstoðarmanns
Ragnars Arnalds
embætti fjármála-
ráðherra, verið
framkvæmdastjóri
Verkamannafé- Þrostur
lagsins Dagsbrúnar og fram-
kvæmdastjóri Miklagarðs, en frá því
í desember hefur hann starfað að
sérstökum verkefnum í utanríkis-
ráðuneytinu.
Vextir stuðli að ráð-
deild o g sparsemi
STJÓRN Samtaka sparifjáreig-
enda segir í ályktun um vaxta-
mál, að ánægjulegt sé að aðilar
hafi viðurkennt staðreyndir og
aðlagað vexti markaðsaðstæð-
um. Áríðandi sé að vextir á
hverjum tíma stuðli að jafnvægi
í hagkerfinu og auki ráðdeild
og sparsemi.
I ályktun stjórnarinnar segir:
„Stjórnin er ánægð að aðilar hafi
viðurkennt staðreyndir og aðlagað
vexti markaðsaðstæðum. Vegna
þrýstings frá stjómvöldum bytjaði
að myndast stífla á fjármagns-
markaðnum um síðastliðin áramót
þegar eyðsla tók að vaxa verulega
og dró úr peningalegum sparnaði
og eftirspurn eftir fjármagni óx.
Mikil hækkun vaxta við þessar
aðstæður er nauðsyn þó hún sé ef
til vill meiri nú en ella hefði orðið
ef markaðurinn hefði ekki orðið
fyrir sífelldum truflunum af hálfu
stjórnvalda.
Þó að það sé í sjálfu sér ekki
kappsmál að vextir séu sem hæstir
á hveijum tíma, þá er áríðandi að
þeir gegni því mikilvæga hlutverki
að stuðla að auknu jafnvægi í efna-
hagslífinu, aukinni ráðdeild og arð-
semi.“
Eskifjörður:
Flestir féll-
ust á fiskverð
ÁHAFNIR skuttogaranna Hólm-
aness og Hólmatinds frá Eskifirði
hafa samþykkt tilboð frá útgerð
togaranna um fiskverð.
Að sögn Emils K. Thorarensen,
útgerðarstjóra Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar, hefur áhöfn Hólmatinds
samþykkt samkomulagið en hins
vegar eru enn einhveijir af áhöfn
Hólmaness sem ekki sætta sig við
samkomulagið. Flestir hafa þó sam-
þykkt það I verki með því að draga
uppsaghir sínar til baka.
Samkoniulagið er í anda Akur-
eyrarsamkomulagsins, greitt verður
fast verð fyrir 85% aflans en fyrir
15% hans verður greitt samkvæmt
vegnu meðalverði nokkurra físk-
markaða. Gæðamat verður áfram og
gildir samningurinn frá 1. apríl til
1. september.