Morgunblaðið - 23.05.1991, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 23.05.1991, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAI 1991 15 hlýddu á þær, þótt þar hafi verið drepið á öll helstu vafa- og ádeiluat- riði, sem fram hafa komið til þessa. Stefnt að málalyktum Viðræðumar um EES hófust 1989 á þeim pólitíska grundvelli að EFTA- ríkin samþykktu að lögfesta hjá sér 1.400 réttargjörninga Evrópubanda- lagsins. Hefur verið unnið að því að þýða þennan mikla lagabálk undan- farin misseri. Síðan á árinu 1989 hefur verið rætt um þau málefni, sem valda ágreiningi milli ríkja EFTA og EB. Þessum ágreiningsefnum hefur fækkað jafnt og þétt. Hér hefur aldr- ei verið um samningaviðræður í hefð- bundnum skilningi þess orðs að ræða. Viðræðurnar hafa í raun snúist um það, hvernig EFTA-ríkin gætu á hagkvæmastan hátt lagað sig að lög- um og ákvörðunum Evrópubanda- lagsins. Fyrir okkur íslendinga skiptir mestu, að enn hefur ekki verið geng- ið frá sjávarútvegsmálunum. Við föll- umst ekki á þá kröfu EB að fyrir aðgang að mörkuðum komi aðgang- ur að fiskimiðum. Það eru Spánveij- ar sem standa fast á þessari kröfu innan EB. Hún byggist að öðrum þræði á því, að Spánveijar vilja styrkja hlut sinn almennt innan bandalagsins og lagfæra ýmislegt sem þeir telja sér andstætt. Hagvöxt- ur hefur verið mikill á Spáni síðan landið varð aðili að EB 1. janúar 1986. Spánveijar telja sig nú vera í betri stöðu en nokkru sinni fyrr til að láta að sér kveða innan EB og þeir vilja ekki láta tækifærið ganga sér úr greipum átakalaust. Er brýnt að íslensk stjómvöld og aðrir þátttak- endur í mótun EES geti talið Spán- veijum hughvarf í sjávarútvegsmál- um. Tvö af EFTA-ríkjunum, Austurríki og Svíþjóð, hafa tekið stefnuna inn í EB. Þau líta á EES sem nauðsynleg- an aðdraganda aðildar, fyrsta, annað ef ekki þriðja skrefíð inn í Evrópu- bandalagið. í Finnlandi og Sviss er andstaða við aðild að minnka og sömu sögu er að segja um Noreg. Davíð Oddsson segist ekki sjá nein teikn um að aðild að EB verði á dagskrá ríkisstjórnar sinnar. Við þurfum að huga að stöðu okk- ar innan EFTA-hópsins og gæta þess, ef við viijum eiga samleið með bandalagsríkjunum, að eingangrast ekki innan hans. Hvert EFTA-ríki hefur sérhagsmuna að gæta og eng- inn er annars bróðir í leik á þessum vettvangi frekar en endranær, þegar tekist er á um brýna hagsmuni. Vilji menn að ísland gerist aðili að EES þurfa þeir að vera til þess búnir að fella saman stórpólitíska hagsmuni, er lúta að framtíðarsessi okkar í samfélagi þjóðanna, og úr- lausn vegna sérgreindra málefna. Niðurstaða umræðnanna á þingi á fimmtudaginn var sú að ríkur vilji er til þess. Mikilvægt er að líta á málið í því Ijósi, að hvorki samstarf við Bandaríkin né aukin verslunar- viðskipti við þjóðir Austur-Asíu geta komið í staðinn fyrir virka þátttöku í EES. Við erum ekki að gera upp á milli þjóða heldur halda áfram þátttöku í samvinnu Evrópuþjóða á nýjum grundvelli. Hið nána samstarf íslands og Bandaríkjanna heidur áfram, svo sem í varnar- og öryggis- málum. Markaðir í Austur-Asíu standa okkur áfram til boða. Um leið og það sjónarmið skal áréttað að mikilvægt sé að ná sem víðtækastri samstöðu um EES- samningana og framkvæmd þeirra, er hitt ljóst, að menn verða að vera undir það búnir að lenda í harkaleg- um ágreiningi á heimavelli til að geta staðið við það, sem íslensk stjómvöld hafa verið að samþykkja í EES-viðræðunum allt frá árinu 1989. Á það vafalaust eftir að vekja furðu fleiri en innlendra manna, ef slíkar deilur yrðu enn harðari en ella vegna þess að tveir stjórnarflokkar frá árunum 1988-91, Alþýðubanda- lag og Framsóknarflokkur, sem stóðu að mótun meginstefnunnar í samningunum, snerust gegn EES einungis af því að þeir eru ekki leng- ur í ríkisstjórn. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Börnin fyrst og fremst eftir Hermann Þórðarson Óbeinar reykingar Þegar við tölum um óbeinar reykingar er átt við það þegar böm og aðrir anda að sér reyk frá fólki sem er að reykja. Reykurinn frá brennandi sígarettu inniheldur tvö- falt meira magn af nikótíni heldur en það sem reykingamaðurinn and- ar að sér, og fimm sinnum meira af kolsýringi. Þetta getur valdið ungbörnum öndunarerfiðleikum. Obeinar reykingar geta valdið ungbörnum skaða. Sígarettureykur inniheldur næstum því 4.000 efni, m.a. ammoníak, bensín, formalde- hýð (ertir húð, augu og öndurfæri) og blásýru, auk kolsýringsins sem áður er getið. Börn sem eru óvarin fyrir óbeinum reykingum anda þessum efnum að sér. Rannsóknir sýna að börnum sem anda að sér reyk af þessu tagi er hættara við kvefi, eyrnabólgu, kverkabólgu og hálseitlabólgu. Einnig getur það valdið erfiðleikum á lungnastarf- semi og jafnvel dregið úr vexti lungna hjá ungbörnum. Böm læra af foreldrum sínum. Börn foreldra sem reykja eru lík- legri til að verða reykingafólk en aðrir. Verðandi foreldrar í hópi reykingafólks ættu því að reyna að hætta að reykja, og eftir fæðingu barnsins forða því frá óbeinum reykingum. Reykingar og þungun Reykingar verðandi mæðra eru fóstrinu hættulegar. Þegar þunguð BÖRNIN FYRST OG FREMST „Börn læra af foreldr- um sínum. Börn for- eldra sem reykja eru líklegri til að verða reykingafólk en aðrir.“ kona reykir, andar hún að sér nik- ótíni og kolsýringi. Nikótínið dregur úr magni þeirrar næringar sem berst til fóstursins. Reykingar verðandi mæðra auka hættuna á fósturláti (170% meiri hætta hjá stórreykingakonum), fæðingu fyrirtímann (300% líklegra hjá stórreykingakonum), andvana fæðingum (55%), fæðingargöllum (t.d. klofmni vör og klofnum gómi), ungbarnabauða (sérstaklega fyrstu 28 dagana eftir fæðingu) og öndun- arerfiðleikum (astma) hjá korna- bömum. Því fyrr sem verðandi móðir hættir að reykja því betra. Ef hún hættir strax og hún uppgötvar að hún er þunguð, dregur hún úr hætt- unni á að barnið verði fyrir einhveij- um af þeim skakkaföllum sem áður er getið. Ef hún hættir þegar hún er komin fjóra mánuði á leið, eru líkurnar á fyrirbura eða undirmáls- barni þær sömu og hjá konum sem reykja ekki. Ef hún hættir einhvern tíma áður en barnið fæðist eykur hún líkumar á að fæða heilbrigt barn. Höfundur er umdæmisstjóri Kiwanis á íslandi. ■electric @eplus Kaffivélar 700-1000 wött. Glæsilegirlitir. Verðfrá 2.890,- • 10 bolla • Heitt og gott kaffi • Engir eftirdropar • Sgerðir Vöfflujárn llmandi, fallegar vöfflur. Verð frá 4.; • Snúrugeymsla • Hitastýring • Stígandi hitastilling • Teflonhúð Eénar FarestveltaCo.hf. BORCMTONI28, SÍWI622901. LaiA 4 stoppar wlð dymar 23. maí Við flytjum vorið inn í nokkrar hverfaverslanir. Þar eru á boðstólum íslenskar vörur á sérstöku vorverði, vörukynningar daglega, getraunaleikur /• / / .jum sendur út á Bylgjunni, vöruúttekt í verðlaun alla dagana og happdrœtti, vinningur: Helgarferð v fyrir 2 til Amsterdam með Ratuís. Sama lága verðið er á vörunum í öllum verslununum. A © FÉIAG ÍSLENSKRA IÐNREKENDA KAUPMANNASAMTÖK ISLANDS Notið tœkifœrið og komið í þessar verslanir a meðan góða verðið helst: Plúsmarkaður Vesturbergi Kársneskjör Melabúðin Kjörbúð Hraunbæjar Kjöthöllin Vogaver Stórmarkaður Keflavíkur Rangá Nóatúnsbúðirnar Austurver Plúsmarkaður Grímsbæ Breiðholtskjör Hamrakjör Sunnukjör Kjötstöðin Plúsmarkaður Álfaskeiði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.