Morgunblaðið - 23.05.1991, Side 16

Morgunblaðið - 23.05.1991, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAI 1991 Flymo 7/ L 47 E 30 ÖRUGGT VAL Þú færð réttu sláttuvélina hjá okkur □ L 47 - svifnökkvinn, aflmikil bensínvél □ E 30 - rafknúin loftpúðavél □ RE 30 - rafknúin hjólasláttuvél með grassafnara □ XE30 - rafknúin loftpúðavél með grassafnara □ MT - raforf til kantsnyrtingar Opið á laugardögum 10 - 16. GúF Raðgreiðslur Góð varahluta-og viðhalds'þjónusta. Q ^ PétlirSSOn hf Slátffuvéla maíkaðurinn Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80 ITC á íslandi Þjálfun í samskiptum eftirJónu S. Óladóttur _Nú er vetrarstarf ITC-deildanna á íslandi að ljúka, sumarið er kom- ið og reglulegu deildarstarfi lagt til haustsins. Landsþing samtak- anna verður haldið undir kjörorð- inu „Nýr áratugur, ný viðhorf". Það er jafnframt stef fráfarandi forseta landssamtakanna, Halld- óru Guðmundsdóttur, sem nú lætur af embætti eftir árangursríkt starf. Dagana 24.-26. maí mun þingið standa yfir á Hótel Loftleiðum, yfir hundrað félagar munu mæta þar til leiks af stór Reykjavíkur- svæðinu og landsbyggðinni, bera saman bækur sínar, yfirfara vetr- arstarfið, gera áætlanir fyrir næsta starfsár og njóta þess sem þingið hefur upp á að bjóða. Þingið verður sett kl. 19.30, 24. maí af landsforseta, síðan verður íslensk ræðukeppni. Þrjár ræður verða fluttar og munu fimm dóm- arar dæma um hver vinnur til far- andbikars þessa árs. Að loknum kvöldverði mun varaforseti V- svæðis, frú Kristjana Milla Thor- steinsson, flytja ávarp, einnig Pét- ur Gunnarsson, rithöfundur sem er gestur fundarins. A laugardag, 25. maí, verða félagsmál með fulltrúum hinna 20 deilda á landinu og eftir hádegi fræðsludagskrá. Hansína B. Ein- arsdóttir flytur erindi, „Konur — sjálfsmynd — vinnumarkaður“ og Evrópunefnd ITC-Gerðar í Garðabæ er með fræðsludagskrá „ísland og Evrópa". Einnig verður hefðbundin ITC fræðsla, m.a. í höndum Guðrúnar Norðdahl ITC Melkorku. Veislustjóri við kvöld- verð er Gígja S. Guðjónsdóttir, ITC Korpu Mosfellsbæ. Á sunnudagsmorgninum verða próf í fundarsköpum og fulltrúi ITC frú Elaine la Rue, I-v. forseti N/ 'é Lofta- plötur og lím Nýkomiri sending Þ.ÞORGRlMSSON&CB Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640 Jóna S. Óladóttir frá Bandaríkjunum mun sitja fyrir svörum. Frú Þórhildur Þorleifsdóttir leik- stjóri mun flytja erindi og síðan er innsetning nýrrar stjórnar ITC á íslandi fyrir næsta starfsár. Umsjónarmaður landsþingsins _er Unnur Helgadóttir, ITC Ýr, Reykjavík. Hvað er það sem við erum að gera í ITC spyr ef til vill einhver. Svarið er: Við erum að þjálfa skipu- lagshæfileika, byggja upp sjálfs- traust og ná meiri viðurkenningu í starfi. Við höldum fundi tvö kvöld í mánuði, leggjum áherslu á fund- arsköp og úthlutað er verkefnum til félaga til flutnings að tveimur vikum liðnum. Samtökin eru alþjóðleg og bera heitið „International training in communication". Þau starfa víða um heim, stofnuð í USA árið 1938. Hingað til lands bárust þau árið 1975. Nú eru starfandi 20 deildir víðsvegar um landið, frá í septem- ber og fram í maí og þá komum við saman á landsþing. í haust komum við saman á ný, nokkrir hverfa úr deildum og nýir aðilar koma í stað þeirra sem skila sér til annarra starfa með holla og auðugri reynslu í farteskinu. Er þá ITC fyrir þig? Já, vegna þess að þau uppfylla þörf þína fyrir að hafa aukin áhrif á daglegt umhverfi. Já, vegna þess að þú munt eiga auðveldara með að tjá þig. Já, vegna þess að þú verður ánægðari með sjálfa(n) þig þegar þú veist hvað þú átt að gera og hvernig, áhyggjulaust. Höfundur er læknaritari. Steinvari 2000 Þegar engin önnur málning er nógu gód Þeir sem vilja vanda til hlutanna, cða bcrjast gcgn alkalí- og frostskcmmdum, mála mcð Steinvara 2000 frá Málningu hf. Steinvari 2000 býður upp á kosti, sem engin önnur utanhússmálning á stein hefur í dag. Hann stöðvar því sem næst vatnsupptöku steins um leið og hann gefur steininum möguleika á að „anda“ betur en hefðbundin plastmálning. Viðloðun Steinvara 2000 við stein er gulltrygg, unnt cr að mála með honum við lágt hitastig, jafnvcl í frosti, hann þolir regn cftir um eina klst. og hylur auk þcss fullkomlega í tveimur um- ferðum. Steinvari 2000 er góð fjárfesting fyrir húseig- endur. Veðrunarþol hatls og ending er í sérflokki og litaval fallegt. Steinvari 2000 er málning fagmanns- ins, þegar mæta þarf hæstu kröfum um vernd og end- ingu. Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er $$Bmá/ning % - það segir sig sjdlft -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.