Morgunblaðið - 23.05.1991, Síða 18
er
18
T*>o | #‘.;o H JOAGu'f / Mrf @UIA^;H'!íUí)j!OM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
ÓTRÚLEGT VERfl
Á FJALLAHJÓLUM
DIAMOND EXPLOSIVE 26“. 21 gírs fjallahjól, chromolly stell, SHIMANO
200 GS gírar og fylgihlutir, ótoksbremsur, ólgjarðir, standari og brúsi.
Mjög gott hjól ó ótrúlegu verði, kr. 29.900,-. Stgr. kr. 28.400,-
DIAMOND TIGER 26“, 18 gíra
fjallahjól, SHIMANO gírar, ótaks-
bremsur, ólgjarðir, standari og
brúsi. Fróbært verð kr. 20.950,-.
Stgr. kr. 19.900,-
DIAMOND LADY 26", 10 gira
dömuhjól með aurbrettum,
bögglabera og stondara.
Verð aðeins kr. 15.700,-.
Stgr. 14.915,-
DIAMOND BMX 20“ með fót-
bremsu, stólgjörðum, heilli sveif,
standara og púðum. Óvenju
hagstætt verð ó svo vel útbúnu
hjóli, kr. 9.400,-.
Stgr. kr. 8.930,-
Kreditkort og greiðslusamningar
Sendum í póstkröfu.
VARAHLUTIR OG VIÐGERDIR,
VANDIÐ VALIÐ OG VERSLIÐ í MARKINU.
l/órslunin
Símar 35320 og 688860.
Ármúla 40.
Viljum við flytja vald yf-
ir eigin málum úr landi?
eftir Hjörleif
Guttormsson
Úr samcig-inlegri
ráðherrayfirlýsingu
Þann 13. maí komu utanríkisráð-
herrar EFTA- og EB-ríkja saman
í Brussel til að ræða stöðuna í samn-
ingaviðræðum um Evrópskt efna-
hagssvæði (EES). í fundarlok gáfu
þeir út sameiginlegíi yfirlýsingu um
stöðu viðræðnanna í 23 tölusettum
liðum. í þessum hópi var Jón
Hannibalsson utanríkisráðherra. í
yfirlýsingu ráðherranna kemur m.a.
fram (leturbreytingar H.G.):
• „Þeir töldu að starfhæfar stofn-
analausnir þyrftu að nást til að ná
sem mestu réttarsamræmi innan
evrópsks efnahagssvæðis án þess
að stefna í voða hvorki sjálfræði
samningsaðila við ákvarðanatöku,
sameiningarferii Evrópubandalags-
ins né séreðli EB-löggjafar.“ (17.
liður yfirlýsingarinnar.)
• „Þeir lögðu einnig áherslu á mik-
ilvægi þess að tryggja hið fyllsta
réttarsamræmi. Til þess að ná því
markmiði þyrfti að þróa á þeim
sviðum sem snertu evrópskt efna-
hagssvæði stöðugt ferli upplýsinga-
skipta ogsamráðs samhliða löggjaf-
arferli Evrópubandalagsins.“ (19.)
• „Þeir minntu á að ákvarðanir í
evrópsku efnahagssvæði væru
teknar samhljóða af Evrópubanda-
laginu annars vegar og EFTA-lönd-
unum hins vegar og minntu á að
kæmu upp alvarlegar og umfangs-
mikil vandkvæði á þeim sviðum sem
heyra undir þjóðþing EFTA-Iand-
anna þá yrðu þau vandkvæði tekin
til athugunar af sameiginlegu
nefndinni. Hún mundi fyrst af öllu
reyna áð finna viðunandi lausn fyr-
ir báða aðila sem gerði það kleift
að halda öllum samningum i gildi
án þess þó að útiloka þann mögu-
leika að grípa síðar, gerðist þörf,
til almenns öryggisákvæðis og
gagnaðgerða í réttu hlutfalli." (20.)
• „Þátttakendur lögðu áherslu á
nauðsyn þess að koma á innan evr-
ópsks efnahagssvæðis skilvirku eft-
irlitskerfi sem framkvæmdastjórn
(EB) annaðist annars vegar en af
hálfu EFTA stofnun sem starfaði á
svipaðan hátt hins vegar. Þar þyrfti
einnig sjálfstæður úrskurðaraðili að
koma til.“ (21.)
• „Settur verður á fót sjálfstæður
EES-dómstóII en í honum munu
sitja fimm dómarar frá Evrópudóm-
stólnum og þrír af EFTA-dómurun-
um sjö. Hann mundi starfa innan
Evrópubandalagsdómstólsins og
hafa umboð til að kveða upp úr-
skurði." (22.)
• „Þeir tóku fram að aðildarríki
EFTA væru reiðubúin til þess að
setja ákvæði í innri löggjöf sína í
þá veru að reglur samningsins um
evrópskt efnahagssvæði SKULI
HAFA FORGANG í þeim tilfellum
sem þær rekast á við önnur ákvæði
innri löggjafar þeirra. “ (23.)
Stórfelld þrenging að
löggjafarvaldi
Nauðsynlegt er að menn átti sig
á því hvað hér er á ferðinni. Samn-
ingurinn um EES tekurtil um 1.400
lagabálka Evrópubandalagsins,
sem gerðiryrðu að íslenskum lögum
ef samningurinn verður samþykkt-
ur á Alþingi. íslenska lagasafnið
er nú tæpar 1.500 blaðsíður, en við
það myndu bætast 11 þúsund blað-
síður í lagatexta. Um er að ræða
lög sem varða innri markaðinn,
„fjórfrelsið" margumtalaða, þ.e.
helstu svið viðskipta, þjónustu, fjár-
mála og búseturéttar.
Þessi Evrópubandalags-löggjöf
myndi víkja til hliðar öllum gildandi
lögum íslenskum, sem stangast á
við hana, sbr. ákvæðið um forgang
í 23. lið yfirlýsingar ráðherranna.
Þróun þessarar löggjafar með
breytingum í framtíðinni yrði í
höndum stofnana Evrópubanda-
lagsins og EFTA-ríkin yrðu að taka
Hjörleifur Guttormsson
„Það blasir nú við að
meirihluti EFTA-ríkj-
anna hugsar sér að
sækja um beina aðild
að Evrópubandalaginu,
og innan nokkurra ára
verður ísland e.t.v. eitt
eftir á báti undir EFTA-
merkinu. Menn hljóta
að spyrja sig, hvaða
hald væri í samningi og
stofnunum, sem hrófað
yrði upp við slíkar
kringumstæður. “
við þeim möglunarlaust til „að
tryggja hið fyllsta réttarsamræmi",
sbr. 19. lið. Þetta stafar af því að
EB hleypir utanaðkomandi hvergi
inn í sína ákvarðanatöku, sbr. 17.
lið.
Allir ættu að sjá hvernig þrengt
er að löggjafarvaldi þjóðþinga
EFTA-ríkjanna og þar með Alþing-
is verði á þetta fallist.
Yfirþjóðlegt vald í hendur
EFTA-stofnunar
Eins og fram kemur í 6. lið yfir-
lýsingar ráðherranna gera þeir ráð
fyrir að eftirlit með samningnum
verði af EFTA hálfu í höndum sér-
stakrar EFTA-stofnunar, sem starfi
á svipaðan hátt og framkvæmda-
stjóm Evrópubandalagsins. Sem
kunnugt er hefur framkvæmda-
stjórn EB í sínum höndum fram-
kvæmdavald svipað og ríkisstjórn
og einnig löggjafarvald, þótt svo
eigi að heita að „kommissararnir"
í Brussel séu embættismenn.
Hingað til hafa EFTA-ríkin ekki
afsalað sér framkvæmda- eða lög-
gjafarvaldi til neinna stofnana frí-
verslunarsamtakanna (EFTA). Með
sjálfstæðri eftirlitsstofnun sem tæki
ákvarðanir óháð stjórnum aðildar-
ríkjanna væri orðin eðlisbreyting á
EFTA í átt við það sem gerist hjá
EB.
Dómsvald flutt til
Lúxemborgar
Með yfirlýsingu sinni fallast ráð-
herrarnir að Jóni Hannibalssyni
meðtöldum á að settur verði á fót
yfirþjóðlegur EES-dómstóIl, ná-
tengdur Evrópudómstólnum og með
aðsetri innan veggja hans. Hlutverk
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu Stórbók Péturs Gunnars-
sonar. í henni eru bækurnar um
Andra Haraldsson og þroska-
sögu hans: Punktur, punktur
komma strik (1976), Eg um mig
frá mér til mín (1978), Persónur
og leikendur (1982) og Sagan öll
(1985).
þess dómstóls er samkvæmt yfirlýs-
ingu ráðherranna m.a. að kveða upp
úrskurði til lausnar deilumálum,
m.a. um túlkun EES-reglna, um
deilur milli eftirlitsstofnunar EFTA
og EFTA-lands svo og varðandi
mál sem fýrirtæki eða ríki taka upp
gegn ákvörðunum EFTA-stofnunar
á sviði samkeppni. Jafnframt á að
„gera EFTA-löndum kleift að koma
fyrir Evrópudómstólinn“ (22. gr.)
með mál sem þau kjósa.
Allt er þetta hugsað til þess að
lög og réttur í EFTA-ríkjunum þró-
ist með sama hætti og í Evrópu-
bandalaginu. EB gefur tóninn og
EFTA-hluti Efnahagssvæðisins fær
áð syngja með! Þetta endurspegiast
skýrt í því fyrirkomulagi, að um-
ræddum EES-dómstóli er aðeins
ætlað að ljalla um atriði sem snúa
að EFTA. Evrópubandalagið hefur
eftir sem áður sitt réttarkerfi á
hreinu og utan seilingar, enda eru
samþykktir þess sá grundvöllur sem
EFTA er ætlað að gera að sínum.
EFTA-leiðin vanhugsuð
frá byrjun
Það sem hér hefur verið fjallað
um er hinn svokallaði stofnanaþátt-
ur fyrirhugaðs efnahagssvæðis.
Eins og menn geta séð felst í fyrir-
liggjandi samningsdrögum mikið
valdaafsal þeirra ríkja sem þar yrðu
þátttakendur. Sumt af því er aug-
ljóst að formi til, bæði varðandi
umrædda eftirlitsstofnun og dóm-
stól. Varðandi löggjafarvald yrði
fullveldisafsalið stórfellt í reynd,
þótt leitast sé við að halda í vald
þjóðþinganna að nafninu til.
Það blasir nú við að meirihluti
EFTA-ríkjanna hugsar sér að sækja
um beina aðild að Evrópubandalag-
inu, og innan nokkurra ára verður
Island e.t.v. eitt eftir á báti undir
EFTA-merkinu. Menn hljóta að
spyija sig, hvaða hald væri í samn-
ingi og stofnunum, sem hrófað yrði
upp við slíkar. kringumstæður.
Tollar smámál hjá afsali
fullveldis
Af umræðu og fréttum mætti
ætla, að viðræður um EES snerust
að því er Island varðar fyrst og
fremst um niðurfellingu tolla á sjáv-
arafurðum. Þessi grein er skrifuð
til að minna á, að það er fleira og
að mínu mati langtum mikilsverð-
ara sem hangir á spýtunni. Við
komumst ekki hjá að svara því,
hvort við viljum að með EES-samn-
ingi verði stórir þættir fullveldis
okkar fluttir úr landi.
Höfundur er alþingismaður
Alþýðubandalagsins fyrir
A usturlandskjördæmi.
■ KÁNTRÍKL ÚBB UR Aðal-
stöðvarinnar og Hótel Borg héldu
síðastliðið föstudagskvöld Kántrí-
ball á Hótel Borg. Ballið tókst vel
og var uppselt í mat. Vegna fjölda
áskorana verður því kántríballið
endurtekið næstkomandi föstu-
dagskvöld. Kvöldið hefst með þrí-
réttaðri kántrímáltíð kl. 20.00. Sér-
stakur heiðursgestur verður Hall-
björn Hjartarson sem einnig syng-
ur nokkur lög. Einnig tekur kántrí-
tríóið Afdalagærurnar nokkur
kántrílög. Hljómsveit kvöldsins er
Sveitin milli sanda. Borðapantanir
og allar nánari upplýsingar eru
daglega á Hótel Borg.
í fréttatilkynningu segir að allar
séu þessar sögur í endurskoðaðri
gerð höfundar, einkum Sagan öll,
sem má segja að komi nú fyrir sjón-
ir lesenda í alveg nýrrí og óvæntri
gerð. .
Bókin er 447 blaðsíður, unnin í
Prentsmiðjunni Odda og gerði Guð-
jón Ketilsson kápu.
Stórbók Péturs Giuinarssonar