Morgunblaðið - 23.05.1991, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAI 1991
MORÐIÐ A RAJIV GANDHI
Nær Kongressflokk-
urinn meirihluta á
indverska þinginu
vegna morðsins?
Nýju-Delhí. The Daily Telegraph.
FYLGI Kongressflokksins á Indlandi kann að aukast verulega
í komandi þingkosningum vegna samúðar kjósenda eftir morð-
ið á Rajiv Gandhi, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtoga
flokksins. Er jafnvel talið að hann geti náð meirihluta á þing-
inu að nýju. Ennfremur kann morðið að verða til þess að ýms-
ar fylkingar gangi til hðs við
ið sig úr honum á valdatíma
Gandhi.
Fyrir morðið voru forystu-
menn hægriflokksins Bharatiya
Janata vissir um að þeim tækist
að koma í veg fyrir að Kongress-
flokkurinn endurheimti meiri-
hluta á þinginu. í kosningabarát-
tunni lögðu þeir ríka áherslu á
mistök Rajivs Gandhis er hann
gegndi embætti forsætisráð-
herra á árunum 1984-89. Morðið
varð hins vegar til þess að þeir
misstu eitt af helstu kosninga-
málum sínum.
flokkinn á ný eftir að hafa klof-
Gandhis og móður hans, Indiru
með Singh vegna harðrar and-
stöðu hans við þessi áform.
Aðskilnaðarsinnar í Punjab,
Kashmir og Assam hafa einnig
haft hom í síðu Gandhis, sem
reis öndverður gegn kröfum
þeirra um sjálfstjórn. Sekhar
vildi hins vegar ræða kröfurnar
og ávann sér þar með meira
traust á meðal þeirra en nokkur
annar stjómmálaleiðtogi lands-
ins.
Sundurtætt lík Rajivs Gandhis og annarra, sem létust í sprengingunni.
Reuter
Sprengjutilræðið kann einnig
að verða til þess að fyrmm félag-
ar í Kongressflokknum streymi
til flokksins aftur. Því sem næst
allir forystumenn hinna flokk-
anna, að undanskildum Bharati-
ya Janata og tveimur kommúni-
staflokkum, koma úr Kongress-
flokknum. Þeirra á meðal eru
Vishwantah Pratap Singh, leið-
togi Janata Dal, og Chandra
Shekhar, forsætisráðherra nú-
verandi minnihlutastjórnar. Báð-
ir þessir menn höfðu ástæðu til
að leggjast gegn Gandhi.
Singh var ráðherra í stjórn
Kongressflokksins en honum var
vikið úr flokknum árið 1987 eft-
ir að hann hafði sakað vini Rajivs
Gandhis um spillingu. Hann bar
sigurorð af Gandhi í þingkosn-
ingunum 1989 en missti völdin
aðeins ellefu mánuðum síðar til
klofningsflokks úr Janata Dal
undir forystu Sekhars, er sagði
sig úr Kongressflokknum vegna
óánægju með neyðarlög sem Ind-
ira Gandhi setti árið 1975. Sekh-
ar boðaði til þingkosninganna í
mars er hann sagði af sér forsæt-
isráðherraembættinu vegna
óánægju með látlausar snuprur
Gandhis, sem hafði lofað að
styðja minnihlutastjórn hans.
Líklegt er talið að Sekhar
gangi nú ásamt fylgismönnum
sínum aftur til liðs við Kongress-
flokkinn enda á hann þar marga
skoðanabræður, sem lagst hafa
gegn andsósíalískri stefnu Gand-
his. Með slíkum liðsauka kynni
flokkurinn að öðlast á ný fylgi
ýmissa þjóðfélagshópa, sem
Gandhi missti.
Á meðal þeirra eru múslimar,
sem hættu að styðja Kongress-
flokkinn vegna óánægju með lin-
kind Gandhis gagnvart heittrú-
uðum hindúum, er hugðust rífa
mosku í bænum Ayodhya og
reisa í hennar stað hof fyrir
hindúa. Múslimar snerust á sveif
Dró úr gæslunni til að
vera nálægari fólkinu
T.nnHnn. Nvín Dplhi DíiiIv Tolparsmh
London, Nýju Delhi. Daily Telegraph.
DAUÐINN var oft ofarlega í huga Rajivs Gandhis, örlög móður
hans, sem féll fyrir morðingjahendi, og bróður hans, sem fórst
í flugslysi, en sagt er, að hann hafi óttast meira um börnin sín
en sjálfan sig. Hann kom yfirleitt aldrei fram nema umkringdur
lífvörðum og undir hvítum serknum, sem Indverjar klæðast, var
hann í skotheldu vesti. Þegar hann flutti ræður var hann ósjald-
an á bak við skothelt gler en það var ekki byssukúla, sem varð
honum að aldurtila, heldur sprengja.
Gandhi hafði verið gagnrýndur
fyrir of mikla gæslu og fundið
að því, að hann væri ekki nógu
nálægur fólkinu. Úr því vildi hann
líka bæta og í kosningabaráttunni
að þessu sinni fækkaði hann í
lífvarðahópnum. í síðasta viðtal-
inu, sem átt var við hann, var
hann spurður hvort hann óttaðist
ekki hugsanlegar afleiðingar
þeirrar ákvörðunar. „Hvað get ég
annað gert?“ svaraði hann.
„Þannig hagaði ég minni kosn-
ingabaráttu áður en ég varð for-
sætisráðherra og þar sem ég
gegni ekki því embætti núna ætla
ég að hafa sama háttinn á.“
Rajiv Gandhi var að koma til
kosningafundar í bænum Sriper-
umpudur skammt frá Madras og
hann var varla stiginn út úr bryn-
varinni bifreiðinni og kominn á
meðal fólksins þegar sprengja,
sem falin hafði verið í blómvendi,
sprakk með miklum gný. Gandhi
og 14 aðrir létu lífið. Segja blaða-
menn, að lík hans hafi verið sund-
urtætt eftir sprenginguna en talið
er, að sprengjan hafi verið
sprengd með fjarstýringu.
Ekki er vitað hveijir unnu þetta
voðaverk en böndin berast helst
að tamílum á Sri Lanka. Þeir
hafa hatast út í Gandhi síðan
hann var forsætisráðherra og
sendi indverskt herlið til að
skakka Ieikinn í borgarastyijöld-
inni í landinu og aðstoða stjórnina
í Colombo við að kveða niður
uppreisn tamíla.
Getum hefur einnig verið leitt
að því, að tilræðismannanna sé
að leita meðal stuönincsmanna
Nýj
Del
INDLAND
Bharatiya Janata-flokksins en
þar eru á ferð trúarofstækis-
menn, sem boða tilkomu hindúsks
ríkis og ala á óvild í garð mú-
slima. I kosningabaráttunni var-
aði Gandhi sérstaklega við þess-
um flokki og sagði, að hann gæti
leitt skelfilegan ófarnað yfir alla
landsmenn.
„Þessi flokkur hefur egnt fyrir
ykkur gildru, sams konar gildru
og Þjóðveijar gengu í með Hitler.
Það er tekist á um grundvallarat-
riði samfélagsins, þar á meðal um
trúfrelsið, og ef við stöndumst
ekki prófraunina mun samfélags-
skipanin hrynja,“ sagði Gandhi
meðal annars.
Sonia Gandhi sögð ómannblendin:
Hefur ávallt verið í hlut-
verki eigmkommnar
miinii.i nii..i....
Nýju Delhí. Reuter.
SONIA Gandhi var á miðviku-
dag valin til að taka við for-
mennsku í Kongress-flokknum
að manni sínum Rajiv Iátnum
en ekki var strax ljóst. hvort
hún yrði við beiðninni. Tals-
maður Kongress-flokksins,
Pranab Mukheijee, sagði að
vinnunefndin sem fer með
æðsta ákvörðunarvald innan
Indverska þjóðin harmi slegin
- segir ræðismaður íslands í Nýju Delhí
„ÞETTA var svívirðilegur verknaður og mikið áfall fyrir ind-
versku þjóðina sem er harmi slegin,“ sagði Nand Lal Khemka,
aðalræðismaður Islands í Nýju Delhí, í samtali við Morgunblaðið
í gær þegar hann var spurður um viðbrögð við morðinu á Rajiv
Gandhi.
Að sögn Khemka fréttu flestir
Indveijar ekki af morðinu fyrr en
í gærmorgun. „Morðið var framið
klukkan 22.10 á þriðjudagskvöld.
En fjölmiðlar sögðu ekki frá því
fyrr en morguninn eftir. Eg frétti
ekki af því nema vegna þess að
sonur minn hringdi frá New York
klukkan 23. Og til marks um
hversu seint fréttin breiddist út
hér má nefna að Sonia, ekkja
Gandhis, fékk ekki vitneskju um
atburðinn fyrr en á miðnætti."
Khemka sagði að viðbúnaður
lögreglu og hers væri mikill í
landinu til að koma í veg fyrir
óeirðir. Gæsla væri mikil á landa-
mærum sambandsríkja og höfuð-
borgin væri lokuð af. Frí hefði
verið gefið á vinnustöðum og fólk
hvatt til að halda sig heima við.
flokksins hefði samldjóða valið
Soniu sem arftaka Rajivs. Hann
vildi ekki staðfesta hvort hún
yrði forsætisráðherraefni
flokksins ef hann ynni kosning-
arnar.
Sonia, sem nú er 42 ára, er
dóttir iðnjöfurs í Torino á Ítalíu.
Hún kynntist Rajiv Gandhi í Ox-
ford á Englandi, þar sem hún var
við tungumálanám en hann við
verkfræðinám. Þau voru gefin
saman í Nýju Delhí árið 1968.
Þegar Indira Gandhi móðir
Rajivs var myrt var Sonia tilneydd
að vera í sviðsljósinu meir en áð-
ur. Hún lagði sig fram um að
aðlagast indverskum Iífsvenjum
og hætti m.a. að klæðast vestræn-
um fötum. Sonia var þó ekki vin-
sæl í fjölmiðlum. Hún var sögð
alvörugefin, henni stykki aldrei
bros, og var henni fundið flest til
foráttu m.a. að gengi hún í
óklæðilegum stórum blússum. Þá
var hún gagnrýnd fyrir að hafa
of mikil áhrif á stjórnmálalegar
ákvarðanir manns síns eftir að
hann varð forsætisráðherra. Það
er ekki langt síðan farið var að
tala máli hennar og benda á að
hún hefði ekki oft ástæðu til að
brosa því hún þyrfti að búa við
stöðugar hótanir síkha um að
myrða mann hennar og hún gæti
ekki gengið í þröngum fötum
meðan hún þyrfti að vera í skot-
heldu vest.i innanundir þegar hún
kæmi fram opinberlega.
Hún hefur aðeins einu sinni
veitt indversku dagblaði viðtal við
sig en það var árið 1985. Þar
sagðist hún ekki vilja vera í sviðs-
ljósinu og gaf í skyn að hún kæmi
fram opinberlega eingöngu vegna
frama manns síns.
Fjölmiðlar á Ítalíu hafa ætíð
Iátið mikið með Soniu og jafnan
veitt henni jafn mikla ef ekki
meiri athygli en Rajiv þegar hann
hefur verið í opinberum heimsókn-
um í útlöndum.