Morgunblaðið - 23.05.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.05.1991, Blaðsíða 29
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAI1991 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvaemdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstraeti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. ( lausasölu 100 kr. eintakið. Aðgerðir ríkis- stj órnar STAÐA RIKISFJARMALANNA Skýrsla Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra: Aðstæður kalla á samstilltar aðhaldsaðgerðir í rílds- fjármálum og peningamálum Tskýrslu þeirri, sem Friðrik Soph- |_ usson, fjármálaráðherra, lagði íyrir Alþingi í gær, er gerð grein fyrir viðskilnaði fráfarandi ríkis- stjórnar í ríkisfjármálum, eins og hann blasir við núverandi ríkisstjóm. Jafnframt er lýst þeirri þenslu, sem ríkisstjórnin telur vera í efnahags- málum og loks viðbrögðum ríkis- stjórnarinnar frammi fyrir þessum vanda. í stórum dráttum má segja, að viðskilnaðurinn í ríkisfjármálum sé sá, að lánsfjárhallinn er talinn verða tvöfalt meiri en gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga og rekstrar- halli einnig rúmlega tvöfalt meiri. Heildarfjárþörf hins opinbera er talin 10 milljörðum hærri en fyrrverandi ríkisstjórn gerði ráð fyrir. Auðvitað er hér að hluta til um spár að ræða, en fjármálaráðuneytið gengur ekki lengra en svo, að Ríkisendurskoðun telur, að bæði lánsfjárhalli ogrekstr- arhalli verði meiri en fjármálaráðu- neytið gerir ráð fyrir. Hvorki Ólafur Ragnar Grímsson né Steingrímur Hermannsson geta neitað því, að þetta er hörmulegur viðskilnaður. Þessi mikli hallarekstur opinbera geirans hefur að sjálfsögðu þenslu- áhrif í efnahagslífinu. Þjóðhags- stofnun telur að viðskiptahallinn gæti orðið um 4,5% af landsfram- leiðslu og fjármálaráðherra bendir á, að almennur innflutningur hefur aukizt um 20% á fyrstu fjórum mán- uðum þessa árs en minnkaði um 5% á sama tíma í fyrra. Þá bendir fjár- málaráðherra á til rökstuðnings því, að um óeðlilega þenslu sé að ræða, að bílainnflutningur hafi aukizt um 70% frá fyrra ári. Til þess að taka á fjárhagsvanda hins opinbera og draga úr þenslu hefur ríkisstjómin gripið til þess ráðs að hækka vexti verulega, jafn- framt því, sem fyrirheit eru gefín í skýrslunni um niðurskurð á ýmsum útgjaldaliðum, sem sýnist nema um 1.650 milljónum, auk þess, sem hætt er við opinberar lántökur, sem nema um 900 milljónum. Þessar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar og aðrar þýða að hennar mati að láns- Ijárhallinn minnki úr 13 milljörðum í 7 milljárða. Það er í fyrsta lagi jákvætt við þessar aðgerðir, að núverandi ríkis- stjórn kemur ekki til hugar að hækka skatta á landslýð. Óhætt er að fullyrða, að sæti vinstri stjórn enn við völd væri hún nú að leggja fyrir Alþingi tillögur um nýja og stór- hækkaða skatta í samræmi við þær yfirlýsingar, sem Steingrímur Her- mannsson og Ólafur Ragnar Gríms- son gáfu fyrir kosningar. I annan stað ber að fagna fyrsta skrefínu, sem ríkisstjórnin tekur til þess að skera niður opinber útgjöld. Það skref er ekki stórt og hefði mátt vera stærra og enn er óljóst, hvem- ig til tekst. Verður t.d. hægt að framkvæma 500 milljóna króna nið- urskurð í heilbrigðisgeiranum? Engu að síður er mikilvægt, að nú situr ríkisstjórn, sem leggur áherzlu á að draga úr opinberum útgjöldum í stað þess að hækka skatta. í þriðja lagi hyggst ríkisstjórnin hætta við ýmsar fyrirhugaðar lán- tökur á vegum opinberra aðila. Þar er einnig um jákvætt framtak að ræða. Fjárhagsvandi hins opinbera verður ekki leystur með endalausum lántökum. Mönnum ber saman um, að sú þensla, sem um er rætt í efnahagslíf- inu stafi ekki af mikilli uppsveiflu í atvinnulífinu heldur sé um peninga- lega þenslu að ræða. Óhikað má fullyrða, að atvinnureksturinn hefur styrkt stöðu sína verulega á undan- förnum misserum. Fjölmörg fyrir- tæki skiluðu góðum hagnaði á síðasta ári og sjávarútvegurinn hef- ur um nokkurt skeið greitt niður skuldir. Gera má ráð fyrir, að mörg einkafyrirtæki hugsi sér nú til hreyf- ings á nýjan leik. Slík þensla er af hinu góða enda hefur atvinnulífíð verið í miklum öldudal á þriðja ár. Miklu skiptir, að vaxtahækkanir, sem fylgja í kjölfar ákvarðana ríkis- stjórnarinnar í vaxtamálum verði ekki til þess að stöðva þá uppsveiflu í atvinnulífínu, sem er á ferðinni. Bæði atvinnurekstur og einstakling- ar eru reynslunni ríkari og vita bet- ur en áður hvað hvert prósentustig í vöxtum skiptir miklu máli. Þess vegna er ástæða til að vekja athygli á því að í skýrslu íjármálaráðherra til Alþingis í gær segir m.a.: „Að undanförnu hafa vextir banka og verðbréfafyrirtækja farið hækkandi og því ætti vaxtahækkun ríkissjóðs ekki að leiða til almennrar vaxta- hækkunar nema að takmörkuðu leyti.“ Fróðlegt verður að sjá, hvort bankar og sparisjóðir verða sammála þessari yfirlýsingu íjármálaráð- herra, en þeir taka væntanlega ákvarðanir um vaxtabreytingar um næstu mánaðamót. Þær ákvarðanir geta haft mikil áhrif á það, hvort uppsveifla í atvinnulífinu heldur áfram eða hvort hún kafnar í fæð- ingu. Á blaðamannafundi í gær var- aði Friðrik Sophusson bankana við því að nota vaxtaákvarðanir nú sem tilefni til þess að auka vaxtamun og sagði að veita yrði bönkunum aðhald sem öðrum, en í samtali við Morgunblaðið í dag segir Valur Vals- son, formaður bankastjórnar ís- landsbanka, að nauðsynlegt sé að auka vaxtamun, þar sem bankarnir séu reknir með tapi. Þarna sýnist stefna í árekstur milli bankanna og ljármálaráðherra. Þegar á heildina er litið stefna aðgerðir ríkisstjómarinnar tvímæla- laust í rétta átt. En sumarið þarf að nota til þess að undirbúa rækileg- ar aðgerðir til þess að hemja út- gjaldaþenslu ríkisbáknsins og til þess að undirbúa sölu ríkisfyrir- tækja. Núverandi ríkisstjórn hefur mikið verk að vinna. Hún hefur markað rétta stefnu í grundvallarat- riðum. Eftir er að útfæra hana í framkvæmd svo að verulegu máli skipti. Þá fyrst reynir á þolrifin í meðráðherrum fjármálaráðherra og alþingismönnum, en þessir tveir hóp- ar, fagráðherrar og þingmenn ein- stakra kjördæma, hafa reynzt flest- um fjármálaráðherrum þungir í skauti. HÉR fer á eftir í heild skýrsla Friðriks Sophussonar fjármála- ráðherra um ríkisfjármál 1991, stöðu, horfur og aðgerðir, sem hann lagði fram á Alþingi í gær: Formáli Ný ríkisstjórn tók við völdum 30. apríl sl. Eitt fyrsta verkefni hennar var að óska eftir því við fjármálaráð- herra að lögð yrði fyrir Alþingi skýrsla um stöðu ríkisfjármála. Nú liggja fyrir niðurstöður um stöðu ríkissjóðs við stjórnarskipti, horfur út árið _og fyrstu aðgerðir nýrrar stjórnar. í þessari skýrslu eru dregnir saman helstu þættir ríkisíjár- málanna og gerð grein fyrir breyttum aðstæðum í efnahagsmálum frá því fjárlög voru afgreidd um sl. áramót. Utlitið í efnahagsmálunum hefur fremur dökknað heldur en hitt. Mis- vægið í þjóðarbúskapnum birtist meðal annars í vaxandi viðskipta- halla við útlönd, auknum útlánum bankakerfisins og minnkandi sparn- aði. Jafnframt hafa ýmsar ákvarðan- ir, sem fyrrverandi ríkisstjórn tók undir lok starfstíma síns, veikt stöðu ríkisfjármálanna. Þessar aðstæður kalla á samstilltar aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum og peningamálum. Við stjómarskiptin stefndi í um 10 milljarða króna meiri lánsfjárþörf ríkissjóðs, húsnæðislánakerfisins og annarra opinberra aðila en áformað var við afgreiðslu fjárlaga. Aukin lánsfjárþörf hins opinbera verður fyrst og fremst rakin til þess að þeg- ar nær dró kosningum slaknaði á því takmarkaða aðhaldi sem fyrrverandi ríkisstjórn hafði haft í ríkisljármál- um. Þannig gaf hún fyrirheit um aukin útgjöld til ýmissa verkefna, skuldbatt ríkissjóð um háar ijárhæð- ir á komandi árum og aðhafðist ekk- ert í vaxtamálum. Samtímis því sem lánsíjárþörf hins opinbera stórjókst, benda áætlanir Seðlabanka til þess að innlendur sparnaður verði 10-12 milljörðum króna minni heldur en spáð var um sl. áramót. Nú er svo komið að láns- fjárþörf allra opinberra aðila, þ.e. ríkissjóðs, húsnæðislánasjóðanna og annarra opinberra stofnana og sjóða, er áætluð 33-34 milljarðar króna á sama tíma og spáð er að allur inn- lendur sparnaður nemi aðeins um 26-27 milljörðum króna. Við þær aðstæður sem hér er lýst er fyrirsjáanlegt að mjög erfitt mun reynast að mæta lánsfjárþörf hins opinbera á innlendum lánamarkaði jafnvel þó hækkun raunvaxta komi til. Einnig verður að telja varhuga- vert að hið opinbera reyni svo á inn- lenda lánsfjármarkaðinn að atvinnu- fyrirtækjum verði í stórum stíl ýtt á erlendan lánamarkað. Ýmsar veilur hafa komið fram í áætlunum um afkomu A-hluta ríkis- sjóðs. Þannig er nú talið að rekstrar- halli geti orðið rúmir 9 milljarðar króna verði ekkert að gert, í stað um 4 milljarða króna í samþykktum fjárlögum. Fyrrverandi ríkisstjórn hafði uppi áform um nýjar skatta- álögur og lækkun útgjalda, hvorugt kom þó til framkvæmda. Að auki hefur komið í ljós að framlög t.d. til almannatrygginga og Lánasjóðs íslenskra námsmanna eru alltof lág miðað við núgildandi starfsreglur. Með tilliti til þeirra aðstæðna sem hér er lýst og þeirrar áherslu sem ríkisstjórnin leggur á stöðugleika í efnahagsmálum hefur hún ákveðið þríþættar aðgerðir. I fyrsta lagi að hækka vexti á verðbréfum ríkissjóðs um 1,5-1,9% svo takast megi að fjármagna halla ársins í einhverjum mæli innanlands. Þá hefur verið ákveðið að hækka vexti á útlánum Byggingarsjóðs ríkisins í 4,9% en það er nauðsynlegt til þess að fjárhagsstaða sjóðsins rýrni ekki enn frekar. I öðru lagi verður eftirlit með inn- heimtu tekna og útgjöldum ríkissjóðs hert. Með hertum aðhaldsaðgerðum er talið að draga megi úr lánsfjár- þörf ríkissjóðs um á annan milljarð króna. Loks hefur ríkisstjórnin ákveðið að lækka útgjöld og falla frá ýmsum lántökuáformum sem fyrrverandi ríkisstjórn beitti sér fyrir. Hér er einkum um að ræða fyrirgreiðslu við atvinnuvegi, sem eðlilegt er að banka- og sjóðakerfið leysi, lækkun á framlögum til framkvæmda sem ekki eru bráðnauðsynlegar og mark- vissum aðgerðum til lækkunar á út- gjöldum almannatrygginga o.fl. Áhrif þeirra aðgerða sem ríkis- stjórnin hefur ákveðið eru talin draga úr lánsijárþörfinni um 5-6 milljarða króna strax á þessu ári. Ríkisstjórnin væntir þess að aðgerðirnar verði til þess að á ný náist stöðugleiki í verð- lags- og kjaramálum. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra. 1. Heildaryfirlit Fjárlög 1991. Við afgreiðslu fjár- laga í lok síðasta árs voru ýmsar forsendur þeirra óvissar. Þannig voru mikilvægir þættir efnahagsmála óráðnir og lánsfjárlög óafgreidd. Nið- urstaða fjárlaga var að lánsfjárhalli ríkissjóðs, þ.e. hrein lánsfjárþörf, yrði tæplega 5,9 milljarðar króna en halli á rekstrarreikningi 4,1 milljarð- ur. Áformað var að brúa lánsfjár- halla ríkissjóðs að öllu leyti með inn- lendum lánum og gott betur því jafn- framt var fyrirhugað að veija tæp- lega 1,5 milljörðum króna til að greiða niður erlendar skuldir. Upphafleg lántökuáform. Áætl- anir Seðlabanka frá því um síðustu áramót gerðu ráð fyrir að innlendur sparnaður myndi aukast um 38 millj- arða króna á þessu ári. Auk lánsfjár- halla ríkissjóðs var talið að aðrir opinberir aðilar, einkum húsnæði- skerfið, þyrftu að taka tæplega 18 milljarða króna að láni til þess að fjármagna starfsemi sína. Heildar- lánsfjárþörf opinberra aðila, þ.e. ríkissjóðs, húsnæðislánasjóðanna og annarra opinberra stofnana og sjóða, var því áætluð 24 milljarðar króna og var áformað að taka tæplega 23 milljarða að láni innanlands. Þannig var að því stefnt að beina rúmlega 60% af nýjum sparnaði til opinberra aðila. Þetta er svipað hlut- fall og árið 1990. Árið 1989 var hlut- fallið hins vegar 38%. Hér þarf þó að hafa í huga að árið 1990 var um margt einstakt hvað snertir þróun peningamála þar sem nýr sparnaður jókst verulega. Aukin þensla — minni sparnað- ur. Á síðustu mánuðum hefur komið fram misvægi í þjóðarbúskapnum sem meðal annars birtist í aukinni innlendri eftirspurn, auknum útlán- um og minnkandi sparnaði. Sam- kvæmt nýrri spá Seðlabanka er nýr sparnaður að óbreyttu talinn verða mun minni á þessu ári en áður var áætlað, eða um 26 milljarðar króna í stað 38 milljarða. Jafnvel þótt miðað væri við lán- tökuáform fjárlaga sem gerðu ráð fyrir að opinberir aðilar tækju 23 milljarða króna að láni innanlands jafngilti það því að tæplega 90% nýs sparnaðar rynnu til hins opinbera. Það verður að teljast óæskilegt að opinberir aðilar seilist svo langt í innlendri lánsfláröflun þar sem það stuðlar að hækkun raunvaxta og ýtir atvinnufyrirtækjum út í innlenda lántöku með tilheyrandi þensluáhrif- um. Endurskoðuð áætlun um halla rikissjóðs. Nú liggja fyrir upplýsing- ar um framvindu ríkisfjármála fyrstu fjóra mánuði ársins. Jafnframt hafa lánsfjárlög verið afgreidd. Þetta gef- ur færi á að endurmeta fyrri áætlan- ir um horfur í ríkisfjármálum á þessu ári. Þá hafa ýmsir þættir ríkisfjár- málanna verið í sérstakri skoðun að undanförnu í samvinnu Ijármála- ráðuneytisins og annarra ráðuneyta sem hefur dregið fram veikleika á nokkrum sviðum umfram það sem áður var reiknað með. Samkvæmt þessu endurmati stefnir í mun meiri halla á ríkissjóði en gert var ráð fyrir á fjárlögum. Þannig er talið að lánsfjárhallinn geti orðið 13,1 milljarður króna og haili á rekstrarreikningi 9,1 milljarð- ur. Þetta eru nokkuð hærri tölur en í mati_ ráðuneytisins frá því í lok apríl. Útgjöldin hafa hækkað um 1,5 milljarða króna vegna aukinnar fjár- þarfar almannatryggingakerfisins annars vegar og Lánasjóðs íslenskra námsmanna hins vegar. Á móti veg- ur 300 m.kr. hækkun á tekjuhlið vegna meiri innheimtu í apríl en reiknað var með. Fyrirvarar við mat á lánsfjár- halla. Áætlanir um halla ríkissjóðs og lánsfjárþörf eru varkárar. Þannig má nefna að ekki er gert ráð fyrir sérstökum áföllum á útgjaldahlið umfram það sem þegar er vitað um. Þá eru ýmsir óvissuþættir á tekjuhlið sem gætu haft í för með sér frekari Iækkun tekna en hér er reiknað með. Á móti vegur að verði veltu- breytingar meiri í þjóðarbúskapnum en gert var ráð fyrir í forsendum fjárlaganna skilar það sér í auknum tekjum. Skuldbindingar ríkissjóðs til næstu ára. Að undanförnu hafa orð- ið nokkrar umræður um fjárhags- skuldbindingar ríkissjóðs og áhrif þeirra á ríkisfjármálin. Þessi umræða er hluti af stærra máli sem snýst um það hvemig eigi að bókfæra skuldbindingar í ríkisreikningi. Þær tölur sem birtast í íjárlögum sýna raunverulegt greiðslustreymi í og úr ríkissjóði innan ársins. í þessu felst að skuldbindingar sem ríkissjóður gengst undir eru gjaldfærðar þegar greiðsla fer fram en ekki við undir- skrift samnings. Jafnhliða áætlun íjárlaga er þó mikilvægt að fyrir liggi á hveijum tíma yfirlit yfir skuldbind- ingar ríkissjóðs svo meta megi horf- urnar fram í tímann. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs var stofnað til ýmissa skuldbind- inga, ýmist með beinni heimild Al- þingis eða fyrirvara um samþykki þess.' Heildarfjárhæð þessara skuld- bindinga er áætluð rúmlega 12 millj- arðar króna. Þar af er talið að rúm- lega 2 milljarðar króna komi til greiðslu á þessu ári ýmist í formi beinna útgjalda eða lána, en það sem eftir stendur kemur til greiðslu á næstu 6-10 árum. Áætlun Ríkisendurskoðunar. í nýlegri áætlun frá Ríkisendurskoðun er gert ráð fyrir að lánsfjárhalli ríkis- sjóðs verði 14,6 milljarðar króna og rekstrarhallinn 12,2 milljarðar. Mun- urinn á áætlunum fjármálaráðuneyt- isins og Ríkisendurskoðunar er tvíþættur. í áætlun ráðuneytisins er ekki reiknað með fjárskuldbindingu ríkissjóðs vegna búvörusamnings upp á tvo milljarða króna þar sem hún hefur ekki í för með sér greiðsl- ur úr ríkissjóði á þessu ári. Þá er í áætlun ráðuneytisins ekki reiknað með að sérstök lánveiting til Hús- næðisstofnunar gjaldfalli á ríkissjóð heldur er hún bókuð sem lán. Hér eru því engin áhöld um skuld- bindingarnar sem slíkar heldur ein- göngu um bókfærsluna og saman- burð við fjárlög. Nú um nokkurt skeið hefur reyndar verið unnið að því að samræma þessi bókfærsluat- riði í samvinnu helstu stofnana á þessu sviði og verður því verki lokið innan tíðar. Heildarlánsfjárþörf opinberra aðila. Samkvæmt endurskoðaðri áætlun fjármálaráðuneytisins er lánsfjárhalli ríkissjóðs og annarra opinberra aðila nú talinn stefna mun hærra en áður var áætlað, eða í rúm- lega 34 milljarða króna á árinu mið- að við þegar teknar ákvarðanir og áform. Þetta er tæplega 11 milljörð- um króna meira en gert var ráð fyr- ir um síðustu áramót. Þar af má rekja rúmlega 7 milljarða til A-hluta ríkissjóðs. Aðhaldsaðgerðir. Sú þróun sem hér hefur verið lýst bendir til þess að slaknað hafí á stjórn efnahags- mála að undanförnu. Það er alveg ljóst að innlendi peningamarkaðurinn ber engan veginn lánsfjárþörf hins opinbera hvort sem miðað er við upphafleg áform eða endurskoðaða áætlun. Jafnframt mun aukin erlend lántaka eða yfirdráttur í Seðlabanka leiða til þenslu og stefna markmiðum um jafnvægi í efnahagslífinu í tvísýnu. Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að grípa til sérstakra viðnámsaðgerða með tvíþættu markmiði. Annars veg- ar að skapa skilyrði til aukins inn- lends sparnaðar og þar með minnka þenslu innanlands. Hins vegar að skera niður útgjöld og lánveitingar ríkissjóðs og annarra opinberra aðila og draga þannig úr lánsijárþörfinni. Aðgerðirnar eru í aðalatriðum þríþættar. í fyrsta lagi á sviði vaxta- mála. Hér er bæði um að ræða tíma- bundna vaxtahækkun á ríkisverð- bréfum og samræmingu á vöxtum í húsnæðiskerfinu. Jafnframt verður unnið að því að gera vaxtaákvörðun á ríkisverðbréfum sveigjanlegri. Þá er stefnt að því að takmarka heimild- ir ríkissjóðs til yfirdráttar í Seðla- banka. I öðru lagi verður beitt mun meira aðhaldi í ríkisbúskapnum en verið hefur, bæði með því að herða eftirlit með innheimtu tekna og út- gjöldum ríkissjóðs. I þriðja lagi hefur ríkisstjórnin ákveðið að lækka út- gjöld og falla frá ýmsum lántöku- áformum sem blöstu við þegar hún tók við völdum. Talið er að þessar aðgerðir geti dregið úr lánsfjárþörfinni um allt að 6 milljörðum króna þegar á þessu ári. Þar með er dregið úr hættunni á áframhaldandi óstöðugleika í efna- hagslífinu. 2. Framvindan fyrstu fjóra mánuðina 1. Afkoman Aukinn halli ríkissjóðs. Afkoma ríkissjóðs var talsvert lakari fyrstu fjóra mánuði þessa árs en á sama tíma í fyrra. Frávikin frá síðasta ári eru tvenns konar. Annars vegar meiri lánsfjárhalli ríkissjóðs, hins vegar aukinn yfirdráttur í Seðla- banka. Eins og fram kemur í með- fylgjandi töflu er lánsfjárhalli ríkis- sjóðs rúmlega 2 milljörðum króna meiri nú í apríllok en á sama tíma í fyrra. Þetta stafar fyrst og fremst af 1,5 milljarða króna lánafyrir- MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991 29 Viðskilnaður síðustu ríkisstjór Lánsfjárhalli skv. fjárlögum átti að vera 1 1;5.9 milljarðar en verður skv. nýju mati fjármálaráðuneytis I ~t 13,1 milljarður Rekstrarhallinn skv. fjárlögum átti að vera I I 4.1 milljarður en verður skv. nýju mati fjármálaráðuneytis 1 19.1 milljarður Rikisendurskoðun telur lánsfjárholla verða W L og rekstrarhalla rikissjóðs verða nig|n Wm j 14,6 milljarða 12,2 milljarða Heildarlánsf járþörf opinberra aðila var talin verða c____________________________________ en skv. nýju mati verður hún að óbreyttu J 24 milljarðar r 334 Heildarlánsfjárþörfin er því meiri en taliö var, sem nemur 10 milljörðum milljarðar Svona kemur þenslan fram Þjóðhaasstofnun telur, að viðskiptahallinn við útlönd geti oroið (sem hlutfall af landsframleiðslu) 4,5% Árið 1989 var viðskiptahallinn I ~fel-^ Á fyrstu fjórum mánuðum ársins iiufjjtiórnvöld » skuldbindinaar með samþykki Alþingis eða fyrirva samþykki Álþingis, sem nema milljörðutn Fyrstu fjóra mánuði ársins hefur almennur innflutningur aukist um 5%rz C Jj en á sama tima i fyrra minnkaði hann Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hefjtr bílainnflutningur aukist um - g i'i»«wittmg 70% Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera: Hækka vexti af spariskírteinum úr[ ; 36,0% 17,9% Hækka vexti af húsnæðislánum Lánasjóður íslenskra námsmanna skorinn niður 100 milljónir Framlag til vegamála Heilbrigðiskerfið Hætt við lántökur Hætt við lántöku vegna úreldingar loðnuverk I i 200 milljónir Lántaka Byggðastofnunar lækkuð um r......... Lántaka Landsvirkjunar . 500 milljónir Lækkun lántöku Landsvirkjunar þýðir: Hækkun fyrir neitendur að hluta og... Landsvirkjun herðir sultarólina að hluta ur Þessar aðgerðir þýða að lánsf járhallinn minnkar.. milljörðum í ’ milljarða greiðslu ríkissjóðs við Byggingarsjóð ríkjsins í upphafi þessa árs. í fyrra tókst að brúa lánsfjárþörf fyrstu mánuðina að verulegu leyti með sölu ríkisvíxla og spariskírteina. Á þessu ári hefur sala ríkisvíxla og spariskírteina hins vegar gengið treglega og innlausn verið langt umfram sölu nýrra. Þannig nam sala ríkisvíxla og spariskírteina í fyrra 3,8 milljörðum króna umfram inn- lausn, en í ár hefur dæmið snúist við þannig að nú er 2,8 milljarða króna innlausn umfram sölu á nýjum bréfum. Viðsnúningur frá fyrra ári er um 6,6 milljarðar króna. Greiðslu- afkoma ríkissjóðs var því mun lakari nú í lok apríl en á sama tíma í fyrra. Frá síðustu áramótum hefur milljörðum króna samanborið við 27,4 milljarða króna árið 1990. Hækkunin milli ára er 8,7%, en á sama tíma hefur verðlag hækkað um 6-7%. Samkvæmt því hafa innheimt- ar tekjur ríkissjóðs aukist um 2% að raungildi frá fyrra ári, heldur meira en reiknað var með. Innheimta beinna skatta jókst um 3,7% frá fyrra ára. Þetta er svipað og búist var við. Óbeinir skattar hækkuðu mun meira milli ára, eða um 10,4%. Aukningin kemur fyrst og fremst fram í meiri tekjum a_f innflutningi, einkum bifreiða. Á ■fyrstu fjórum mánuðum þessa árs voru fluttir inn rúmlega 3.600 bílar samanborið við 2.200 bíla í sömu mánuðum 1990. Þetta er langt um- Innheimtar tekjur janúar-apríl 1990 og 1991 Greiðslugrunnur 1990 1991 Breyting m.kr. m.kr. % Tekju-og eignarskattar ......................... 5.575 5.783 3,7 Einstaklingar ................................... 4.461 4.653 4,3 Fyrirtæki ....................................... 1.114 1.130 1,4 Óbeinir skattar ............................... 20.307 22.412 10,4 Innflutningsgjöld ............................... 2.253 2.790 23,8 Virðisaukaskattur .............................. 11.328 12.045 6,3 Hagnaður ÁTVR ................................... 1.500 1.650 10,0 Launa-ogtryggingagjöld .......................... 2.411 2.575 6,8 Bifreiðagjöld ................................... 1.561 2.011 28,8 Aðrirskattar .................................... 1.254 1.341 6,9 Aðrartekjur ...................................... 1.564 1.634 4,5 Vaxtatekjur ..................................... 1.389 1.197 5-13,8 Arðgreiðslur o.fl.................................. 175 437 149,7 Heildartekjur ríkissjóðs ........................ 27.446 29.829 8,7 Afkoma rikissjóðs janúar — apríl 1990 og 1991 Grciðslugjrunnur 1990 m.kr. 1991 Breyting m.kr. 90-91 m.kr. % Tekjur 27.446 29.829 2.383 8,7 Gjöld 30.271 35.353 5.082 16,8 Rekstrarhalli -5-2.825 •5-5.524 -52.699 — Lánveitingar, nettó -5-3.235 -5-2.564 671 — Lánsfjárhalli, þ.e. hrein lánsfjárþörf . -5-6.060 -5-8.088 5-2.028 Lántökur alls, nettó 3.150 -51.151 5-4.301 — þar af ríkisvíxlar 3.605 •5-2.626 5-6.231 — — spariskírteini 158 5-182 5-340 — —önnurlán -5-613 1.657 2.270 — Greiðsluafkoma -5-2.910 5-9.239 5-6.329 — þar af staðan gagnvart Seðlabanka -5-3.085 5-9.050 5-5.965 — greiðsluafkoman versnað um 9,2 milljarða króna og hefur ríkissjóður orðið að mæta lánsfjárþörfinni með yfirdrætti í Seðlabanka. 2. Tekjur ríkissjóðs Fyrstu fjóra mánuði ársins námu innheimtar tekjur ríkissjóðs 29,8 fram það sem gert var ráð fyrir í tekjuáætlun fjárlaga. Aukningar gætir einnig í innheimtu annarra innflutningsgjaida. Þessi þróun end- urspeglar aukna innflutningseftir- spurn á fyrstu mánuðum ársins sem gæti numið allt að 20% að raungildi samanborið við síðasta ár. Það sem af er ári hefur innheimta virðisaukaskatts verið svipuð og búist var við þegar á heildina er lit- ið. Þetta segir þó ekki alla söguna. Þannig var innheimta virðisauka- skatts í tolli mun meiri fyrstu fjóra mánuði ársins en reiknað var með. Tölur fyrir fyrri hluta maímánaðar benda til svipaðrar þróunar. Þetta er í takt við þær vísbendingar sem inn- heimta almennra innflutningsgjalda gefur. Á móti vegur að innheimtur virðisaukaskattur af almennri veltu var minni en áætlað var þrátt fyrir greinileg merki um aukin umsvif í þjóðarbúskapnum undanfarna mán- uði. Meginskýringin er sú að frá- dráttur vegna innskatts, þ.e. endur- greidds virðisaukaskatts af aðföng- um og fjárfestingum í atvinnu- rekstri, virðist hafa aukist mun meira en útskattur, þ.e. endanlegur virðis- aukaskattur af eiginlegri veltu. Þetta gæti bent til vaxandi fjárfestinga í atvinnulífinu sem meðal annars birt- ist í auknum innflutningi atvinnubif- reiða. Innheimta bifreiðagjajda hefur aukist talsvert milli ára. Ástæðan er fyrst og fremst ákvörðun stjórnvalda í tengslum við febrúarsamningana á síðasta ári að fresta gjalddaga bif- reiðagjalds um þijá mánuði. Við það urðu tekjur ríkissjóðs af bifreiða- gjöldum á fyrri hluta árs 1990 minni en áætlað var sem var síðan unnið upp á síðari hiuta ársins. Þá hefur innheimta bensíngjalds og þunga- skátts, en það eru markaðir tekju- stofnar til vegagerðar, verið heldur betri undanfarna mánuði en áætlað hafði verið. Eins og búist var við hafa tekjur af vöxtum dregist talsvert saman frá fyrra ári vegna lækkandi vaxtastigs, eða um fimmtung að raungildi. Á móti vegur bókfærður hagnaður af sölu fasteigna að fjárhæð rúmlega SJÁ SÍÐU 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.