Morgunblaðið - 23.05.1991, Page 33
MOMUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
33
Siippstöðin tapar þriðja árið í röð:
Vaxtakostnaður vegna
nýsmíðaskips 30 imllj.
TAP varð af reksti Slippstöðvarinnar á síðasta ári, en það er þriðja árið
í röð sem fyrirtækið er rekið með halla. Tap síðasta árs nam 25 millj-
ónum króna og má að stærstum hluta rekja það til fjármagnskostnaðar
vegna nýsmíðaskipsins B-70, sem enn liggur óselt við brj'ggju Slippstöðv-
arinnar. Brýnasta verkefni stöðvarinnar er hið sama og í fyrra; að selja
umrætt skip. Á aðalfundi fyrirtækisins á laugardag var félaginu kjörin
ný stjórn og koma allir utan einn stjórnarmanna nýir inn í stjórnina nú.
Sem kunnugt er var nýtt skip,
Þórunn Sveinsdóttir sjósett hjá Slipp-
stöðinni nýlega, en samningur um
smíði skipsins er sá fyrsti frá árinu
1983 sem gerður er áður en smíði
hefst. „Að sjö ár skuli líða milli samn-
inga hjá stærstu skipasmíðastöð
landsins á sama tíma og nýsmíðar í
tugatali koma erlendis frá segir sína
sögu um stöðu skipasmíðaiðnaðar-
ins,“ segir Ottó Jakobsson fráfarandi
stjórnarformaður í skýrslu um rekst-
ur síðasta árs.
Þar kemur einnig fram að þreng-
ingar í þessum iðnaði og stöðug
fækkun starfsfólks sé mikið áhyggju-
efni. í upphafí síðasta árs störfuðu
um 200 manns hjá stöðinni, en í
árslok voru þeir 170 og hafa ekki
verið færri síðan 1969. Þegar flest
starfsfólk var á árinum 1980-’82
störfuðu um 300 manns hjá Slipp-
stöðinni.
Tap síðasta árs er að mestu til
komið vegna fjármagnskostnaðar
sem rekja má til nýsmíðaskipsins.
B-70, en á síðasta ára var fjármagns-
kostnaður vegna hins óselda skips
um 30 milljónir króna. Önnur atriði
skipta og máli, sveiflur í framboði
verkefna, lágt verð vegna mikillar
samkeppni og töpuð viðskiptakrafa
upp á 12 milljónir vegna Hraðfrysti-
húss Keflavíkur hf. Fráfarandi form-
aður segir í skýrslu sinni að rekstrar-
niðurstaða ársins hafi ekki oft verði
hagstæðari á undanförnum árum, en
7,3 milljóna króna hagnaður varð af
reglulegri starfsemi fyrir fjármagns-
liði.
Á síðasta ári voru nýsmíðar 13%
af starfsemi Slippstöðvarinnar, við-
gerðir 68% og önnur starfsemi 19%,
en þar má nefna að ráðist var í úr-
bætur á aðstöðu og brunavörnum.
Ný stjórn var kjörin á aðalfundin-
um, en í henni sitja nú þeir Tómas
Ingi Olrich, Hólmsteinn Hólmsteins-
son, Sigurður Arnórsson og Magnús
Pétursson fyrir hönd ríkisins og þeir
Hákon Hákonarson og Knútur Karls-
son fyrir hönd Akureyrarbæjar, en
þarna er um að ræða nýja menn í
stjórn Slippstöðvarinnar. Magnús
Gauti Gautason situr sem fyrr í
stjórninni fyrir hönd Kaupfélags
Eyfirðinga.
Forsetinn baksviðs
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, sá sýn-
ingu Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Kysstu
mig Kata sl. föstudagskvöld. Eftir sýningu var for-
setanum boðið í hóf þar sem leikararnir klæddust
hinum íburðarmiklu búningum sýningarinnar. Söng-
leikurinn hefur gengið afar vel og hafa nær fimm
þúsund gestir séð verkið, en sýningum fej nú fækk-
andi, enda velheppnuðu leikári að ljúka. Á er forset-
inn ásamt þremur af aðalleikurum sýningarinnar,
þeim Vilborgu Halldórsdóttur, Helga Björnssyni og
Ragnhildi Gísladóttur.
Hlutabréf bæjarins í ÚA:
Ávöxtun eignarhlutarins 89%
frá því í septembermánuði
MARKAÐSVERÐ hlutabréfa Akureyrarbæjar í Útgerðarfélagi Akur-
eyringa er nú 1.159 milljonir króna miðað við gengið 4,2. Eignarhlut-
ur bæjarins á markaðsverði fyrir hlutafjáraukningu í félaginu á síð-
asta ári hefur hækkað úr 583 milljónum króna miðað við gengið 2,5
í 1.077 miiyónir nú, eða um 494 milljónir á tæpu ári. Ávöxtun hluta-
bréfanna hefur verið tæplega 89% frá því þau voru sett á markað
í september á síðasta ári og þar til nú.
Þetta kom fram í svari Halldórs
Jónssonar bæjarstjóra við fyrir-
spurn Gísla Braga Hjartarsonar
bæjarfulltrúa, en hann spurði hver
eignarhlutur bæjarins í ÚA væri
nú og hvaða breyting hefði orðið á
í kjölfar þess að hlutabréf í félaginu
voru sett á markað.
Fiskiðja Raufarhafnar og Jökull:
Hagnaður af starfsemi fyrirtælgaima
Raufarhöfn.
Á AÐALFUNDI Fiskiðju Raufar-
hafnar hf. og Jökuls hf. sem hald-
inn var 20. maí sl. kom fram að
hagnaður varð af reglulegri starf-
semi beggja félaganna.
Hagnaður Fiskiðju Raufarhafnar
hf. nam 25,8 milljónum af 341,5
milljón kr. tekjum, eða 7,5% þegar
færðar höfðu verið afskriftir að upp-
hæð kr. 18,7 milljónir. Fiskiðjan tók
á móti 3,391 tonni af fiski og fram-
leiddi 1.228 tonn af freðfiski go 227
tonn af saltfiski. Eigið fé Fiskiðju
Raufarhafnar hf. nam í árslok 87,2
milljónum króna.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
Jökuls hf. nam 10 milljónum af 170,7
milljóna króna tekjum eða 5,9% þeg-
ar færðar höfðu verið afskriftir að
upphæð 10,5 milljónir króna. Afli
Rauðanúps ÞH nam á síðasta ári
2.421 tonn, en afli Atlanúps ÞH var
360 tonn, þar af 207 tonn rækja.
Atlanúpur ÞH var seldur á árinu,
en Jökull hf. hélt eftir aflahlutdeild
bátsins. Eigið fé Jökuls nam í árslok
147,1 milljón króna og er þá stuðst
við 90% af vátryggingaverði Rauðan-
úps ÞH.
Helgi
í upphafi síðasta árs, 1990, átti
Akureyrarbær 70,8% hlutafjár í
ÚA, en á þeim tíma var ekki til
raunhæft skráð markaðsverð á
hlutabréfunum þar sem nær engin
bréf voru til sölu á markaði á þeim
tíma. Á aðalfundi félagsins á síð-
asta ári var ákveðið að auka hlut-
afé um rúmar 100 milljónir og var
það gert í tveimur útboðum.
Bærinn nýtti sér forkaupsrétt að
hlutabréfum í_ fyrra útboðinu að
hálfu, en fól ÚA að selja fyrir sig
hutabréf eftir síðara útboðið að
nafnvirði 33,4 milljónir króna.
í árslok 1990 var hlutur Akur-
eyrarbæjar rúmar 250 milljónir af
430 milljóna króna heildarhlutafé
eða 58,3%. Markaðsverð hlutabréfa
í eigu bæjarins var um áramót 916
milljónir króna, en eftirþá ákvörðun
aðalfundar í síðasta mánuði að
greiða hluthöfum 10% arð og gefa
út 10% jöfnunarhlutabréf er hlutur
bæjarins í félaginu 276 milljónir
króna að nafnvirði, eða 1.159 millj-
ónir á markaðsverði miðað við
gengið 4,2.
Veitt verðlaun
fyrir ljóðagerð
SIGMUNDUR Ernir Rúnarsson og
Iljalti Finnsson hlutu fyrstu verð-
laun í ljóðasamkeppni sem Menn-
ingarsamtök Norðlendinga og
dagblaðið Dagur efndu til.
Hjalti Finnsson, Ártúni í Eyja-
fjarðarsveit, hlaut fyrstu verðlaun
fyrir ljóð sitt Fjallaskáld, en þar var
um að ræða flokk hefðbundinna
ljóða. Önnur verðlaun hlaut Jón Er-
lendsson fyrir Haustljóð.
í flokki óbundinna ljóða var ljóð
Sigmundar Ernis Rúnarssonar, Fast
að flalli, valið best. í öðru sæti varð
ljóðið Brýnt eftir Aðalstein Svan
Sigfússon.
Dómnefnd veitti og viðurkenning-
ar fyrir til tveggja höfunda í hvorum
flokki. Þau hlutu Jón Erlendsson,
Bragi Magnússon, Hjörtur Pálsson,
Reykjavík og Helga Þorsteinsdóttir.
Islenskir vordag-
ar í verslunum
23. maí -1. júní
DAGANA 23. maí-1. júní nk. efna Félag íslenskra iðnrekenda og
Kaupmannasamtökin til stórátaks í kynningu og sölu á íslenskum
iðnaðarvörum á neytendavörumarkaði undir kjörorðinu íslenskir
vordagar.
Rúmlega 20 verslanir innan
Kaupmannasamtakanna og tæp-
lega 30 framleiðendur taka þátt í
íslenskum vordögum sem eru liður
í umfangsmiklu kynningarstarfi
sem Félag íslenskra iðnrekenda
hefur staðið fyrir undanfarin ár.
Að undirbúning og framkvæmd
íslenskra vordaga leggja mörg
hundruð starfsmenn iðnaðar og
verslunar hönd á plóg.
Markmið þessara daga er að
efla iðnað í landinu með kynningu
og sölu íslenskra neytendavara og
styrkja samstarf og nauðsynlega
samvinnu verslunar og iðnaðar.
Auk þess mun starfsfólk verslana
og framleiðendur leggja sig fram
við að gera verslunarferðina enn
ánægjulegri en ella.
Nær þijú hundruð vörukynning-
ar verða á Islenskum vordögum.
Þá verður getraunaleikur í gangi í
samvinnu við útvarpsstöðina Bylgj-
una. Vegleg verðlaun eru í boði,
m.a. íslenska innkaupakarfan, þ.e.
vörur frá öllum framleiðendum sem
taka þátt í íslensku vordögunum
og vöruúttekt í viðkomandi versl-
unum. Einnig verður í gangi sér-
stakt happdrætti með helgarferð
fyrir tvo til Amsterdam með Ratvís
í vinning.
íslenskir vordagar verða haldnir
í eftirtöldum verslunum: I öllum
Nóatúnsverslunum, Austui’veri,
Grímsbæ, Breiðholtskjöri, Hamra-
kjöri, Sunnukjöri, Plúsmarkaðnum,
Alfaskeiði og Vesturbergi, Kjöt-
stöðinni, Kársneskjöri, Melabúð-
inni, Kjörbúð Hraunbæjar, Kjöt-
höllinni, Vogaveri, Stórmarkaðn-
um, Keflavík og versluninni Rangá.
(Fréttatilkynning)
Myndlistarþing
haldið á morgnn
SAMBAND íslenskra myndlist-
armanna gengst fyrir myndlist-
arþingi í Borgartúni 6, föstu-
daginn 24. maí og hefst þingið
kl. 10.00.
Á þinginu verða tekin fyrir þau
mál sem helst brenna á myndlistar-
mönnum og samtökum þeirra, SÍM,
og mikilvert þykir að vekja athygli
á og fá umræðu um.
Menntamálaráðherra, Ólafur G.
Einarsson, mun ávarpa þingið.
Þingforseti er Björn Th. Björnsson
og fundarstjóri Ásrún Tryggva-
dóttir. Verndari þingsins er forseti
íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir.
Erindi sem flutt verða eru:
Myndstef og myndlistarréttur,
Knútur Bruun, hrl., lögmaður SÍM,
Miðlun myndlistar, Gunnar Árna-
son,_ kennari í listheimspeki við
MHÍ, Nýtt hlutverk Starfslauna-
sjóðs myndlistarmanna í ljósi nýrra
laga um listamannalaun? Þórunn
Hafstein, lögfræðingur, formaður
Starfslaunasjóðs myndlistamanna
og Starfsskilyrði og hlutverk mynd-
listarmanns á íslandi, Hannes Lár-
usson, myndlistarmaður.
Eftir hádegi verða pallborðsum-
ræður og stjórnandi þeirra er Sig-
urður G. Tómasson útvarpsmaður.
Þátttakendur í pallborði verða
Bjarni Daníelsson, skólastjóri
Myndlistar- og handíðaskólans,
Halldór Ásgeirsson, myndlistar-
maður, Jónína Guðnadóttir, mynd-
listarmaður og formaður NKF,
Ólafur Jónsson, forstöðumaður
Listasafns ASÍ, og Þorgeir Þor-
geirsson, rithöfundur.
Eftir pallborðsumræður verða
svo opnar umræður. Áætlað er að
þinginu ljúki kl. 17.00.
(Fréttatilkynning)