Morgunblaðið - 23.05.1991, Side 41

Morgunblaðið - 23.05.1991, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAI 1991 41 Leslie J. T. Ashton Jóhanna F. Péturs- dóttir - Hjónaminning Jóhanna Fanney Fædd 26. febrúar 1923 Dáin í nóvember 1962 Leslie J.T. Ashton Fæddur 18. apríl 1920 Dáinn 15. febrúar 1991 Jóhanna var dóttir hjónanna Sig- urbjargar Pétursdóttur og Péturs B. Jónssonar skósmiðs og bílstjóra en þau bjuggu fyrstu ár hjúskapar síns á Eskifirði. Jóhanna ólst upp í föðurhúsum. Þegar á unglingsár- um byijaði Jóhanna eða Didda eins og hún var yfirleitt kölluð (af okk- ur) að vinna og var í vist hjá hinum ýmsu heimilum. í stóra systkina- hópnum var það talið sjálfsagður hlutur að fara að vinna fyrir sér strax og skóla lauk. Þegar Ijölskyldan flutti til Akur- eyrar 1938 var hún í vist hjá fjöl- skyldu á Eskifirði og fór því ekki strax með okkur. Um haustið 1940 kom_ hún til okkar en einmitt þá var Island hernumið og með breska herinn í öllum hornum. Didda hóf þegar að vinna og var í hinum ýmsu vistum, meðal annars í vist hjá Steffensen lækni sem þá bjó í Hafnarstræti 88, en í þessu húsi var einnig til húsa skrifstofa á veg- um breska hersins. Á þessari skrif- stofu var maður sem vann sem sendill og var á mótorhjóli, hann hét Leslie John Thomas Ashton. Ekki gátu þau komist hjá því að sjá hvort annað, hermaðurinn og vinnukonan, og varð sú sjón ást við fyrstu sýn. Ekki vorum við heima neitt stórhrifin af þessu en ástina beisla engin bönd enda fór svo að Leslie vann strax hug okkar allra með sinni rólegu og kurteisu fram- komu. Tíminn leið, og einn dag drógu þau upp hringana, það var svo í júní 1941 sem þau gengu í hjóna- band. Um kvöldið komu nokkrir vinir hans heim og allt voru þetta hinir geðugustu menn og ekkert annað en prúðmennskan. Þessir menn urðu góðir vinir okkar og varð það okkur mikill harmur þegar fiestir þessara manna _ iorust í innrásinni í Normandy. Á þessum tíma bjuggum við á Brekkugötu 33. Leslie varð vegna starfa í hernum 1942 að fara til Englands. Þetta ár fæddist þeim þeirra fyrsta barn sem var drengur sem nefndur var Leslie. Þegar drengurinn var 3 mánaða ákveður móðir hans að fara til Englands. Eina leiðin var að fara með skipi sem var á vegum hersins i herskipafylgd. Það var erfitt fyrir okkur öll að kveðja enda féllu mörg tár á þeirri kveðjustund. Fyrst varð hún að fara til Reykjavíkur og mik- il leynd hvíldi yfir öllu og mátti hún ekki segja okkur að hún væri að fara með skipinu þegar hún hringdi frá Reykjavík rétt áður en hún lagði af stað. Didda hafði ekki lært mikið í ensku en kunni samt byrjunarstaf- róf enskunnar. Ný sýndi hún mikinn kjark og þor þegar hún fór út í óvissuna. Engan þekkti hún í Eng- landi en nú kom í ljós að Leslie reyndist henni drengur hinn besti, og erum við öll þakklát fyrir hversu allt gekk vel hjá henni í Englandi. En eftir 6 ára dvöl komu þau heim til íslands. Nú var hópurinn stærri, börnin orðin 3. Leslje hóf störf hjá skinnaverksmiðju SÍS og vann þar næstu árin. 1953 ákváðu þau að flytja til Englands. Leslie hafði orð- ið fyrir því óhappi að skot lenti í handlegg hans er hann var með félögum sínum að veiða svartfugl, og var hann ekki samur eftir það. Hann naut engra bóta úr ti-ygging- um hér á landi vegna þess að þau voru bæði enskir ríkisborgarar. I Englandi mundi hann fá slíkar bætur og því fluttu þau aftur út. Alls áttu þau 9 börn og lifa 6 þeirra, í dag búa öll í Englandi. Þau eru Leslie, Ruby, Elsa, Angela, Ómar og Eddi. Þegar Didda lést þá bar það skjótt og óvænt að, hún stóð á fer- tugu og hafði fætt sitt síðasta barn sem lifði aðeins 1 viku, og aðeins 2 dögum eftir að hún kom heim af sjúkrahúsi lést hún. Ég fór' að jarðarförinni og fékk að flytja bæn á íslensku við útför- ina. Það var erfitt að heimsækja vini í slíkri sorg. Leslie var þá orðinn heilsulítill. Alla tíð höfðum við gott samband og ættingjar hafa sýnt okkur tryggð með því að heimsækja ísland. Sjálf- ur kom gamli Leslie til íslands fyr- ir 3 árum og var það honum mikið gleðiefni, hann gleymdi aldrei þeirri íslensku sem hann lærði. Leslie kvæntist aftur og naut ástúðar og aðhlynningar konu sinnar Olife til hinstu stundar, og hugsum við til hennar í dag og biðj- um Guð að styrkja hana í sorg henn- ar. Sömuleiðis sendum við ættingj- um og öllum vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum ykkur allrar Guðs blessunar og styrktar í sorg ykkar. Ég sendi einnig sérstak- ar kveðjur frá aldraðri móður okk- ar, en hún er afar þakklát fyrir allan þann kærleika sem hún naut frá þeim báðum. Leslie kallaði hana alltaf mömmu og það yljaði henni einnig hversu hann var alltaf hlýr og notalegur í hennar garð. Með hjartans kveðju og þökk fyrir allt og allt, frá aldraðri ömmu og ættingjum á Islandi. Bogi Pétursson I 24" 18 gíra fjallahjól með smellugírum I ákr. 24.675.- I 20" 3ja gíra fjallahjól á kr. 13.760. - ' 16" fjallahjól á kr. 10.850.- 14" fjallahjól á kr. 10.630.- (■ BMX hjól 12", 14", 16" og 20" \ frá kr. 7.780. - — 12.720. - Verð á fjallahjólum frá kr. 10.630.- Æm Verð á barnahjólum frá kr. 4.970. - ^ajs) DINO REIÐHJOL FALLEG - VONDUÐ - VINSÆL TómsTunDflHúao hf Laugavegi 164, sími 21901 Teg. MENTOR ERS Stærö 6-11 Teg. MAXIM HEXALITE Teg. CXT Stærð 31/2-7!/2 Stærð 8-11 Teg. EXO-FIT Stærð 6-12 Teg. IMPULSE Stærð 6-12 Teg. INSTRUCTOR Stærð 31/2-7!4 ÚTSÖLUSTAÐIR: Sportval Kringlunni Torgið Siglufirði Útilíf Glæsibæ Sún Neskaupstað Bikarinn Skólavörðustíg Axel Ó. Vestmannaeyjum Músík & sport Hafnarfirði Skóbúöin Keflavík Verslunin Óðinn Akranesi Tindastóll Sauðárkróki Sporthúsið Akureyri Sportbær Selfossi Teg. CLUB Stærð 31/2-71/2 Teg. BB 4600, barna Stærð 25-36 heildverslun Vilhjólmur Kjartansson Hvassalelfl 28 103 Reylq'avik Síml: 91-689477 Fax: 91-689419 Góðan daginn!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.