Morgunblaðið - 23.05.1991, Page 53

Morgunblaðið - 23.05.1991, Page 53
MORGUNBLÁÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991 53 SMAÞJOÐALEIKARNIR I ANDORRA Hart barist yið Kýpurmenn 1 slendingar koma til með að beijast við Kýpurmenn um 1 hvorir fái fleiri verðlaunapeninga á Smáþjóðaleikunum. Kýpur hefur fengið flest verðlaun á síðustu tveimur mótum. Nú hafa íslendingar fengið níu gull, níu silfur og þijú brons, þegar tveir keppnisdagar eru búnir. Kýpur hefur fengið fimm gull, eitt silfur og sex brons. Fjórir festust ílyftu ■JJ jórir kraftakarlar festust í lyftu á ■ hótelinu, þar sem íslensku íþrótta- mennirnir búa á hér í Andorra. Það voru þeir Sigurður Einarsson, Einar Vil- hjálmsson, Eggert Bogason og Sigurður Bergmann, júdókappi. Eggert Guðmundur sparaði FRÍ fimmtán þús. kr. uðmundur Karlsson, sleggjukastari, sparaði Fijáls- Wi íþróttasambandinu fímmtán þúsund krónur í gær, þeg- ar hann óskaði eftir að fara í iyfjapróf í Andorra. Guðmund- ur óskaði eftir því í kjölfarið á íslandsmeti sínu, sem hann setti í Hafnarfirði um sl. helgi, en allir þeir sem setja íslands- met verða að fara í lyfjapróf. 4íVOorra MKKI og Ólympínefnd íslands hafa krafist þess að mótshaldarar í Andorra greiði þeim 80.000 pe- seta, eða sem nemur um 40.000 íslenskum krónum vegna ferða- kostnaðar Kristins Albertssonar körfuknattleiksdómara. Hann fór á mótið til að dæma en fær síðan ekkert að dæma og því vilja íslend- ingar fá endurgreiddan ferðakostn- að hans. MEin stúlka í körfuknattleiksliði Kýpur virðist vera ólögleg. Forráða- menn liðsins hafa ekki getað sýnt fram á að hún hafí verið búsett í þijú ár á Kýpur, en það þarf til að vera löglegur. Kýpurbúar hafa frest til kl. 11 { dag til að sanna mál sitt og ef það tekst ekki verður íslensku stúlkunum dæmdur sigur gegn þeim, en þær töpuðu leiknum, og leika þá til úrslita við Lúxem- borg. MBJÖRN Guðbjartsson hefur dæmt tvo blakleiki hér. Fyrst leik Kýpur og Möltu og í gær dæmdi hann leik San Marino - Möltu. MKARLALIÐIÐ í blaki tapaði fyrir Lúxemborg í gær í þremur hrinum, 6:15, 5:15 og 9:15. Áður hafði liðið tapað fyrir Liechtenstein með sama mun. BTennismennirnir Einar Sigur- geirsson og Atli Þorbjörsson töpuðu í gær í tvíliðaleikskeppninni í tennis. MTVEIR skotmenn hófu keppni í haglabyssuskotfimi í gær. Það voru þeir Gunnar og Theódór Kjartans- synir. Þeir fengu það hlutverk að skjóta á 75 leirdúfur. Gunnar hitti 67, sem var fjórði besti árangur og Theódór náði að hitta 56. MALLS taka 685 íþróttamenn þátt í Smáþjóðaleikunum. Flestir koma frá Kýpur, eða 119. Andorra er með 106 íþróttamenn, en íslending- ar eru 87 talsins. M GUNNAR Guðmundsson tryggði sér silfurverðlaun í 400 m hlaupi, er hann kom í mark á tíman- um 48,29 sek., en sigurvegari var Marcoullides frá Kýpur, sem fékk tímann 47,27 sek. „Ég átti ekki möguleika gegn honum. Hann er það sterkur," sagði Gunnar, sem var ánægður með árangur sinn. „Ég hef átt við meiðsli að stríða og hef aðeins haft einn mánuð til að gera mig kláran fyrir keppnina hér.“ MEGGERT Bogason kringlu- kasstari er að reyna að fá inni á mótinu í Sevilla, þar sem spjótkast- ararnir Sigurður Einarsson og Ein- ar Þór Einarsson fara til að keppa á. MSUNDLANDSLIÐIÐ fer í æf- ingabúðir til Frakklands, þar sem sundmennirnir verða í þrjár vikur eftir keppnina í Andorra. MJÓN Oddson tók þátt í þrístökkskeppninni í gær og hafn- aði hann í fjórða sæti. Jón stökk lengst 14.21 m, en sigurvegarinn stökk 16.52 m. - tok þátt í 100 m grindahlaupi og 200 m hlaupi með stuttu millibili og vann gull í báðum greinunum „GUÐRÚN sýndi geysilega keppnishörku í 200 m hlaupinu. Hún var sex metrum á eftir hinum stúlkunum þegar 50 m voru eftir í mark, en með f rá- bærum lokaspretti náði hún að tryggja sér sigur,“ sagði Stefán Jóhannsson, frjálsíþróttaþjálf- ari, eftir að Guðrún Arnardóttir vann 100 m grindahlaup og 200 m hlaup strax í kjölfarið. etta var nokkuð strembið en geysilega skemmtilegt,“ sagði Guðrún sem vann 100 metra grindahlaupið á miklum enda- spretti, hljóp á 14,19 sek, sem er Smáþjóðamet. Þórdís Gísladóttir varð fimmta á 14,95 sek. Strax eftir hlaupið fór Guðrún til að taka þátt í 200 m hlaupi, en þar keppti hún vegna meiðsla Geir- laugar B. Geirlaugsdóttir, en Guð- rún er ekki þekkt fyrir að hlaupa 200 m, en hennar sterkustu greinar eru grindahlaup og 100 m hlaup. Guðrún sigraði, kom í mark á 24,72 sek., en í öðru sæti varð Constantinou frá Kýpur á 24,79 sek. „Ég hef best náð áður 24,09 sek. í 200 m hlaupi, en það var tekið á handklukku,“ sagði Guðrún, sem kom, sá og sigraði. Guðmundur ogPétur settuSmá- þjóðamet Tvöfalt hjá sleggju- og kúluvörpurunum Sigurvegarar í köstum Pétur Guðmundsson og Guðmundur Karlsson sigruðu í sínum grein- um á Smáþjóðaleikunum í Andorra í gær. Pétur í kúluvarpi og Guðmundur í sleggjukasti. ivuicuuan oiyui, uœui ■ uuiu- varpi og í sleggjukasti á Smá- þjóðaleikunum í gær. Hitinn var óþolandi á meðan á keppninni stóð og einnig var kringlukastshringurinn óþolandi," sagði Guðmundur Karlsson, sleggjukastari, sem varð sigurvegari í sleggjukastskeppn- inni á Smáþjóðaleik- unum í Ándorra í gær, en Eggert Bogason varð í öðru sæti. „Hringurinn er nýr og er hann SigmundurÓ. Steinarsson skrifarfrá Andorra Guðrún kom, sá og sigraði mjög sleipur og við áttum í erfiðleik- um með að fóta okkur í honum,“ sagði Guðmundur, sem náði ekki að bæta Islandsmet sitt eins og hann vonaðist eftir. Guðmundur setti þrjú Smáþjóðamet — kastaði sleggjunni 61.44 m, 62.02 m og 63.64 m, sem var ekki langt frá meti hans — 64,42 m. Guðmundur_ náði einu kasti, sem var 64.90 m, en hann rann til í hringnum og kastaði sleggjunni út fyrir kast- geirann. Eggert Bogason, sem varð annar, var samt á undan Guðmundi að setja Smálþjóaðmet, þar sem hann kastaði á undan honum — 53.78 m, en lengsta kast hans var 55.04 m. „Það var aðalatriðið að vinna tvöfalt,“ sagði Eggert. Einnig tvöfalt í kúluvarpi Bræðurnir Pétur og Andrés Guð- mundssynir héldu merki íslands á lofti í kúluvarpskeppninni, en þeir röðuðu sér í tvö efstu sætin. „Það var erfitt að kasta úr hringnum, sem var háll sem áll. Ég varð að skipta um skó nokkrum sinnum til að geta fótað mig í hringnum," sagði Pétur, sem kastaði lengst allra, eða 18.61 m. „Ég tognaði á vöðva í brjóstkassa í fyrsta kasti mínu og það háði mér,“ sagði Pét- ur, sem hefur einnig verið með flensu. Andrés kastaði kúlunni 17.11 m. Pétur tekur þátt í kringlu- kasti á morgun, en síðan halda þeir bræður til Grenada, þar sem þeir taka þátt í alþjóðlegu móti. „Það var gott að bæta Smáþjóða- metið, sem ég setti í Mónakó 1985 er ég kastaði 18.53 metra,“ sagði Pétur. Næsta stérverk- efnierí Portúgal Næsta stórverkefni hjá íslenskum fijálsíþrótta- mönnum er Evrópumótið í Port- úgal, þar sem einn maður kepp- ii' í hverri grein. „Við förum fyrst til Bretlandseyja og kepp- um þar gegn landsliðum Skot- lands, Wales, írlands og Norður-írlands. Við höldum í þessa ferð um miðjan júní,“ sagði Guðmundur Karlsson, sleggjukastari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.